Fréttablaðið - 11.05.2001, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
11. maí 2001 FÖSTUDAGUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadéild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjórn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
| BRÉF TIL BLAÐSINS~j
Æsingar
gegn Ijóskum
Bjartur skrifar:
Ljóska settist á Saga class í vél á
leiðinni til New York og Baltimore.
Flugfreyjan benti henni á það að miði
hennar gilti ekki á fyrsta farrými.
Ljóskan sat sem fast-
ast. Þá var kallað á
flugstjórann og hann
skiptist á nokkrum
orðum við ljóskuna
.sem síðan gekk snúð-
ugt aftur í almenna
farrýmið.
-Hvað sagðirðu
við hana, spurði flug-
freyjan?
- Ég sagði henni
að Saga Class færi
ekki alla leið til
Baltimore.
Svona brandarar
um ljóskur eru til í hundraðatali. Þess
vegna var gaman að lesa bréf í sænska
Metro frá stúlku sem spyr hvort það sé
ekki jafn alvarlegt mál að æsa fólk
gegn ljóskum eins og að efna til æsinga
með kynþáttafordómum og bröndur-
um sem eru meiðandi fyrir þjóðarbrot
og minnihlutahópa. Ljóskubröndurum
rignir yfir stúlkur og eru þeir notaðir í
einelti og kynferðislegu áreiti. Kennar-
ar þegja, löggan þegir, ákærendur þeg-
ar og stjórnmálamenn láta sig þetta
engu skipta. Á ekki að banna ljósku-
brandara?
Nei, því hvað yrði þá um alla brand-
arana um rauðhausa, Hafnfirðinga og
annað sérkennilegt fólk. Hvar sem
tveir menn hittast hafa þeir þörf fyrir
að segja sögur og viðra sleggjudóma
sína og fordóma í garð náungans. Það
er hluti af sjálfsmyndinni að segja
brandara á annarra kostnað og hefja
sig yfir aðra með því að finna einhvern
hóp sem er öðruvísi en meðal-jóninn.
Og ljóskubrandarar geta verið vottur
um öfund.
Oftast eru brandarar af þessu tagi
frekar sakiausir. En mörkin eru hárfín
og það er rétt hjá ljóskunni að ef yfir
þau er farið þá getur verið stutt í ein-
elti og áreiti. Á því eigum við að taka
hvert á okkar stað í samfélaginu. ■
MARILYN
MONROE
Frummynd
Ijóskunnar.
Betra hjá Thatcher og Blair en á íslandi
Ung kona með barn á framfæri
kom í haust frá Bretlandi og hóf
búskap hér í heimalandi sínu. Mér
brá svolítið þegar hún fór að býs-
nast yfir því að
allt í heilbrigðis-
„Það er rétt kerfinu hér væri
að Thatcher dýrara en hjá
snerti aldrei Bretum. Þar kost-
grunninn." aði læknisþjón-
+ usta og lyf bók-
staflega ekki neitt
fyrir börn og ungar konur. Ég hafði
alltaf haldið að við værum með
besta heilbrigðiskerfi í heimi og
það væri í öllum aðalatriðum kost-
að úr sameiginlegum sjóðum.
Einhvernveginn féll ég líka fyr-
ir þeim áróðri breska Verkamanna-
flokksins að Lafði Thatcher og öðr-
um íhaldsforkólfum hefði á 16
árum sínum í ríkisstjórn tekist að
mola breska heilbrigðiskerfið mél-
inu smærra. Svo gat að lesa í The
Economist að Tony Blair hefði
passað sig á öllum kostnaðarfrek-
um umbótum í heilbrigðiskerfinu
og þess vegna var auðvelt að ályk-
ta sem svo að allt væri við sama
heygarðshornið í Bretlandi. En ó
ekki! Hvað segðu menn um það á
íslandi ef heimsókn til læknis væri
ókeypis, ef lyf til barna undir 16
ára aldri væru ókeypis, ef getnað-
arvarnir til ungra kvenna væru
ókeypis, ef ýmis önnur læknisþjón-
usta væri ókeypis. Ég held að mörg
barnafjölskyldan hér á landi þætti
sig hafa himinn höndum tekið, amk
hefði hún meira fé milli handa. En
svona er þetta í Bretlandi.
„Það er rétt að Thatcher stjórn-
Mál manna
EINAR KARL HARALDSSON
ræðir við fyrrverandi landlækni
um kostnaðarþátttöku
( Bretlandi og á l’slandi
in snerti aldrei þann grunn að
læknisþjónusta væri sjúklingum
að kostnaðarlausu", segir Ólafur
Ólafsson fyrrverandi landlæknir.
„Það var mikill slagur um þetta og
hún var gagnrýnd fyrir að leggja
niður opinbert gæðaeftirlit, fyrir
biðlista eftir þjónustu og fyrir
fækkun í heilbrigðisstéttum. En
kostnaðarþátttaka er lítil sem eng-
in í Bretlandi, það er rétt.“ Biðlist-
ar eru vissulega enn hitamál í
Bretlandi en myndast ekki einnig
flöskuhálsar í kerfinu hér á landi?
Enn einu sinni bíður sjálfsmyndin
hnekki þegar í ljós kemur að allt er
ekki best á íslandi. ■
Hækkun lágmarkstekna
Viðráðanlegt að bæta kjör lífeyrisþega sem tekjulægstir eru.
velferð í ávarpi Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra á ráðstefnu Al-
þýðusambands íslands um framtíð
velferðarkerfisins 28. mars sl. íhug-
aði hann m.a. hverj-
ar væru þær grund-
vallar forsendur
sem velferðarkerfi
okkar íslendinga
byggði á. Tvennt
skipti þar mestu
máli að hans mati.
Hið fyrra snéri að
því fyrir hverja vel-
ferðarkerfið væri,
hverjum vildum við
veita aðstoð úr sam-
eiginlegum sjóðum
landsmanna. „En
HÁLPARSTEFNA
Leiðarsteinn að
hjálpa þeim sem
ekki eiga mögu-
leika á að hjálpa
sér sjálfír, sagði
Davíð Oddsson.
leiðarsteinn okkar á að vera sá að við
eigum að hjálpa þeim sem einhverra
hluta vegna eiga ekki möguleika á
því að hjálpa sér sjálfir. Þessi á að
mínu viti að vera grundvallarhugsun
velferðarkerfis okkar íslendinga."
Hið síðara sem nauðsynlegt væri að
hafa hugfast þegar rætt væri um vel-
ferðarkerfið væru að sjálfsögðu
efnahagslegar forsendur þess að
þjóðfélagið fengi staðið undir þeim
væntingum sem við gerum til sam-
hjálparinnar. í stefnuyfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar segir m.a. að stefnt
verði að því „að endurskoða almanna-
tryggingakerfið svo og samspil þess
við skattakerfið og lífeyrissjóðakerf-
ið með það að markmiði að umfang
og kostnaður stjórnsýslu verði sem
minnst og framkvæmd verði og sam-
ræmd til hagsbóta fyrir bótaþega.
Áhersla verði lögð á að tryggja sér-
staklega kjör öryrkja, fatlaðra og
aldraðra sem lægstar tekjur hafa.“
Ekki verður annað séð en ríkisstjórn-
in sé samkvæm sjálfri sér í tillögum
sínum um breytingar á almanna-
tryggingalögunum. Hún sneiðir hjá
aðaldeilumálinu um að bæta öryrkj-
um og ellilífeyrisþegum mismun á
hækkun grunnlífeyris og tekjutrygg-
ingar og hækkun almennra dag-
vinnulauna á síðasta áratug, en greið-
ir fyrir aukinni atvinnuþátttöku ör-
yrkja og aldraðra, m.a. með að draga
úr vægi tekjutengingar hjá þeim
verst settu og hjónum.
í áðurnefndu ávarpi Davíðs Odds-
sonar sagði hann m.a.: „Þegar litið er
á dreifingu tekna lífeyrisþega kemur
í Ijós að þá tekjulægstu er einkum að
finna annars vegar í hópi allra elstu
ellilífeyrisþega og hins vegar í hópi
öryrkja. Þeir elstu njóta yfirleitt
minni greiðslna úr lífeyrissjóðum en
þeir sem nú eru að fara á eftirlaun og
möguleikar þeirra til að afla sér at-
vinnutekna eru vitaskuld ekki miklir.
Meðal öryrkja eru það þeir sem litla
möguleika hafa til að afla sér at-
vinnutekna og/eða hafa litlar eða eng-
ar greiðslur úr lífeyrissjóði sem
minnstar tekjur hafa. Sem betur fer
er hér ekki um stóra hópa að ræða og
því viðráðanlegra en ella að bæta hag
þeirra. Æskilegt er að gera það innan
núverandi kerfis en síður með sér-
stökum viðbótum sem gerði kerfið
enn flóknara en ella. Þetta má t.d.
gera með því að svonefnd sérstök
heimilisuppbót verði formlega sú
lágmarks- tekjutrygging, sem hún er
í reynd í dag og nái þá einnig til hjóna
í einhverjum mæli.“ ■
NOKKRAR STAÐREYNDIR
• Hækkun á tekjutryggingarauka úr 7.409 f 14.062 krónur
• Skerðing á tekjutryggingarauka vegna tekna lækkuð úr 100% í 67%
^ Frítekjumark ellilífeyrisþega hækkað ( 32.512 kr. úr 22.380
• Sérstakt frítekjumark hjóna 7.093 kr. á hvort
• Almennt frítekjumark hjóna hækkað um 10 þúsund
• Grunnlífeyrir hjóna hækkar úr 90% af lifeyri einstaklings ( 100%
% Lágmarkstekjur hjóna á ellilífeyrisaldri verða 60.651 kr.
. Sveigjanleg starfslok til 72 ára áldurs gegn hækkun
allra bótaflokka um 0.5% á mánuði
• Skerðing á tekjutryggingu öryrkja kemur aðeins á 60% atvinnutekna þeirra
Frítekjumark grunnlífeyris verður 105,930 fyrir alla lífeyrisþega.
TRYGGINGARSTEFNA
Samtök aldraðra vilja að grunnlífeyrir og tekjutrygging hækki til samræmis við almenna
launaþróun á vinnumarkaði siðasta áratug.
Tryggingar fylgi launum
Viss kerfisbreyting í því fólgin að hvetja aldraða
og öryrkja til atvinnuþátttöku.
ir Ólafur i
velferð Það hefur ekki orðið kerfis-
breyting með hugmyndum ríkis-
stjórnarinnar um breytingar á al-
mannatryggingarlögunum. Þetta seg-
lafsson fyrrum landlækn-
ir og formaður Sam-
taka aldraðra. „Við
nefnum þetta fá-
tækrastyrki til þess
að leggja áherslu á
að hér er verið að
bæta hag hinna
verst settu að
nokkru, en eldri
borgarar og öryrkj-
ar verða áfram ann-
ars flokks fólk
vegna þess að
grunnlífeyrir og
tekjutrygging eru
ekki hækkuð til
samræmis við þró-
un dagvinnulauna á
AÐALMÁLIÐ
ÓLEYST
Vantar 18% á að
grunnlífeyrir og
tekjutengingar nái
því hlutafalli af
dagvinnulaunum
verkamanns sem
var 1991, segir
Ólafur Ólafsson.
vinnumarkaði. Af okkar hálfu erum
við að tala um tryggingar en ekki
neyðarhjálp. Ef ætti að tala um kerf-
isbreytingu þá er það sú áhersla sem
kemur fram í því að rýmka mögu-
leika öryrkja til atvinnuþátttöku og
gera starfslok aldraðra sveigjanlegri
en verið hefur. Það er til bóta. Það er
verið að vísa fólki á að vinna sig út úr
vandanum, en ekki að refsa því fyrir
að sýna sjálfsbjargarviðleitni eins og
var.“
Ólafur bendir á að þróun grunnlíf-
eyris og tekjutengingar á síðasta ára-
tug sem hlutfall af almennum dag-
vinnulaunum verkamanns á höfuð-
borgarsvæðinu hafi lækkað úr 51,7%
árið 1991 niður í 43,8% árið 1999 og
stefni í enn frekari lækkun á næstu
árum. „Tryggingar eiga að þróast í
samræmi við laun og það hafa þær
ekki gert. í því liggur vandinn og rík-
isstjórnin hefur ekki bætt úr honum.
En þeir segja að þetta sé fyrsta
skrefið og það hlýtur að verða eftir
því gengið næsta haust að hin næstu
verði stigin." Þá minnti Ólafur á að
miklar hækkanir hefðu á síðustu
árum orðið á þjónustugjöldum og
fasteignagjöldum sem kæmu mjög
við hag aldraðra. ■
>iKomdu^
,í Bílanaust
öruggur með
á toppnum
Núna
errétti
tíminn!!
naust
ORÐRÉTT
Ætlast til að prestar virði ekki vígsluheit sín
gagnagrunnur í samningi Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og
íslenskrar erfðagreiningar er gert
ráð fyrir að prestar og djáknar
skrái upplýsingar í sjúkraskrár
sem eigi síðan að fara í gagna-
grunninn. Ætla má að samningar
við aðrar heilbrigðisstéttir þar sem
sömu stéttir eru við störf séu sam-
hljóða. Hér þarf þjóðkirkjan að at-
huga sinn gang. Þetta má aldrei
verða. Hér er beinlínis gert ráð fyr-
ir að prestar og djáknar bregðist
skyldum sínum við Guð og menn, að
þeir virði ekki vígsluheit sitt og tvö-
þúsund ára hefð kirkjunnar. Gagna-
grunnslögin eru ótrúleg smíð og
svo meingölluð að þau vega að hel-
stu siðferðisgildum elstu stétta
samfélagsins, þau eru aðför að
starfsheiðri presta, lækna og ann-
arra heilbrigðisstétta - aðför að sið-
ferðisgrunni þjóðarinnar. Sem
prestur og fyrrverandi djákni brýni
ég starfssystkini mín að láta aldrei
upplýsingar úr sálgæslusamtölum
eða skriftamál af hendi við nokkurn
mann eða yfirvöld, sama hvað í boði
er.
Gerist það grefur þjóðkirkjan
sína eigin gröf. Og hver getur
treyst læknum sem láta persónu-
upplýsingar af hendi - og jafnvel
fyrir peninga?
Séra örn Bárður Jónsson í Morgun-
blaðsgrein fimmtudaginn 10. maí 2001.