Fréttablaðið - 07.06.2001, Qupperneq 11
FIMIVITUDACUR 7. júní 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Bilið minnkar skyndilega
Forskot Blair að nálgast 10% í skoðanakönnunum. Kosið um framtíð Bretlands,
segir Hague. Frjálslyndir gætu bætt verulega við sig.
KosNiNCAR. Skoðanakönnun ICM/Guar-
dian í gær gaf Verkamannaflokknum
43% atkvæða, íhaldsmönnum 32% og
frjálslyndum 19%. Forskotið, sem var
allt að 20% fyrir
viku hefur því
minnkað niður í 11%.
Verði niðurstaðan í
samræmi við könn-
unina fækkar þing-
sætum Verkamanna-
flokksins úr 179 í
167. Svo virðist sem
Frjálslyndir
Demókratar hafi
einkum notið góðs af
Stjórnmála-
sagan full af
„öruggum"
hlutum sem
síðar kom á
daginn að
voru allt ann-
að en öruggir,
segir Blair
—4—
fylgistapinu, en þeir hafa á sl. tveimur
vikum farið úr 14% í 19.
Kosningabaráttunni lauk formlega
í gærkvöldi og þeyttust leiðtogarnir
landshorna á milli til að koma skila-
boðum sínum til mikilvægra svæða.
Skilaboðin þóttu einna helst vera á til-
finningalegum nótum fremur en upp-
talning á atriðum úr stefnuskrám.
Blair hvatti fólk til að gefa sér „tæki-
færi til að halda áfram starfinu sem
þegar [væri] hafið.“ Virtist hann hafa
af því áhyggjur að kjósendur ætluðu
að sitja heima í dag. „Stjórnmálasag-
an er full af dæmum um örugga hluti
sem síðar kom á daginn að voru allt
annað en öruggir," sagði Blair,
áhyggjufullur yfir nýjustu tölum
skoðanakannana. William Hague sagði
framtíð Bretlands vera í húfi í kosn-
ingunum í dag: „Kjósendur þurfa að
spyrja sig hvernig land þeir vilja að
börn og barnabörn þeirra erfi,“ sagði
Ilague. Charles Kennedy, leiðtogi
frjálslyndra, sagði að atkvæði greitt
frjálslyndum væri atkvæði gegn nú-
verandi skipan mála í almennings-
þjónustu og lofaði miklum umbótum.
Margir breskir stjórnmála-
skýrendur telja helstu ástæðu þess
að Verkamannaflokkurinn haldi enn
umtalsverðu forskoti vera þá að kjós-
endur treysti honum betur en öðrum
til að veita öfluga almenningsþjón-
ustu. 36% aðspurðra í gær töldu að
mennta- og heilbrigðiskerfin myndu
batna í höndum Blair, en aðeins 16%
töldu að það myndi versna. ■
CHARLES KFNNEDY ÓSKAÐ ALLS
HINS BESTA
Á síðasta degi baráttunnar dró verulega
saman með þremur stærstu flokkunum.
Charles Kennedy og frjálslyndir bættu við
sig á meðan Verkamannaflokkurinn missti
nokkur prósentustig.
UNDIR HENDUR RÉTTVlSINNAR
Óeinkennisklæddir lögreglumenn fylgja ritstjóra og útgefendum stærsta dagblaðs Nepals, Kantipur Daily út úr byggingu blaðsins.
Ritstjórinn, Yvraj Ghimire er annar frá vinstri. Blaðið birti grein eftir uppreisnarleiðtoga.
Handteknir fyrir
að birta grein
Ostöðugleiki skekur Nepal. Takmarkað skoðanafrelsi í kjölfar blóðbaðsins
í konungshöllinni. Gætu fengið þriggja ára fangelsi.
KflTMflNDU. NEPAL, flP. RÍtStjÓri Og tveir
útgefendur stærsta dagblaðs Nepals,
Kantipur Daily, voru handteknir
vegna gruns um landráð, en blaðið
birti grein eftir Baburam Bhattari,
leiðtoga uppreisnarhreyfingar í land-
inu. í greininni hvatti Bhattari bæði
her og landsmenn til að snúast gegn
hinum nýja forseta Gyanendra. Nýi
valdhafinn var krýndur sl. mánudag í
kjölfar þess að frændi hans, Dipendra
krónprins, drap nokkra meðlimi kon-
ungsfjölskyldunnar og sjálfan sig.
„Við hvetjum hinn konunglega
her til að hætta stuðningi við brúð-
urnar sem tekið hafa sér bólfestu í
konungshöllinni og taka upp málstað
raunverulegra ættjarðarvina," skrif-
aði Bhattari. Dagblaðið hefur áður
birt greinar eftir uppreisnarleiðtog-
ann, en ástæða handtökunnar nú er
talin vera óstöðugleikinn sem nú
skekur Nepal. Samkvæmt stjórnar-
skránni geta þeir sem gerast sekir
um landráð fengið 3 ára fangelsi
ásamt fjársektum. Ekki er ljóst hvert
framhald málsins verður. ■
Kviknaði í húsbíl
Boðkerfi Neyðarlínunnar virkaði ekki sem skyldi, en
snarræði slökkviliðsmanna kom í veg fyrir sprengingu
DflLVÍK Litlu munaði að illa færi þegar
kviknaði í húsbíl fyrir utan íbúðarhús
á Dalvík laust eftir átta í gærkvöld.
Slökkvilið staðarins var ekki nema
fimm mínútur á vettvang og tókst að
slökkva eldinn. Gasslanga við
kósangaskút gaf sig og var kúturinn
sjálfur orðinn svartur þegar slökkvi-
liðsmenn náðu honum út úr bílnum.
Hefði getað farið iila ef hann hefði
sprungið.
Að sögn lögreglunnar voru við-
brögð vaskra manna slökkviliðsins
ótrúlega hröð. Fyrstu boð bárust
manni á sömu mínútu og tilkynnt var
um brunann, en boð til síðasta manns
bárust sjö mínútum síðar. Hann var
þá mættur til starfa og var langt kom-
inn í slökkvistarfi. Olag virðist því
vera á útkallskerfi símans og ekki
gott til þess að vita þegar sekúndur
skipta máli. Samkvæmt upplýsingum
frá Neyðarlínunni eru vandkvæði á
því að öll boð fari út á sama tíma og er
um að kenna tæknilegum vandræðum
hjá Landssímanum. ■
Elsta kona í heimi látin
paris. ap Hin 115 ára gamla Marie
Bremont lést í svefni í gærnótt á
hjúkrunarheimili í bænum Cande í
Frakklandi. Samkvæmt heimsmeta-
bók Guinness var hún elsta mann-
eskja í heimi. Hún fæddist árið 1886 í
Maine-et-Loire og hélt hún upp á 115
ára afmæli sitt 25. apríl síðastliðinn. ■
o
HANDFLOKUN
HATIÐ
Sjómannadagurinr = Hafnardagurinn
Dagskrá hátíðarinnar 9. til 10. júní er á vefnum: www.rvk.is/hofnin
Netmarkaðurínn
Framsækin netverslun
www.netmarkadurinn.is
Hlutafjárútboði Kaup-
þings hf. er nú lokið:
Forgangsrétt-
arhafar keyptu
allt hlutafé
hlutafjárútboð Hlutafjárútboði Kaup-
þings hf. er nú lokið. í boði var nýtt
hlutafé, 200 milljónir króna að nafn-
virði eða 2.480 milljónir króna að
söluvirði. Forgangsréttarhafar
skráðu sig fyrir öllu því hlutafé sem í
boði var, en alls óskuðu forgangsrétt-
arhafar eftir kaupum á 262 milljón-
um króna að nafnvirði, eða 3.246
milljónum króna að söluvirði. Um-
frameftirspurn var því 31% eða um
766 milljónir króna að söluvirði. Eig-
endur rúmlega 97% hlutafjár í Kaup-
þingi hf. nýttu sér forgangsrétt sinn í
útboðinu. Vegna þessa kemur ekki til
sölu á hlutafé í Kaupþingi hf. til al-
mennra fjárfesta. Tilgangur hluta-
fjárútboðs Kaupþings hf. er að fjár-
magna vöxt og viðgang félagsins, en
Kaupþing hf. er nú með starfsemi í
sex löndum utan fslands. ■
Hekla innkallar 700 bíla:
Galli í Pajero-
bifreiðum
BiFREiDflGflLLi Bílaumboðið Hekla hef-
ur tekið ákvörðun um að innkalla 700
Mitsubishi Pajero-bifreiðar af ár-
gerðinni 1994-1997. Ástæða innköll-
unarinnar má rekja til bilana í stýr-
isarmi ökutækjanna, en einn þeirra
sem varð fyrir því óláni að stýrið
virkaði ekki var Kristján L. Möller,
alþingismaður. Kristján hafði sam-
band við Heklu út af biluninni og eft-
ir tveggja vikna viðræður og rann-
sókn hjá Iðntæknistofnun ákvað
Hekla - í samráði við Mitsubishi
Motors í Japan - að skipta um stýr-
isarm allra bifreiðanna sem um er að
ræða. Jón Trausti Ólafsson, fram-
kvæmdarstjóri þjónustusviðs Heklu,
sagði að fyrirtækið vissi um fimm til-
vik þar sem bilun kom upp í stýr-
isarminum með þeim afleiðingum að
stýrið virkaði ekki. Að sögn Jóns hef-
ur bilunin aldrei valdið því að orðið
hafi skaði á fólki eða tjón á bílum.
Allir eigendur bílanna munu fá bréf
frá Heklu á næstu dögum. ■
Rekstrarstjórar athugið
Leikskólakennarar
athugið
Tekið er á móti umsóknum um stöðu
rekstrarstjóra og einnig er óskað eftir
kennurum í fullt starf og hlutastörf við
nýja leikskólann í Áslandi í Hafnarfirði.
Islensku menntasamtökin ses
Vinsamlega sendið umsókn yðar og starfsferil til IMS,
PO Box 86, 222 Hafnarfjordur, or email to ims@ims.is
Fleiri upplýsingar eru að finna á vefsíðu okkar:
www.ims.is
AP/ANDREW PARONS