Fréttablaðið - 03.07.2001, Side 1
MENNING
Fólk í
tuttugu orðum
bls 18
FÆREYJAR
Góðufólki
líkaði
mótmælin
bls 12
SAMKEPPNI
Sigraði
borgina
bls 2 \
O
una.ner
FRÉTTABLAÐIÐ
....
49. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Þriðjudagurinn 3. júlí 2001
ÞRimUpAGUR
Sparisjóðsmál
fyrir dóm
dómsmál í dag verður mál ákæru-
valdsins gegn fyrrum sparisjóðs-
stjóra í Ólafsfirði tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra.
Milosevic
svarar til saka
strIðsgiæpir Slobod-
an Milosevic, fyrr-
verandi forseti
Júgóslavíu, kemur í
fyrsta skipti fyrir
dómara við stríðs-
glæpadómstólinn í
Haag í Hollandi í
dag. Milosevic er sakaður um
ábyrgð á stríðsglæpum og
fjöldamorðum í fyrrverandi
Júgóslavíu á undanförnum árum.
| VEÐRIÐ í DAGÍ
REYKJAVÍK Norðvestlæg átt,
5 til 8 m/sek. Skýjað
með köflum og skúrir.
Hiti 10 til 14 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður <9 3-8 Súld Q12
Akureyri O 3-5 Skýjað Q12
Egilsstaðir Q 3-8 Skýjað Q14
Vestmannaeyjar © 3-3 Súld 08
Einar Már
talar dönsku
fyrirlestur Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur heldur fyririestur
um eigin bækur og aðrar íslenskar
nútímabókmenntir í Norræna hús-
inu kl. 13.30 og mælir á danska
tungu. Að loknu erindi svarar hann
fyrirspurnum.
Enn fundað með
þroskaþjálfum
vinnudeila Sáttafundur í kjaradeilu-
þroskaþjálfa hefst hjá ríkissátta-
semjara klukkan 13 í dag.
Konur leika
heima og ytra
fótbolti U-17 Iandslið kvenna leikur
við Svíþjóð á Norðurlandamóti í
Noregi. Þrír leikir eru í símadeild
kvenna kl. 20 í kvöld.
j KVÖLDIÐ í KVÖLDI
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
Fögnuður breyttist í
slagsmál og handtöku
Lögregluþjónn kærður eftir átök á balli á Blönduósi. Verið var að fagna nýrri lögreglustöð.
Málið rannsakað í næsta umdæmi. Sá kærði var á frívakt.
LÍKAMSMEiÐiNGAR Lögregiuþjónn á
Blönduósi hefur verið kærður fyr-
ir líkamsrárás. Kærandinn segir að
lögreglan, sem var á frívakt, hafi
ráðist á sig fyrir utan skemmtistað
þar sem dansleikur fór fram. Fyrr
um kvöldið var verið að fagna opn-
un nýrrar lögreglustöðvar. Þar var
margt fyrirmenna samankomið og
eftir hófið fóru margir þeirra á
dansleik. Þeirra á meðal voru þrír
lögregluþjónar og sýslumaður
Húnvetninga, Kjartan Þorkelsson.
Það var nokkuð liðið á ballið þegar
kærandinn og einn lögregluþjón-
anna lentu í stimpingum.
„Ég er búinn að kæra þetta og er
búinn að fá lögfræðing tii að fara í
málið. Við eigum eftir að vita meira
um atvik, en ég var mikið ölvaður og
man ekki alla málavöxtu. Lögmaður-
inn hefur ekki fengið svar frá lög-
reglumanninum og því veit ég ekki
hvað hann ætlar að gera,“ segir kær-
andinn. Hann hefur lagt fram áverka-
vottorð til stuðnings kærunni, en það
fékk hann á mánudeginum, en eftir
slagsmálin var hann settur í fanga-
gcymslu. Lögregluþjónar á vakt
komu, að beiðni þeirra sem horfðu á
átökin, og handtóku manninn.
Kjartan Þorkelsson sýslumaður
kannast við málið en vill ekkert tjá
sig um það, segir að eðlilega hafi það
ekki verið rannsakað á Blönduósi þar
sem starfsmaður embættisins er
kærður. Ríkharður Másson, sýslu-
maður í Skagafirði, fékk málið til
rannsóknar. Hann segir rannsókn
þess rétt vera að hefjast. Eftir sé að
að yfirheyra þá sem tókust á og sjón-
arvotta. Þeirra á meðal er sýslumað-
ur Húnvetninga, samkvæmt því sem
kærandi segir.
Ríkharður Másson, segir aðspurð-
ur, að lögreglumenn á frívakt séu
eins og hverjir aðrir borgarar og ekki
sé unnt að gera til þeirra meiri kröf-
ur en annara.
„Ég rakst á lögregluþjóninn inni á
ballinu og þegar ég kom út var ráðist
á mig. Eftir það hringdu þeir á iög-
regluna og ég var handtekinn. Ég fer
með þetta alla leið og ætla ekki að
neitt gefa eftir,“ segir maðurinn sem
meiddist á hálsi og baki. ■
Útrunnið ökuskírteini:
Próflaus
í 14 ár
lögreglumál Lögreglumenn í Kópa-
vogi stöðvuðu í gær ökumann og
gerðu athugasemd við að ökuskír-
teini mannsins væri útrunnið.
Gildistími ökuréttinda mannsins
rann út árið 1987 og hefur maður-
inn keyrt ökuréttindalaus frá þeim
tíma eða í 14 ár. Að sögn lögreglu
er alltaf eitthvað um að fólk keyri
með útrunnin skírteini en þetta er
þó það elsta sem lögreglumenn í
Kópavogi minnast að hafa komist í
tæri við. Nú liggur fyrir mannin-
um að taka ökuprófið aftur ef hann
ætlar sér að halda áfram akstri. ■
BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ? Þeir eru ófáir sem ferðast um á reiðhjólum þegar veður leyfir. Þessi hjólreiðamaður hafði gert
hlé á för sinni þegar Ijósmyndari Fréttablaðsins kom að og lét fara vel um sig á skiptistöð Straetó í Mjóddinni.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
jHvaða dagblöð koma á
neimilin; |96 97 mm 96
skipt RS 90
eftir Fréttablaðið 74°/o
aldri? L |49Tb' 67 n 60 , :
ÍMorgunblaðið
Samkvæmt r
könnun 1 s
Gallup frá
maí 2001. ll 8-24 25-3435-4445-54 55-80
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
I' 69,2% IBÚA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUM
18 TIL 80 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ ALLTAF EÐA OFT
SAMKVÆMT KÖNNUN GALLUP FRÁ MAl 2001.
Frumaflskaup í Héraðsdómi:
Niðurstaða í dag
sóltúnsmálið Málsaðilar í Sól-
túnsmálinu mættu fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur í gær
klukkan 09:00 og fluttu mál sín.
Málflutningur stóð í rúmlega
fjórar klukkustundir og flutti
Jón Steinar Gunnlaugsson mál
sækjenda í málinu en Hróbjart-
ur Jónatansson mál verjenda.
Sóltúnsmálið snýst um kaup
LÍ á fyrirtækinu Frumafl. Einn
stjórnarmanna í LÍ, Jóhann Óli
Guðmundsson, er aðaleigandi
Frumafls og telja sækjendur
málsins að óeðlilegt sé að ekki
skuli vera hægt að fá verðmat á
LÖCBANNÁ
KAUPIN?
Héraðsdómúr
mun úrskurða í
dag hvort rétt
sé að setja lög-
bann á kaup U
á fyrirtækinu
Frumafli.
fyrirtækinu áður en kaupin
fara iram og hafa óskað eftir
lögbanni á kaup LÍ á Frumafli
Þá telja sækjcndur málsins að
ólöglega hafi verið boðaö til
stjórnarfundar er kaupin voru
ákvörðuð. Enn fremur telja
sækjendur málsins að Fruinafl
sé eignalaust fyrirtæki og því
sé óeðlilegt að kaupverðið sé
860 milljónir króna. Varnaraðil-
ar málsins segja að fyrirtækið
eigi eignir en vilja ekki tjá sig
um þær við fjölmiðla. Búist er
við ákvörðun frá Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. ■
| FÓLK |
Hreinrœktað rokk
SÍÐA 15
ÍÞRÓTTIR T
Kynþáttahatur
vandamál
ennþá
| ÞETTA HELST
/
Islensk erfðagreining hefur gert
risasamning við Hoffman la
Roche sem breytir miklu fyrir fyrir-
tækið. _ ^ bls. 4
IjTlugmaður sætir rannsókn eftir að
hann setti skrúfu á flugvél í stað
beirrar sem var í ólagi. bls. 5
—♦—
Tugir manna ltafa verið yfirheyrð-
ir vegna rannsóknar á Bóhem.
bls. 7
—♦—
Vélstjórar og útvegsmenn verða
að setjast niður og semja aftur
eftir að gerðardómur kvað upp sinn
dóm. bls. 10
\