Fréttablaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 12
I
12
FRÉTTABLAÐIÐ
3. júlí 2001 ÞRIÐJUPAGUR
LÖGRECLUFRÉTTIRl
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um innbrot um þrjúleytið
aðfaranótt mánudagsins. Brotist
hafði verið inn í verslun í Breiðholt-
inu og þaðan stolið töluyerðri pen-
ingaupphæð. Enn er ekki ljóst hver-
su há upphæðin var eða hverjir voru
að verki en málið er enn í rannsókn.
.....
• •
Okumaður, sem grunaður er um
ölvun við akstur, var stöðvaður
af Iögreglunni í Reykjavík á 151
kílómetra hraða á Suðurlandsvegi
við Sandskeið aðfaranótt sunnudags.
—♦—
Talsverð umferð var í umdæmi
Reykjavíkurlögreglu um helgina,
sérstaklega síðdegis á sunnudag.
Gekk hún þó að mestu vel.
Is afoldarprentsmiðj a:
Prentvélin
stækkuð
prentun Þessa dagana er verið að
endurbæta prentvél ísafoldarprent-
smiðju sem prentar Fréttablaðið. Að
því loknu verður hægt að prenta 20
af 24 síðum blaðsins í fjórlit og prent-
gæði aukast. Þetta er gert til þess að
mæta þörfum auglýsenda og fylgja
eftir góðum árangri Fréttablaðsins.
Nýjum einingum er aukið í véiina, en
einnig auðvelda ný brotvél og „papp-
írsmatari" sjálfa prentvinnsluna.
Vegna vinnu við prentvélina urðu taf-
ir á prentun aðfararnótt mánudags
og tafðist útburður blaðsins af þeim
sökum. Eru lesendur beðnir velvirð-
ingar á því ■
LÖGREGLUFRÉTTIRl
Komið var með veikan sjómann til
Siglufjarðar í fyrrirnótt en mað-
urinn var um borð í norsku loðnu-
skipi. Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði var maðurinn fluttur á sjúkra-
húsið á Siglufirði en er ekki talinn
alvarlega veikur.
--4---
Björgunarsveitin á Húsavík var
send tii aðstoðar erlendum
ferðamönnum sem ient höfðu í
vanda suður af Mývatni. Hafði bif-
reið ferðalanganna festst í sand-
gryfju. Að sögn taismanns lögregl-
unnar á Húsavík er töluvert um að
aðstoða þurfi ferðamenn þegar þeir
lenda í bílavandræðum. Sagði hann
fjórhjóiadrifið oft vera að vefjast
fyrir þeim.
m i
■u
Lyftarar ehf
Hryðjarhöfða 9 sími 581 2655
SANYL
ÞAKRENNUR
Fást í flestum byggingavöru-
verslunum landsins.
.FABORG
Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755
Erlent:
Chirac og Putin
funda í Moskvu
moskva. ap. Jacques Chirac, Frakk-
landsforseti, lýkur í dag þriggja daga
opinberri heimsókn sinni í Rússlandi.
Á biaðamannafundi í gær fagnaði
Vladimir Putin, forsætisráðherra
Rússlands, tillögum Bandaríkja-
manna um fækkun kjarnavopna í
heiminum, en sagði hins vegar að
fækkun vopna þyrfti að vera undir
ströngu eftirliti áuk þess sem hún
þyrfti að samræmast ABM-afvopn-
unarsamningnum frá árinu 1972. Put-
in gagnrýndi einnig ákvörðun um
framsal Slobodan Milosevic til stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna
og sagðist efast um að framsalið
myndi verða til þess að auka stöðug-
leika á Balkanskaganum, en skömmu
áður hafði Chirac fagnað framsalinu.
Er þeir voru spurðir út í stríðið í
Tsjetsjeníu, sem Frakkar hafa gagn-
rýnt harðlega, hélt Chirac í fyrri orð
sín um að aðeins yrði hægt að trygg-
ja frið ef samið yrði um landnám.
Putin varði hins vegar stefnu Rússa
gegn aðskilnaðarsinnum og sagði
engar líkur vera á að rætt yrði við
vopnaða uppreisnarmenn. ■
Chirac, forseti Frakklands, sýnir hæfni sína með veiðistöngina á bryggju í St. Pétursborg á
sunnudaginn rétt eftir komu Chirac til Rússlands. Putin (t.v.) fylgist áhugasamur með.
Öllum góðum Færey-
ingum líkar þetta vel
Það vakti mikla athygli þegar Poul Mohr neitaði að taka á móti forseta Islands við komuna til Færeyja þar sem
honum var skipað í röð fyrir aftan danska embættismenn. Hann hefur verið ræðismaður Islands í Færeyjum í
17 ár en fullvíst má telja að fjöldi Islendinga hafi heyrt um hann í fyrsta skipti af þessu tilefni.
færeyjar „Færeyingum líkar vel við
þetta“, segir Poul Mohr, ræðismaður
Islands í Færeyjum, um þau viðbrögð
sem hann hefur fengið meðal landa
sinna við þeirri ákvörðun sinni að
hunsa mótttökuna á flugvellinum í
Vogey þegar Ólafur Ragnar Grímsson
forseti kom í opinbera heimsókn til
Færeyja. „Öllum góðum Færeyingum
líkar vel við þetta og þeir hafa margir
orðið til að fagna þessari ákvörðun
minni.“
Það sem fór í taugarnar á Poul var
sú ráðstöfun Dana að senda tvo emb-
ættismenn, Vibeke Larsen ríkisum-
boðsmann Dana í Færeyjum og
Flemming Mörch sendiherra Dana hér
á íslandi til að vera viðstadda heim-
sókn forsetans til Færeyja. Með þess-
um þykir honum sem Danir hafi viljað
setja mark sitt á heimsóknina og sýna
fram á að þeir væru enn herraþjóð í
Færeyjum. Ræðismaðurinn neitaði
því að mæta í mótttökuna á flugvellin-
um sem frægt er orðið en ferðaðist að
öðru leyti með forsetanum meðan á
heimsókninni stóð. Poul átti ekki mikil
samskipti við dönsku embættismenn-
ina en gaf sér tíma til þess að greina
þeim frá því að mótmæli hans snerust
ekki gegn þeim persónulega heldur
því sem hann teldi óþolandi yfirgang
af hálfu danskra stjórnvalda. Hann
sagðist þó velta fyrir sér hvort til-
gangurinn væri annar en sá einn að
minna á dönsk yfirráð. „Tveir heyra
betur en einn og sendiherrann og rík-
isumboðsmaðurinn hlustuðu eftir
hverju orði forsetans", segir Poul sem
segir að það kæmi sér síður en svo á
óvart að Poul Nyrup Rasmussen for-
sætisráðherra Danmerkur fengi
skýrslu um allt það sem forsetinn
sagði og dönsku fulltrúarnir skildu.
Poul segiet hvorki hafa rætt mót-
mæli sín við forseta íslands né Helga
Ágústsson sendiherra íslands í Fær-
eyjum sem var í för fylgdarliði forset-
ans. Hann hafi hins vegar orðið þess
áskynja að þeir litu svo á að þetta mál
sneri að samskiptum Dana og Færey-
inga eins og gerðu engar athugasemd-
ir við mótmæli hans.
Poul hefur verið ræðismaður ís-
lands í Færeyjum frá árinu 1984. Þá
kom Einar Ágústsson þáverandi sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn að
máli við hann og bað hann um að taka
að sér stöðu ræðismanns. Poul hafði
þá verið í talsverðum samskiptum við
Islendinga, einkum í gegnum störf sín
í Skipasmiðja Tórshavnar sem hann
rekur. „Ég hafði verið í miklum sam-
skiptum við íslenska sjómenn og út-
gerðarmenn í gegnum slippinn. Þeir
sóttu sér þjónustu til okkar um mar-
gra ára skeið en þó sérstaklega á sjö-
unda og áttunda áratugnum þegar þeir
stunduðu miklar veiðar í Norðursjó.
Ég hef því kynnst fjölmörgum íslend-
ingum og eignast marga góða vini á ís-
landi.“
Þrátt fyrir að Poul hafi verið ræð-
ismaður Islands í nær 17 ár segir
hann að starfið hafi aldrei reynst
erfitt eða óþægilega umfangsmikið.
„íslendingar eru ekki útlendingar í
Færeyjum. Þeir lenda heldur aldrei í
neinum vandræðum að ráði og því
engin vandamál að ráði sem þarf að
leysa."
Það er fleira en skipasmiðja Pouls
og ræðismannsstörfin sem tengja
hann traustum böndum við ísland.
Eins og margir aðrir sem í Færeyjura
búa stundar hann hestamennsku og
notar til þess íslenska hesta. „Ég er al-
inn upp við það að fara í útreiðartúra á
íslenskum hestum. Pabbi minn hélt ís-
lenska hesta á sínum tíma og sjálfur er
ég nú með fjóra góða íslenska hesta."
bínní@frettabladid.is
FORSETINN LENTUR
(slenski ræðismaðurinn er hvergi sjáanlegur en fulltrúi Dana fylgir forseta áleiðis.
Mykines í Færeyjum:
Einmanalegt
á veturna
mannlíf Þeir voru ekki allir f jölmenn-
ir staðirnir sem Ólafur Ragnar
Grímsson forseti sótti heim í opin-
berri heimsókn sinni til Færeyja. Af-
skekktasti staðurinn er eyjan
Mykines þar sem einungis búa ellefu
manns allan ársins hring. Þeim fjölg-
ar þó talsvert á sumrin en þá búa þar
um 30 manns auk þess sem fjöldi
ferðalanga kemur þangað í dagsferð-
ir.
Meðal þeirra sem Fréttablaðið
hitti fyrir á Mykines var Jansy Han-
son sem hefur búið þar alla æfi og
man þá tíma þegar íbúar voru á ann-
að hundraðið. Þeim fór að fækka eft-
ir að rafmagnið barst og segir Jansy
að það geti verið afskaplega ein-
manalegt í eynni að vetrarlagi þegar
kaldur vindurinn ber eyjuna og þá
ellefu íbúa sem þar hafa vetursetu.
Þrátt fyrir fámennið er Mykines
sjálfstætt sveitarfélag með eigin
sveitarstjórn. í henni sitja þrír ein-
staklingar, eða rúmur fjórðungur
eyjaskeggja. Enda fer það iðulega
svo að Mykines er fyrsta sveitarfé-
lagið til að birta úrslit í sveitarstjórn-
arkosningum. ■
JOHANNA OG JANSY
Jansy er póststjóri á Mykinesi og
var áður oddviti sveitarstjórnar. Jo-
hanna Leonsson lætur sér nægja
að búa í eynni á sumrin.