Fréttablaðið - 03.07.2001, Side 18

Fréttablaðið - 03.07.2001, Side 18
18 FRÉTTABLAÐIÐ 3. júlí 2001 ÞRIÐfUDACOR' HVAD BORÐAÐIR ÞÚ í GÆRKVÖLDI? Óskar Bergsson varaformaður skipulags- og byggingarnefndar Ég borðaði afganga frá helginni. Á föstudaginn var kjúklingur í kínverskum pönnukökum og á laugardaginn grillaðar lærissneiðar með rjóma- sveppasósu og salati. í gær var svo tekið til í ís- skápnum og borðað það sem eftir var og það var alveg eins Ijúffengt kalt. íslensk mannanöfn: Hvað mega stúlkurnar ekki heita? mannanöfn Á föstudag var hér birtur listi yfir drengjanöfn sem hafnað hefur verið af mannanafnanefnd frá 1997 til 2000. í gær var svo birtur listi yfir millinöfn sem hafnað hefur verið af sömu nefnd. Af einhverjum ástæðum er listinn yfir stúlknanöfn sem hafnað hefur verið mun lengri en listinn yfir drengjanöfn. Hér birt- ist hann: ABEL ALEXSANDRA ANCEL ANNALÍSA ANNARÓSA APRÍL ARÍELE ARNAPÁLA ATHENA AXEL BLÆR CARLA CATHINCA CHRISTEL ELINBORG ELÍZA FRANZISCA GURI INDIANA ■ NGA-LILL IREN ISABELLA JEANNE JENNIFER JESSY KAP KAYA KRISTIANNA LÁRENZÍNA LILY MAIA MAJ MARIEANNE MARÍS NANCY NAOMI NAÓMI ROSEMARIE SARAH SATANÍA HBb §§| siv . líSB STEFANIE §§ TANYA WÉSS0> THERESA VERONICA M YÁSMIN ÝRENA i'WMMm ýíri ■ ja m- ýrí Stretchbuxur St. 38-50 - Frábært úrval Verslunarmiðstöðinni Eiðistorgi Sími: 552 3970 Einar Már til Kína: Huliðsheimaferðir Englarnir nema fimmtánda landið bækur Edda - miðlun og útgáfu hefur gengið frá samningum um útgáfu á Englum alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson við eitt helsta bókafor- lagið í Kína, The Commercial Press, eins og það nefnist á ensku en það for- lag hefur áður gefið út íslendingasög- urnar í Kína. Kína er fimmtánda landið sem rétt- urinn á skáldsögunni er seldur til en áður hefur verið gengið frá samning- um um útgáfu í Bretlandi, Bandaríkj- unum, Þýskalandi, Frakklandi, Dan- mörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Spáni, Hollandi, Ítalíu, Tékklandi, lýrklandi og Póllandi. Englar alheimsins komu út á ís- landi árið 1993 og hlaut Einar Már Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir hana tveimur árum síðar. Höf- undurinn hefur hlotið mikið lof fyrir Engla alheimsins heima og erlendis. Kvikmynd byggð á sögunni var frum- sýnd í lok árs 1999 og hefur hún hlotið fjölda viðurkenninga víða um heim. Einnig gekk athyglisverð leikgerð sög- unnar fyrir fullu húsi í Kaupmanna- höfn haustið 1999 og kom sú sýning á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. ■ ENGLUNUM LÍKT VIÐ GAUKSHREIÐRIÐ Einar Már Guðmundsson hefur hlotið mik- ið lof fyrir sögu sína Engla alheimsins bæði hér heima og erlendis og hefur sög- unni meðal annars verið líkt við hina þekktu sögu Gaukshreiðrið. í Hafnarfirði: Skyggnst undir yfirborð pulrænt í sumar verður boðið upp á röð ferða um huliðsheima Hafnar- fjarðar undir leiðsögn Erlu Stefáns- dóttur og er hver ferð tileinkuð sér- stöku þema. Ferðirnar verða á þriðjudagskvöldum og taka um tvo tíma. Fyrsta ferðin verður farin í kvöld og nefnist hún Dýrlingar og fjalla- verur. Farið verður að kapellu heil- agrar Barböru, fjallahringurinn og fjallaverurnar skoðaðar, horft til Helgafells og rýnt í bústaði dverga og jarðadverga. Mæting er við Upp- lýsingamiðstöð. Önnur ferðin nefnist Hugleiðsla og verður farin 17. júlí. Draugaferð verður farinn 31. júlí og Kirkjuferð 14. ágúst. ■ ÞRIÐJUAGURINN 5. JÚLÍ ÚTIVIST____________________________ 19.00 Huliðsheimaferð í Hafnarfirði með Erlu Stefánsdóttur, Dýrlingar og fjallaverur. Mæting við Upplýs- ingamiðstöð. Fyrsti áfangastaður er kapella hinnar heilögu Barböru þar sem beðið er til hennar. Fjallahringurinn er skoðaður og fjallaverurnar eftir að skynjanir ferðalanga hafa verið opnaðar, horft er til Helgafells og spáð í nafngiftina. Áð á völdum stað og innsæið notað til að ferðast aftur f tímann. Loks er rýnt inn í bústaði dverga og jarðdverga. 20.00 Kvöldferð íslenska fjallahjóla- klúbbsins verður farin frá skipti- stöð Strætó í Mjóddinni f kvöld. Hjólað verður um Mosfellsbæ, alls um 38 km. Fólki er bent á að það er á eigin ábyrgð í ferðum klúbbsins og ættu allir að nota hjálm og hafa skjólgóðan fatnað og mat meðferðis. FYRIRLESTRAR_______________________ 13.30 íslenskar bókmenntir. Einar Már Guðmundsson rithöfundur fjallar um íslenskar nútímabókmenntir með sérstaka áherslu á eigin bækur. Einar Már svarar spurning- um að loknum fyrirlestrinum. Fyr- irlesturinn verður haldinn í Nor- ræna húsinu. Hann er fluttur á dönsku og lýkur kl. 15.00. TÓNLEIKAR__________________________ 20.30 Þórunn Guðmundsdóttir sópran- söngkona og lngunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari koma fram á tónleikum f Sigurjónssafni í kvöld. Flutt verða lög eftir Gabriel Fauré, Richard Strauss og íslensk einsöngslög eftir Karl O. Runólfsson, Árna B. Gíslason, Gunnar Sigurgeirsson, Pál Isólfs- son, Jórunni Viðar og Loft Guð- mundsson. 21.30 Tríóið „3" heldur tónleika á Café OZIO í kvöld. Þetta eru aðrir tón- leikar þremenninganna en fyrstu tónleikar sveitarinnar voru einmitt á Ozio fyrir um þremur vikum og var þeim mjög vel tekið. 3 eru Stefán Örn Gunnlaugsson, söngur og píanó, Ragnar Örn Emilsson, gítar og raddir og Jón Ingólfsson, kontrabassi og raddir. Sérstakur gestur er Lára Sóley Jóhannsdótt- ir, fiðla og raddir. Efnisskráin sam- anstendur af lögum sem samin eru eða flutt af þekktustu einherj- um rokk- og poppsögunnar; Bowie, Tom Waits, Paul Simon, Beck, James Taylor o.fl. Myndlistarsýning í Hafnarhúsinu: Myndir af fólki KARAKTERSVIPUR I ORÐUNUM Sýtlingar- salur íslenskrar grafíkur er býsna vel falinn baka til í Hafnarhúsinu. Þegar inn er komið blasa við gulleit- ar myndir eftir Stellu Sigurgeirs- dóttur sem hún kallar portrettmynd- ir af huga fólks. í vetur sendi hún vænum hópi vina sinna og kunningja rafpóst með beiðni um tuttugu orð frá hverjum og einum. Orðin setti hún síðan upp á filmur með svipaðri leturgerð og notuð er í tölvum og eftir að hafa unnið myndirnar með býsna flókinni tækni bar hún litarefni og býflugna- vax á þær sem gefur þeim sérstaka áferð. En hvernig skyldi þessi hug- mynd hafa kviknað? „Mig langaði bara til að fara að vinna með fólk. Útskriftarverkið mitt var mjög persónulegt og mig langaði til þess að fara alveg út úr því ferli. Ég hef gaman af fólki og gaman af orðum og vissi ekkert hverjar undirtektirnar yrðu. Ég sendi örugglega sextíu manns beiðni um að taka þátt í þessu, allt fólk sem ég þekki vel, en það voru 28 manns sem skiluðu inn og ég er óskaplega þakklát fyrir það. Þetta er ótrúleg svörun og skemmtileg." -Kom þér á óvart hvernig svörin voru? „Já, það kom mér á óvart hvað ég sá í raun og veru mikinn karakter út úr orðunum frá hverjum og einum. Það er líka svo gaman að þótt sumir komi með sömu orðin þá er hug- myndin á bak við þau ekki endilega sú sama. Mér finnst mjög einkenn- andi fyrir hvern og einn, karakter- svipur í orðunum. Verkin eru því í raun eins og myndir af huga fólks eða því sem fer í gegnum hugann þá stundina. Sumir eru mjög tilfinn- inganæmir, aðrir setjast strax niður og bara pikka beint niður það sem þeim dettur í hug, enn aðrir hugsa um hvert orð og koma með ýmsar útskýringar. Ég breytti ekkert röð- inni á orðunum og lét útskýringarn- ar standa óbreyttar en hafði bara minna letur á þeim þannig að þær sjást varla nema rýnt sé í myndirn- ar.“ 1 tuttugv - Útlitið er svolítið eins og á gömlum handritum. „Já, en það var nú alveg ómeðvit- að. Ég var fyrst og fremst að reyna að fá fram landslagform í hverja mynd, þess vegna heitir sýningin portrettlandslag. Ég hef verið að vinna með vax í þrjú ár og hef verið að þróa ýmsa tækni með það. Vax er skemmtilegt efni og lifandi, maður getur ekki alltaf stjórnað þvi. En um leið myndar það ákveðna hulu sem 22.00 Eyjólfur Kristjánsson verður í góð- um gír með kassgítarinn á Kaffi Reykjavík fram um kl. 1 eftir mið- nætti. Hið vikulega Stefnumót er haldið á Gauknum í kvöld. SÝNINGAR_________________________ Sýningin Samræmd heildarmynd - Kirkja, arkitektúr, glerlist, skrúði, stendur nú yfir í Fella- og Hólakirkju. Á sýningunni eru sýnd frumdrög af teikn- ingum kirkjunnar, frumdrög, vinnuteikn- ingar og Ijósmyndir af vinnuferli glerl- istaverkanna og skrúðans. Hönnuðir er Leifur Breiðfjörð og Sigriður Jóhanns- dóttir. Sýningin stendur til 8. júlí og er opin alla virka daga kl. 10-16 og um helgar kl. 13-18. í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn- ingar. í húsinu Lækargötu 4 er sýningin Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar. í Kjöthúsi er sýningin Saga bygginga- tækninnar. I húsinu Líkn er sýningin Minningar úr húsi. Þar er sýnt innbú frá fjölskyldu Vigfúsar Guðmundsson- ar búfræðings sem bjó á Laufásvegi 43. Sýningin í Suðurgötu 7 ber yfirskrift- ina: il fegurðarauka. Sýning á útsaumi Tónleikar í Sigurjónssafni: íslensk og erlend sönglög Saga hornleiks á íslandi: Látum hornin gjalla túnleikar Þórunn Guðmundsdóttir sópransöngkona og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari koma fram á tónleikum í Sigurjónssafni í kvöld. Á tónleikunum verða flutt lög éftir Gabriel Fauré, Ric- hard Strauss og íslensk ein- söngslög eftir Karl 0. Run- ólfsson, Árna B. Gíslason, Gunnar Sigurgeirsson, Pál ísólfsson, Jórunni Viðar og Loft Guðmundsson. Þórunn Guðmundsdóttir stundaði framhaldsnám í söng við Indiana University í Bandaríkjunum. Hún hefur stundað ýmis störf sem tengjast tónlist, meðal ann- ars komið fram sem ein- söngvari með Kammersveit Reykjavíkur og ýmsum kór- um. Einnig hefur hún haldið fjölda einsöngstónleika. Þórunn starfar nú sem söngkennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Ingunn Hildur Hauksdóttir stund- aði nám við Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar og síðan við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þaðan lauk hún píanó- kennara- og einleikaraprófi vorið 1993. Ingunn hefur komið fram við ýmis tæki- færi, og unnið með söngvur- um og í kammermúsík. Hún starfar við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. ■ SAMAN Á TÓNLEIKUM OG f UPPTÖKUM Þórunn Guðmundsdóttír og Ing- unn Hildur Hauksdóttir hafa starf- að mikið saman á undanförnum árum, meðal annars haldið fjölda tónleika og gert upptökur á ís- lenskum sönglögum. Á þessari mynd er Hjalti Rögnvaldsson með þeim stöllum. bækur Hornleikarafélag íslands hef- ur gefið út bókina Látum hornin gjalla eftir Bjarka Bjarnason. í bók- inni er rakin saga hornleiks á íslandi í máli og myndum frá því hljóðfærið nam land í ís- lensku tónlistarlífi á þriðja áratugi 20. aldar og fram til aldamóta. Þar er einnig íslenskt hornleikaratal þar sem greint er stuttlega frá hornleikurum sem starfað hafa hér á landi um lengri eða skemmri tíma. Bókin Látum hornin gjalla fæst á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar ís- lands og í Tónastöðinni í Skipholti. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.