Fréttablaðið - 03.07.2001, Síða 22
'*>
'
HRAÐSOÐIÐ
HAFSTEINN HAFSTEINSSON
forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Hann segir þyrluáhafnir þurfa að vera í
stöðugri þjálfun.
Allur vafi
sjúklingi í hag
HVERJAR VORU ástæður
þess að sömu mennirnir þurftu að sinna svo
mörgum útköilum um helgina. Er of fáliðað?
Almennt er ekki of fáliðað, en það
koma toppar eins og um helgina, en
þá vinnur þyrluáhöfnin þann tíma,
sem henni er heimill, en eftir það er
leitað til varnarliðsins. Það hefur ein-
nig komið fyrir að þyrluáhöfn, sem
ekki er á vakt hefur verið kölluð út.
HVAÐ samanstendur þyrlusveít af
mörgum mönnum?
Það eru fimm í þyrluáhöfn hverju
sinni, en sveitin er fjölmennari. í
áhöfn eru flugstjóri, flugmaður, flug-
virki sem er spilmaður, stýrimaður
sem er sigmaður og læknir. í þyrlu-
sveitinni eru fimm flugstjórar, þrír
flugmenn, fjórir stýrimenn, fjórir
flugvirkjar og sex læknar. Sigmaður-
inn fer niður í skip eða á þá staði, sem
ekki er unnt að lenda á, en spilmaður-
inn stjórnar spilinu. Framangreindir
aðilar eru í stöðugri þjálfun til að
geta sinnt starfi sínu sem best.
HVERNIG gengur útkall fyrir sig?
Haft er samband við stjórnstöð
þar sem yfirmaður gæslufram-
kvæmda er æðstráðandi, og þar er
tekin ákvörðun um hvort farið verði í
þyrluflug. Oftast er haft samband við
þyrlulækninn sem er á vakt og
ákvörðunin byggist of á hans mati
um ástand sjúklingssins eða þess
slasaða. Síðan er það mat flugstjór-
ans á þyrlunni hvort fært sé á við-
komandi stað. Þetta ferli tekur aðeins
fáar mínútur. Síðan er útkall og er
gerður greinarmunur á því hvort
fara þurfi án tafar í útkallið eða að
það liggi ekki eins á. Þegar vafi leik-
ur á hvort fara eigi í útkall er vafinn
ætíð túlkaður þeim slasaða í vil. ■
Hafsteinn Hafsteinsson hæstaréttarlög-
maður, hefur verið forstjóri Landhelgis-
gæslunnar síðan 1993. Hann varð lög-
fræðingur Landhelgisgæslunnar 1969
og var jafnframt blaðafulltrúi fyrirtækis-
ins í fimmtíu mílna þorskastríðinu frá
september 1972.
Framkvæmdir í Þýskalandi:
Arnarhreiðri“
Hitlers breytt
í hótel
>>
erlent. í júlí verður hafist handa við
byggingu nýs hótels og golfvallar í
Munchen í Þýskalandi á sama stað
og alpabústaður Hitlers, „Arnar-
hreiörió," var staðsettur. Hótelið
verður 140 herbergja og mun kosta
um 9 milljarða króna. Auk þess að
vera staður þar sem Hitler skipu-
lagði mörg af óhæfuverkum sínum,
þ.á.m. að ráðast inn í Sovétríkin
árið 1941, var staðurinn m.a. sum-
arbústaður naistaleiðtogans Her-
manns Göring. „Þetta er afar við-
kvæmur staður, en þetta er hins
vegar ekki staður þar sem fólk lét
lífið, eins og í Auschwitz, heldur
staður þar sem þeir sem skipulögðu
morðin héldu sig, þar sem helstu
nasistaleiðtogarnir skemmtu sér á
meðan heimurinn í kringum þá var
í rústum,“ sagði Kurt Faltlauser
fjármálastjóri hótelsins í viðtali við
Reuters. ■
22
FRÉTTABLAÐIÐ
V<’
'*,*,t (i* t t t t't'
3. júli 2001
ÞRIDJUDAGUR
Dick Cheney var á sjúkrahúsi um helgina:
Vélgengur hjartsláttur
varaforsetans
stiórnmál. Dick Cheney, hinn sextugi
vararforseti Bandaríkjanna, mætti í
vinnuna í gær eftir að hafa gengist
undir aðgerð á laugardag þar sem
hjartagangráði var komið fyrir í
brjósti hans.
Þetta var í þriðja skipti frá forseta-
kosningunum í nóvember sl. sem Chen-
ey lagðist inn á sjúkrahús vegna hjart-
veiki.
í nóvember, meðan enn var hart
deilt um talningu atkvæða í Flórída,
fékk hann vægt hjartaáfall og gekkst
undir æðavíkkun. í mars gekkst hann
undir neyðaraðgerð til að víkka út
æðar.
Læknar varaforsetans ákváðu í
framhaldinu að setja í hann nýtísku
hjartagangráð, sem bæði örvar hjart-
sláttinn, þegar hann er of hægur og
gefur rafstraum þegar hjartað slær of
hratt. Það var gert um helgina og var
varaforsetinn aðeins nokkrar klukku-
stundir á sjúkrahúsi
Cheney fékk fyrst hjartaáfall árið
1978, þá 37 ára gamall. Annað áfallið
dundi yfir 1984 og hið þriðja árið 1988.
Þá gekkst hann undir kransæðaaðgerð
og hélt fullri heilsu þar til í nóvember
sl.
Cheney er lykilmaður í bandaríkja-
stjórn og i sterkari stöðu en nokkur
STÁLSLEGINN
Dick Cheney varatorseti Bandaríkjanna bar sig vel þegar hann yfirgaf George Washington
sjúkrahúsið á laugardag ásamt eiginkonu sinni Lynne og dóttur þeirra Liz.
varaforseti í manna minnum. Efa-
semdir um leiðtogahæfileika Bush for-
seta hafa leitt til þess að víða er litið á
Cheney sem sterka manninn í Hvíta
húsinu enda er hann margreyndur
stjórnmálamaður sem sat í fulltrúa-
deild bandaríkjaþings, var varnar-
málaráðherra í forsetatíð George Bush
eldri og starfsmannastjóri Geralds
Fords bandaríkjaforseta 1975-1977.
Cheney er um þessar mundir í for-
svari fyrir stefnumótun Bush forseta í
átakamálum á borð við stefnuna í orku-
málum og Kyoto-bókunina. ■
I FRÉTTIR AF FÓLKI
Adögunum veitti Hjálparstarf
kirkjunnar neyðaraðstoð
þremur erlendum nektardans-
meyjum sem
hrökklast höfðu úr
vinnu. Séra Auður
Eir Vilhjálmsdótt-
ir leitaði til Hjálp-
arstarfsins vegna
bágra aðstæðna
stúlknanna. „Ég er
kona út í bæ sem
horfi á þetta sér-
staka vandamál í samfélaginu og
vegna veru minnar, þá beinir fólk
vonaraugum til mín“, segir séra
Auður Eir í viðtali við Fréttabréf
Hjálparstarfsins, Margt smátt. „
Elísabet (Þorgeirsdóttir)kom að
máli við mig, hvort ég gæti ekki
aflað hjálpar frá kirkjunni. Ég
sneri mér til Hjálparstarfs kirkj-
unnar til að fá hjálp í brýnum
vanda stúlknanna." Hjálparstarfið
veitti stúlkunum þremur 25.000 í
neyðaraðstoð sem framfærslueyri
til að fleyta þeim áfram meðan
verið var að vinna í þeirra málum.
Lögreglurannsókn fór fram á kjör-
um stúlknanna og dvöldu þær í
Kvennaathvarfinu þar sem þær
töldu sig ekki óhultar.
*
Agúst Einarsson prófessor telur
á heimasíðu sinni tímabært að
forseti íslands tímasetji væntan-
legt hjónaband
sitt. „Forsetinn á
vissulega sitt
einkalíf en hann
er fyrst og fremst
í opinberri stöðu
og það er eðlilegt
úr því að heitkona
hans fylgir honum
víða sem fulltrúi
íslands að kveðið verði upp um
það hvort ekki sé að vænta hjóna-
bands innan tíðar. Óvígð sambúð
forseta um lengri tíma er ósmekk-
leg úr því að aðilarnir koma báðir
fram fyrir hönd íslands," segir
Ágúst og heldur áfram: „Þjóðin
styður Olaf Ragnar eins og hún
hefur ávallt stutt forseta sína þótt
þeir hafi verið kjörnir eftir harða
kosningabaráttu. Það er hins veg-
ar mikilvægt að forseti lýðveldis-
ins misbjóði ekki siðferðisvitund
almennings. Hjónabönd eru horn-
steinn í samfélagi okkar og þótt
mörg þeirra dugi ekki ævina á
enda eru þau þungamiðja í trú
okkar. Forseta lýðveldisins ber að
laga sig að slíkum grunngildum
enda hefur honum verið veitt það
svigrúm sem hann bað sjálfur
um.“
Elsa B. Friðfinnsdóttirverður
aðstoðarmaður Jóns Kristjáns-
sonar, heilbrigðis-og trygginga-
málaráðherra og
tekur til starfa
innan skamms.
Hún kemur í stað
Þóris Haraldsson-
ar sem hverfur til
annarra starfa.
Elsa er hjúkrunar-
fræðingur og lauk
mastersprófi í
kennslu- og rannsóknum frá há-
skólanum í Bresku Kolumbíu árið
1995 og heilsuhagsfræði frá End-
urmenntunarstofnun Háskóla ís-
lands 1997. Hún hefur verið lektor
við Háskólann á Akureyri frá 1991
og var starfandi forstöðumaður
ÁSGEIR EIRÍKSSON REKSTRARHAGFRÆÐINGUR
Hann leggur áherslu á að almenningssamgöngur verði vinsælli ferðamáti en verið hefur.
„Það eru spennandi tímar framundan" segir Ásgeir Eiríksson
Strætó er verð-
ugt verkefni
Nýr forstjóri Strætó bs. ók strætisvagni á yngri árum.
Skrifaði háskólaritgerð um strætó. Vill að fleiri notfæri sér þjónustuna.
strætó bs. „Það eru spennandi timar
framundan og markmiðið er að gera
almenningssamgöngur að fýsilegri
valkosti á höfuðborgarsvæðinu en
verið hefur", sagði Ásgeir Eiríksson
nýráðinn forstjóri Strætó bs. um
nýja starfið. Ilann segir að almenn-
ingssamgöngur séu mun meira not-
aðar í flestum öðrum borgum heims
en hér tíðkast og þessu vilji hann
breyta. Nú verða tvö fyrirtæki SVR
og Almenningsvagnar sameinuð í
Strætó byggðasamlag og vonast Ás-
geir til þess að það komi til með að
bæta aðsóknina. Nýja fyrirtækið er
í eigu 7 sveitarfélaga: Reykjavíkur,
Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar, Mosfellsbæjar Bessastaða-
hrepps og Seltjarnarness.
Asgeir er ekki að koma að al-
menningssamgöngum í'fyrsta sinn
en hann ók strætisvögnum á náms-
árum sínum. Auk þess sem
kandítatsritgerð hans í rekstarhag-
fræði í Háskólanum í Uppsölum var
á þessu sviði. Ritgerðin var gerð
fyrir Uppsala-bus, og var skrifuð
útfrá lögum sem þá höfðu nýlega
tekið gildi um rétt starfsmanna til
að koma að stjórnun og ákvörðunum
innan fyrirtækja. „Verkefni mitt
var að koma með tillögur um hvern-
ig strætisvagnafyrirtækið gæti séð
til þess að þessi réttur starfsmanna
yrði uppfylltur", sagði Ásgeir
Aðspurður um hvort þetta væri
þá draumastarfið sagði Ásgeir „ég
get nú varla sagt að ég hafi gengið
lengi með þessa hugmynd í magan-
um, maður sér ákveðið starf aug-
lýst, það höfðar til manns og manni
finnst að þarna sé eitthvað á ferð-
inni sem maður eigi erindi í og sæk-
ir þá um. Reyndar bjó ég við þetta
starf í uppvextinum, vegna þess að
faðir minn heitinn Eiríkur Ásgeirs-
son var forstjóri SVR frá 1951-1983,
svo kannski það sé hluti af þessu
líka.“
Ásgeir tekur til starfa í síðasta
lagi 1. september, en það hvort hann
byrjar fyrr ræðst af því hvenær
hann fær sig lausan úr starfi fjár-
málastjóra Reykjalundar. ■
Heilbrigðisdeildar háskólans þar
frá 1997 til 1999. Elsa var hjúkr-
unarframkvæmdastjóri fræðslu-
og rannsóknardeildar hjúkrunar á
Landspítalanum frá haustinu 1999
til haustsins 2000, þegar hún var
valin til að gegna starfi sviðs-
stjóra hjúkrunar skurðlækninga-
sviðs Landspítala háskólasjúkra-
húss og fær leyfi frá því starfi nú.
Ketill B. Magnússon hefur verið
ráðinn á skrifstofu forstjóra Sím-
ans til að sinna stefnumótun og að-
stoða forstjóra við ýmis önnur verk-
efni sem hingað til hafa verið aðkeypt.
Ketill er með M.A.-gráðu í heimspeki
frá háskólanum í Saskatchewan með
sérhæfingu í vinnu- og viðskiptasið-
fræði, B.A.-próf í heimspeki frá Há-
skóla íslands og próf í rekstrar- og
viðskiptafræðum frá EHÍ. Hann hefur
unnið sem stjórnendaþjálfari hjá
Skref fyrir skref ehf. síðustu tvö ár.
Ketill er kvæntur Örnu Schram, blaða-
manni og eiga þau Birnu, 7 ára.
AP-MYND/RON EDMONDS.