Fréttablaðið - 20.07.2001, Side 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júlí 2001 FÖSTUPAGUR
ENCA STYRKI
Meirihluti telur ekki rétt
að ríkið stuðli að áætl-
unarflugi til Eyja og
Hafnar með styrkjum.
Á ríkið að leggja fram
halda uppi flugi til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar?
Niðurstöður gærdagsins
á vwwv.vísir.is
Nei
35%
65%
Spurning dagsins í dag:
Er komið nóg af fréttum af máli Árna
Johnsen?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þina skoðun I
___________ CBBS*
Til átaka kom þegar lögregla ætlaði að
snúa mótmælendum frá Genúa. Þrettán
særðust.
Spenna vegna Genúa-
fundarins:
Þrettán særð-
ust í átökum
við lögreglu
ancona. ap ítalska óeirðarlögreglan í
Ancona lenti í gær í átökum við hund-
ruð mótmælenda alþjóðavæðingar,
sem komu komu til landsins með
grískri ferju til að til þess að taka þátt
í alsherjarmótmælum í tengslum við
leiðtogafund átta helstu iðnríkja
heims, sem hefst í Genúa í dag. Þrett-
án manns særðust þegar lögreglan
hamlaði fólkinu landgöngu, en hún
neyddi einnig um 100 til 150 manns út
úr þremur rútum, sem voru á leiðinni
til Genúa, og aftur niður á höfn.
Grísk stjórnvöld hafa mótmælt
því sem þau kalla ómannúðlegum að-
gerðum ítölsku óeirðarlögreglunnar á
grískum borgurum, sem flestir hverj-
ir tilheyra stjórnamálaflokkum á vin-
stri væng grískra stjórnmála. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
I ögreglan á Akranesi og í Borgar-
Lnesi upplýsti í gær innbrot í 8
sumarbústaði í Svínadal og Skorra-
dal, sem framin voru um síðstu
helgi. Fimm menn á aldrinum 16 til
20 ára voru handteknir í fyrrnótt eft-
ir að hafa reynt að brjótast inn í hús-
næði í Borgarfirði og í kjölfarið var
framkvæmd húsleit, þar sem tölu-
vert magn af þýfi fannst, m.a. úr
eldri innbrotum. Við yfirheyrslur í
gær upplýstist tugur annarra inn-
brota, á svæðinu síðustu mánuði,
m.a. í þrjú félagsheimili á Akranesi
og nágrenni á síðasta ári, og innbrot
í bifreiðar og fyrirtæki á fyrrihluta
þessa árs. Yfirheyrslum er nú lokið
og teljast málin að mestu upplýst.
Ekki var farið fram á gæsluvarðhald
yfir mönnunum.
4 mánaða fangelsi fyrir manndráp:
Þrjú riffilskot -
manndráp af gáleysi
BLÁHVAMMUR
Vettvangur manndrápsins var þrifinn hátt og lágt eftir að lögregla hafði úrskurða að um
sjálfsvíg hefði verið að ræða. Þremur dögum eftir að lögreglu var tilkynnt um málið var
maðurinn handtekinn grunaður um verknaðinn. í yfirherslum hjá lögreglu varð hann tvísaga.
MANNPRÁP Héraðsdómur Norður-
lands eystra dæmdi í gær ungan
mann í fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir manndráp af
gáleysi í svokölluðu Bláhvamms-
máli. Hann varð föður sínum að
bana þann 18. mars, 2000.
Að sögn unga mannsins voru
málavextir þeir að hann hugðist
stytta sér aldur inni í herbergi
föður síns, aðfaranótt 18. mars,
2000. í málsgögnum kemur fram
að Þórður hafi kropið við hlið föð-
ur síns og miðað riffil að höfði sér
og aetlað að hleypa af. Hann
greindi frá því að faðir hans hafi
vaknað og tekið í hlaup riffilsins
með þeim afleiðingum að skot
hljóp af í höfuð hans. í yfirheyrsl-
um sagði hann að við þetta hefði
komið fát á sig og hann hafi því
skotið tveimur skotum í höfuð
föður síns.
Héraðsdómur hafði áður kom-
ist að sömu niðurstöðu en Hæsti-
réttur skipaði dómnum að taka
málið fyrir aftur þar sem réttin-
um þætti framburður ákærða
ótrúverðugur. Fjölskipaður hér-
aðsdómur kemst nú að sömu nið-
urstöðu.
í dómsorði er ákærða gert að
greiða 1/5 af sakarkostnaði til
móts við 4/5 hluta ríkissjóðs. Þá
kemur fram að „komi refsing
ákærða til framkvæmda hefur
ákærði þegar afplánað hana með
gæsluvarðhaldsvist sinni.“ ■
Fundargerðir læstar ofan í
skúffu ríkisendurskoðanda
Enginn fær aðgang að fundargerðum byggingarnefndar Þjóðleikhússins meðan á skoðun ríkis-
endurskoðanda á málefnum Arna Johnsen stendur. Fréttablaðið hefur kært synjun þjóðleikhús-
stjóra á aðgangi að fundargerðunum.
stiórnsýsla Stefán Baldursson,
eini núverandi meðlimur bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins,
hefur neitað að afhenda afrit
fundargerða
nefndarinnar.
Menntamálaráðu-
neytið hefur eng-
ar fundargerðir
frá byggingar-
nefndinni í
skjalasafni sínu.
„Erindi ríkis-
endurskoðunar
var fyrst að koma
formlega til mín í
dag (miðvikudag)
þannig að ég er rétt byrjaður að
tína til allt það sem ég hef varð-
andi byggingarnefndina. Fundar-
gerðirnar fara inn í úttekt ríkis-
endurskoðunar í heild sinni og ég
má ekki láta nein gögn sem varða
málið af hendi á meðan úttektin
fer fram,“ sagði Stefán Baldurs-
son.
STEFÁN BALD-
URSSON
Þjóðleikhússtjóri
Stefán sagði þessa tilhögun
vera að ósk ríkisendurskoðunar
sem hann sé sammála. „Þetta er
farsæll farvegur þannig að þetta
sé ekki svona tilviljanakennt í
hinum og þessum fjölmiðlum
heldur sé ríkisendurskoðandi
með alla þessa ábyrgð á sinni
könnu.“
Þjóðleikhússtjóri neitaði því
ekki að fundargerðirnar séu
ósköp venjuleg opinber gögn og
þannig háð upplýsingarétti, sam-
kvæmt upplýsingalögum. „Það er
samt þannig að meðan verið er að
gera slíka útttekt þá eru þetta
gögn sem okkur ber ekkert endi-
lega að afhenda," sagði hann.
Fréttablaðið hefur þegar kært
ákvörðun þjóðleikhússtjóra til
Úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra segist ekki hafa átt að-
ild að þeirri ákvörðun ríkisend-
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Gögn sem okkur ber ekkert endilega að afhenda, segir Stefán Baldursson um opinberar fundagerðir bygginganefndar Þjóðleikhússins
sem hafa verið gerðar upptækar af rikisendurskoðanda.
urskoðunar að mælst yrði til þess
við Fram-
kvæmdasýsluna
og Þjóðleikshúsið
að þessar stofnan-
ir tjáðu sig ekki
um málefni Árna
Johnsen og bygg-
ingarnefndar
Þjóðleikhússins
eða afhentu gögn
þau varðandi.
„Ríkisendur-
skoðun hefur
BJÖRN
BJARNASON
menntamálaráð-
herra
fengið mjög mikilvægt hlutverk
og megintilgangur þess sem op-
inberir embættismenn eru að
vinna að núna er að komast að
niðurstöðu í málinu. Það er eðli-
legt að þeir fari að tilmælum rík-
isendurskoðanda," segir mennta-
málaráðherra.
Hvað fundagerðir byggingar-
nefndarinnar snertir bendir
Björn á að menntamálaráðuneyt-
ið geymi ekki fundagerðir fjöl-
margra stofnana sem heyra und-
ir ráðuneytið.
„Ég hef til dæmis ekki fundar-
gerðir útvarpsráðs eða þjóðleik-
hússráðs. Þessir aðilar sjá um
þær fyrir sig. Við fáum hins veg-
ar greinagerðir og getum spurst
fyrir um hvað hefur verið unnið.
Erindisbréf byggingarnefndar
Þjóðleikhússins laut fyrst og
fremst að gera áætlanir um
framtíðina. Við fengum þá áætl-
un og það finnst mér endurspegla
störf nefndarinnar," segir Björn
Bjarnason.
gar@frettabladid.is
0pii í Auitupvipi
fpí Ii00 á fflUPlRðRi
fil i'00 iftÍF miðRstti
Arftaki Árna Johnsen á Alþingi:
Harmleikur Árna
bitnar ekki á flokknum
stjórnmÁl Kjartan Ólafsson, 47
ára framkvæmdastjóri Steypu-
stöðvar Suðurlands og garðyrkju-
bóndi í Ölfusi, er fyrsti varamað-
ur Árna Johnsen á Álþingi og mun
því taka sæti Árna á þinginu.
„Það eru frekar erfiðar að-
stæður sem eru þess valdandi að
þessi breyting verður og þetta er
því ekkert spennandi en svona er
þetta,“ segir Kjartan um þing-
mannsstarfið sem bíður.
Kjartan telur ekki að mál Árna
muni valda sér vanda í nýja starf-
inu. „Þetta kemur auðvitað ekkert
við mig persónulega en málið er
einfaldlega harmleikur. Það er
leiðinlegt þegar svona kemur fyr-
ir en ég á ekki von á að þetta bitni
á Sjálfsstæðisflokknum á Suður-
landi sem slíkum því málið er al-
farið bundið við eina persónu en
ekki flokkinn, flokksstarfið eða
aðra flokksmenn.
Kjartan segist hafa hug á að
beita sér fyrir fjölmörgum málum
á Alþingi, m.a. atvinnu- og sam-
göngumálum.
Aðspurður sagði Kjartan að
hvorki formaður Sjálfstæðis-
KJARTAN ÓLAFSSON
„Þetta kemur auðvitað ekkert við mig per-
sónulega en málið er einfaldlega harmleik-
ur," segir arftaki Árna Johnsens.
flokksins, formaður þingflokksins
né Árni Johnsen hefðu haft sam-
band við sig eftir að ljóst varð að
Árni mun láta af starfi alþingis-
manns. ■