Fréttablaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júll 2001 FÖSTUPAGUR
BRAUT RECLUR
Helgi Hjörvar sagði að ekki væri um að ræða aðför að nektardansstöðum og að allir sitji við sama
borð þegar þeir brjóta reglurnar. Veitingamaðurinn á Club Clinton segir að úrskurðarnefnd áfengismála
muni úrskurða honum „í vil á næstunni."
|löcreclufréttir|
Brotist var inn í fjóra bfla í gær-
morgun, þrjá í Breiðholtinu og
einn á Seltjarnarnesi, og stolið úr
þeim geislaspilurum og geisladisk-
um. Þá var stolið hjólkoppum af bif-
reið í Breiðholtinu.
—4—
s
Amiðvikudag voru þrír teknir fyr-
ir of hraðan akstur í Ólafsfjarð-
argöngunum. Hámarkshraði þar er
50 km og mældist einn þeirra á 107
km hraða. Að sögn lögreglunnar var
hér um vítaverðan akstur að ræða.
Lögreglan í Kópavogi hafði af-
skipti af ungum ökumanni um
tvítugt um hádegisbilið í gær. Mað-
urinn var að aka á Digranesvegi og
mældist hann á 101 km hraða en há-
markshraði á þessu svæði eru 50 km.
Forseti borgarstjómar um
Glub Glinton:
„Pöntum
ekki álit lög-
reglu“
borgarráð „Hvort sem um er að ræða
pizzastað eða nektardansstað þá ber
mönnum að fara eftir reglum," sagði
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórn-
ar, aðspurður um þá ákvörðun borg-
arstjórnar að svipta veitingastaðinn
Club Clinton vínveitingaleyfi.
Helgi vísar ásökunum Kristjáns
Jósteinssonar, veitingamanns á Club
Clinton, um „pólitíska aðför og stofn-
anaofbeldi" af hendi borgarstjórnar,
til föðurhúsanna og segir að ómögu-
legt sé fyrir Reykjavíkurborg að
„panta álit hjá lögreglu11 eins og
Kristján heldur fram í viðtali við
Fréttablaðið í gær.
„Frá því að lögreglan var gefa út
þessa fyrstu umsagnir sínar þá braut
veitingaraðilinn ítrekað þær reglur
sem honum er gert að starfa eftir,
einkum varðandi vínveitingatímann.
Þrátt fyrir að lögreglan hefði ítrekað
rýmt staðinn og áminnt hann þá hélt
hann áfram uppteknum hætti og lög-
reglan mælist gegn því að þeir sem
ekki fara eftir reglunum fái leyfi,“
sagði Helgi. ■
|löcreclufréttir|
Tuttugu og þriggja ára gömul
kona hefur verið dæmd fyrir
að draga sér um það bil 6 millj-
ónir króna þegar hún starfaði
sem kassadama hjá Hagkaup á
Akureyri á árunum 1998 og
1999. Hún játaði og sagði Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra að
hún hefði notað peninginn í eit-
urlyf, áfengi og skemmtanir. DV
greindi frá.
Fimm umferðaróhöpp urðu á
innan við tveimur tímum í
Reykjavík. Gerðist þetta á tíma-
bilinu frá klukkan tólf á hádegi
og til klukkan tvö. Að sögn lög-
reglunnar gerðist þetta um leið
og sólin fór að skína og akstur-
skilyrði urðu betri.
Leitað að olíu og
gasi við Jan Mayen
Fyrsta skipti innan efnahagslögsögunnar. Norskt fyrirtæki fær þriggja ára leyfi. Fjarkönnun án
borana. Ovíst um árangur.
TÁRAGASI KASTAÐ
Stuðningsaðili helsta stjórnarandstöðu-
flokks Sri Lanka kastar táragassprengju til-
baka að lögreglunni eftir að hún hafði kas-
tað táragasi og skotið gúmmíkúlum að
mótmælendum.
gúmmikúlum auk þess sem hún kas-
taði táragassprengum að þeim. Þjóð-
arflokkurinn, helsti stjórnarand-
stöðuflokkur Sri Lanka, hafði áður
hótað því að senda 100 þúsund mót-
mælendur á götur borgarinnar til að
mótmæla brottvikningu ríkisstjórn-
arinnar þann 11. júlí síðastliðinn.
Tók forsetinn ákvörðunina nokkrum
klukkustundum eftir að stjórnarand-
staðan hafði safnað saman nægum
atkvæðum til að lýsa yfir vantrausti
á hana. Þrátt fyrir að brottvikningin
hafi verið lögleg samkvæmt stjórn-
arskránni, hefur hún verið harðlega
gagnrýnd af öðrum stjórnmálaflokk-
um auk mannréttindahópa og stjórn-
málafræðinga. ■
Moskva og Pétursborg
t*ann 12. september verður borgarferö
(15 daga/14 nætur) til tveggja stærstu
borga Rússlands sem erú 1 senn
heillandi og magnþrungnar hvor á sinn
hátt. Menningarborgin Moskva sem er
merkileg blanda gamla og nýja timans,
verður skoðuð hatt og lágt undir
Öruggri leiðsögn Hauks Haukssonar sem
hefur marqra ára reynslu á þessum
slóðum. SÍðan verður farið með
járnbrautarlest til gömlu höfuðborgar
keisaraveldisins - Pétursborgar við
Finnskaflóa. þaðan veröur flogið með
SAS til Kaupmannahafnar á heimleiöinni.
Vilji menn vera eftir i Kaupmannahöfn
eöa koma inn i Stokkhólmi, látið vita
sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gef\ir Haukur
Hauksson i simun 848 44 29,og 554 06
66. SkoðiÖ www.austur.com Ahugasamir
skrái sig sem fyrst á
bjarmaland@strÍK.is
Dagur 1. miðvd. 12. sept. Morgunflug
fra Keflavík gegnum Stokkhólm, þaöan
flogið meö SAS og komiö til
alþjóðaflugvallarins i Moskvu síðdegis.
Rútuferð beint á hótel Rossiiu sem
er á besta stað i hjarta Moskvu við
Rauðatorgið. Kvöldverður á hóteli og
frjálst kvöld.
Dagur 2. Morgunverður hóteli. ítarleg
rútuskoöunarferö um heimsborgina
Moskvu.
Dagur 3. Kreml, Rauðat.org,
Alexandrovsky garöurinn þar er gröf
óþekkta hermannsins og þangað hefur .
heiöursvöröur hersins verið færður
úr grafhýsi Lenins. Frjálst kvöld,
mögulegt að fjölmenna á spilaviti eða
rússneskt diskótek (fyrír þá sem
viljaj .
Dagur 4. Pushkinlistasafnið,, þar eru
forngrisk og egypsk listaverk auk
frumverka evrópskra meistara s.s.
Picasso, Van Gogh o.m.fl... Arbat
göngugatan, götustemning, tónlistarmenn
og kaffihúsamenning. Siödegis borðaö
á veitingastaðnum ií sjöunda himnii
í sjónvarpsturninum Ostankino (540
m) - frábært útsýni yfir borgina.
Dagur 5. Farið i Gorki skemmtigarðinn
og listasafn þar sem geymdar eru
styttur fallinna kommunrstaleiðtoqa
sem teknar hafa verið niður. 19:00
Bolshoi leikhúsið, besti ballett
heims.
Dagur 6. Prúttmarkaöurinn Izmailovo,
þar fást framandi munir á kostakjörum.
Skemmtigaröurinn „V.D.N.X." í
stalíniskum stil með gullstyttum,
byggður á sinum tíma til að sýna
„efnahagsárangur" hins stóra ríkis.
Kl. 19:00 hin frægi Moskvusirkus,
brottför i rútu frá hóteli kl.l8:10.
Dagur 7. Sveitaferö til Sergiev Posad
(áður Zagorsk),
fraegrar
klausturborgar
norður af Moskvu,
ekið um frjósamar
sveitir ;Rússaveldis.
Dagur 8.^Sigling á
Moskv.uánni í
fljótábát og
þjóödansasýning um
kvöldið.
Dagur 9.
Sigurgarðurinn til
minningar um
siqurinn í
heimstyrjöldínni
síöari, merkilegt
striðsminjasafn.
Metró, hin einstaka
neðanjarðarlest í
Moskvu skoöuö, en
hún var byggð að
frumkvæði Stalins og
opnuö 1935.
Dagur 10. Frjáls dagur í höfuðbórginni.
Kl. 23:50 fariö á fyrsta farrými með
næturlestinni Rauðu örlnni iKrasnaja
strelai til Pétursborgar. Mæting á
iLeningradský vokzal" brautarstöðinni;
kl. 23:15, fariö þangaö i rútu frá
hóteli.
Dagur 11. Komið til Pétursborgar um
kl. 9, farið á hótel
með rútu, þar
morqunverður og frjáls
timí. Péturs og Páls -
virkið skoðað, þar eru
keisararnir grafnir.
Dagur 12. „Peterhof" =
Péturshof sumaraösetur
keisaranna frá því að
Pétur mikii lét byqqja
Pétursborg 'árið 1703.
Þjóðverjar eyðilögðu
staðinn í hinu 900 daga
Leningradumsátri en
Rússar endurreistu af
stakri eljusemi.
Kunstkamera
ináttúrugripasafni
Péturs mxkla.
Dagur 13.
Rútuskoðunarferö um hina
einstöku bprg iFeneyjar
norðursinsi. Hermitage
safnið imesta listasafn
allra timai.
Daqur 14. Frjáls dagur í Pétursborq.
Lokahóf fi kvoldverður með hljómsveit
og dansi í boði fararstjóra.
Dagur 15. miövd. 26.sept. Heimferö,
flogiö frá Pétursborg til
Kaupmannahafnar, lent í Keflavík
15:35.
HERINN BURT
Vistrisinnaðir stúdentar mótmæla veru
bandarískra hermanna á Okinawa-eyju fyrir
utan bandaríska stjórnarráðið í Tókýó í gær.
Liðþiálfi bandaríska flue-
hersins:
Kærður fyrir
að nauðga
japanskri
konu
t6ký6. ap. Timothy Woodland, lið-
þjálfi í bandaríska flughernum, var
í gær kærður fyrir að hafa nauðgað
tvítugri japanskri konu á eyjunni
Okinawa í Japan þann 29. júní.
Bandarísk yfirvöld neituðu í byrjun
júlí að framselja Woodland til jap-
anskra yfirvalda eftir að handtöku-
skipun hafði verið gefin út á hendur
honum þann 2. júlí og vakti það
mikla reiði á meðal íbúa eyjunnar.
Var hann síðan handtekinn þann 6.
júlí eftir samningaviðræður á milli
bandarískra og japanskra fulltrúa.
Réttarhöldin yfir Woodland, sem er
einn af 26 þúsund bandarískum her-
mönnum sem starfa á Okinawa-
eyju, verða haldin á vegum jap-
anskra dómstóla og verði hann
dæmdur sekur mun hann afplána
dóminn í japönsku fangelsi.
íbúar í Okinawa hafa lengi
kvartað yfir endurteknum afbrot-
um bandarískra hermanna á eyj-
unni, en þrátt fyrir loforð Banda-
ríkjastjórnar hefur lítið verið gert í
málunum. ■
Þúsundir íbúa Sri Lanka:
Mótmæla brottvikningu
ríkisstjórnarinnar
COLOMBO, SRI lanka. AP. Að minnsta þegar þúsundir manna mótmæltu ríkisstjórn landsins frá störfum í 60
kosti einn lést og 27 særðust í ákvörðun forseta landsins, Chand- daga. Lögreglan brást harkalega við
Colombo, höfuðborg Sri Lanka, í gær rika Kumaratunga, um að víkja allri og sló til mótmælenda og skaut
jarðefni Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra hef-
ur veitt norska fyrirtækinu InSeis
leyfi til leitar að olíu og gasi innan
íslensku efnahagslögsögunnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem leyfi
af þessu tagi er veitt á íslensku
hafsvæði samkvæmt lögum sem
samþykkt voru á Alþingi sl. vor.
Steinar Þór Guðlaugsson jarðeðl-
isfræðingur hjá Orkustofnunin
segir að líkurnar fyrir því að eitt-
hvað muni finnast séu best mæld-
ar með þeim kostnaði sem norska
fyrirtækið ætlar að leggja í þessa
leit næstu þrjú árin, eða yfir 100
milljónir króna. Leitarsvæðið
þekur um 42 þúsund ferkílómetra
á suðurhluta Jan Mayen hryggjar-
ins í norðausturhluta íslensku
efnahagslögunnar.
Ráðherra segir að fleiri fyrir-
tæki hafi ekki sótt um leyfi til
þessara rannsókna. Við leitina
verða stundaðar umfangsmiklar
hljóðvarpsendurmælingar og því
þarna um að ræða fjarkönnun án
borana. Rannsóknarskipið Polar
Prinscess er væntanlegt á svæðið
innan skamms. Steinar Þór segir
að Jan Mayen hryggurinn sé talin
vera úr meginlandsbergi af svip-
aðri gerð og það berg sem er til
staðar yst á landgrunni Græn-
lands og Noregs. Af hálfu fyrir-
tækisins er gert ráð fyrir að nið-
urstöður mælinganna muni vekja
áhuga annarra olíufyrirtækja,
enda hefur það samkvæmt leyf-
inu heimild til að selja öðrum að-
gang að niðurstöðunum. Fyrir
þetta leyfi borgar fyrirtækið alls
um 850 þúsund íslenskar krónur.
Ráðherra bendir á að leyfis-
veitingin til InSeis veitir því eng-
an rétt til borana eða vinnslu.
Leyfið er veitt að fenginni um-
sögn sjávarútvegsráðuneytisins
og umhverfisráðuneytisins. í lög-
unum er einnig gerður greinar-
munur á leit að olíu og gasi annars
vegar og rannsóknum á vinnslu
olíu og gass hins vegar. Af öðrum
svæðum sem komið hafa til álita
sem hugsanlegir staðir fyrir olíu
og gas er svæðið í kringum Öxar-
fjörð og út af Eyjafirði.
-grh@frettabladid.is
STEINAR ÞÓR GUÐLAUGSSON JARÐEÐLISFRÆÐINGUR
Hófleg bjartsýni ríkir um það hvort ollu og gass sé að finna innan efnahagslögsögunnar