Fréttablaðið - 20.07.2001, Side 7
FÖSTUDAGUR 20. júlí 2001
FRETTABLAÐIÐ
7
Friðartillögum hafnað í Makedóníu:
Robertson og Solano
fresta heimsókn
skopje. MAKEDÓNÍfl. flp. Robertson
lávaröur, framkvæmdastjóri NATO,
og Javier Solano, fulltrúi utanríkis-
mála Evrópusambandsins, frestuðu í
gær fyrirhugaðri heimsókn sinni til
borgarinnar Skjope í Makedóníu, eft-
ir að yfirvöld í landinu höfnuðu frið-
artillögum sem Bandaríkin og ESB
höfðu lagt fram um vopnahlé á milli
Makedóníu og albanskra uppreisnar-
manna, en bardagar á milli þeirra
hafa nú geisað í 5 mánuði. Ljubco Ge-
orgievski, forsætisráðherra
Makedóníu, sakaði í gær Bandaríkin
og ESB um afskiptasemi og gaf lítið
út á nýjar friðartillögur þeirra. „Það
sem við fengum á borð til okkar eru
tillögur um að skipta upp Makedón-
íu,“ sagði Georgievski aðspurður um
tillögurnar. í þeim er lagt til að
makedóníska verði áfram opinbert
tungumál í landinu og að Makedónar
hafi ennþá umsjón með lögreglumál-
um. Ennfremur er lagt til að albanska
verði annað opinbera tungumálið á
sumum svæðum í landinu.
í gær særðist kona eftir að tvær
handsprengjur sprungu undir bíl í
austurhluta Makedóníu og í fyrra-
kvöld sprakk sprengja nálægt versl-
HAFNA FRIÐARTILLÖGUM
Boris Trajkovsky, forsteti Makedóníu, á
fundi sem haldinn var fyrir skömmu þar
sem rætt var um að binda endi á 5 mán-
aða löng átök á milli Makedóní og al-
banskra uppreisnarmanna. Friðan/iðræður
hafa nú siglt í strand.
unarmiðstöð, en enginn slasaðist.
Ekki er vitað hverjir báru ábyrgð á
sprengingunum. ■
Höfuðborgarsvæðið:
TilVogaog
áleiðis í
Reykjanesbæ
skipulag Gunnar I. Birgisson þing-
maður og formaður bæjarráðs
Kópavogsbæjar segir að tillögur
um svæðaskipulag höfuðborgar-
svæðisins sé málamiðlun á milli
sveitarfélagana átta. Hann spáir
því hins vegar að innan við 20 ár
muni byggðin þróast suður á bóginn
yfir til Voga í Vatnsleysustrandar-
hreppi og m.a. vegna nálægðar við
Keflavíkurflugvöll. Hann telur að
nokkru seinna verði byggðin komin
langleiðina suður til Reykjanesbæj-
ar. Hann býst aftur á móti ekki við
að byggðin þróist
eins hratt norður á
bóginn vegna veð-
ursfarslegra þátta.
Bæjarráðsfor-
maðurinn segir að
sér lítist alveg
þokkalega á þá
stefnu að þétta
byggðina á höfuð-
borgarsvæðinu og
nýta landið betur
en verið hefur.
Hann bendir á að
við gerð skipulags-
ins hafa sveitarfé-
lögin verið að toga
í sína potta ,eins
og hann orðar það. Hann segir að
þeir í Kópavogi séu nokkuð sáttir
við sinn hlut, þótt því sé ekki að
neita að allir vilja hafa sinn fífil
fegurri í þessum efnum eins og öðr-
GUNNAR I.
BIRGISSON
FORMAÐUR
BÆJARRÁÐS
KÓPAVOGSBÆJ-
AR
Segir að veðurfar
skipti miklu við
þróun byggðar
Gefum ekki færi á
frekari styrkjum
Flugleiðsögugjald af innanlandsflugi fellt niður.
Mikil uppstokkun í gangi en ekki gefið færi á
frekari ríkisstyrkjum, segir Sturla Böðvarsson.
STURLA BÖÐVARSSON
Reynt að treysta stoðir innanlandsflugs, m.a. með styrkjum og niðurfellingu gjalda.
Hvarf Chöndru Levy:
Leitað á
vefslóð-
um
WASHINGTON.AP Lögregla leitar nú
á vefsíðuslóðum í þeirri von að fá
upplýsingar um hvarf Chöndru
Levy frá Kaliforníu. Lögreglan
telur hugsanlegt að hún hafið
haldið á einhvern þeirra staða
sem hún skoðaði á Netinu, ef til
vill er von til að fá þar upplýsing-
ar um ferðir hennar. Eftir að hafa
verið yfirheyrður í þrígang, við-
urkenndi þingmaðurinn Gary
Condit loks fyrir stuttu, að hafa
átt í ástarsambandi við Levy, sem
er 24 ára og sást síðast 30. apríl.
Hann er ekki grunaður um aðild
að hvarfinu enda er ekki litið á
það sem glæp. ■
Innanlandsflug Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, lagði til á ríkis-
stjórnarfundi í gær að flugleiðsögu-
gjald af innanlandsflugi yrði fellt
niður. Tekjur ríkissjóðs af þessu
gjaldi hafa verið um 45 milljónir á
ári.
„Það er alveg ljóst að flugfélögin
í innanlandsfluginu eru í verulegum
rekstrarvanda. Við höfum ekki ein-
göngu verið að bregðast við þessu
með því að fella niður flugleiðsögu-
gjaldið heldur buðum líka út
ákveðnar flugleiðir, þ.e.a.s. við
greiddum styrki til flugsam-
gangna,“ segir Sturla. Flugleiðirnar
sem um ræðir eru frá Reykjavík til
Gjögurs, frá Akureyri til ýmissa
smærri staða á landsbyggðinni og á
Vestfjörðum yfir vetrarmánuðina.
„Þetta eru verulegir styrkir sem
þarna er um að ræða og kemur til
móts við flugfélögin en áður voru
þau að baksa við að halda þessum
rekstri úti án ríkisstyrkja," segir
Sturla. Þessir styrkir og svo niður-
felling flugleiðsögugjaldsins á að
koma til móts við flugfélögin í inn-
anlandsflugi.
„Við höfum ekki viljað gefa færi
á frekari styrkjum að svo komnu
máli og verðum að sjá hver fram-
vindan verður. Þetta er mikil upp-
stokkun sem á að ganga út á það að
flugið verður hagkvæmara. Það er
mat Flugfélags Islands með því að
fljúga eingöngu á þrjá staði þá nái
þeir mikilli hagkvæmni. Það kann
vel að vera að flugrekstraraðilar,
sem eru með nægjanlega góðar
flugvélar, og fljúga á þessa tiltekna
staði eins og Höfn og Vestmanna-
eyjar, að þeir geti náð svo mikilli
hagkvæmni og markaðshlutdeild að
það dugi þeim til að gera þetta án
styrkja umfram það sem við vorum
að ákveða í morgun," segir Sturla
Böðvarsson. bjorgvin@frettabladid.is
Mexíkóskir fangar taka þátt í tilraun:
Megrunarkúr sem
dregur úr ofbeldi
næring Nokkrir af ofbeldisfyllstu
föngum Mexíkó verða bráðlega
settir á sérstakan megrunarkúr
sem er bæði járn- og kalsíumrík-
ur. Er ætlunin að draga úr áhrif-
um þeirra mangan-efna sem talin
eru leiða til ofbeldisfullrar hegð-
unar. „Mangan-efni draga úr
áhrifum af völdum
dópamíns....en það veldur ofbeld-
isfullri hegðun, eitthvað sem við
höfum vitað síðan 1970 þegar
sojamjólk fyrir börn, sem hefur
50 sinnum meiri mangan-efni
heldur en brjóstamjólk, var sett á
markað," sagði Joaquin Sender-
os, mexíkóskur fulltrúi rann-
sóknarstofnunar ofbeldishegðun-
ar í Kaliforníu í samtali við
Reuters. Að sögn hans mun hópur
sjálfboðaliða sem eru í fangelsi í
Mexíkó brátt hefja megrunarkúr
byggðan á rannsóknum stofnun-
arinnar. Forseti stofnunarinnar,
Everett Hodges, segir að dregið
hafi úr ofbeldi í fangelsum um
38% þegar 133 bandarískir fang-
ar voru nýlega settir í tilrauna-
skyni á megrunarkúrinn sem
stóð yfir í sex mánuði. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
að óhapp varð að flutningabif-
reið sem ók um göngin frá
Ólafsfirði í átt til Dalvíkur lenti í
árekstri við fólksbifreið. Reglan
er sú að sá sem keyrir í áttina til
Dalvíkur á réttinn en virtist öku-
maðurinn í fólksbifreiðinni ekki
átta sig á því og var ekki á því að
hleypa flutningabílnum framhjá.
Ökumaður flutningabifreiðarinn-
ar, sem kominn var að gangnaop-
inu Dalvíkurmeginn, sá hvert
stefndi og stöðvaði bifreiðina og
ók ökumaður fólksbifreiðarinnar
á trukkinn og nuddaðist þar í
honum skamma stund. Að end-
ingu gaf ökumaður fólksbifreið-
arinnar sig og bakkaði frá en
endaði þá utan í göngunum. Við
nánari eftirgrennslan kom í ljós
að eldri mann var að ræða og
sagði lögregla manninn sennileg-
ast þurfa að gangast undir öku-
hæfnispróf.
Bónstöðin TEFLON jg
GSM 821 4848 Sími 567 8730 ■
I Lakkvörn~
2. ára ending
z
0
Teflonhúðun Djúphreinsun
Blettanir Mössun Alþrif
Opið alla virka daga 8.30-18.00
www.teflon.is • Krókhálsi 5 • Toughseal umboðið
J
IL
yj
h
r- ™-Veldu
FordTransit
Sendibíl ársins 2001
Reykjavík
Brimborg
Bfldshöfða 6
Sími 515 7000
Akureyri
Brimborg
Tryggvabraut 5
Sími 462 2700
FordTransit er sterkbyggður með einstaka flutnings- og burðargetu.
I FordTransit sameinast rúmlega 35 ára þekking og reynsla á hönnun
sendibíla. FordTransit er glæsilegur og gott útsýni um stórar rúður gerir
aksturinn mun þægilegri og öruggari. Komdu og sjáðu hversu gott þú
getur haft það við aksturinn.
<>
brimborg
www.brimborg.is
Nýtt og glæsilegt útlit
Framdrif með spólvöm
Lægri viðhaldskostnaður
Nýjar dísel vélar
Meira og þægilegra hleðslurými