Fréttablaðið - 20.07.2001, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júlí 2001 FÖSTUPACUR
Símadeild karla:
Fylkir með 4
stiga forystu
knattspyrna Fylkir sigraði
Grindavík 4-0 á útivelli í gær-
kvöld og er nú komið með fjög-
urra stiga forskot í Símadeild-
inni. Staðan í hálfleik var 2-0 og
skoruðu þeir Hrafnkell Helgason
og Ólafur Stígsson mörkin. í síð-
ari hálfleik bættu síðan þeir
Steingrímur Jóhannesson og
Theodór Óskarsson við tveimur
mörkum.
Fylkir er nú með 21 stig í
deildinni, en ÍA, Valur og ÍBV
koma næst með 17 stig. Grinda-
vík situr í 7. sæti með 12 stig, en
á tvo leiki til góða. ■
MOLflR |
Brasilíski knattspyrnumaður-
inn Ronaldo segist vera tilbú-
inn í harðar tæklingar á æfingum
með liðsmönnum sínum hjá Inter
áður en tímabilið hjá ítölsku A
deildinni hefst. Ronaldo er að
jafna sig eftir tvær hnéaðgerðir,
þá síðari í Frakklandi í apríl, sem
gerði það að verkum að hann er
búinn að vera frá í nær tvö ár.
Hann segir að það sé mikilvægt
að liðsmenn hans taki hann eng-
um vettlingatökum á æfingum.
„Ég vonast eftir því að það verði
sparkað almennilega í mig, þan-
nig að ég geti séð hvað gerist,“
sagði Ronaldo. „Ég er í góðu
formi, bæði líkamlega og and-
lega. Ég hlakka til rosalegs tíma-
bils.“ Ronaldo, sem var kosinn
leikmaður ársins af FIFA bæði
1996 og 1997, spilaði síðast heilan
leik með Inter í nóvember 1999.
Hann verður í fremstu víglínu í
vetur hjá Inter, ásamt ítalanum
Christian Vieri.
www. krakkabonki. is
Guðmundur Hreiðarson spáir í 9. umferð Símadeildar kvenna:
Jafntefli í toppslagnum
knattspyrna í kvöld fara fram þrír
leikir í 9. umferð Símadeildar
kvenna í knattspyrnu. Grindavík
tekur á móti FH á Grindavíkur-
velli, Blikastúlkur fara til Eyja og
í Frostaskjóli mætast KR og
Breiðablik. Guðmundur Hreiðars-
son aðstoðarmaður Atla Eðvalds-
sonar, landsliðsþjálfara var feng-
inn til að spá um leiki kvöldsins.
„Ég spái því að FH sigri með einu
marki gegn engu, þær eru á upp-
leið. Ég hef séð FH stelpurnar
spila en ég hef ekki enn séð til
Grindavíkur liðsins,“ sagði Guð-
mundur. Hann segir FH vera með
skipulagt lið og að hans viti eru
þær með einn efnilegasta mark-
mann deildarinnar, Guðbjörgu
Gunnarsdóttur.
Guðmundur sá Eyjastelpur tapa
stórt gegn Breiðablik í bikar-
keppninni og segir að þær hafi átt
mjög dapran leik þann dag. „Ég á
samt Von á því að þær bretti upp
ermarnar og taki á móti sterku liði
Vals. Það hefur að vísu komið á
óvart að Valsstúlkurnar hafa ekki
gert betur en staðreynd er. Þær
eru sýnd veiði en ekki gefin og
þær koma til með að sýna að þær
eigi að vera í efri hlutanum." Hann
telur samt að heimavöllurinn eigi
eftir að vega þungt og Eyjastúlkur
fari með sigur af hólmi 2-0.
Guðmundur spáir hörkuslag í stór-
leik umferðarinnar þegar KR og
Breiðablik mætast. „Þarna mætast
að mínu viti tvö sterkustu liðini í
dag. KR stelpurnar hafa verið að
spila feyki vel og góðan fótbolta. Á
meðan hafa Blikarnir verið að
missa flugið þótt þar sé mikill og
góður efniviður. Jörundur Áki hef-
ur verið að gera frábæra hluti sem
þjálfari. Ég hallast á að þarna séu
áþekk lið og spái því að leikurinn
bjóði upp á fullt af marktækifær-
um. En liðin hafa bæði frábæra
markverði svo ég spái markalausu
jafntefli." ■
MARKMANNSÞJÁLFARINN
Guðmundur Hreiðarsson þjálfar marga
leikmenn í efstu deild kvenna og karla.
Hann býst við jafntefli í stórslag
umferðarinnar.
„Ég er hvorki
ungur né
efnilegur ‘ ‘
Hjörtur Hjartarson hefur skorað níu mörk í tíu
leikjum með IA. Hann segist ekki hafa leitt
hugann að landsliðssæti en segir að það gæti
verið gaman að prófa atvinnumennsku.
knattspyrna Hjörtur Hjartarson
hefur farið mikinn með Skaga-
mönnum í sumar og hefur skorað
níu mörk í tíu leikjum í Símadeild-
inni. Hjörtur er fæddur og uppal-
inn á Akranesi og spilaði með ÍA
upp alla yngri flokkanna. Hann
ákvað að fara yfir í Skallagrím úr
Borganesi árið 1993. „Þegar ég
kom upp úr 2. flokki var Skaginn
búinn að vinna allt sem hægt var
að vinna þannig að það var lítið
pláss fyrir mig þar. Ég spilaði
með Skallagrími tvö tímabil en
fór svo til Húsavíkur og spilaði
með Völsungi," sagði Hjörtur þeg-
ar Fréttablaðið sló á þráðinn til
hans í gær. „Það gekk nú ekki al-
veg nógu vel þar, ég skoraði ekki
nema sex mörk og við féllum."
Hjörtur fór aftur yfir í Skalla-
grím og spilaði með þeim í efstu
deild og skoraði fimm mörk og
árið eftir sautján mörk í átján
leikjum en þá spilaði liðið í næst
efstu deild. „Það munaði litlu að
ég færi til Fylkis þetta ár þegar
Ólafur Þórðarson tók við liðinu en
Skallagrímur vildi ekki sleppa
mér.“ Árið eftir tók Ólafur við IA
liðinu og þeir höfðu samband við
Hjört. „Það kom ekkert annað til
greina en að fara til ÍA þegar þeir
loksins vildu fá mig enda var
þetta langþráður draumur."
Hjörtur er að vonum sáttur við
gengi sitt í sumar. „Þetta er fram-
ar mínum vonum og væntingum
og sjálfsagt allra annarra. En það
blundaði svo sem alltaf í manni að
maður gæti staðið sig vel í efstu
deild ef maður spilaði með góðu
liði. Liðið núna er miklu beittara
en í fyrra og ég hef notið góðs af
því.“
Hjörtur segir mikinn mun að
æfa með liði í efstu deild og segir
leikmenn í neðri deildum ekki
þurfa leggja eins mikið á sig. Það
sé allt annað umhverfi að spila í
efstu deild.
„Óli Þórðar sagði við mig þegar
ég kom fyrst uppá Skaga að það
tæki mig eitt og hálft ár að kom-
ast í almennilegt form og það er
að ganga eftir. Hann er langbesti
þjálfari sem ég hef haft, vill að
menn leggi mikið á sig og er sjálf-
ur besta fyrirmyndin að því. Hann
æfir og spilar með okkur."
Markaskorarinn segist ekki
hafa leitt hugann að landsliðssæti.
„Það hafa nú meiri markaskorarar
en ég verið fyrir utan landsliðið
eins og Steingrímur Jóhannesson.
Hann hefur skorað 50-60 mörk í
efstu deild en á kannski einn æf-
ingaleik með landsliðinu að baki.
Það þarf nú meiri kosti en að
skora níu mörk á einu tímabili í
efstu deild.“ En hvað með at-
vinnumennskuna?
„Það væri gaman ef það myndi
bjóðast en þetta er svo nýtilkomið
að mér gangi svona vel. Til að
maður verði atvinnumaður þarf
maður að spila tvö til þrjú tímabil
vel. Nema þú sért ungur og efni-
legur og ég er hvorugt þessara
MARKASKORARINN
Hjörtur sést hér í leik gegn FH úr Hafnar-
firði. Hann skoraði eina mark leiksins í 1-0
sigri á Hafnarfjarðarliðinu.
hluta. Það er ekki inní myndinni í
dag og ég hef alveg svefnfrið fyr-
ir símhringingum," sagði Hjörtur
að lokum. ■
Landsliðsþjálfari Brasilíu gafst upp á að spila í bláu:
Dulspekileg ákvörðun
GULUR SIGUR
Brasilíumaðurinn Alex fagnar marki gegn Paragvæ ásamt
Scolari og öðrum á miðvikudaginn.
knattspyrna Brasilíumönn-
um tókst ekki aðeins að kom-
ast áfram í fjórðungsúrslit
Ameríkubikarins í Kólumbíu
með því að sigra Paragvæ
með þremur mörkum gegn
engu. Þeim tókst líka að af-
sanna það að hjátrú þjálfar-
ans væri réttmæt með því að
sigra í hinum venjulegu gulu
treyjum.
Hinn nýi þjálfari, Luiz
Felipe Scolari, hefur skoðan-
ir á búningum liðsins. í síð-
ustu viku lét hann liðið spila
í varabúningunum, sem eru bláir
og hvítir. í kjölfarið braut liðið
upp sex sigurlausa leikjaröð með
því að sigra Perú með tveimur
mörkum gegn engu. Scolari, sem
er uppalinn í syðsta hluta Brasilíu,
var að vonum ánægður með ár-
angurinn. Fyrir leikinn fór hann í
kirkju heilags Júdasar Thadeusar,
sem er dýrlingur hinna örvænt-
ingafullu.
„Það var dulspekileg ákvörðun
að láta liðið spila í bláu,“ sagði
Scolari eftir leikinn gegn Parag-
væ. „Blái búningurinn var mér
mjög mikilvægur. En strákarnir
sönnuðu að sá guli er ekki
síðri.“
Þó Scolari væri á góðri
leið með að rífa landslið Bras-
ilíu upp úr verstu lægð í
manna minnum var fólki
heima fyrir ekki sama um
valið á bláu búningunum.
„Þetta er nútíma fótbolti. Við
höfum engan tíma fyrir þessa
dulspeki," sagði Guilherme
Aparecido, fimmtugur leigu-
bílstjóri í Rio de Janeiro.
„Önnur landslið verða sterk-
ari með hverjum deginum
sem líður, þau bera ekki lengur
sömu virðingu fyrir því brasilíska
og áður.“ Scolari lét allar athuga-
semdir sem vind um eyru þjóta.
„Enginn Brasilíumaður segir mér
hvaða treyju landsliðið notar,“
sagði hann áður en hann sá að sér
og leyfði liðinu að spila í gulu. ■