Fréttablaðið - 20.07.2001, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 20. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Borðtennisæska íslands:
Til Ítalíu á
Evrópumót
BORÐTENNIS Evrópumót unglinga
í borðtennis hefst í dag og
stendur til 29. júlí. Mótið fer
fram í Terni á Ítalíu. ísland
sendir til keppni bæði drengja-
og stúlknalið.
Alls taka 40 þjóðir þátt í mót-
inu. Andstæðingar drengjaliðs-
ins til að byrja með eru Spán-
verjar, Slóvanar og Bosníu-
menn. Stúlkurnar mæta hins-
vegar Spánverjum, Búlgörum
og Norðmönnum.
Þjálfari liðanna er Ólafur
Rafnsson en hann tók við þjálf-
arastarfinu fyrr á þessu ári. ■
BORÐTENNISÆSKAN
Þeir sem skipa landslið unglinga eru: Matthías Stephensen, yngri bróðir Guðmundar
Stephensen borðtennisleikara, Tryggvi Áki Pétursson, Óli Páll Geirsson, Magnús F. Magn-
ússon, Kristín Á. Hjálmarsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir og Aldís Rún Lárusdóttir
Vináttuleikur Liverpool ogTælands:
Sjúkrakassar í stúkunni
knattspyrna Liverpool sigr-
aði í vináttulandsleik við
Tælendinga á Rajamangala
leikvanginum í Bangkok í
gær. 60 þúsund manns
mættu til að horfa á Tæland
tapa 3-0.
Leikvangurinn var troð-
fullur tveimur timum áður
en leikurinn byrjaði, Tæ-
lendingar voru spenntir að
berja hið heimsfræga Liver-
pool lið augum. Mikið var af
eldri knattspyrnuáhangend-
um og voru margir þeirra
með sjúkrakassa og annað ef vera
skyldi að það yrði of mikið áfall að
sjá stjörnurnar.
ÖRUGGUR
Markvörður Tælands, Wirat Wanghan, bjargar boltan-
um frá hinum skæða markaskorara Liverpool, Mich-
ael Owen, í vináttuleiknum i gær.
Liverpool leikur næst vináttu-
leik við hollenska landsliðið í lok
mánaðarins. ■
GÓÐ BYRJUN
Colin Montgomerie slær hér upp úr einni af 196 sandglompum á Lytham vellinum. Hann
er á sex höggum undir pari og hefur þriggja högga forystu á næsta keppenda.
Opna breska meistaramótið í golfi:
Besta byrjun
Monty frá
upphafi
golf Skotinn Colin Montgomery
leiðir Opna breska meistaramót-
ið, sex höggum undir pari eftir
fyrsta keppnisdag. Monty lék
hringinn á 65 höggum en á eftir
honum koma Brad Faxon frá
Bandaríkjunum, Chris DiMarco
Bandaríkjunum og Mikko Ilonen
frá Finnlandi á þremur höggum
undir pari. Tiger Woods byrjaði
titilvörnina hinsvegar ekki vel og
lék á 71 höggi sem er par vallar-
ins.
Monty lék fyrri níu holurnar á
30 höggum og náði snemma for-
ystu. Hann lauk deginum á því að
setja niður 40 feta pútt á átjándu
holu, sem skilaði honum fugli,
samanlagt sex högg undir parinu.
Keppendur spiluðu í ágætis
veðri í gær, en daganna á undan
hafði rignt mikið. Enginn þeirra
var þó í jafn miklu stuði og
Montgomerie sem byrjaði mótið
betur en nokkur tímann fyrr, en
hann hefur aldrei verið undir 70
höggum eftir fyrsta dag í þau ell-
efu skipti sem hann hefur tekið
þátt. Áhorfendur létu heldur ekki
á sér standa og fögnuðu hverju
höggi Skotans. „Þetta var hreint
út sagt frábært," sagði
Montgomerie. „Áhorfendur stud-
du vel við bakið á mér.“
Fyrstu tvær holurnar fór Skot-
inn á fugli en á níundu holu fékk
hann skolla. Hann náði þó að jafna
það strax á þeirri tíundu með erni
en svo héldu allir að allur vindur
væri úr honum þegar hann þrí-
púttaði á fjórtándu holunni. Hann
sýndi þó hversu megnugur hann
er þegar hann notaði aðeins eitt
högg á næstu fjórum flötum, þar
með talið hið langa pútt á síðustu
holunni. „Þegar ég pútta vel á ég
möguleika og í dag púttaði ég
vel,“ sagði Monty.
Tiger Woods, sem sigraði á 19
höggum undir pari í fyrra, lenti
bæði í glompu og háu grasi á síð-
ustu holunni. Hann náði samt að
snúa sig út úr því og endaði á pari.
Hann lenti aldrei í glompu í fyrra
þegar hann sigraði á St. Andrews
vellinum en Lytham völlurinn
hefur að geyma 196 slíkar hindr-
anir. „Ég hitti ekki boltann jafn
vel ogýg vildi en það kom ekki að
sök. Ég er ánægður með það,“
sagði Woods eftir hringinn.
Athygli vakti að tveir af fræg-
ustu golfleikurum heims, þeir
Nick Faldo frá Bretlandi og Dan-
inn Thomas Björn, voru meðal
neðstu keppenda eftir fyrsta
hring. Faldo fjórum höggum yfir
pari og Björn fimm höggum.
Enn meiri athygli vakti árang-
ur áhugamannsins Mikko Ilonen
frá Finnlandi. Hann átti magnað-
an leik á fyrsta degi, eftir sextán
holur var hann tveimur höggum á
eftir Monty en náði ekki að halda
það út og endaði sem áður segir í
þriðja sæti. Það verður spennandi
að fylgjast með honum næstu
daga. ■
Spænsku meistararnir með kaupæði:
Viera í viðræðum
við Real Madrid
knattspyrna Umboðsmaður Pat-
rick Viera er á leið til viðræðna
við Spánar og Evrópumeistara
Real Madrid. Að sögn spænska
dagblaðsins AS munu Marc
Roger, umboðsmaður, og Jorge
Valdano, yfirmaður íþróttamála
hjá Madrid, hittast í höfuðborg
Spánar til að ræða framtíð Viera.
Að sögn blaðsins er talið líklegt
að samkomulag eigi eftir að nást
innan 48 tíma þótt Arsenal hafi
ekki gefið leikmanninum leyfi til
að ræða við önnur lið. Talið er að
Spánarmeistararnir séu tilbúnir
að borga 25 milljónir punda fyrir
leikmanninn. Ef samningarnir
takast mun Viera spila við hlið
landa síns Zinedine Zidane, sem
á dögunum varð dýrasti knatt-
spyrnumaður heims. Viera
hefur verið ósáttur við dvölina
hjá Arsenal og gagnrýndi liðið
harkalega um daginn. Hann
baðst þó afsökunar á fram-
ferði sínu.
Stjórn Lundúnarliðs-
ins vill alls ekki missa
leikmanninn úr sín-
um röðum
en það
v e r ð u r
erfitt fyrir
hana að segja nei
ef boðin verður nógu
há upphæð. ■
Á FÖRUM
Spænskir fjölmiðlar telja líklegt að
Patrick Vieira muni ganga til liðs við
Real Madrid á næstu dögum.
Öll tjöld uppsett inna,
MCKINLEY HEDOS
Rúmgott J
fjölskyldutjald. jr
SIERRA TRAIL ,
Létt og skemmtilegt
þriggja manna tjald
hæð: 125 cm
3-manna, þyngd: 4,4 kg
hæð: 180 civi
5-manna, þyngd: 9,6 kg
3-manna
MCKINLEY DOULITE
Létt og skemmtilegt
tveggja manna tjald.
MCKINLEY RANGER Mjög
vinsæl tveggja til sex manna
tjöld. j
hæð: 100/60 cm
2-manna, þyngd: 2,6 KG
MCKINLEY MOONLITE ///
Mjög létt tveggja manna Jy
braggalagað tjald. //
MCKINLEY TIBET PLUS
Gott þriggja manna tjald (
útileguna.
hæð: 120 cm
3-manna, þyngd: 4,2 kg
hæd: 100/60 cm
2-manna, þyngd: 2,95 kg
Sendum í póstkröfu
OKKAR FAG
Raðgreiðslur/iéttgreiðslur