Fréttablaðið - 03.08.2001, Side 1
ÍÞRÓTTIR
Greene
hleypur
meiddur
bls 14
BILAR ■ ' nflM K FJARMAL
Samrœmt Verðum að
verð á bílum virða múra
bls 8
/P*'
w?
bls 4
sts
ÖRYGGlSNUÐSíœ ÍSLANDS
HEIMAGÆSLA
Sími 530 2400
FRETTAB
62. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 3. ágúst 2001
FOSTOPAGy^
Út um allt
SKEMMTflNIR Það
væri að æra
óstöðugan að telja
upp allar þær
skemmtanir og úti-
hátíðir sem boðið er
upp á um heigina.
Fjölmenni verður
víða, svo sem í Eldborg, á Skaga-
strönd, Akureyri og í Eyjum.
í bænum
sýningar Fyrir þá sem ekki fara á
útihátíðir er af nógu að taka. Fjöldi
sýninga er víðsvegar í Reykjavík
og nágrenni.
ÍVEÐRIÐ í DAC!
REYKIAVÍK Norðlæg átt,
5-8 m/s og skýjað með
köflum, en hætt við síðdegis-
skúrum Hiti 9 til 15 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður 0 3-5 Skýjað Q10
Akureyri O 5-8 Skýjað Qll
Egilsstaðir Q 8-13 Skýjað Qll
Vestmannaeyjar © 1-3 Léttskýjað Q15
Styttri ferðir
útivera Það þarf ekki alltaf að fara
langt. Reykvíkingum og nágrönn-
um er bent á að unnt verður að tjal-
da í Viðey og boðið verður upp á
siglingar á Þingvallavatni.
HM í frjálsum
hefst í dag
íþróttir Heimsmeistaramótið í
frjálsum fþróttum hefst í Edmont-
on í Albertafylki í Kanada í dag.
Fjórir íslenskir keppendur taka
þátt í mótinu. Stangastökkvararnir
Þórey Edda Elísdóttir og Vala
Flosadóttir hef ja keppni á morgun.
Einar Karl Hjartarson hástökkvari
hefur keppni á sunnudaginn og Jón
Arnar Magnússon tugþrautarkappi
keppir á mánudaginn og þriðju-
daginn.
IKVÖLDIÐ f KVÖLDI
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 Iþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvað les fólk
á aldrinum
25 til 29 ára?
Meðallestur íbúa
höfuðborgarsvæðisins
á virkum dögum
samkvæmt könnun
PriceWaterhouse-
Coopers frá
júní/júlí 2001
70,1%
70.000 eintök
70% fólks les blaðíð
Í72,5% IBUA HÖFUÐB0RGARSVÆÐI5INS A ALDRINUM
5 Tll 67 Ara LESA FRÉTTABLAÐIÐ AB MEÐALTALI SAMKVÆMT
KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FnAjÚLl 2001.
Bcirátta verður gegn
skemmtiferðaskipi
Alþjóðaflutningamannasambandið skipuleggur aðgerðir í Reykjavík. Kjaramál áhafnarinnar á
Clipper Adventurer eru óásættanleg. Koma á í veg fyrir flutning farþega frá borði. Ekkert pláss
fyrir lagabókstaf þegar réttlætanlegar aðgerðir eru í gangi.
verkalýðsmál „Það er alveg ljóst
að komið verður í veg fyrir að
þetta skip geti veitt farþegum sín-
um þjónustu", sagði Borgþór
Kjærnested, eftirlitsfulltrúi ITF,
en blásið hefur verið í lúðra til
allra þeirra sem að verkalýðsbar-
áttunni koma. Gripið verður til að-
gerða gegn skemmtiferðaskipinu
Clipper Adventurer og komið
verður í veg fyrir að farþegar fari
frá borði þegar skipið leggst að
Miðbakkanum í Reykjavíkurhöfn
klukkan sex að morgni þriðju-
dagsins 7. ágúst. Ástæðuna fyrir
þessum aðgerðum sagði Borgþór
vera að skipið hafi ekki gengið frá
alþjóðlegum viðurkenndum kjara-
samningum varðandi kjör áhafn-
arinnar um borð. „Við gagnrýnum
einnig þau íslensku ferðaþjón-
ustufyrirtæki sem standa að því
að þjónusta farþega sem hingað
koma til lands með skipi sem
þessu en Ijóst hefur verið i tvö ár
að það uppfyllir ekki þær kröfur
sem gerðar eru.“ Borgþór sagði
þetta skip eitt af fjörtíu skemmti-
ferðarskipum sem hingað kæmu
en öll hin væru með samninga við
stéttarfélög á Ítalíu, Spáni og víð-
ar.
Borgþór sagði skipið hafa mætt
mótmælum á Irlandi og verði svo
aftur þegar það snúi þangað aftur.
„Það slapp úr höfninni þar í fyrra-
dag en eftirlitsfulltrúinn var upp-
tekinn við annað skip og þeir lugu
til um brottfaratímann. Þetta ger-
ist ekki hér. Við fylgjumst náið
með skipinu og leggjum allt annað
til hliðar. Sagði hann undirbúning
mótmælanna hafa verið í gangi
undanfarna mánuði.
BORGÞÓR KJÆRNESTED OG
VALGARÐ RUNÓLFSSON
í gærkvöld var verið að undirbúa komandi
átök. Að óbreyttu getur komið til átaka við
Reykjavikurhöln.
Um aðgerðirnar sagði Borgþór
þær vera í anda verkalýðshreyf-
ingarinnar. „Þegar blásið er til að-
gerða af þessu tagi sem eru rétt-
lætanlegar og siðferðilegar er lítið
rúm fyrir lagabókstafinn. Lög-
reglan blandar sér ekki í mál af
þessu tagi meðan ekkert ofbeldi er
og það verður heldur ekki á ferð-
inni hér.“ Borgþór sagði þá far-
þega sem hugsanlega kæmust inn
í langferðarbíla jafnvel eiga von á
því að komast ekki til baka aftur.
„Það er mikil áhætta því samfara
fyrir þessa aðila að vera eitthvað
að ævintýrast með þetta," og bætti
ákveðinn við í lokin: „Við verðum
fastir fyrir."
Það eru sjómannafélög, Sleipn-
ir, Félag leiðsögumanna og fleiri
félög sem sjá um undirbúning að-
gerðanna.
Þess má geta að skipið leggur
samdægurs úr höfn eða klukkan
sex um kvöldið.
kolbrun@frettabladid.is
Vestmannaeyj ar:
E-töflur
í Eyjum
lögregla Sex menn voru í haldi
lögreglunnar í Vestmannaeyjum í
gærkvöldi vegna fíkniefna sem
fundust í fórum þeirra. Mennirnir
tengjast þremur aðskildum málum
og var bæði um aðkomu- og heima-
menn að ræða. Efnin fundust í
klæðnaði, á heimilum og í bílum.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar í Vestmannaeyjum voru þetta
fyrst og fremst E-töflur en einnig
hvítt duft sem átti eftir að rann-
saka frekar. Einn einstaklingur var
tekinn í gær með eitthvað á annan
tug taflna og hafði daginn áður
verið tekinn með eitthvað af efn-
um líka. Hann beið yfirheyrslu í
gærkvöldi. ■
HETJA DAGSINS Sveinn Hreiðar Jensson situr hér á bakka Skaftár og í baksýn má sjá staðinn þar sem vinnufélögum hans var ætlað að
koma í land. Það varð þó ekki af því þar sem að tveimur af þremur bátum hvolfdi og Sveinn Hreiðar sá sig knúinn til þess að stökkva
léttklæddur út í ána til þess að bjarga fötluðum vini sínum.
Bátar steyttu á skeri:
Bjargaði æskuvini sínum
slys Ungur maður vann ótrúlega
hetjudáð þegar hann stökk út í ís-
kalda Skaftá - skammt frá Hunku-
bökkum - eftir fötluðum æskuvini
sínum sem hafði fallið útbyrðis úr
Zodiak-gúmmíbát sem hafði steytt
á skeri. Þrír gúmmíbátar voru að
sigla niður ána með starfsfólk
Flugleiðahótelsins á Kirkjubæjar-
klaustri í skemmtiferð þegar tveir
fyrstu bátarnir lentu í óhappinu
með þeim afleiðingum að 12
manns féllu útbyrðis, 10 starfs-
menn og tveir leiðsögumenn.
Niðurtogið í ánni er gríðarlegt
á þessum stað og því lá mikið við
því að fólkið næðist á þurrt sem
fyrst. Þeir sem lentu í óhappinu
sögðu að þeir hefðu verið dregnir
niður um heilan kílómetra áður en
þeir náðust á land. Björgunar-
sveitir voru kallaðar út og þyrla
Landhelgisgæslunnar líka með
þrjá kafara innanborðs. Þeirra var
þó ekki þörf og var þyrlan aftur-
kölluð.
Sjá meira á blaðsiðu 7.
1 ÞETTA HELST [
Nýtt tækifæri í orkufrekum
iðnaði. Bandarísk fyrirtæki
hafa sýnt áhuga á að vera með
tölvuver hér á landi. bls. 2
Golfklúbbur Kópavogs og
Garðabæjar er í fjárhags-
vanda og hefur leitað aðstoðar
bæjarfélaganna. Erindin eru til
skoðunar. bls. 12
Veðurstofan gerir ráð fyrir að
veðrið verði einna best
sunnanlands og eins verður
þokkalegasta veður á Vestur-
landi. Hvergi er gert ráð vondu
veðri.
bls. 12