Fréttablaðið - 03.08.2001, Blaðsíða 15
FÖSTUPAGUR 3. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Sigursteinn Amdal hættir með FH:
A leið í atvinnumennsku
HflNDKNATTLEiKUR Sigursteinn Arn-
dal, varnarjaxl úr FH, er á leið til
Danmerkur þar sem hann mun
spila sem atvinnumaður í hand-
knattleik með úrvalsdeildarliðinu
Helsinge. „Ég kláraði stúdentinn í
vor og mig langaði að breyta til og
bæta mig sem handboltamann,"
sagði Sigursteinn þegar Frétta-
blaðið hafði sambandi við hann í
gær. „Gunni Beini (Gunnar Bein-
teinsson fyrrum landsliðsmaður
og leikmaður FH) fór í málið fyrir
mig. Ég æfði svo með þeim í viku
í sumar og í kjölfarið buðu þeir
mér samning og ég fer út á morg-
un [í dag].“ Sigursteinn er alinn
upp hjá FH og hefur spilað með
meistaraflokki í fjögur ár.
Hann segist vera á leið í nokk-
urskonar hálfatvinnumennsku
þar sem hann mun vinna létta
vinnu með.
„Ég er mjög ánægður með
samningin og það kom á óvart
hversu vel þeir gera við menn.“
Helsinge lenti í níunda sæti í
dönsku úrvalsdeildinni á síðustu
leiktíð en hefur verið að styrkja
hópinn fyrir komandi átök. Með
liðinu leikur Bo Stage sem eitt
sinn lék með KA mönnum.
Helsinge mætir Ajax Virum í
fyrstu umferð og verður um sann-
kallaðan íslendingaslag að ræða
því áðurnefndur Gunnar Bein-
teinsson og Elvar Guðmundsson,
markvörður, spila báðir með lið-
inu.
Pálmi Hlöðversson, samherji
Sigursteins hjá FH, er líka á leið
til Danmerkur. Hann mun spila
með Amager í næst efstu deild. ■
HÁLFATVINNUMAÐUR
Sigursteinn Arndal er á leið í atvinnu-
mennskuna í Danmörku. Hann hefur verið
fastamaður í yngri landsliðunum en næsta
skref hjá honum er að komast I A-landslið-
ið þar sem hann er orðinn of gamall fyrir
yngri liðin.
MOLAR
Heiðursleikur Ryan Giggs:
Tennisleikarinn Göran Ivan-
isevic, sem sigraði á
Wimbledon óvænt á dögunum,
fékk titilinn
Tennisleikari
mánaðarins. Sig-
urinn á
Wimbledon gaf
Ivanisevic 200
stig í aðra hönd,
sem gerðu það að
verkum að hann
hoppaði upp um
72 sæti á styrkleikalistanum og
er nú í 11. sæti. Á leið sinni að
titlinum sigraði hann Andy
Roddick, Greg Rusedski, Marat
Safin, Tim Henman og Patrick
Rafter. Argentínumaðurinn
Guilermo Canas var kosinn upp-
rennandi stjarna mánaðarins.
Canas, sem er 23 ára, sigraði
mót í Casablanca í Marokkó og
náði í úrslit í Den Bosch mótinu
í Hollandi. Hann hoppaði upp
um sex sæti, í það 14. eftir að
hafa fengið 66 stig. Þessar út-
nefningar eru gefnar mánaðar-
lega til að viðurkenna þá leik-
menn sem hafa staðið sig best í
stigakapphlaupinu.
Forseti FIFA, Sepp Blatter,
segir að hollenski landsliðs-
maðurinn Edgar Davids hafi
verið grunaður
um að neyta
fleiri en eins
ólöglegs efnis
þegar hann var
settur í bann.
Davids, sem leik-
ur með Juventus,
var settur í bann
af Knattspyrnu-
sambandi Ítalíu og FIFA fyrir
tveimur mánuðum eftir að hafa
tvisvar fallið á lyfjaprófi, þar
sem leitað var að nandrolone
sterum. Hann segist saklaus,
hafa fengið sterann í gegnum
fæðubótaefni. Blatter segir að
samkvæmt rannsóknum Ital-
anna séu fleiri ólögleg lyf í spil-
inu. „Það er eitthvað annað
þarna. Ég get ekki farið út í
smáatriði en þetta er ekki bara
nandrolone," sagði Blatter. Lög-
maður Davids segir ummæli
Blatter vera vafasöm.
Fyrsti leikur Zinedine Zidane,
heimsins dýrasta knatt-
spyrnuleikmanns, með Real Ma-
drid endaði snögglega hjá hon-
um eftir 63. mínútur á miðviku-
dag. Félagið var að spila vin-
áttuleik við franska liðið Mont-
pellier og Zidane þurfti að fara
af velli með kúlu og vægan
heilahristing eftir samstuð.
Hann var skömmustulegur þeg-
ar hann fór af vellinum enda
ekki búinn að standa sig vel. Zi-
dane vakti þó mikla lukku í
tveimur æfingaleikjum í Sviss
fyrir skömmu. Real vann leik-
inn með einu marki gegn engu.
Spánverjinn Jose Maria Gutier-
rez skoraði það eftir 33 mínútur.
30 þúsund manns mættu á völl-
inn til að sjá Zidane klæðast
búningi Real, sem eru núver-
andi Spánarmeistarar, í fyrsta
skipti. ■
Cantona sýnd
knattspyrna Franski snillingurinn,
Eric Cantona, tók knattspyrnuskóna
fram á ný þegar hann spilaði með
gömlu félögum sínum úr Manchester
United gegn Celtic United, til heiðurs
Ryan Giggs. Giggs, sem er frá Wales,
hefur spilað í tíu ár með Man. Utd. og
unnið tólf titla með liðinu.
Cantona, sem nýtur gríðarlegra
vinsælda hjá stuðningsmönnum liðs-
ins, kom inná fyrir Paul Scholes, þeg-
ar tæpar 20. mínútur lifðu leiks og
sýndi gamalkunna takta. Hann gat
samt ekki komið í veg fyrir 4-3 tap
ensku meistaranna.
Giggs var að vonum ánægður með
Cantona. „Ég spurði Eric hvort hann
vildi spila þennan leik með okkur.
Hann lét sem betur fer verða af því
og það var frábært að sjá hann spila á
ný.“ Cantona var fyrir skömmu val-
inn besti leikmaður Manchester
United frá upphafi.
Þegar Giggs var spurður útí nýju
leikmenn meistaranna, þá Van Nistel-
rooy og Julian Veron, sagði hann.
„Þeir sýndu góðan leik og skoruðu
meira að segja báðir. Markið hjá Juan
var frábært og þeir sýndu okkur það
sem koma skal.“
Walesbúinn var hrærður eftir
leikinn, þrátt fyrir tapið. „í kvöld var
ég á taugum- ég hef aldrei verið eins
taugaveiklaður. En ég naut þess samt.
Úrslitin skiptu ekki máli. Bæði lið
sýndu snilldartilþrif."
Giggs þakkaði einnig leikmönnum
og aðdáendum Celtic svo og sínu eig-
in liði. „Ég vil þakka fyrir allan þann
stuðning sem ég hef fengið s.l. tíu ár.
Ég mun gera mitt besta fyrir liðið,
það sem eftir er af mínum ferli." ■
MARK!
Ruud van Nistelrooy nýi leikmaður Man.
Utd. skorar hér mark gegn Celtic United í
leik til heiðurs Ryan Giggs. Juan Veron sem
einnig gekk til liðs við ensku meistaranna I
sumar skoraði lika. Ensku meistararnir töp-
uðu leiknum 4-3.
TIL KANADA
Hakeem Olajuwon á hér í höggi við David Robinson hjá San Antonio Spurs. Olajuwon
mun spila með Toronto Raptors eftir sautján ára farsælan feril með Houston Rocket.
Leikmannakaup í NBA:
Draumurinn til Toronto
körfuknattleikur Hakeem Ola-
juwon, sem gengur undir nafninu
Draumurinn, mun spila með
kanadíska körfuknattleiksliðnu
Toronto Raptors. Raptors og Hou-
ston Rockets komust að samkomu-
lagi um þriggja ára samning og fær
Olajuwon rúman einn og hálfan
milljarð í laun en Houston Rockets
fær greiðslu fyrir leikmanninn sem
og fyrsta og annan valrétt Raptors í
háskólavalinu. Skrifað verður undir
samninginn næsta þriðjudag.
„Ákvörðun Hakeems er mikil
vonbrigði fyrir Rocket sam-
steypuna," sagði Les Alexander,
eigandi Houston Rockets. „Hakeem
Olajuwon hefur gert meira fyrir lið-
ið og fyrir borgina en nokkur annar
íþróttamaður í sögu Houston. Við
vildum halda í hann og gerðum allt
sem í okkar valdi stóð. Það er því
með þungum hug sem við sam-
þykkjum þessi skipti."
Olajuwon neitaði að skrifa undir
samning við Houston en liðið bauð
honum 13 milljarða tryggingu ef
hann spilaði með þeim þrjú næstu
ár.
„Olajuwon er sá maður sem hef-
ur haft mest áhrif á körfuboltaferil
minn,“ sagði þjálfari Houston, Rudy
Tomjanovich. „Hann er lykilinn að
velgegni minni. Við áttum í frábæru
samstarfi og náðum mjög góðum ár-
angri saman. Borgin, liðið og fjöl-
skylda mín stöndum í þakkarskuld
við hann.“
Draumurinn spilaði 58 leiki fyrir
Houston Rockets á síðasta ári og
skoraði að meðaltali 11,9 stig í leik,
tók 7,4 fráköst og var með 48,9%
nýtingu úr skotum sínum.
Hann spilaði í allt 17 tímabil með
liðinu og skoraði að meðaltali 22,5
stig og tók 11,4 fráköst. Hann á met-
ið í vörðum skotum, 3,740 og spilaði
14 Stjörnuleiki. ■
i snilldartilþrif
■
Mikill
afsláttur!
Stendur til 3. ágúst.
Kfúbbfélagar ath.
Öll innkaup
á útsölu fara inn á
klúbbreikning ykkar.
INTE
Blldshöfða »110 Reykjavík • sími 510 8020 • www.intersport.is
10% afsláttur
af Toughseal lakkvörn
- 2ára ending
og alþrifum
Bónstöðin Teflon
www.teflon.is-sími 567 8730