Fréttablaðið - 15.08.2001, Side 6
SPURNING DAGSINS
Hvað finnst þér um einkarek-
inn grunnskóla í Hafnarfirði?
Mér líst bara vel á hann. Það veitir ekki af
smá samkeppni í skólakerfinu. Ég tel að
hér ríki ákveðin stöðnun í kennslu, úreltar
kennsluaðferðir og það má fara að endur-
skoða þær.
Gunnar Þormar er tannlæknir
Tyrkland:
Nýr íslamsk-
ur flokkur
stofnadur
ANKftRA. tyrklanpi. ap Recep Tayyip
Erdogan, fyrrverandi borgarstjóri
í Istanbúl, er samkvæmt skoðana-
könnunum einn vinsælasti stjórn-
málamaður Tyrklands. Hann hefur
nú stofnað nýjan stjórnmálaflokk,
Réttlætis- og þróunarflokkinn,
sem mun hafa íslamska trú í há-
vegum. Flest bendir til þess að
flokkurinn muni fljótlega verða
áberandi í stjórnmálum Tyrklands.
Aðeins tveir mánuðir eru frá því
að hæstiréttur landsins bannaði
annan íslamskan stjórnmálaflokk,
Dyggðaflokkinn, sem þótti í and-
stöðu við hina veraldlegu stjórn-
skipan Tyrklands. ■
Rit um fjarskipti:
Ahugasöm
um Lands-
símann
harskipti í vefriti Total Telecom,
sem fjallar um fjarskipti á heims-
vísu, kemur fram í blaðagrein að
stóru fjarskipafyrirtæki á Norður-
löndum, Telia og Sonera, hafi upp-
lýst um áhuga sinn á að kaupa hlut
í Landssíma ísiands þegar hann
verður seldur í haust. Samkvæmt
Jakobi Fal Garðarsyni, aðstoðar-
manni samgönguráðherra, rennur
umsóknarfrestur til að taka þátt í
útboði til kjölfestu fjárfesta út 14.
september. Jakob kannast ekki við
þennan áhuga fjarskiptafyrirtækj-
anna og ekki orðið var við fyrir-
spurnir frá þeim eða forráða-
manna þeirra hér á landi. ■
IlögreglufréttirI
Nokkur innbrot voru framin í
Breiðholti í fyrrinótt og í
gærmorgun. Brotist var inn í fyr-
irtæki og þaðan stolið nokkrum
verðmætum. Þá var farið inn í
íbúðarhúsnæði og lét þjófurinn
greipar sópa og tók með sér
nokkur verðmæti. Bæði málin
eru rannsókn. í Fellahverfinu var
farið inn í bifreið með því að
brjóta hliðarrúða. Þaðan voru
teknir geisladiskar og geislaspil-
ari.
Arekstur tveggja bíla varð um
tvöleytið í gærdag fyrir utan
bæinn Tjörn á Skaga. Að sögn
lögreglunnar á Blönduósi urðu
engin meiðsl á fólki en bílarnir
skemmdust lítillega.
Lögreglan á Eskifirði sagði
menn koma í umvörpum til að
sækja um skotvopnaleyfi. Sagði
viðmælandi Fréttablaðsins engu
líkara væri en að þriðja heims-
styrjöldin væri að skella á. Sagð-
ist hann heyra það á félögunum
sínum að líkindum væri þetta
einungis lognið á undan stormin-
um og ætti umsóknum enn eftir
að fjölga. Þess má geta að gæsa-
veiðitímabilið hefst 20. ágúst.
FRETTABLAÐIÐ
15. ágÚSt 2001 MIÐVIKUDAGUR
Herforingjastjórnin í Pakistan
Lofar að koma á lýðræði
Bandarískur háskólanemi sakaður um njósnir:
Tobin snýr aftur til heimabæjar síns
RIDCEFIELD. CONNECTICUT. AP.
Bandaríski háskólaneminn John
Tobin, sem handtekinn var fyrir
að hafa marijuana í fórum sínum
er hann dvaldi í Rússlandi á Ful-
bright-skólastyrk, sneri nýverið
aftur til heimabæjar síns,
Ridgefield í Connectiocut, eftir
að hafa þurft að dúsa í sex mán-
uði í fangelsi. Bæjarbúar tóku
vel á móti honum og gáfu honum
blómvendi auk þess sem hann
klippti á gulan borða sem festur
var á tré fyrir utan bæjarráðs-
bygginguna í bænum, sþm tákn
um endurkomu hans. „Ég hugs-
aði mikið til ykkar á meðan ég
var þarna,“ sagði Tobin við
heimkomuna og bætti því við að
honum þætti afar vænt um
stuðning bæjarbúa.
Tobin, sem leystur var úr
ISLAMABAD, PAKISTAN. AP Á þjóðhá-
tíðardegi Pakistans, sem var í
gær, tilkynnti Pervez Musharraf
hershöfðingi og forseti landsins
að almennar kosningar verði
haldnar á tímabilinu 1. til 11. októ-
ber næstkomandi.
Kosningarnar eiga að vera
lokaáfanginn í að koma á lýðræði í
landinu og verða gerðar endur-
bætur á valdastofnunum landsins
áður en kosningarnar verða
haldnar.
Stjórnmálaskýrendur reikna
með því að gerðar verði breyting-
ar á stjórnskipun landsins með
það fyrir augum að styrkja stöðu
forsetans ásamt því að borgaraleg
stjórn taki við völdum, en væntan-
lega undir einhvers konar eftirliti
hersins.
Musharraf hershöfðingi hrifs-
aði til sín völdin í Pakistan án
blóðsúthellinga í október árið
1999 og sakaði Nawas Sharif, þá-
verandi forseta, um að hafa reynt
að ráða sig af dögum. Musharraf
lofaði því þá að koma á lýðræði og
hélt því fram að lýðræðislegar
stofnanir landsins væru þegar
hrundar þar sem ríkisstjórn
Sharifs væri að leiða landið í efna- 5
hagslega og pólitíska glötun. ■ 1
MUSHARRAF “
Herforingjastjórn hefur verið í Pakistan í 27 5.
ár frá því landið hlaut sjálfstæði. <
Islendingar vinna
sannkallað þrekvirki
varðhaldi þann 3. ágúst eftir að
hafa setið af sér helming dóms-
ins, sneri aftur til Bandaríkj-
anna 5 dögum síðar. Hefur hann
undanfarna daga dvalið á meðal
fjölskyldumeðlima í New York.
Tobin heldur heldur því fram
að rússnesk yfirvöld hafi logið
upp á hann sök eftir að hann hafi
neitað boði þeirra um að gerast
njósnari. Af þeim sökum hafi
hann verið handtekinn og dæmd-
ur í 37 mánaða fangelsi fyrir
fíkniefnamisferli. ■
KOMINN HEIM
Bæjarbúar tóku vel á móti Tobin
þegar hann sneri aftur til heimabæjar g
síns eftir að hafa dvalið í sex mánuði í g
rússnesku fangelsi.
Nefndarmenn audlindanefndar Bandaríkjaþings telja að mikið þrekvirki hafi verið unnið í ís-
lenskum fiskveiðimálum. Sjávarútvegsráðherra telur að skilningur Bandaríkjamanna hafi aukist
á sjónarmiðum Islendinga varðandi hvalveiðar. Nefndarmönnum sagt frá því að kvótakerfið sé
mikið pólitískt deilumál.
sendinefnd Nefndarfulltrúar
bandarísku auðlindanefndarinn-
ar, sem hér eru í boði sjávarút-
vegsráðherra, funduðu í gær hjá
Hitaveitu Suðurnesja að Svarts-
engi. Fundurinn var liður í kynn-
ingu á auðlindum íslands en fyr-
ir er búið að kynna fyrir nefnd-
armönnum aðrar auðlindir lands-
ins s.s. raforku, landbúnað og þá
umdeildustu: sjávarútveginn.
A Þegar Marnie
Funk, blaðafull-
trúi nefndarinnar,
var spurð hvort
fulltrúar sjávar-
útvegsráðuneytis-
ins hefðu sagt
nefndarmönnum
frá því að íslenska
fiskveiðistjórnun-
arkerfið væri
mikið pólitískt
hitamál, sagði hún
að íslensku full-
trúarnir hefðu op-
inskátt sagt þeim
frá göllum kvóta-
kerfisins og þeirri
gagnrýni sem hef-
ur komið fram.
Funk sagði að
„Við gerðum
þeim mjög ít-
arlega grein
fyrir þeim erf-
iðleikum sem
við höfum átt
í varðandi
stofnstærðar-
matið enda
eru það
vandamál
sem þeir
þekkja líka frá
sínum heima-
slóðum,"
sagði Árni M.
Mathiesen.
—*—
þrátt fyrir galla kerfisins væru
fulltrúar auðlindanefndarinnar
heillaðir af því.
„ísland og Noregur hafa unnið
þrekvirki í því að koma á jafn-
vægi í vistkerfinu. Á þeim fund-
um sem við höfum átt með full-
trúum sjávarútvegsráðuneytis-
ÁRANGURSRÍK HEIMSÖKN
Sjávarútvegsráðherra telur að þessi heimsókn komi til með að auka skilning Bandaríkja-
manna á ósk íslendinga um að hefja hvalveiðar að nýju. Með ráðherranum er James V.
Hansen, formaður nefnarinnar. Ron Kind, nefndarmaður og þingmaður frá Wisconsin-fylki,
telur að hægt verði að koma á sjálfbærum hvalveiðum séu málin könnuð til hlítar.
ins hefur okkur verið bent á það
að stofnstærðir hafa minnkað
eitthvað en okkur var einnig
bent á það að verið sé að vinna í
vandamálinu,“ sagði Funk. Hún
bætti því við að mörg vandamál
íslenska fiskveiðistjórnunar-
kerfisins sé einnig að finna hjá
Bandaríkjamönnum.
Árni M. Mathiesen, sjávarút-
vegsráðherra, segir að fyrst og
fremst sé verið að kynna íslensk
sjónarmið á hvalveiðum en bend-
ir á það að heimsóknin hafi ein-
nig verið notuð til þess að kynna
fyrir nefndarmönnum aðra þætti
íslenska efnahagslífsins.
„Við gerðum þeim mjög ítar-
lega grein fyrir þeim erfiðleikum
sem við höfum átt í varðandi
stofnstærðarmatið enda eru það
vandamál sem þeir þekkja líka
frá sínum heimaslóðum," sagði
Árni og bætti því við að nefndar-
menn hefðu verið mjög jákvæðir
í garð íslenska fiskveiðistjórnun-
arkerfisins.
Formaður auðlindanefndar-
innar, James V. Hansen frá Utah,
segir að bandarísk yfirvöld hafi
lítið með hvalveiðar þær sem
gerðar eru út frá ströndum
Alaska, Washington og Oregon að
gera.
„Þarna er um að ræða indjána
og við höfum ekki yfirráð yfir
þeim þar sem þeir njóta sjálf-
stæðis. Við stjórnum þeim ekki,“
sagði Hansen.
omarr@frettabladid.is
H-