Fréttablaðið - 10.10.2001, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
HRÆDDIR
VIÐ ÓFRIÐINN.
Tæplega 60% telja
hættu á því að ófriðar-
bálið í Afganistan muni
teygja sig til Evrópu.
Ótlastu að ófriðurinn í
Afganistan muni teygja
sig til Evrópu?
Niðurstöður gærdagsíns
i www.visir.is
iá
Nei
Spurning dagsins í dag:
Eiga riki og borg að hlaupa undir
bagga með Leikfélagi íslands?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun I
Ungur maður stal bifreið:
Lögregla
og eigandi
fylgdust með
löcreclumál Ungur maður tók
sendibifreið traustataki meðan eig-
andi bílsins sat inni í lögreglubif-
reið vegna reglubundins eftirlits í
fyrrinótt. Hafði lögregla stöðvað
ökumanninn við gatnamót Skóla-
vörðustígs og Bergstaðarstrætis.
Horfðu lögreglumenn og ökumaður
síðan á eftir bifreiðinni þegar þjóf-
urinn ók af stað en eigandi hafði
skilið lyklana eftir í bifreiðinni.
Þjófurinn var eltur af lögreglunni
og í eltingarleiknum ók þjófurinn
utan í tvær bifreiðar neðst á Skóla-
vörðustíg og á þá þriðju við Skóla-
brú. Maðurinn náðist þegar hann
keyrði á umferðarljós á Lækjargötu
og skemmdist bifreiðin nokkuð.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að maðurinn var undir áhrifum
áfengis en hann hefur áður komið
við sögu lögreglu. Eigandi sendibif-
reiðarinnar reyndist hins vegar
allsgáður. ■
DAVÍÐ ODDSSON
Forsætisráðherra sagði að Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra, hefði sérstakan hug á
að rétta hlut geðsjúkra í heilbrigðískerfinu.
Vilji ríkisstjórnar
áréttaður:
Vilja hjálpa
geðsjúkum
almnci Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, ítrekaði í fyrirspurna-
tíma þingsins vilja ríkisstjórnar-
innar og heilbrigðisráðherra til að
rétta hlut geðsjúkra. Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, þingmaður
Samfylkingar, spurðist fyrir um
boðað átak stjórnarinnar í málum
geðsjúkra sem forsætisráðherra
talaði um í stefnuræðu sinni. Hún
ítrekaði að orð hans hafi vakið
miklar væntingar um úrbætur
jafnt hjá geðsjúkum, aðstandend-
um þeirra og heilbrigðisstarfsfólki,
en ástandið væri mjög slæmt. „50
til 60 og jafnvel 100 geðfatlaðir eru
heimilislausir og margir bíða eftir
húsnæði [...] og það er engin eftir-
fylgni með þeim sem útskrifast af
stofnunum og því meiri hætta á að
fólk veikist fljótt aftur,“ sagði hún.
Forsætisráðherra sagði að heil-
brigðisráðherra hafi lagt áherslu á
að talað yrði um málaflokkinn í
stefnuræðu og áréttaði að horft
væri til þátta í heilbrigðisáætlun til
10 ára. „Við erum að leggja áherslu
á að setja þennan flokk í ákveðinn
forgang innan heilbrigðismála-
flokksins. Þess mun síðan sjást
merki hér í meðförum þingsins
þegar að því kemur,“ sagði forsæt-
sráðherra. ■
2
10. október 2001 MIÐVIKUDAGUR
Múslimar mótmæla við sendiráð í Indónesíu:
| LÖGREGLUFRÉTTIR 1
Hvöttu til heilags stríðs
gegn Bandaríkjunum
JAKARTA.INDÓNES1U.AP Lögreglan í
Indónesíu skaut aðvörunarskot-
um og kastaði táragssprengjum
að hundruðum meðlima róttækr-
ar múlslimahreyfingar sem
höfðu uppi áköf mótmæli fyrir
utan sendiráð Bandaríkjanna í
Jakarta í gær. Dreifðu þeir m.a.
bréfsneplum þar sem hvatt var
til heilags stríðs gegn Bandaríkj-
unum. Brunaslanga var einnig
notuð til að halda aftur af múgn-
um og voru mótmælendur lamdir
með kylfum. Tveir lögreglu-
menn, fréttaljósmyndari og
þónokkrir mótmælendur slösuð-
ust í átökunum, sem hófust þegar
múgurinn reyndi að rífa niður
vírgirðingu fyrir framan sendi-
ráðið.
Mikil mótmæli hafa átt sér
stað í Indónesíu allt frá því
hryðjuverkaárásin átti sér stað á
Bandaríkin fyrir tæpum mánuði
síðan, en landið er fjölmennasta
múslimaríkið í heiminum. Ríkis-
stjórn landins hefur hingað til
lýst yfir stuðningi við hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna og
Breta í Afganistan. ■
Þak fauk af vinnuskúr við Blá-
sali í Kópavogi um klukkan
hálfsex í gærmorgun. Hafði lög-
reglan í Kópavogi samband við
eiganda skúrsins sem gerði við-
eigandi ráðstafanir.
—.4----
Aflífa þurfti hross eftir að ekið
hafði verið á það á Skeiðar-
vegi um miðnætti í fyrrinótt. Bíll-
inn skemmdist en engin meiddist.
•—♦—
Arekstur varð á Hringbraut við
Laufásveg í Reykjavík um
fjögurleytið í fyrradag. Ökumaður
annars bílsins var fluttur á slysa-
deild en hann kenndi eymsla í
hálsi og baki. Bílarnir skemmdust
ekki mikið.
MÚGUR
Æstur múgurinn reynir að rífa niður vírgirð-
ingu sem komið hefur verið fyrir fyrir fram-
an sendiráðið í Jakarta.
FORYSTA ASf
Telur að boðaðar aðgerðir stjórnvfalda í skattamálum leiði til minni umsvifa, samdráttar í viðskiptum og kjaraskerðingu fyrir launafólk.
Atvinnulífið áttar
sig ekki á ASÍ
Samtök atvinnulífsins ætla að ræða við ASI um skattatillögur stjórn-
valda. Erfitt að átta sig á áhrifum þess á verðlag 2003. Aukin verðbólga
og samningar í uppnámi
verkalýðsmál Ari Edwald fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins segist ekki átta sig á þeirri
afstöðu miðstjómar ASÍ að tillög-
ur ríkisstjórnar í skattamálum
setji kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði í uppnám. Hann
segir að þessar áformuðu breyt-
ingar í heild sinni séu líklegar til
að auðvelda fyrirtækjum til að
standa undir frekari verðmæta-
sköpun og lífskjarabótum. Það sé
aftur á móti erfitt að átta sig á
samanlögðum áhrifum þessara
breytinga á verðlag þegar þær
taka gildi árið 2003, eða eftir tvö
ár. Hann vonast hins vegar til að
þess að þeir og fulltrúar ASÍ geti á
næstu dögum farið sameiginlega
yfir þessar tillögur stjórnvalda.
Hörð gagnrýni kom fram á
fundi miðstjórnar ASÍ í fyrradag á
tillögur stjórnvalda í skatta-
málum. Miðstjórnin telur
að þær gangi þvert á kröfur
verkalýðshreyfingar um
aðgerðir sem leitt geta til
lækkun verðbólgu og því
vandséð hvernig hægt verði
að koma í veg fyrir uppsögn
á launalið samninga í byrj-
un næsta árs. Að þeirra
mati eru það einkum fjár-
mála- og tryggingafyrir-
tæki sem munu njóta góðs
af þessum skattabreyting-
um stjórnvalda. Þá hefur
það líka farið illa í forystu-
menn sambandsins að ríkis-
stjórnin skyldi ekki hafa rætt
þessi mál við þá áður en hún til-
kynnti þessi áform sín. Halldór
Björnsson varaforseti ASÍ gerir
ráð fyrir að þessar tillögur muni
ARI EDWALD
Hann segir
skattabreyting-
arnar auðvelda
fyrirtækjum að
standa undir
frekari verð-
mætasköpun.
setja mikinn svip sinn á árs-
fund Starfsgreinasam-
bandsins sem haldinn verð-
ur í næstu viku.
Eftir að hafa farið yfir
tillögur stjórnvalda telur
miðstjórn ASÍ að hækkun
tryggingagjaldsins muni
fara beint út í verðlagið,
auka verðbólgu og leiða
þannig til 0,30-0,35% kaup-
máttarskerðingar fyrir al-
menning í landinu. Þá sé
ríkisstjórnin með boðuðum
aðgerðum sínum að þrengja
mjög að möguleikum
verkafólks til að ná til baka
framkomnum kjaraskerðingum
vegna þeirrar hækkunar sem
tryggingagjaldið hefur á launa-
kostnað fyrirtækja.
grh@frettabladid.ís
Framkvæmdaáform á vegaáætlun:
Ekki gert ráð
fyrir Smáralind
alþinci Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, segir að ekki hafi
verið gert ráð fyrir áhrifum
Smáralindar við gerð vegaáætlun-
ar. Þetta kom fram í svari hans á
þingi á mánudag þegar Rannveig
Guðmundsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingar, gerði umferðarþunga
við Smáralind að umræðuefni og
spurði um viðhorf samgönguráð-
herra til breyttrar forgangsröðun-
ar í vegaframkvæmdum.
Sturla sagðist þó ekki búast við
að ágreiningur yrði um vegafram-
kvæmdir vegna Smáralindar.
„Það er alveg ljóst að [...] bygging
verslunarmiðstöðvar þarna í
Kópavogi hefur feiknalega mikil
skipulagsleg áhrif, áhrif á gerð
umferðarmannvirkja sem við
sáum ekki fyrir þegar verið var
að undirbúa framkvæmdaáform
vegaáætlunar," sagði hann og
áréttaði að leitast yrði við að finna
sem fyrst lausnir til úrbóta og
sem jafnframt væru nauðsynleg-
ar til frambúðar. f máli Rannveig-
ar kom fram að búist væri við 50
til 200 þúsund gestum í dag og
næstu daga. „Forsvarsmenn
Smáralindar búast við 5 milljón
heimsókna á ári, eða hátt í 100
þúsund komum á viku,“ sagði
hún. ■
STURLA BÖÐVARSSON
Samgönguráðherra sagði að gott samstarf
hafi verið við bæjaryfirvöld í Kópavogi um
framkvæmdir vegna tenginga inn á Smára-
svæðið af Reykjanesbraut.
Fiskveiðar:
Gengið sinn
vanagang
sjávarútvecur „Þetta hefur gengið
sinn vanagang", segir Elfar Aðal-
steinsson forstjóri Hraðfrystihúss
Eskifjarðar um veiðar og vinnslu
hjá fyrirtækinu. „Það hefur verið
mjög góð rækjuveiði undanfarið.
Það hefur verið að veiðast stór og
mikil rækja úti í Héraðsflóa."
„Kolmunnaveiðin datt niður í
viku en það virðist vera sem hún
sé að koma aftur upp. Þetta lítur
ágætlega út og vinnslan rúllar sinn
vanagang." Hraðfrystihús Eski-
fjarðar hefur ekki kvóta í sumar-
gotssfldinni og segir Elfar að mest-
ur kraftur hafi því farið í
kolmunnaveiðar. „Við erum að
vinna það allt í mjöl og lýsi. Verðin
hafa haldist ágætlega. Þau hafa
hækkað nokkuð mikið frá í fyrra
og haldist nokkuð vel í sumar.“ Að
undanförnu hafa verið að fást um
440 pund fyrir tonnið af fiskmjöli
sem unnið er úr kolmunnanum.
Það er um þriðjungs hækkun frá
síðasta ári. ■
Flugfarþegi:
Braust
inn í flug-
stjórnarklefa
CHICACO.AP Tvær herflugvélar fyl-
gdu farþegaflugvél American
Airlines-flugfélagsins áleiðis til
Chicago í gærmorgun eftir að
flugfarþegi um borð braust inn í
flugstjórnarklefa vélarinnar. Mik-
il skelfing greip um sig í kjölfarið
á meðal farþega vélarinnar og var
óttast að um flugrán væri að
ræða. Maðurinn var yfirbugaður
af tveimur flugmönnum og
nokkrum farþegum vélarinnar.
Enginn slasaðist, en maðurinn er í
haldi lögreglunnar og verður
hann ákærður fyrir að trufla
áhafnarmeðlimi flugvélarinnar
við störf sín. Maðurinn, sem er
bandarískur, er sagður eiga við
geðræn vandamál að stríða. ■
1 INNLENT
Umferðaröryggi var til umræðu á
þingi fyrr í vikunni þegar Kol-
brún Halldórsdóttir, þingmaður
Vinstri grænna, spurðist fyrir um
breytingar á fyrirkomulegi öku-
prófa. Sólveig Pétursdóttir, dóms-
málaráðherra, upplýsti að stefnt
væri að því að bjóða út fram-
kvæmd ökuprófa en gerð þeirra
yrði áfram í höndum Umferðar-
ráðs. Hún gerði ekki ráð fyrir
breytingum á starfsmannahaldi
og að þeir sem prófuðu ökumenn í
dag gætu jafnvel tekið yfir þjón-
ustuna.