Fréttablaðið - 10.10.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 10. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Áformaðar skattabreytingar:
Búbót hjá hátekju- og eignafólki
Kaupþing:
Spámikilli
verðbólgu
efnahacsmál Greiningardeild
Kaupþings spáir 0,6 prósent
hækkun vísitölu neysluverðs
milli mánaða sem samsvarar um
7,4% verðbólgu á ársgrundvelli. Á
vef Kaupþings kemur fram að
gangi spáin eftir hafi vísitalan
hækkað um 8% síðustu 12 mánuði,
en á sama tíma í fyrra hafi neyslu-
verðsvísitalan hækkað um 1%.
Spáin gerir ráð fyrir að hús-
næðis- og eldseytisverð haldist
óbreytt fatnaður hækki í verði.
„Áð öllu óbreyttu en er ekki
óvarlegt að áætla að verðbólga frá
upphafi til loka árs verði um 8,5
prósent,“ 'segir í spánni. ■
skattamál Miðstjórn ASÍ telur að
boðaðar skattabreytingar stjórn-
valda muni einungis ná til há-
tekjufólks og eignamanna á sama
tíma og skattleysismörkum er
haldið óbreyttum. Rannveig Sig:
urðardóttir hagfræðingur ASÍ
segir að með lækkun viðmiðunar-
marka lækki skattur þeirra sem
hafa tekjur yfir 320 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun í ár um 3 þúsund
krónur á mánuði, eða 35 þúsund
krónur á ári. Á næsta ári lækkar
skatturinn um 3.600 krónur á
mánuði, eða um 43 þúsund krónur
á ári.
í athugun hagdeildar ASÍ
vegna tekna árið 2000 kemur m.a.
fram að tæplega 7% greiða há-
tekjuskatt, eða um 14 þúsund af
þeim 214 þúsund sem gáfu þá upp
tekjur til skatts. Sé einungis tekið
mið af þeim sem greiða tekjuskatt
umfram bætur þá eru þeir
156.600. Af þeim hópi greiða um
9,3% hátekjuskatt. ÁSI telur því
að mikill minnihluti sem greiðir
hátekjuskatt, öndvert við sjónar-
mið stjórnvalda sem telja að há-
tekjuskatturinn sé í raun orðinn
millitekjuskattur. ■
RANNVEIG SIGURÐARDÓTTIR
HAGFRÆÐINGUR ASÍ
Stjórnvöld áforma að setja 600
milljónir króna til að lækka skatta á
miklum minnihluta þjóðarinnar
Seðlabanki íslands:
Krónur fyrir
35 milljarða
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn greip
inn í gengisþróunina með afger-
andi hætti í fyrradag og keypti
krónur fyrir 36 milljónir Banda-
ríkjadala. Með aðgerðunum tókst
að verja gengi krónunnar, en
bankinn greip alls sex sinnum til
þess ráðs að selja dollara og end-
aði gengið í sömu stöðu og var í
upphafi dags. í gær lækkaði
gengið svo aftur um tæplega
hálft prósent og stóð um miðjan
dag í Í44,4 stigum og hafði Seðla-
bankinn þá ekki gripið til frekari
aðgerða.B
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Forsendur eignarskatta brustu þegar fjár-
magnstekjuskattur var tekinn upp.
Frumvarp fjármálaráð-
nerra:
Umfangs-
mestu skatta-
lækkanir
alþinci Geir H. Haarde sagði
skattalækkunarfrumvarp stjórn-
valda vera einhverja umfangs-
mestu skattalækkunaraðgerð sem
gripið hefði verið til gagnvart ís-
lensku atvinnulífi á þingi í gær.
Geir sagði að það hefði sést á
mörkuðum eftir að ríkisstjórnin
kynnti fyrirætlanir sínar í þess-
um málum að viðbrögð atvinnu-
lífsins væru afar jákvæð enda
væri frumvarpinu ætlað að styrk-
ja stöðu íslenskra fyrirtækja auk
þess sem skattar einstaídinga
væru lækkaðir nokkuð.
Össur Skarphéðinsson formað-
ur Samfylkingar spurði hvort
ekki hefði átt að veita einhverjum
hluta skattalækkanana til þeirra
tekjulægri fremur en að láta bróð-
urpartinn renna til fyrirtækja.
Sagði einnig að skoða þyrfti full-
yrðingar ASÍ um að frumvarpið
græfi undan forsendum kjara-
samninga. Ögmundur Jónasson
gagnrýndi að skattar á fyrirtæki
væru lækkaðir en látið undir höf-
uð leggjast að rétta hlut þeirra
sem verst standa, öryrkja og aldr-
aðra. Þessu hafnaði fjármálaráð-
herra og sagði að í tvígang hefðu
verið sett lög til að rétta hlut aldr-
aðra og öryrkja. Slíkt kallaðist
ekki að gera ekki neitt. ■
Þarf uppstokkun á
barnaverndarkerfi
Umboðsmadur barna segir frumvarp til nýrra barnaverndarlaga ganga
alltof skammt. Gagnrýnir störf Barnaverndarstofu. Hefur engin við-
brögð fengið frá félagsmálaráðherra við erindi sínu. Páll Pétursson segir
frumvarpið taka á flestu sem þurfi.
barnavernd „Þó maður vilji ekki
vera mjög svartsýnn þá er fremur
líklegt að eitthvað sé að heldur en
að allt sé í himnalagi," segir Þór-
hildur Líndal, umboðsmaður
—«— barna, og á þar við
tölfræði sem sýnir
annarsvegar að úr-
skurðum barna-
verndarnefnda
víða um land hefur
fækkað og hins
vegar að engir úr-
skurðir komu til
Barnaverndarráðs
frá nefndum sem
standa á bakvið
Ég hef vakið
athygli félags-
málaráðherra
á þessu og
finnst að hann
sem yfirmaður
barnaverndar-
mála eigi að
ganga í málið
—-♦—
næstum helming þjóðarinnar á
fimm ára tímabili. Greint var frá
tölfræðinni í blaði gærdagsins.
„Mér finnst það svo sannarlega
vera rannsóknarefni," sagði Þór-
hildur þegar hún var spurð hvort
Barnaverndarstofa hafi sinnt eft-
irlitshlutverki sínu með barna-
verndarnefndum um allt land á
eðlilegan hátt.
„Það má til dæmis
spyrja hvort
barnaverndar-
nefndir séu yfir-
höfuð að störfum
á vissu stöðum og
í framhaldinu
hvað valdi því að
þær starfa ekki.
Ég hef vakið at-
hygli félagsmála-
ráðherra á þessu
og finnst að hann
sem yfirmaður
barnaverndar-
mála eigi að
ganga í málið.“
PÁLL PÉTURS-
SON
Segir Barnavernd-
arstofu sinna
hlutverki sínu og
að frumvarpið að
barnaverndarlög-
um sé framfara-
spor.
Umboðsmaður barna segir róttækra aðgerða þörf til úrbóta í málaflokknum.
í umögn Þórhildar um frum-
varp til nýrra barnaverndarlaga,
sem reiknað er með að fari fyrir
Alþingi nú í haust, kemur fram sú
skoðun að lögin gangi of skammt.
„Það þarf til dæmis að taka af-
stöðu til þess
hvort betra væri
að færa vald
barnaverndar-
nefnda í meira
mæli til sérfræð-
inga og dómstóla.“
Þá kemur þar
fram að það sam-
ræmist varla
meginreglum
stjórnsýsluréttar
að Barnaverndar-
stofa sinni bæði
ráðgjafar- og eft-
irlitshlutverki.
„Barnaverndar-
stofa er nefndunum innan handar
í afgreiðslu mála og hefur einnig
eftirlit með störfum þeirra. Þetta
gæti rýrt réttaröryggi borgar-
anna,“ segir Þórhildur.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sagðist vita af því að Um-
boðsmaður barna væri ósáttur
við störf Barnaverndarstofu.
Hans skoðun væri hins vegar að
stofnunin gegndi hlutverki sínu
samviskusamlega. Hann kannað-
ist ekki við samskiptaleysi eða
stöðnun í stjórnsýslunni og sagð-
ist ekki geta tekið afstöðu til upp-
lýsinga um fækkun og misskipt-
ingu úrskurða í barnverndarmál-
um þar sem hann hafi ekki kynnt
sér málið. Tölfræðin kemur að
mestu leyti úr skýrslum Barna-
verndarráðs sem heyrir til ráðu-
neytisins.
matti@frettabladid.is
ÞÓRHILDUR
LÍNDAL
Mun róttækari að-
gerða er þörf í
bamavemdarmál-
um en ráðherra
gerir sér grein fyrir.
Tækjabúnaður lögreglu:
Eftirlitsnefnd
starfi áfram
lögreglumál Haraldur Johannes-
sen, ríkislögreglustjóri, segir
nefnd um meðferð lögreglu á
tækjabúnaði leggja til að komið
verði á fót sérstökum starfshópi
innan lögreglunnar sem fylgist
með meðferð tækja og búnaðar í
umboði ríkislögreglustjóra.
„Þetta er hlutur sem verið er að
skoða og ekki búið
að taka ákvörðun
um framhaldið,"
sagði Haraldur og
bætti við að gefið
hafi góða raun að
hafa nefndina að
störum. „Nefndin
veitti visst aðhald
og efldi eftirlit
með tækjum og
búnaði, m.a. lög-
reglubifreiðum og
notkun þeirra. Og
jafnframt með
hvaða hætti lög-
reglumenn framfylgja fyrirmæl-
um ríkislögreglustjóra og lög-
reglustjóra." Haraldur taldi of-
mælt að tækjamál lögreglunnar
hafi verið í ólestri. „Hins vegar
kemur fram hjá starfshópnum að
gera megi betur," sagði hann og
taldi að töluverða fjármuni mætti
spara með bættum starfsháttum.
„Það er mikið álag á lögreglubif-
reiðarnar og þær verða fyrir
skakkaföllum. Við reynum að
draga úr kostnaði eins og hægt er,
en rekstur bílaflotans og viðhald
er geysilega kostnaðarsamur
póstur í rekstri lögreglunnar." ■
RÍKISLÖG-
REGLUSTJÓRI
Ekki útilokað að
sami starfshópur
og skilaði skýrslu
um meðferð á
tækjabúnaði starfi
áfram.
|alþingi|
f ---------
Á mánudag tóku f jórir vara-
llmenn sæti á þingi, þar af þrír
sem ekki hafa setið þar áður.
Nýju þingmennirnir eru Ármann
Höskuldsson, Örlygur Hnefill
Jónsson og Ólöf Guðný Valdi-
marsdóttir sem koma í staðin fyr-
ir Guðna Ágústsson, Svanfríði
Jónasdóttur og Kristinn H. Gunn
arsson. Þá kom inn Björgvin Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Sam
fylkingarinnar, fyrir Lúðvík
Bergvinsson.
Sagðir styðja 11 hryðjuverkahópa:
Kristján Pálsson:
Sýrland kosið í öryggisráðið
STÓÐU SAMAN
Sendiherra Sýrlands vann hörðum höndum að kosningu landsins I ráðið og sést hér, fyrir
miðri mynd, á tali við bandamenn sína frá Indlandi og Pakistan.
NEW york.ap. ísraelsstjórn og ýmis
samtök gyðinga brugðust hart við
þeim fréttum í gær að Sýrland
hefði verið kjörið til setu í Órygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna. Isra-
elsmenn segja fráleitt að land,
sem talið er styðja hryðjuverka-
menn, í svo þýðingarmikilli stöðu
á vettvangi SÞ í kjölfar árásanna á
Ameríku.
Sýrlendingar hlutu kosningu til
tveggja ára í ráðinu á mánudag
með miklum stuðningi alþjóða-
samfélagsins og án þess að
Bandaríkjamenn beittu sér.
Asíuríkin voru einróma um að
bjóða Sýrland fram fyrir sína
hönd í ráðið í stað Bangladesh.
ísrael greiddi eitt atkvæði á móti.
í kjölfar kosninganna Iýsti sýr-
lenska fréttastofan því yfir að nið-
urstaðan sýndi að alþjóðasamfé-
lagið hafnaði ásökunum ísraels-
manna um að landið styddi
hryðjuverkamenn. Talsmaður for-
sætisráðherra ísraels sagði kosn-
inguna lélegan brandara; stjórn-
völd sem styddu 11 hryðjuverka-
hópa ættu nú að ákveða hvernig
best væri að berjast gegn hryðju-
verkamönnum. ■
Abyrgðarlaust að
tala um frjálsa veiði
fiskveiðar „Það er mjög ábyrgðar-
laust að segja, að hægt sé að veita
krókabátum frjálsa veiði, því að á
bak við þær fullyrðingar
er ekkert annað en
skrum,“ segir Kristján
Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
„Eg skil eigendur króka-
báta vel, að vilja veiða
frjálst. Það vilja allir, og
eins mikið og þeir geta.“
Kristján segir að fiski-
stofnar séu takmarkaðir
og fiskveiðistjórnun því
nauðsynleg. Vandinn
felist í því að flotinn sé
of stór. „Krókabátarnir
einir og sér gætu fiskað
allan þann bolfisk sem
hægt er
strendur,
kastagetu
kristján pálsson
Kvótakerfinu verður ekki
breytt á stuttum tlma,
Það er svo fast í sessi I
dag og það er búið að
fjárfesta svo mikið I þvl
að of mikið er I húfi fyrir
þjóðina.
að fiska við íslands-
ef þeir hámörkuðu af-
sína og stærð,“ segir
Kristján. „Það er það
rangt að segja að króka-
bátar geti veitt frjálst,
því þá er eins hægt að
segja að allir geti veitt
frjálst, jafnvel allur
flotinn.“ Hann segir að
menn verði að finna
leiðir til að ná sáttum.
Kvótakerfið sé búið að
negla svo fast niður að
því verði ekki breytt
nema á löngum tíma. Á
meðan að nauðsynlegt
sé að stýra sókn í fiski-
stofnana, verði sáttin
aldrei algjör. ■