Fréttablaðið - 10.10.2001, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
fBÚAR UNDIR 15 ARA ALDRI
Aldurssamsetning þjóða er mjög mismun-
andi. Aðeins um 15% Spánverja voru und-
ir 15 árum, samanborið við rúmlega þriðj-
ung Mexíkóa árið 1999. Hátt hlutfall ungs
fólks er jákvætt þrátt fyrir aukinn kostnað
vegna menntunar sem þvi er samfara.
Hlutfall ungs fólks hefur hrapað síðustu
áratugi, en í þeim hópi voru 35% íslend-
inga árið 1960.
Hlutfall undir 15 ára árið 1999
|wiexíkó
Ityrkland ' 1
Bandarikin
J34%
30%
240/o
210/o
I80/0
150/o
20,50/o
Heimild: vefsfða Ágústs Einarssonar.
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
Starfsmenn ekki sáttir við þá framtiðarsýn
sem stjórnvöld hafa boðað þeim.
Þjóðhagsstofnun:
Dánartilkynn-
ing í íjárlaga-
frumvarpi
starfsmannamál Katrín Ólafsdótt-
ir formaður Starfsmannafélags
Þjóðhagsstofnunar segir að
starfsmenn séu farnir að huga að
framtíð sinni á öðrum vinnustöð-
um eftir að dánartilkynning stofn-
unarinnar var opinberlega til-
kynnt í fjárlagafrumvarpinu.
Engu að síður reyna starfsmenn
að halda sínu striki þótt vinnu-
mórallinn geti verið breytilegur
eftir dögum. Búist er við að frum-
varp til breytinga á lögum um
Þjóðhagsstofnun verði lagt fram á
yfirstandandi haustþingi. í það
minnsta hafa stjórnarliðar boðað
að svo verði.
Hún segir að samkvæmt fram-
komnum hugmyndum forsætis-
ráðuneytisins sé gert ráð fyrir því
að starfsmönnum Þjóðhagsstofn-
unar verði boðin störf ýmist í
Seðlabanka, fjármálaráðuneyti og
Hagstofunni. Þessir staðir þykja
hins vegar ekki ýkja spennandi
valkostir, enda sé það mat margra
starfsmanna að vinnan á þessum
stöðum verði ekki jafn fjölbreytt
og verið hefur á Þjóðhagsstofnun.
Fyrir vikið séu starfsmenn ekki
sáttir við þessa framtíðarsýn. ■
—♦—
Innbrot:
Leita í
kvennær-
buxur
INNBROT Einvers konar faraldur
virðist vera í gangi um þessar
mundir en hann lýsir sér í ásókn í
kvennærbuxur. Tilkynnt var um
grunsamlegar mannaferðir og
rúðubrot í Vesturbænum aðfara-
nótt sunnudagsins. Þar var komið
að manni sem var að róta í fatnaði
úr þvottavél. Þegar betur var að
gáð fundust á manninum tvennar
kvennærbuxur. Var hann fluttur í
fangageymslur.
Svipað var upp á teningnum
um síðustu helgi. Þá var komið að
innbrotsþjófi og við leit á honum
fundust fjórar kvennærbuxur.
Einnig var farið inn í tvö íbúðar-
hús við Bárugötu og þaðan stolið
kvenmannsnærfatnaði. ■
Einkavæðingin heldur áfram:
Síminn skráður á tilboðsmarkaðinn
landssímasala Landssíminn
hefur verið skráður á tilboðs-
markað Verðbréfaþings íslands,
en þar eru einnig Keflavíkur-
verktakar og Frumherji. Að jaf-
naði hefur besta kauptilboð
verið 5,85 og besta sölutilboð
6,10. Búnaðarbankinn miðlar
bréfum ríkisins og hefur auk
þess uppi viðskiptavakt með
Landssímann.
„Við erum með viðskiptavakt,
það þýðir að á hverjum tíma
ábyrgjumst við að fyrir hendi sé
kaup og sölutilboð og að verðbil-
ið þar á milli sé innan ákveðinna
marka. Þetta er til að tryggja að
vilji einhver selja eða kaupa þá
er það hægt á hvaða tíma sem
er,“ segir Guðmundur Guð-
mundsson, hjá verðbréfadeild
BÍ. Þannig myndi mikill sölu-
þrýstingur færa verðið niður.
„Hinsvegar erum við með
samning við einkavæðingar-
Markmiðið um 15% dreifingu náðist
ekki og skráning á tilboðsmarkað því
niðurstaðan.
Staðreyndir um fyrsta hluta
einkavæðingar Símans
21. september
1. Almenningi boðið að kaupa 16% á
genginu 5,75. 2.600 manns keyptu fyr-
ir 1.200 milljónir. 3% seldust.
nefnd um að miðla bréfum í eigu
ríkisins. Þar höfum við fengið
fyrirmæli um að þeir séu ekki
tilbúnir til að selja á lægra gengi
en 6,10, það er algerlega óháð
viðskiptavaktinni." ■
2. Tílboðssala til almennings á 8%
hluta. 19 tilboð fyrir 879 milljónir. 2%
seldust.
Niðurstaða: 5% af heildarhlutafé seld-
ist af 24% sem voru í boði, eða um 2
milljarðar af 20. Lágmark fyrir skrán-
ingu á Aðallista Vhl, 15%, náðist ekki.
8. október
Síminn skráður á tilboðsmarkað VÞl.
Lágmarksgengi er 6,1 á hluta ríkisins.
Miðbærinn:
Fimmteknir
vegna óláta
áflog Ölvun var nokkur í miðborg-
inni um helgina. Fimm menn voru
handteknir vegna ölvunar og
óspektar og fimm fluttir á slysa-
deUd. Dyraverðir óskuðu eftir að-
stoð lögreglu en þar hafði maður
slegið annan í höfuð með flösku. Þá
urðu átök mUli gesta á veitingastað.
Þar var maður sleginn í höfuðið
með glasi og skarst hann nokkuð.
Hann var fluttur á slysadeUd, en
árásarmaðurinn í fangageymslur.
TUkynnt var um átök á Laugavegi á
sunnudagsmorgni, þar sem tveir
menn láu í valnum. Voru þeir flutt-
ur á slysadeild en árásarmennirnir
náðust ekki. ■
SIMINN
Þetta er bara eitthvert rugl
Landbúnaðarráðherra segir ekki rétt að kúariða sé á Islandi. Vísbendingar eru um innflutning á
fóðri sem kann að hafa innihaldið kúariðusmitefni. Matvælaeftirlit er gagnrýnt og lagt til að haf-
in verði skimun fyrir kúariðu og flokkun sláturafurða.
M ATVÆLAEFTIRLIT Skipulag mat-
vælaeftirlits á landinu sætir
harðri gagnrýni í skýrslu sem
landbúnaðar-, umhverfis-, og sjáv-
arútvegsráðuneyti kölluðu eftir í
byrjun árs. Vilhjálmur Rafnsson,
læknir, og Ólafur Oddgeirsson,
dýralæknir, fjalla í skýrslunni um
hættuna af kúariðu hér á landi, en
henni var skilað í mars á þessu
ári.
Matvælaeftirlitið er sagt of
flókið og heyra undir of marga
ólíka aðila og stofnanir og gagn-
rýnt að ekki sé til staðar eftirlit
sem nái til allra þátta framleiðslu-
ferilsins. Þá er tal-
að um vísbending-
ar um að flutt hafi
verið til landsins
kjöt- og beinamjöl
frá Bretlandi á ár-
unum 1990 til 1996
svo nemi hundruð-
um tonna, en á
þeim tíma var
kúariðufaraldur-
inn þar í hámarki.
„Einnig hefur á
undanförnum
árum verið fram-
leitt kjöt- og beina-
mjöli í landinu.
Eftir að skýrsl-
an var gerð
komu fram
vísbendíngar
um að dýra-
fóður með
kjötmjöli hafi
ekki verið flutt
inn til lands-
ins heldur hafi
átt sér stað
skráningarmis-
tök.
—♦—
Ekki er vitað nákvæmlega hvaða
gripir voru hafðir til þeirra fram-
leiðslu né hvaða gripir voru
fóðraðir með innlendu kjöt- og
beinamjöli," segir í skýrslunni. Þá
er einnig vísað til þess að sl. vetur
var flutt inn kálfafóður sem með
réttu hefði ekki átt að sleppa inn
eftirlitslaust.
Höfundar skýrslunnar segja
brýnt að hefja skimun fyrir riðu
hjá nautgripum og sauðfé sem
fyrst og tekin upp flokkun slátur-
afurða með sama hætti og í Evr-
Skýrsluhöfundar segja ekki hægt að útiloka að kúariða hafi borist til landsins, hvort heldur
sem er I menn eða dýr, en ekki greinst vegna langs meðgöngutíma sjúkdómsins.
ópusambandslöndunum. „Trúlegt
er að innlendir neytendur, al-
menningur og yfirvöld í ESB og
annars staðar vilji sjá annað og
meira en yfirlýsingar um að hér
hafi ekki greinst kúariða," segir
og áréttað mikilvægi þess að bæta
og endurskipuleggja matavæla-
eftirlit, bæði hvað varði innflutn-
ing matvæla, og einnig með dýra-
afurðum.
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, segir ekkert hafa verið
gert í að stokka upp matvælaeftir-
lit í landinu. „Það er á stefnuskrá
ríkisstjórnarinnar að gera það og
koma matvælaeftirliti undir eitt
ráðuneyti," sagði hann og áréttaði
að ekkert benti til að kúariða hafi
nokkurn tíman borist til landsins.
Þá segir ráðherra það ekki vera
rétt að flutt hafi verið inn dýra-
fóður með kjöt- og beinamjöli frá
Bretlandi. „Það er unnið að því að
GUÐNI
ÁGÚSTSSON,
LANDBÚNAÐ-
ARRÁÐHERRA
Landbúnaðarráð-
herra segir að á
stefnuskrá ríkis-
stjórnarinnar sé
að einfalda og
endurskoða mat-
vælaeftirlit í land-
fá þetta leiðrétt,
þetta er bara eitt-
hvert rugl,“ sagði
hann. Guðmundur
B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri land-
búnaðarráðuneyt-
is, sagði að trúleg-
ast hafi mistök átt
sér stað í toll-
skráningu og ver-
ið væri að kanna
hvernig þau gætu
hafa komið til.
oli@frettabladid.is
Einkavæðing Landssímans:
Þórarinn úr stjórnum
tveggja. fyrirtækja
viðskipti Þórarinn V. Þórarinsson,
forstjóri Símáns, hefur sagt af sér
stjórnarmennsku í Þróunarfélagi
íslands sem á 25% í Opnum kerf-
um. Opin kerfi eru einn þeirra að-
ila sem sækjast eftir 25% kjöl-
festuhluta í Símanum. Samkvæmt
heimildum blaðsins var það vegna
þrýstings frá einkavæðingarnefnd,
stjórnar Símans og samgönguráð-
herra sem Þórarinn tók þessa
ákvörðun. Auk þess sagði hann af
sér stjórnarformennsku í Lífeyris-
sjóðnum Framsýn, sem einnig á
hlut í Opnum kerfum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var talið nær öruggt um miðjan
daginn í gær að Þórarinn myndi
einnig draga sig tímabundið í hlé
sem fortjóri Símans. Þar sem
blaðið fór óvenju snemma í prentun
í gær var ekki unnt að staðfesta
þetta.
Ljóst er að
hagsmunatengsl
eru rík á íslenska
tækni- og fjar-
skiptamarkaðin-
um. Þannig hefur
blaðið þegar greint
frá tengslum Sím-
ans og Opinna
kerfa í gegnum
mörg hérlend
tæknifyrirtæki.
Dæmi um þetta eru íslenska vef-
stofan, Grunnur gagnalausnir og
IP fjarskipti. í fréttatilkynningu
Þórarins vegna málsins segir að
með ákvörðun sinni vilji hann und-
irstrika að hann hafi ekki annarra
hagsmuna að gæta en Landssímans
vegna þess tilboðsferlis sem þegar
er hafið. Ekki eru gefnar skýringar
á því hvers vegna Þórarinn sagði
sig ekki úr stjórnunum áður. ■
ÞÓRARINN V.
Tengist Opnum
kerfum úr tveimur
áttum.
£B!CEWÁtcI
-ÞRóuh H?
VERKFRÆÐlSTOfMl
FATAMERKING. GRAFR5AiUUyg
HÖFÐABAKKI 9
Hér eru til húsa PricewaterhouseCoopers, sem sér um sölu 25% kjölfestuhluta í Siman-
um, Opin kerfi, sem sækjast eftir hlutnum og Hreinn Loftsson, hrl., formaður einkavæð-
ingarnefndar.