Fréttablaðið - 10.10.2001, Page 8
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDAGUR
Ellilífeyrisþegi dæmdur:
Olli banaslysi
á Akureyri
dómsmál Héraðsdómur Norður-
lands eystra hefur dæmt 72 ára
karlmann til fimm mánuða öku-
leyfissviptingar og 45 daga skil-
orðsbundins fangelsis fyrir að
hafa með ógætilegum akstri valdið
banaslysi. Dómurinn komst að því
að maðurinn hefði ekki sýnt nægi-
lega aðgæslu þegar hann beygði
bifreið sinni af Drottningarbraut
á Akureyri vestur Þórunnarstræti
og í veg fyrir aðra bifreið. Öku-
maður hinnar bifreiðarinnar hlaut
mikla áverka á brjóstkassa, maga
og mjöðm auk höfuðáverka og lést
skömmu síðar. ■
Mislæg gatnamót formlega opnuð:
50 þúsund bifreið-
ar á sólarhring
samcöncur Mislæg gatnamót
Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar
og Reykjanesbrautar voru form-
lega opnuð á mánudag. Telja má
víst að gatnamótin auðveldi mjög
alla umferð en áætlað er að nú
fari í kringum 50 þúsund bifreiðar
um gatnamótin á hverjum sóla-
hring og að þeim fjölgi í 100 þús-
und fyrir 2030.
Umferð verður nú hindrunar-
laus um Reykjanesbraut við
gatnamótin en Breiðholtsbraut og
Nýbýlavegur tengjast á brú yfir
Reykjanesbraut. Á brúnni eru
ljósastýrð gatnamót. Fjórar að- og
fráreinar tengja brúna og Reykja-
nesbraut. Þá er á gatnamótunum
brú yfir Álfabakka, sem verður
framlengd til suðurs. Verkið var
fyrst boðið út í desember 2000 og
tilboð opnuð 22. janúar 2001.
Framkvæmdartími miðaðist við
að umferð yrði komið á gatnamót-
in í september og öllum vega-
framkvæmdum lokið í október.
Öllum framkvæmdum verður að
fullu lokið 1. júlí 2002. ■
MISLÆG GATNAMÓT FORMLEGA OPNUÐ
Umferð á mótum Breiðholtsbrautar, Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar er mjög mikil. Gerð
gatnamótanna er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri og Sturla
Böðvarsson, samgönguráðherra, opnuðu gatnamótin formlega á mánudag.
Þýskur sagnfræðingur:
Segir Hitler
hafa verið
homma
SflCNFRÆÐi Þýskur sagnfræðingur,
Lothar Machtan, heldur því fram í
nýrri bók sinni að Adolf Hitler hafi
verið samkynhneigður og hafi
gengið svo langt að
láta myrða menn til
að koma í veg fyrir
að það yrði gert op-
inbert.
í bók sinni, sem
gefin var út á
mánudag, vísar
Machtan til lög-
regluskýrslna og
endurminninga
samferðamanna
Hitlers. „Að nætur-
lagi lá Hitler með
Schmidl, karlhór-
unni sinni“, hefur Machtan eftir ein-
um þeirra sem gegndu herþjónustu
með Hitler í fyrri heimsstyrjöld en
sá segir að Hitler og Ernst
„Schmidl" Schmidt hafi verið „óað-
skiljanlegir elskendur" um fimm
ára skeið. í lögregluskýrslum sem
Machtan hefur skoðað kemur fram
að lögreglan hafi haft eftirlit með
Hitler um skeið vegna gruns um að
hann legði lag sitt við karlmenn.
Þrátt fyrir þetta ofsóttu nasistar
samkynhneigða í valdatíð Hitlers og
segir Machtan að það hafi verið til
að vekja ekki grunsemdir um kyn-
hneigð Hitlers. Meðal þeirra sem
Hitler á að hafa fyrirskipað morð á
vegna ótta um að upp um hann
kæmist var Ernst Röhm yfirmaður
SA-sveitanna. ■
ADOLF HITLER
Nú eru komnar
fram staðhæfing-
ar um að hann
hafi verið sam-
kynhneigður.
--♦--
Utgerð og fiskvinnsla:
Fjárhagslegur
aðskilnaður
SJÁVflRÚTVECUR „Ég vil koma á skyn-
samlegra og heiðarlegra viðskipta-
kerfi í sjávarútvegi. Ég tel að það
eigi að vera algjörlega fjárhagsleg-
ur aðskilnaður á milli veiðanna
annars vegar og vinnslunnar hins
vegar. Þannig yrðu þetta ævinlega
tvö fyrirtæki, annað fyrirtækið
gerir út og hitt vinnur fiskinn,"
segir Guðjón A. Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins. Hann
hefur lagt fram þingsályktunartil-
lögu þess efnis að fjárhagur fyrir-
tækja, sem bæði stunda útgerð og
fiskvinnslu, verði aðskilinn.
Guðjón segir þetta ekkert úti-
loka það að fiskvinnslur kaupi afla
af útgerðum sem eru í eigu sama
aðila. Þetta gerir kerfið hins vegar
gegnsærra, en nú eru alls konar
undirboð og hliðarfærslur sem
enginn sér. í framtíðinni muni
þetta líka leiða til þess að meiri afli
fari á markað þó það sé ekki sér-
staklega lagt til í ályktuninni.
„Ég tel að þarna sé verið að taka
upp það form sem er eðlilegt sam-
kvæmt okkar samkeppnislögum og
aðild að Evrópska efnahagssvæð-
inu. Verið er að leggja til nútíma-
lega viðskiptahætti sem ekki eru
viðhafðir nú í sjávarútvegi. Það er
alveg hægt að fullyrða það,“ segir
Guðjón. ■
Lokun yfírvofandi ef ekki
semst við ríki og borg
Leikfélag Islands er nú í kröggum. Viðræður standa yfir milli forráðamanna leikhússins og full-
trúa ríkis og borgar. Að sögn leikhússtjóra verður leikhúsinu lokað, jafnvel á næstu vikum, ef
ekki kemur til stuðningur við reksturinn frá þessum aðilum.
leikhús Aðstandendur Leikfélags
íslands hafa haldið úti leikhús-
starfsemi í sjö ár. í kjölfar þess
var hafin vinna við að endurfjár-
magna reksturinn. Ríki og borg
hafa stutt rekstur leikfélagsins
gegnum tíðina en sá stuðningur
hefur alltaf verið lítið hlutfall af
veltu félagsins. Félagið hefur ein-
nig leigulaus afnot af Iðnó sem er
í eigu Reykjavíkurborgar. „Það
hefur verið mjög
erfitt hjá okkur
fjárhagslega að
undanförnu, sér-
staklega vegna
þess að atvinnulíf-
ið, sem hefur stutt
okkur mjög dyggi-
lega þau sjö ár
sem við höfum
starfað, hefur ekki
verið jafnaflögu-
fært og áður og
stuðningur þaðan hefur dregist
verulega saman. Endurfjármögn-
unin sem átti að ljúka í sumar
gekk heldur ekki sem skyldi, lík-
lega vegna bágs efnahagsá-
stands," segir Magnús Geir Þórð-
arson leikhússtjóri. Því standa nú
yfir viðræður við menntamála-
ráðuneytið og Reykjavíkurborg
um samstarfssamning til fimm
ára. Sá samningur er, að sögn
Magnúsar Geirs, forsenda þess að
félagið geti haldið leikhúsrekstri
áfram. „Við erum að tala um 10 til
20 milljón króna framlag á ári frá
hvorum aðila.“
Undanfarna mánuði hafa starf-
að 18 fastráðnir starfsmenn hjá
Leikfélagi íslands, en lausráðnir
starfsmenn eru 60 til 70 að jafnaði
hvern mánuð. „Við vonumst til að
þessum samningum ljúki á já-
kvæðan hátt og þannig verði skap-
aðar forsendur fyrir áframhald-
„Mér finnst að
það eigi að
styrkja Þjóð-
leikhús og
Borgarleikhús
kröftuglega,
hins vegar
verður að vera
pláss fyrir aðra
líka."
MIKIL UMSVIF
Leikfélag (slands er með starfsemi á tveimur sviðum (Iðnó og í Loftkastalanum. Auk þess hefur félagið sýnt talsvert á Akureyri. Magnús
Geir Þórðarson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Islands vonast til að ekki þurfi að loka leikhúsinu.
andi kraftmikið leikhússtarf, ef
ekki verðum við að loka.“
Magnús Geir telur markað
vera í Reykjavík fyrir fleiri en tvö
stór leikhús og nefnir áhorfenda-
tölur því til stuðnings. Hins vegar
segir hann samkeppnisumhverfi
Leikfélags íslands erfitt. „Það eru
tvö stór leikhús sem njóta hárra
opinberra styrkja og þau stýra
miðaverðinu sem hefur lítið
hækkað í mörg ár.“ Magnús Geir
leggur áherslu á að samkeppn-
isumhverfi leikhúsa verði að vera
þannig að pláss sé fyrir einka-
framtak. „Mér finnst að það eigi
að styrkja Þjóðleikhús og Borgar-
leikhús kröftuglega, hins vegar
verður að vera pláss fyrir aðra
líka.“
steinunn@frettabladid.is
Bílgreinasamband Islands:
Helmingi færri fólksbílar fluttir inn
BiFREiÐflR Mikið hefur dregið úr
fjölda innfluttra fólksbíla ef mið-
að er við fyrstu níu mánuði ársins
eða frá janúar til septembermán-
aðar. Samkvæmt upplýsingum frá
Bílgreinasambandi Islands er um
tæplega helmingsfækkun að ræða
á þeim fjölda bifreiða sem fluttir
voru inn milli áraxma 2000 og 2001
eða 5.357. Sé miðað við árið 1999
BÍLAINNFLUTNINGUR
Innflutningur fólksbíla fyrstu níu mánuði ársins frá árinu 1997 til 2001.
1997 7.977
1998 10.651
1999 15.364
2000 11.435
2001 6.078
: :—
er fækkunin rúmlega helmingur
eða 6.658 talsins en þess má geta
að innflutningur bifreiða náði há-
marki á því ári.
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdarstjóri Bílgreinarsam-
bands íslands, sagðist ekki vilja
trúa öðru en ástandið færi fljót-
lega að lagast. „Okkur finnst oft
hafa verið meiri óáran í þjóðfélag-
inu þegar tölur hafa dottið svona
niður. Þá hafa orsakirnar verið
gengisfellingar og mun meiri efn-
hagsörðugleikar en við erum að
sjá í dag.“ Jónas Þór sagði starfs-
menn Bílgreinasambandsins vera
bjartsýna með áframhaldið og því
til stuðnings gat hann þess að
kaupmáttur væri ekki kominn
niður úr öllu valdi. ■
SAMDRÁTTUR ER Á INNFLUTNINGI FÓLKSBIFREIÐA
Heildarfólksbílaeign Islendinga í árslok 2000 voru 159.100 talsins. Fólksbílar á þúsund
íbúa voru því 562. Meðalaldur bila voru í lok 2000 um 8,8 ár.