Fréttablaðið - 10.10.2001, Qupperneq 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDACUR
Breski blaðamaðurinn laus daginn eftir árásirnar:
Var í hungurverkfalli
hjá talibönum
YVONNE RIDLEY
Myndin er tekin þegar hún var nýkomin til Pakistans á mánudagskvöld, en hún er vænt-
anleg heim til Bretlands innan fárra daga.
1 löcreclufréttirT
Bifreið, sem var að koma ofan af
Hvanneyri, fauk út af veginum
í Árdal um hálftíuleytið í gær-
morgun. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi urðu engin slys á fólki.
árnplötur losnuðu af þaki íbúð-
arhúss í Njarðvík í fyrrinótt.
Kalla þurfti til aðstoðar björgun-
arsveitarinnar þar sem eigandi
hússins var ekki á staðnum.
Lögreglan í Borgarnesi stóð
rjúpnaskyttu að ólöglegum
veiðum á Holtavöruheiði á sunnu-
dag. Veiðin var gerð upptæk og
að sögn lögreglunnar á maðurinn
yfir höfði sér ákæru og sennilegt
að byssan verði gerð upptæk.
LONPON. ap Breska blaðakonan
Yvonne Ridley, sem talibanarnir í
Afganistan létu lausa úr haldi að-
faranótt mánudags, lýsti reynslu
sinni af veru sinni í Afganistan í
bresku dagblaði í gær.
Hún sagðist hafa neitað að
borða eftir að henni hafði verið
neitað um aðgang að síma. „Hung-
urverkfall var eina vopnið sem ég
hafði yfir að ráða. Ég hélt ég
myndi deyja. Ég var virkilega
hrædd,“ skrifaði hún í Daily Ex-
press, sem er gefið út í nánum
tengslum við Sunday Express,
vikublaðið sem Ridley starfar hjá.
Hún var handtekin þann 28.
september fyrir að hafa farið með
ólöglegum hætti inn í landið. Þá
hafði hún verið í Afganistan í tvo
daga. Hún var látin laus eftir tíu
daga fangelsisvist, daginn eftir að
loftárásir Breta og Bandaríkjanna
á Afganistan hófust.
„Þegar árásirnar á Kabúl hófust
um nóttina lá ég í rúminu og það
var eins og verið væri að skjóta
flugeldum ... Ég gat séð allt greini-
lega, þegar sprengjurnar flugu
upp á himininn með reykstrik á
eftir sér og sprengingarnar,“ sagði
hún.
„Ég viðurkenni að ég fór inn í
landið án þess að vera með vega-
bréfsáritun," segir hún. „Þetta var
ekki heimskulega gert, ég var að
reyna að komast að því hvað Af-
gönum finnst um ástandið. ■
Loftárásir á Afganistan
Fjórir
starfsmenn
SÞ féllu
Undirbúa leit að
ristilkrabbameini
Innan hálfs mánaðar stendur til að skila niðurstöðum um vænleika þess
að leita skipulega að ristilkrabbameini hér á landi. Nefnd á vegum land-
læknisembættisins hefur verið að skoða málið.
ÁSGEIR THEÓDÓRS
Ásgeir segir að ristilkrabbameinleit myndi beinast að báðum kynjum, en núna er einungis
leitað skipulega að brjósta- og leghálskrabbameini í konum.
ISLAMABAD, PAKISTAN, AP Yfirmað-
ur starfsemi SÞ í Áfganistan fór
í gær fram á það að allt verði
gert til að vernda saklausa borg-
ara í loftárásunum á Afganistan,
eftir að fréttir bárust af því að
fjórir starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna hafi látist þegar
bandarískt flugskeyti féll í fyrr-
inótt á byggingu SÞ nálægt Kab-
úl, höfuðborg Afganistans.
Mennirnir störfuðu við að
fjarlægja jarðsprengjur úr
jörðu, og unnu hjá sjálfstæðri
stofnun sem starfar með Sam-
einuðu þjóðunum. Skrifstofur
stofnunarinnar voru í þorpi, sem
er skammt austan við Kabúl.
Byggingin gereyðilagðist.
Stefanie Bunker, talsmaður
Sameinuðu þjóðanna í Pakistan,
sagði mennina hafa látist sam-
stundis. „Ekki hefur enn tekist
að ná pörtum af líkamsleifum
þeirra út úr rústum byggingar-
innar," sagði hún. Mennirnir
fjórir eru þeir fyrstu, sem óháð-
ir aðilar staðfesta að hafi látist
af völdum loftárásanna.
„Fólk verður að gera greinar-
mun á hermönnum og saklaus-
um borgurum sem ekki bera
vopn,“ sagði Bunker. ■
|lögreclufréttir|
Tveir erlendir menn sem hand-
teknir voru og ákærðir fyrir
fjársvik hér á landi fyrir á aðra
milljón króna með stolnum og
fölsuðum greiðslukortum hafa
verið dæmdir til skilorðsbundinn-
ar fangelsisvistar. Mennirnir sem
voru með fölsuð frönsk vegabréf
og sögðust vera fæddir í Kamer-
ún eru farnir af landi brott.
HEILBRIGÐISMÁL Nefnd á vegum
landlæknisembættisins skilar á
dögum niðurstöðum um vænleika
þess að taka upp skipulega leit að
ristilkrabbameini. Ásgeir Theó-
dórs, læknir, er formaður nefnd-
arinnar. „Við erum rétt að ljúka
störfum og leggjum fram tillögur
um hvort og hvernig við á að
framkvæma slíka leit,“ sagði
hann en tiltók að ekki væri hægt
að upplýsa um niðurstöður strax.
„Það er í mörg horn að líta og þótt
nefndin sé einhuga eiga ýmsir eft-
ir að segja álit sitt á málinu og lík-
legt að þetta eigi eftir að taka ein-
hverjum breytingum.
Ásgeir segir mikinn áhuga fyrir
málinu. „Nýjustu rannsóknir sýna
að það er vel þess virði að fara í
einhvers konar leit. Þetta er þriðja
algengasta krabbameinið meðal Is-
lendinga af báðum kynjum. Senni-
lega er þetta líka önnur til þriðja
dánarorsökin í krabbameinum
talið, þannig að þetta er stórt
vandamál í okkar þjóðfélagi og við
höfum svo sem ekki mikið verið að
gera í málinu ennþá,“ sagði hann.
Ásgeir segir almennt ekki leitað
skipulega að ristilkrabba hjá öðr-
um þjóðum. „Sl. 2 ár hafa sérfræð-
ingar engu að síður verið að leggja
til við heilbrigðisyfirvöld í ýmsum
löndum að fara út í einhvers konar
leit eða skimun. Þetta verður með
einhverjum hætti gert á næstu
árum í ýmsum löndum. T.a.m. ligg-
ur tillaga fyrir franska þinginu,
Danir er áhugasamir um þessi mál
og eru að vinna í þeim. Þá skilst
mér að Pólverjar og ítalir séu farn-
ir að leita skipulega með einhverj-
um hætti.“ Niðurstöður rannsókna
sem birst hafa sl. 2 til 3 ár segir
Ásgeir að leiði í ljós að við leit
muni klárlega fækka dauðsföllum
af völdum ristilkrabba, en nýgengi
sjúkdómsins sé vaxandi í hinum
vestræna heimi. „Ristilkrabba-
mein hefur forstig, þannig að það
má finna á byrjunarstigi og lækna
það,“ sagði hann.
oli@frettabladid.is
Hárgreiðslustofan Rauðhetta og úlfurinn
leitar að skemmtilegu og hressu fólki í
vinnu á spennandi vinnustað. Laus er
staða f/rir meistara eða svein.
Einnig vantar okkur umburðalynda og
glaða manneskju í móttöku.
Nánari upplýsingar fást í síma 511 4004
eða á rauðhetta@rauðhetta.is
RAUÐHETTA $ ÚLFURINN
LAUGAVEGUR 7 • 511 4004
(jgjk\ Menntaskólinn
við Hamrahiíð
Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Umsóknir um skólavist á vorönn 2002
Tekið verður við umsóknum um skólavist á vorönn 2002
frá 16. október 2001. Umsóknum má skila á skrifstofu
skólans eða senda í pósti. Skrifstofan er opin alla virka
daga milli kl. 8.30 og 15.30. Sími 595 5200,
netfang mh@mh.is.
Umsóknum skal fylgja afrit af grunnskólaprófsskírteini og
upplýsingar um nám að loknum grunnskóla. Gott er að
bréf með nánari upplýsingum fylgi.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans.
Almennar upplýsingar um skólann og viðmiðunarreglur
vegna innritunar nýrra nemenda má finna á heimasíðu
skólans http://www.mh.is.
Rektor.
ÁRNI FINN5SON
FRAMKVÆMDA-
STJÓRI NÁTT-
ÚRUVERNDAR-
SAMTAKA (S-
LANDS
Samtökin vilja að
ávallt eigi að nýta
bestu fáanlegu
tækni til mengun-
arvama.
N áttúruverndarsamtök
Islands:
Kæra til
ráðherra
reyðarál Náttúruverndarsamtök ís-
lands hafa sent umhverfisráðherra
stjórnsýslukæru vegna úrskurðar
Skipulagsstofnunar frá 31. ágúst sl.
um matskýrslu
Reyðaráls. Kæran
beinist aðallega að
því að Norsk
Hydro verði gert
skylt að leggja
fram nauðsynleg
gögn til þess að
Hollustuvernd rík-
isins geti metið
hvort sú tækni
sem nýtt er í raf-
skautaverksmiðju
Norsk Hydro í
Sunndal í Noregi
sé betri eða verri
kostur en sá sem
fyrirhugað er að
nýta í Reyðarfirði.
Samtökin telja að
margt bendi til þess að tæknin sem
notuð er í Sunndal valdi minni
mengun en sú sem ætlunin sé að
nota í Reyðarfirði.
í kærunni krefjast samtökin að
umhverfisráðherra veiti aðeins
tímabundið leyfi til starfrækslu kol-
arafskautaverksmiðju. Það leyfi
gildi einungis þar til sýnt verður að
Norsk Hydro eða aðrir stórir álf-
ramleiðendur muni endurnýja
vinnslurásir með nýjum gerðum
rafskauta sem valda engri eða
margfalt minni losun gróðurhúsa-
lofttegunda og PAH-mengun. ■
Meirihlutinn í Kópavogi:
Ovissa með
fasteignagjöld
SVEITASTJÓRNIR Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks telur ekki tímabært að
lýsa því yfir að hækkun fast-
eignamats leiði
ekki til að heild-
arálögur vegna
fasteigna á
Kópavogsbúa
hækki.
Minnhluti
Kópavogslista
hafði sett fram
tillögu þessa
efnis í bæjarráði
S™R en fulltrúar
Bæjarstjóri og aðrir meirihlutaflokk-
fulltrúar meirihlut- anna vilja að
ans í Kópavogi vilja ákvörðun um
ekki breyta álagn- álagningu fast-
ingu fasteignaglada eignagjalda
að óathuguðu máli verði tekin yið
gerð fjárhagsáætlunar 2002. Þeir
segja upplýsingar um áætlaðar
tekjur og gjöld Kópavogsbæjar
2002 skilyrði fyrir raunhæfri
ákvarðanatöku um álagningu
gjalda næsta árs. Meirihlutinn
telur einnig að kanna þurfi áhrif
af skattalækkanatillögum ríkis-
stjórnarinnar áður en álagning-
arprósenta fasteignagjaldanna er
endurskoðuð. ■