Fréttablaðið - 10.10.2001, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 10. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Þjálfaramál Man. Utd.:
Eriksson efstur á lista
KNflTTSPYRNfl Sven Göran Eriksson
er efstur á lista hjá Manchester
United sem líklegur arftaki Alex
Fergusonar sem hættir eftir
þetta tímabil. Eriksson hefur við-
urkennt að hann sakni hins dag-
lega amsturs sem fylgir því að
vera við stjórn hjá félagsliði.
Knattspyrnusamband Eng-
lands (FA) segir hinsvegar að
Eriksson fari hvergi, hann þurfi
að klára samninginn sem hann
hafi gert við landsliðið og muni
fylgja því á Heimsmeistaramótið
í Suður Kóreu og Japan á næsta
ári.
„Eriksson er með samning við
okkur til ársins 2006 og við sjáum
ekki afhverju hann ætti ekki að
klára samninginn,“ sagði tals-
maður FA.
„Hann er hluti af framtíðará-
ætlunum okkar, og hann hefur
trú á því, líkt og við, að hann
muni vera með okkur allan tím-
ann.“
Peter Kenyon, stjórnarfor-
maður Man. Utd. hefur staðfest
að félagið hafi gert lista yfír
hugsanlega arftaka en segir að
félagið muni ekki byrja að vinna
í þjálfaramálum fyrr en á næsta
ári. Martin O'Neil hjá Celtic,
Lous Van Gaal landsliðsþjálfari
Hollands, Fabio Capello hjá AS
Roma og Ottmar Hitzfeld hjá
SVEN GÖRAN ERIKSSON
Hefur staðið sig frábærlega með enska
landsliðinu og kom liðinu í lokakeppni HM.
Bayern Munchen eru meðal þeir-
ra sem nefndir hafa verið til sög-
unnar. ■
Sunderland vill Sinclair:
Stefnir á landsliðssæti
KNflTTSPYRNA Trevor
Sinclair hefur farið fram
á að vera settur á sölulista
hjá West Ham og er talið
að Sunderland hafi mikinn
áhuga á að kaupa hann.
Forráðamenn West Ham
virðast ekki alveg tilbúnir
að láta hann fara frá fé-
laginu, því þeir hafa ekki
enn veitt honum leyfi til
að ræða við önnur félög.
Ef Sunderland hyggst
kaupa þennan fyrrum
leikmann Blackpool og
QPR er talið að liðið verði
að reiða fram 7 milljónir punda.
„Þetta er eitthvað sem ég vil
LANDSLIÐS-
MAÐUR?
Trevor Sinclair
telur sig eiga
fullt erindi
i enska lands-
liðið.
leikur
Ham. |
gera fyrir sjálfan mig,“
sagði Sinclair. „Metnaður
minn til að fá að leika á
vinstri kantinum með
landsliðinu á stóran þátt í
þessari ákvörðun.“
Sinclair telur sig eiga
fullt erindi í enska lands-
liðið, sem hefur verið í
miklum vandræðum með
vinstri kantstöðuna, en
Nicky Barmby lék þar
gegn Grikkjum og átti lé-
legan leik. Sinclair telur
möguleika sína á lands-
liðssæti meiri ef hann
með öðru liði en West
sigraði
Oscar De La Hoya:
Aftur á æskuslóðir
Steven Gerrard:
Tekur Owen
sér til fyrir-
myndar
KNATTSPYRNA Steven Gerrard,
enski landsliðsmaðurinn, segir
það hafa verið barnalegt af sér að
sitja að drykkju langt fram eftir
nóttu stuttu fyrir landsleikinn
gegn Grikkjum. Gerrard bað Sven
Göran Eriksson, landsliðsþjálf-
ara, afsökunar á háttemi sínu og
segist ætla að taka Michael Owen,
samherja sinn hjá Liverpool, og
David Beckham, landsliðsfyrir-
liða, sér til fyrirmyndar.
Gerrard hefur átt hvern stór-
leikinn af fætur öðrum með lands-
liðinu en hann náði sér ekki á strik
gegn Grikkjum á laugardag.
„Þegar við vorum 2-1 undir
hélt ég að þessi vonda vika ætlaði
að snúast upp í martröð," sagði
Gerrard. „Sem betur fer fór allt
vel en ef ég á að vera hreinskilinn
finnst mér ég ekki hafa gert neitt
rangt. Ég fór út að borða með
kærustunni minni og vinum en ég
var ekki fullur. Tímasetningin var
kannski ekki sú besta en það eina
sem ég var sekur um var að vera
barnalegur." ■
San Francisco Giants:
Bonds
sló met
McGwire
HflFNABOLTi Barry Bonds, leikmað-
ur bandaríska hafnaboltaliðsins
San Francisco Giants, hefur slegið
þriggja ára gamalt
met Mark
McGwire en á
sunnudaginn náði
hann sínu 73
heimahafnarhlaupi
í síðasta leik liðsins
gegn Los Angeles
Dodgers á heima-
velli. Giants unnu
leikinn 2-1. Gamla
metið var 70 og
þegar það var sett
árið 1998 var það
talið ósláanlegt.
,T>að er frábært
að ljúka tímabilinu með heima-
hafnarhlaupi og sigri,“ sagði
Bonds. „Það ekki hægt að biðja um
neitt meira. Ég bjóst aldrei við að
ég gæti þetta.“ ■
NÚMER 73
Sjötugasta og
þriðja heima-
hafnarhlaup
Bonds var gegn
Los Angeles
Dodgers á
sunnudaginn.
STEVEN GERRARD
Hefur átt hvern stórleikinn af fætur öðrum
fyrir enska landsliðið.
hnefaleikar Oscar De La Hoya
snýr aftur í hringinn og berst við
Rússann Roman Karmazin í Las
Vegas, þar sem hann vann sinn
fyrsta heimsmeistaratitil sinn,
þann 8. desember n.k.
„Ég er spenntur fyrir endur-
komu minni á æskuslóðirnar og
að berjast við Karmazin sem er
efstur á áskorendalista WBC,“
sagði heimsmeistarinn í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér.
Oscar De La Hoya er einn af
þremur hnefaleikaköppum sem
hefur unnið heimsmeistaratitil-
inn í fimm flokkum, hinir eru
Sugar Ray Leonard og Thomas
Hearns. ■
FIMMTI TITILLINN
Oscar De La Hoya vann WBC heimsmeistaratitilinn í milliþungavigt þegar hann
Javier Casteillejo frá Spáni í Las Vegas þann 23. júni.
Intersport
stærsta sportvörukeðja heims
opnar aðra verslun á íslandi
í Smáralind 10.10. kl.10:10
Nú eru verslanir Intersport
orðnar fleiri en 4700 viðsvegar
um heiminn og erum við stolt
af því að hafa tvær verslanir
hér á landi, við Bíldshöfðann
og í Smáralindinni.
vvv)
vvw
vw\
vvvvv
vvvv
Jvvvvv
Ivvvvvv
vvý
íáM/
Þín frístund - Okkar fag
VINTERSPORT
Bíldshöfða • Smáralind • www.intersport.is