Fréttablaðið - 10.10.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
____________________________ Sýnd kl. 5.15, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15 [DOWNTOEAKTH kl.6,8oglo|
[knTsHECREAT kL 6,8oglo| iBRIDCET JONES'S DIARY kl.6og81
SmHfíH^ Biö
□□ Dolby /DD/ Ihx SÍMI 564 0000 - wvAAV.smarabio.is
Sýnd kl. 8 og 10.40 - líka sýnd í Lúxussal Sýnd kl. 8 og 10.10
|JAY & SILENT BOB kL 8 og 10J01 jWHATS THE WORST- kl8oglQ.lo|
ÚTSÝNI ALLRA TRYGGT
Góður halli er á gólfum sem tryggir að allir
hafi gott útsýni á sýningartjaldið.
Smárabíó opnar í dag:
Bíóheimur-
inn stækkar
kvikmynpahús Við opnun Smára-
lindar í dag stækkar einnig bíó-
heimur _islendinga. Eigendur
Smárabíós bjóða viðskiptavinum
sínum upp á 5 sali og er „áður
óþekktum gæðum og þægindum“
lofað. Stærsti salurinn rúmar 400
manns. í honum, eins og öðrum,
eru sýningartjöld sem ná vegg í
vegg, THX hljóðkerfi, stólar með
hallandi baki, hreyfanlegir armar,
breiðari sæti og mikið bil á milli
þeirra. Á undan hverri sýningu í
Sal 1 verður 3-5 mínútna
leisigeislasýning með reyk og tón-
list. í svokölluðum Lúxussal er
áhersla lögð á þægindi. í honum
eru 71 leðurklæddir „Lazy boy“
hægindastólar, leyfilegt verður að
taka vínveitingar með inn og gest-
ir sleppa við biðröð í miðasölu þar
sem sér miðasala er fyrir hann.
Miðaverð í þennan sal er töluvert
dýrara, en innifalið í verðinu er
inneign í sælgætissölunni. f
Smárabíó er líka að finna Kaffi-
hús, bar og Playstation leikja-
tölvuhorn. Opnunarmynd bíósins
er ekki af verri endanum, en það
er söngvamyndin Moulin Rouge,
með Ewan McGregor og Nicole
Kidman í aðalhlutverkum. Mynd-
in vann gullpálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í ár sem
besta myndin. ■
SABIANA
Hitablásarar
Hagstætt verð
VA TNSVIRKINN ehf.
Aeégi! Ármúla 21, Sími: 533-2020
v______________________/
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hljómsveitin Oasis lék fyrstu
tónleikana í 10 ára afmælistón-
leikaröð sinni á tónleikastaðnum
Shepard’s Bush
Empire í London.
Það var enginn
annar en félagi
þeirra Paul Weller
sem steig á svið
með þeim og lék á
gítar í laginu
Campagne
Supernova. Oasis
eru alvanir því að leika á fótbolta-
leikvöngum, en i þessari tónleika-
ferð leika þeir aðeins á minni tón-
leikastöðum. T.d. voru ekki nema
um 2500 manns á tónleikunum í
London. Skiljanlega varð uppselt á
alla tónleikana nokkrum klukku-
stundum eftir að miðasalan opnaði.
Phil Collins greindi nýlega frá
því að hann hefði misst heym-
ina á vinstra eyra fyrir 11 mánuð-
um síðan. Þetta
gerðist á einni
kvöldstund, og er
afar sjaldgæfur
kvilli sem getur
reynst varanlegur.
Collins var aftur á
móti heppinn og
heymin skilaði sér
smátt og smátt aft-
ur á nokkrum mánuðum. En
reynslan varð til þess að Collins
endurmat líf sitt og hyggst því
eyða meiri tíma með fjölskyldu
sinni í framtíðinni.
Poppdúettinn Savage Garden er
hættur. Endalokin komu David
Jones, þöglari hluta sveitarinnar, á
óvart þar sem hann frétti af þeim
er hann las um þau í dagblaðinu.
Darren Hayes söngvari er þegar
byrjaður að gera sólóplötu, sem
kemur til með að bera nafnið Spin.
AGauk á Stöng í kvöld leika
hljómsveitirnar Útópía, Stolið
og Náttfari. Sveitimar hafa allar
verið að vinna að
nýju efni og ætla
þær að leyfa gest-
um að hlýða á í
kvöld. Tónleikam-
ir eru hugsaðir
sem nokkursskon-
ar upphitun hljóm-
sveitanna fyrir
Airwaves tónlist-
arhátíðina í næstu viku.
NABBI I
Transað fram í
rauðan dauðann
í kvöld leika bandarísku rokksveitirnar Trans Am og The Fucking
Champs í Menntaskólanum við Sund. Rokkþyrstir hafa ástæðu til
þess að fagna því það þykir víst góð adrenalínssprauta í rokkæðina
að sjá sveitirnar leika á tónleikum.
tónust Hljómsveitin TVans Am
hefur áður heimsótt klakann og
hafa tónlistaráhugamenn síðan
þá verið að reyna að toga kjálk-
ann aftur upp á af gólfinu. Hún
var stofnuð í Washington árið
1990. Tónlist þeirra þykir frum-
legt, humorískt og jafnvel öfga-
fullt daður við klysjufrasa rokks-
ins. Hún er reyndar síbreytileg
eftir plötum, og sveitin er álíka
ófeimin að daðra við raftóna hér
og þar eins og David Bowie er við
að skipta um ímynd. Hljómsveit-
in byrjaði þó ekki að taka upp
plötur fyrr en árið 1995, þegar
liðsmenn sveitarinnar höfðu
klárað skólagöngu sína. Þeir hafa
verði iðnir síðan þá því Trans Am
hefur gefið út 5 breiðskífur, 2
stuttskífur auk einnar safnskífu
sem var sérstaklega gerð fyrir
Japansmarkað. Síðasta breiðskífa
þeirra hét Red Line og er af
mörgum talin þeirra besta, en
það voru einmitt aðallega lög af
þeirri plötu sem sveitin lék á tón-
leikunum á Gauknum í október í
fyrra. Nýlega tóku liðsmenn
Trems Am upp stuttskífu ásamt
San Francisco sveitinni The
Fucking Champs. Platan er nú ný-
komin í búðir undir hljómsveita-
nafninu Trans Champs. Tónlist
The Fucking Champs er þónokk-
uð harðari en Trans Ams. Metal-
skotin á köflum en sjálfir segjast
liðsmenn takmark sveitarinnar
vera að „útrýma veikri tónlist og
þeim sem halda þeim uppi með
því að afneita og hefja upp á
sama tíma grundvallarreglur
rokkfársins". Hvemig þeir fara
að því og hvort þeim tekst það
yfir höfuð verður svo hver og
einn að meta fyrir sig. Á tónleik-
unum ætla sveitirnar tvær einnig
að sameinast og leika nokkur lög
af nýútkominni stuttskífu 'frans
Champs. Dyr Menntaskólans við
Sund opnast tónleikagestum kl.
20, íslensku sveitimar Úlpa og
Singapore sling sjá um upphitun
en aðgangseyrir er 1800 kr. Ann-
að kvöld leika svo erlendu sveit-
irnar tvær á Gauk á Stöng, þá
með aðstoð íslensku sveitanna
Kuai og Graveslime, miðaverð er
2000 kr.
biggi@frettabladid.is