Fréttablaðið - 10.10.2001, Side 18
HVERJU MÆLIR ÞU MEÐ?
Víkingur Kristjánsson
leikari
,Ég er að hlusta á hina stórkostlegu og fallegu
tónlist úr Englabörnum. Hún er eftir Jóhann C.
Jóhannsson og fæst m.a. 112 tónum."
18
FRETTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDACUR
Tony Harrison á íslandi:
Fyrirlestur um Helgileikina
LEIKHUS
bókmenntir Breska skáldið Tony
Harrison kemur til íslands í dag í
boði breska sendiráðsins. Harri-
son er eitt af virtustu ljóð- og leik-
skáldum Bretlands og er af mörg-
um talinn líklegur til að hljóta
sæmdarheitið lárviðarskáld Bret-
lands þegar fram í sækir. Auk
Ijóðagerðar hefur Harrison unnið
mikið í leikhúsi, bæði sem höfund-
ur og leikstjóri. Helgileikir hans,
Fæðing Krists, Píslarsagan og
Hinn efsti dagur vöktu gríðarlega
athygli þegar þeir voru færðir upp
af Breska þjóðleikhúsinu á miðj-
um 9. áratugnum, og voru þessi
verk enduruppfærð árið 2000 í til-
efni af aldamótunum. Harrison
hefur og gert nýjar þýðingar á
mörgum af sígildum perlum grís-
ka leikhússins. Árið 1998 bætti
hann enn einni fjöður í hatt sinn
þegar hann leikstýrði kvikmynd-
inni Prometheus eftir eigin hand-
riti. Harrison mun dvelja hér fram
á laugardag. í dag kl. 10 verður
hann með ljóðaupplestur í Hátíð-
arsal H.í. í Aðalbyggingu og
kl.16.30 flytur hann fyrirlestur um
Helgileikina á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins. Síðar í vikunni
mun skáldið ferðast norður til Ak-
ureyrar þar sem hann les upp úr
verkum sínum og áritar bækur. Á
laugardag mun hann árita bækur
og lesa úr verkum sínum á bóka-
kaffi Súfistans í verslun Máls og
menningar Laugavegi 18. Almenn-
ingur er boðinn velkominn á alla
dagskrárliði heimsóknarinnar. ■
Tilbrigði við stef
Vatn lífsins gerist í íslensku
sjávarþorpi um aldamótin
1900 eins og nokkur fjöldi leik-
rita og skáldsagna sem ritaður
hefur verið á landinu alla liðna
öld. Ungur maður sem hefur
farið út í heim kemur aftur, með
miklar hugmyndir, en gefur ekki
mikið upp um ferðir sínar. Hm,
hljómar kunnuglega!
Til þess að þetta geti orðið að
leiksýningu sem hefur eitthvað
nýtt fram að færa þyrfti frum-
legri efnistök höfundar og meiri
tilþrif leikstjóra. Þeir fá þó prik
fyrir bæjarstjórnina sem var
sniðug.
Leikararnir standa sig með
ÞJÓPIEIKHÚSIÐ
Vatn lífsins
Höfundur: Benóný Ægisson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
prýði, svo langt sem það nær,
því persónurnar sem þeir þurfa
að vinna með virðast allgrunnar
og óklárar frá hendi höfundar.
Nanna Kristín Magnúsdóttir
skilar þó hlutverki sínu sem
Ásta niðursetningur fallega og
börnin þrjú sem leika í sýning-
unni eiga heiður skilinn.
Sviðsmyndin og samspil henn-
ar við lýsingu er eiginlega það
eina í sýningunni sem kemst ná-
lægt því að sæta tíðindum.
Steinunn Stefánsdóttir
- x aXXan ók-tober
GREIFARNIR
í íslensku óperunni 11. október
Vöndudustu tónleikar
hljómsveitarinnar frá upphafi
Greifalög í nýjum búningi
Tvö ný lög frumflutt
Miðasala
Miðasala.is
595-7999
800-midi
Skífan Lau
Miðaverð
■ T; -
TESKEIÐ AKER Ll NGIN
Teikningin „Teskeiðakerlingin tínir ber" eftir Björn Berg er á meðal verka úr sænskum barnabókum sem eru til sýnís í Norræna hús-
inu um þessar mundir.
Ferdir og goðsögur í norræn-
um barna- og unglingabókum
Norræna barna- og unglingabókahátíðin hefst í dag í Norræna húsinu.
Höfundarþing undir yfírskriftinni „Ferðir og goðsögur“ verður sett á
föstudag þar sem fram koma norrænir rithöfundar.
bókahAtíð Norræna barna- og
unglingabókahátíðin verður sett
í Norræna húsinu í dag kl. 13.
Þema hátíðarinnar er „Ferðin". í
tilkynningu frá skipuleggjend-
um hátíðarinnar segir meðal
annars: „Ferðin getur tekið á sig
ýmsar myndir, verið ferð inn á
við, draumur, uppgötvun, tíma-
ferð...“. Að sögn Guðrúnar Dísar
Jónatansdóttur, upplýsingafull-
trúa Norræna hússins, hefst há-
tíðin á sérstakri opnunarhátíð
þar sem fram koma Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
og Vigdís Finnbogadóttir auk
annarra.
í kvöld verður rithöfundar-
kynning á degi finnskrar tungu
þar sem finnski rithöfundurinn
Hannele Huovi verður kynnt. Á
fimmtudag og föstudag gefst
grunnskóla- og framhaldsskóla-
nemendum kostur á að hitta nor-
rænu rithöfundana á þinginu auk
þess sem ýmsar óvæntar uppá-
komur verða á dagskrá.
Einn af hápunktum hátíðar-
innar er norrænt höfundarþing í
Norræna húsinu í hádeginu á
föstudag. Þema þingsins er
„Ferðir og goðsögur í norrænum
barna- og unglingabókmennt-
um“. Höfundarnir sem taka þátt
eru: Bent Haller, Danmörku,
Guðrún Helgadóttir, Hannele
Huovi, Finnlandi, Rakel Helms-
dal, Færeyjum, Tor Age
Bringsværd, Noregi og Ulf
Stark, Svíþjóð.
Kl. 14 sama dag hefst ráð-
stefna um norrænar barna- og
unglingabókmenntir þar sem
fram koma ýmsir norrænir sér-
fræðingar á sviði bókmennta.
Þema ráðstefnunnar er „staða
bókarinnar í barna- og unglinga-
menningu samtímans". Ráð-
stefnunni verður haldið áfram á
laugardag en þá munu norrænir
rithöfundar einnig lesa úr verk-
um sínum.
Þá verða opnaðar 3 myndlist-
arsýningar, þ.á.m. ævintýrasýn-
ing og sýning á myndskreyting-
um úr sænskum barnabók-
menntum í Norræna húsinu og
sýning á myndum úr íslenskum
barnabókum í Borgarbókasafni,
Grófarhúsi. Hátíðinni lýkur á
sunnudag þar sem Möguleikhús-
ið mun meðal annars sýna barna-
Ieikritið Skuggaleik eftir Guð-
rúnu Helgadóttur í Norræna
húsinu.
Allar nánari upplýsingar um
barnabókahátíðina er að finna á
vefslóðinni: www.nordice.is og
barnung.khi.is/snip. ■
MIDVIKUDACURINN
10. OKTÓBER
UPPLESTUR
10:00 Breska skáldið Tony Harríson
verður með Ijóðaupplestur í Há-
tíðarsal Háskóla Islands, Aðal-
byggingu. Öllum heimill aðgang-
ur.
FYRIRLESTUR
12.00 Saul Traiger, heimspekiprófess-
or við Occidental College og for-
seti Hume-félagsins, heldur há-
degisfyrirlestur á vegum Hugvls-
indastofnunar. Fyrirlesturinn
sem verður I Lögbergi, stofu
101, ber heitið The Authority of
the Imagination.
12.00 Ægir Már Þórísson, Cand. Psych.,
sálfræðingur hjá IMG-Ráðgarði,
fiytur erindið: Stjórn á öryggis-
hegðun í álveri. Málstofa sál-
fræðiskorar verður haldin alla
miðvikudaga I vetur I húsnæði
félagsvísindadeildar, Odda, stofu
201. Málstofan er öllum opin.
16.15 Þorvaldur Gylfason prófessor
flytur fyrirlestur I Lögbergi, stofu
101 sem ber heitið: "Móðir Nátt-
úra: Menntar hún börnin sín?
Eflir hún vöxt og viðgang?" [ fyr-
irlestrinum er fjallað um helstu
gangráða hagvaxtar. Að loknum
fyrirlestrinum verða umræður og
fyrirspurnir undir stjórn Agústs
Einarssonar prófessors. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn og aðgangur
er ókeypis.
16:30 Tony Harrison flytur fyrirlestur
um helgileikina: Fæðingu Krísts,
Pislarsöguna og Hinn efsta dag
(The Mysteries: The Nativity, The
Passion, and Doomsday) á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins. Allir velkomnir.
SAMKOMUR____________________________
13.00 Norræn bama- og unglingabóka-
hátíð hefst í Norræna húsinu I
dag með sérstakri opnunarhátlð.
20.00 Rithöfundakynning á vegum
Norrænu barna- og unglinga-
bókahátíðarinnar í sal Norræna
hússins. Þema: Aleksis Kivi dag-
urinn, dagur finnskrar tungu.
Kynntur verður finnski rithöfund-
urinn Hannele Huovi.
TÓNLEIKAR___________________________
12.30 Fyrstu háskólatónleikar vetrarins
haldnir i Hátíðarsal Háskóla ís-
lands. Rússíbanar leika efni af
nýjum geisladiski, Gullregninu.
Aðgangseyrir er kr. 500. Okeypis
fyrir handhafa stúdentaskirteinis.