Fréttablaðið - 10.10.2001, Side 22
FRÉTTABLAÐIÐ
10. október 2001 MIÐVIKUDACUR
HRAÐSOÐIÐ
HAUKUR ÖRN BIRGISSON
Varaformaður Heimdallar
Oft hart tekist á
HVERNIG er með ungt fólk, mætir
mikið af ungu fóiki á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins?
Já, þó nokkuð. Sjálfstæðisflokkurinn
er byggður þannig upp að ungt fólk í
flokknum tekur þátt á öllum stigum í
stefnumótum hans. Félög ungra sjálf-
stæðismanna tilnefna sína fulltrúa og
Samband ungra sjálfstæðismanna
sína. Sem dæmi má nefna þá eru full-
trúar Heimdallar tæp 100 talsins. Því
vmá segja að ungt fólk taki þátt í starfi
Tandsfundar og við hvetjum sem fles-
ta til að mæta.
HVAÐ gerir ungt fólk á þessum fundi?
Við leggjum mikla áherslu á málefna-
vinnu og reynum að koma okkar sjón-
armiðum á framfæri. Við höfum verið
að yfirfara drögin að ályktununum og
okkur sýnist ekki vanþörf á að breyta
þar mörgu. Sjálfstæðisflokkurinn er
breiður flokkur og þar þrífast mörg
sjónarmið. Oft náum við árangri í
Jjessari nefndarvinnu en stundum er
^kki hljómgrunnur fyrir því sem við
leggjum tiL Oftast leggjum við niður
vopn okkar að svo stöddu en stund-
um, ef okkur finnst brýn ástæða til,
þá fjölium við um málið í aðalsal
fundarins og látum alla landsfundar-
fulltrúa kjósa um okkar tillögur.
HVERNIG vinnið þið þess á milli?
Þá kynnum okkar mál, óháð starfi
landsfundarins, fyrir öllum sjálfstæð-
ismönnunum í sérstökum bás. Þar
erum við með landsfundarblað okkar,
sýnum afrakstur okkar á vefnum,
frelsi.is, auk þess að kynnast og spjal-
la við fólk á öllum aldri, aUs staðar að
af landinu. Svo er haldinn fundur með
•ungu fólki á föstudagskvöld og opið
hús á eftir. Þetta er blanda af gamni
og alvöru. Við leggjum hæfilega
mikla áherslu á hvort tveggja.
HVERT metur þú mikilvægi fundarins?
Hann hefur æðsta vaid í málefnum
flokksins. Þama er oft hart tekist á en
menn sætta sig við þá niðurstöðu sem
næst, enda er hún fengin með lýðræð-
islegum hætti. Allir sitja við sama
borð í þeim efnum hvort sem þeir eru
þingmenn eða ungliðar í Heimdalli.
Haukur Örn Birgisson er varaformaður
Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík. Hann er laganemi
og ritstjóri Frelsi.is.
22
Eistland:
Nýr forseti sver embættiseið
tallin. ap. Arnold Riiútel sór emb-
ættiseið í embætti forseta Eist-
lands, sl. mánudag. Rúútel, sem er
73 ára og fyrrum meðlimur
Kommúnistaflokksins, tekur við
af hinum vinsæla Lennart Meri
sem hefur verið forseti Eistlands
síðan 1992. Kosningareglur komu
í veg fyrir að hann gæti boðið sig
fram í þriðja skipti.
Þrátt fyrir fortíð sína í eist-
neska kommúnistaflokknum eru
Eistar sammála um að Rúútel var
ekki harðlínumaður og jafnvel
andstæðingar hans viðurkenna að
hann hafi tekið fullan þátt í bar-
áttunni fyrir sjálfstæði Eistlands í
upphafi tíunda áratugarins.
Rúútel, sem hefur mikla
reynslu af stjórnmálum, nýtur
mikils stuðnings Eista í sveitum
landsins. Hans sagði í ræðu sinni
að hann myndi leggja áherslu á að
berjast fyrir aðild Eistlands að
Atlantshafsbandalaginu og Evr-
ópusambandinu, eins og fyrirenn-
ari hans.
Hann sagði einnig að takast
yrði á við vantraust sem íbúar
landsins bæru til stjórnvalda og
það bil sem væri að myndast á
milli ríkra og fátækra í landinu.
Meri hvatti Eistlendinga til að
styðja við bakið á nýja forsetan-
um en í kosningabaráttunni var-
aði hann Eistlendinga við að kjósa
fyrrum kommúnista til valda.
Meri, sem var sjálfur aldrei með-
limur flokksins, þykir vera mjög
fágaður maður sem hefur heillað
landsmenn með mælsku sinni.
Rúútel er ekki eins mælskur en
þykir hins vegar vera mjög vina-
legur og fljótur að viðurkenna
eigin galla en þeirra á meðal er
skortur á enskukunnáttu. ■
ARNOLD RUUTEL
Ætlar að hefja enskunám þan-
nig að auðveldara verði fyrir
hann að eiga samskipti við
aðra þjóðarleiðtoga.
I FRÉTTIR AF FÓLKI
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra var staddur á Park-
en í Kaupmannahöfn á laugardag-
inn, til að fylgjast
með landsleik ís-
lands og Danmerk-
ur. Utanríkisráð-
herrann hélt mót-
töku í tengslum
við landsleikinn.
Hann vildi ekki tjá
sig um frammi-
stöðu leikmanna íslenska lands-
liðsins, en var allskostar feginn að
móttakan var haldin fyrir leikinn.
Undanfarið hefur reynst erfitt
að ná í stjórnendur hjá Borg-
arverkfræðingi, en þar eru bæði
skrifstofustjóri Borgarverkfræð-
ins og borgarverkfræðingur sjálf-
ur, fjarverandi. Stefán Hermans-
son, borgarverkfræðingur er í
veikindaleyfi. Búist er við því að
Stefán mæti aftur til starfa í nóv-
ember, en staðgengill hans er
Ólafur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri áætlunarsviðs. Ágúst Jóns-
son, skrifstofustjóri hjá Borgar-
verkfræðingi er við nám í Frakk-
landi og því í árs leyfi. í hans stað
gegnir Þórhildur Lilja Ólafsdóttir,
lögfræðingur stöðu skrifstofu-
stjóra. Ekki fylgir sögunni hvort
viðkomandi aðilar eru í tvöföldu
starfi, eða hvort að aðrir innan
stofunarinnar hafi skipt um stöður
tímabundið.
Sjávarútvegsmálin hafa lengi
verið bitbein manna á lands-
fundum sjálfstæðismanna en ekki
er von á miklum
æfingum í þeim
efnum á fundinum
sem hefst á morg-
un. í kjölfar niður-
stöðu endurskoð-
unarnefndarinnar
á dögunum sló
Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og formaður
flokksins, enn sáttatóninn í sjávar-
útvegsmálunum og ekki er búist
við öðru en landsfundarkórinn
taki undir og raddir þingmanna
Vestfirðinga og annarra kvótaand-
stæðinga verði hjáróma í andstöðu
sinni.
Af öðrum föstum landsfundarlið-
um má sjálfsagt búast við um-
ræðum og ályktun um málefni Rík-
isútvarpsins. Fróðlegt verður að
sjá þá niðurstöðu í
ljósi breiðsíðunnar
sem Halldór Blön-
dal þingforseti
beindi að Ríkisút-
varpinu í þættin-
um vikulokunum á
Rás 1 síðastliðinn
laugardag. Halldór
átaldi niðurskurð svæðisbundnu
stöðvanna og komst einhvern veg-
inn að þeirri niðurstöðu að þrátt
fyrir að Sjónvarpið hefði sent út
umræður um stefnuræðu forsætis-
ráðherar hefði stofnunin brugðist
þeim skyldum sem lög leggja
henni á herðar að fjalla um málið.
Skattalækkunaráform stjóm-
valda settu mikinn svip á fjár-
lagaumræðuna og fann Jón
Bjarnason þeim margt til hnjóðs.
Sagði meðaí annars að það að
lækka tekjuskatt og hækka trygg-
ingagjald skerti mjög stöðu fyrir-
tækja á landsbyggðinni. Væm
Hornsteinn ís-
lenskrar menningar
Formaður Félags tónlistarskólakennara segir kjör þeirra algerlega
óviðunandi. Miklar líkur eru á verkfalli segir Sigrún Grendal Jó-
hannesdóttir sem fyrir tveimur árum fékk nóg af launastöðu tónlist-
arkennara og bauð sig því fram til formennsku félagsins.
tónlist Fyrir sjö árum hóf Sig-
rún Grendal Jóhannesdóttir
störf sem tónlistarkennari. Hún
hafði þá nýlokið einleikaraprófi
frá Tónlistarskóla Reykjavíkur
en kennaraprófi lauk hún ári
fyrr. „Ég komst fljótlega að því
að þetta var erfið vinna sem
krefst þess að auki að maður
vinni mikla aukavinnu til að
hægt sé að lifa af henni.“ Sigrún
lét sér ekki nægja að kvarta yfir
launum heldur ákvað hún að leg-
gja launabaráttu tónlistarkenn-
ara lið. „Ég var ekki sátt við
þessa stöðu og bauð mig fram til
formanns Félags tónlistarskóla-
kennara."
Nú tveimur árum síðar heyr-
ist nafn Sigrúnar oft í fjölmiðl-
um enda verkfall tónlistarkenn-
ara yfirvofandi. í nýafstaðinni
atkvæðagreiðslu, sem 90% tón-
listakennara tóku þátt í, sam-
þykktu 96% verkfallsboðun
verði ekki samið um laun sem
tónlistarkennarar sætta sig við.
„Við höfum dregist aftur úr í
tveimur síðustu kjarasamning-
um og niðurstaðan sýnir að tón-
listarkennarar sætta sig ekki við
það. Það er verið að lítilsvirða
menntun og störf tónlistarkenn-
ara með þessum tilboðum.“
Sigrún segist ekki hafa búist
við því þegar hún hóf sitt tónlist-
arnám í æsku að hún myndi enda
í kjarabaráttu. „Mig dreymdi um
að vera píanóleikari. Ég hóf mitt
píanónám á Varmalandi en frá
unglingsárum nam ég við Tón-
listarskóla Reykjavíkur," segir
Sigrún sem er alin upp á sveita-
bæ í Mýrarsýslu, Krossnesi, þar
sem foreldrar hennar búa enn.
Hún kennir nú við Tónlistarskóla
Kópavogs auk þess að starfa sem
meðleikari og kórstjórnandi við
........ 11 U■ 1 . . 1 1 '1' ....1.
SIGRÚN GRENDAL JÓHANNESDÓTTIR
„Staðan var ágæt fyrir sex árum síðan en nú höfum við dregist verulega aftur úr,"
Sigrún
segir
Söngskólann Hjartans mál.
Sigrún segist heldur svartsýn
á að samið verði við kennara
áður en verkfall skellur á síðar í
mánuðinum. „Það er ekki útilok-
að að við náum saman en ég er
frekar svartsýn," segir Sigrún.
„Foreldrar barna í tónlistarskól-
um eru vitaskuld uggandi yfir
þessari þróun því það mun raska
dagskrá barna þeirra. Einnig er
talsverð hætta á því að krakkar
muni flosna upp úr námi. Ef það
gerist mun það að sjálfsögðu
hafa áhrif á rekstur skólana, það
er kannski stefna sveitastjórnar-
manna að það gerist?"
Sigrún segir að léleg kjör
undanfarin ár hafi haft þau áhrif
að tónlistarnemendur í fram-
haldsnámi hafi skilað sér illa til
kennslu. „Þeir sem ljúka námi
sækja eitthvert annað á meðan
launin eru svona,“ segir Sigrún
sem bendir á að störf tónlistar-
kennara séu einn hornsteinn ís-
lenskrar menningar og því þjóð-
þrifamál að bæta starfskilyrði
þeirra.
sígridur@frettabladid.is
áformin því illa unnin og ekki lík-
legt til jákvæðra breytinga. Þessu
tók fjármálaráðherra heldur illa.
Fannst það þó lýsandi fyrir mál-
flutning þingmannsins að hann
væri búinn að dæma frumvarpið
áður en hann liti það augum.
T-wótt spennan í formannskosn-
Jringu snúist um hvort Davíð fái
öll atkvæðin eða bara næstum því
öll er öðru að
heilsa þegar
kemur að vara-
formannskjöri.
i Talsverður hóp-
ur ungra sjálf-
stæðismanna er
! ósáttur við
rekstur ríkis-
sjóðs og sagan
segir að þeir
ætli að láta Geir H. Haarde finna
fyrir óánægjunni í varaformanns-
kosningum.
„Ég er enn að reyna að ótta
mig ó hverjum í fjölskyldunni
Feitur líkist"