Fréttablaðið - 09.11.2001, Side 1
MENNING
Gestaboð
í einangruðu húsi
bls 22
SÝNING
Vantar
Jleiri slíka lœkna
bls 18
MENNTUN
Nemendur
ábyrgir
bls 13
Hjálpum Afganistan
907 2003
<GlT
Kí£J
Rauði kross íslands
FRETTABLAÐIÐ
141. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 9. nóvember 2001
FOSTUDAG UR
Ræða einelti
ráðstefna Rætt verður ura aðgerðir
gegn einelti í grunnskólum á ráð-
stefnu í Borgartúni í dag. M.a.
verður leitað í smiðju sænsks sér-
fræðings um þetta vandamál.
Festival í Iðnó
kynningar Bókaútgáfan Forlagið
heldur árlegt festival sitt í Iðnó.
Höfundar lesa úr væntanlegum og
útkomnum jólabókum. Meðal þeir-
ra sem lesa eru; Jón Atli Jónasson,
Stefán Máni, Magnús Guðmunds-
son og Guðbergur Bergsson.
{VEÐRID í DAGÍ
REYKJAVIK Suðvestan 13-18
m/s og bætir i vind undir
kvöld. Rigning eða súld. Hiti
7 til 10 stig.
VINDUR URKOMA HITI
Isafjörður © 10-15 Rigning ©8
Akureyri © 8-13 Rigning Q7
Egilsstaðir G 8-13 Rigning CV
Vestmannaeyjar © 13-18 Rigning Q 9
Barist í
boltan-
um
keppniNjarðvík
og ÍR mætast í
Kjörísbikarnum
í kvöld og í
handbolta keppa
Vestmannaey-
ingar og Þór.
„Those where
the Days“
sýning Þrjár fyrrum skólasystur
minnast skóladaga sinna í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands með
sýningu, „Those where the Days“, í
Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg
S, Reykjavík. Sýnd eru grafíkverk,
glerlist og skart. Sýningin er opin á
verslunartíma.
i kvölpiðTkvölp]
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STADREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvað les fólk
á aldrinum
25 til 59 ára?
Meðallestur 25 til 59
ára á virkum dögum
samkvæmt könnun
PriceWaterhouse-
Coopers frá
september 2001
70.000 eintök
78% fólks les blaðið
FJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR
FRAMKVÆMD DAGANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001.
Brottkastið tengist
fiskveiðistj órnuninni
Sjávarútvegsráðherra segir það einnig vera í öðrum kerfum. Myndir fréttamanns og myndatöku-
manns sjónvarps sýna glöggt hvernig staðið er að brottkasti á sjó. Stórum fiski og góðum er hent
þar sem verðið sem fæst fyrir hann er of lágt. Skipun frá útgerð og skipstjóra að henda fiski undir
ákveðinni stærð. Stjórnvöld verða að bera ábyrgðina segir Magnús Þór Hafsteinsson.
brottkast Myndir af brottkasti
sem sýndar voru í Ríkissjónvarp-
inu í gærkvöldi sýna ekki fram á
neitt sem menn vissu ekki fyrir,
segir Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra, þó það sé sorglegt
að horfa upp á brottkastið. Árni
segir stjórnvöld vita mikið um
brottkast og þegar hafi mikið ver-
ið gert til að sporna gegn því, m.a.
með því að þrefalda fjölda eftir-
litsmanna. Sér virðist sem brott-
kast hafi minnkað hvort sem það
sé vegna aðgerða stjórnvalda eða
af öðrum ástæðum.
Margir hafa tengt brottkast
kvótakerfinu. „Auðvitað tengist
svona kerfinu, og þeim þáttum í
kerfinu sem takmarka þann afla
sem má koma með að landi“, segir
sjávarútvegsráðherra. „Það er
gert í öðrum kerfum líka og þar
sjá menn brottkast líka.“ Brott-
kast hafi sést í Smugunni þar sem
veiðar hafi verið frjálsar og því
tengst öðrum þáttum. Þá hafi
BROTTKAST Á ÍSLANDSMIÐUM
Vænn þorskur, sem ekki er unninn, fellur út um til þess gerða lúgu á síðu skipsins.
brottkast verið stundað áður en
kvótakerfið tók gildi. „Ég var á sjó
áður en kvótakerfið kom á. Þá var
fiski líka hent en það reyndar ekki
bannað með lögum.“
Magnús Þór Hafsteinsson sem
tók myndirnar af brottkastinu um
borð í fiskiskipum segir að í öðr-
um túrnum sem hann fór í hafi
skipanir verið gefnar af útgerð og
skipstjóra í upphafi sjóferðar um
að henda öllum fiski sem ekki félli
innan þess afla sem ætlunin var
að koma með í land, aðeins ætti að
koma með þorsk og ýsu að landi,
öðru skyldi hent. Hann segir að í
þeim ferðum sem hann fór í hafi
um fjórðungi afla verið hent. Þó
sé misjafnt hversu mikið brott-
kastið er og fari það eftir því
hvers konar afli berist um borð og
hvað menn ætli sér að koma með
að landi.
„Þetta er ískaldur raunveru-
leiki og það sem hefur verið að
gerast“, segir Magnús Þór. „Þetta
hlaut að koma upp á yfirborðið
fyrr eða síðar. Þeim [stjórnvöld-
um - innskot blaðamanns] er eng-
in vorkunn. Þeir eru búnir að sigla
með þessa sprengju í lestinni í alla
vega tíu ár án þess að gera neitt
með hana. Núna springur hún.
Þeim er engin vorkunn því þeir
hafa ekkert gert til að reyna að
koma í veg fyrir þetta. Stjórnvöld
verða að bera ábyrgðina á þessu."
binni@frettabladid.is
BIÐIN EFTIR BRAUÐINU Miklir efnahagsörðugleikar hrjá Tyrki. Grípa menn til ýmissa ráða til að drýgja tekjurnar og í Ankara grípa æ
fleiri til þess ráðs að standa í biðröð eftir ódýru brauði í umdæmisbrauðsölunni en þar má fá brauðhleifinn á hálfvirði.
Pétur H. Blöndal:
Telur vexti þurfa að lækka meira
efnahagsiviál Pétur H. Blöndal, al-
þingismaður, segist hafa búist við
heldur meiri vaxtalækkun hjá
Seðlabankanum. „Maður er auð-
vitað ánægður að bankinn skuli
hafa ákveðið að lækka vextina. Ég
átti reyndar von á eitt prósent
lækkun, en bankinn hefur ákveðið
að fara heldur varlegar," sagði
hann og taldi að mikill vaxtamun-
ur við útlönd hafi í raun knúið
bankann til lækkunarinnar. Pétur
telur að til frekari vaxtalækkana
þurfi að koma og nefnir 3 til 4 pró-
sent í því sambandi. „Vaxtamunur
PÉTUR H.
BLÖNDAL
Pétur segir að vextir
virðist lítil áhrif hafa
á neyslu einstak-
linga, þeir taki bara
lán fyrir þvi sem þá
langar að kaupa
hverjir sem vextirnir
kunna að vera.
er enn nálægt 8 prósentum sem er
allt of mikið [...] Ég held að það
mörg teikn séu á lofti í efnahags-
lífinu, um erfiðari stöðu einstak-
linga og fyrirtækja, að ekki sé
ástæða til að halda vaxtaklemm-
unni hárri."
Pétur tekur undir með verð-
bólguspá bankans. „Fólk er al-
mennt að greiða niður lán því það
er búið með greiðslugetuna,“ sagði
hann og nefndi að á móti kæmi að
gengisfall krónunnar hefði bætt
stöðu útflutningsfyrirtækja og
verið mikill hvati fyrir þau. Það
ætti að leiða til fjárfestinga sem
vonandi kæmu á móti þeirri stöðn-
un sem minnkandi greiðslugeta
einstaklinga hefði í för með sér.
Sjá einnig bls. 7 og 12.
Hjólreiðamaður:
Keyrður niður
SLYSFARIR Eldri maður á reiðhjóli
slasaðist nokkuð þegar hann varð
fyrir bíl á Sundlaugarvegi við
Gullteig í Reykjavík seinni part-
inn í gær. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík vildi slysið til með
þeim hætti að maðurinn, sem er á
sjötugsaldri, hjólaði út á götuna í
veg fyrir fólksbíl á austurleið.
Hann var svo fluttur með sjúkra-
bíl á slysadeildina í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis slysa-
deildar hlaut maðurinn nokkur
beinbrot í árekstrinum og hefur
verið lagður inn á sjúkrahúsið.
Hann er ekki talinn vera í lífs-
hættu en hlaut áverka á brjóstholi
og mjöðm. ■
ÞETTA HELST
Flugmálastjórn fer ekki eftir
eigin reglum.
bls. 6
Halldór vill leggja meiri áher-
slu á samskipti við Rússa.
bls. 4
Seðlabankinn lækkar vexti um
tæpt prósent. bls. 12.
Ferð Valgerðar í Flugmála-
stjórnarvélinni kostaði millj-
ón. bls. 8