Fréttablaðið - 09.11.2001, Qupperneq 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
9. nóvember 2001 FÖSTUDAGUR
LOKSINS LOKSINS !!!
Gullið í Herbalife er loksins komið til íslands.
Vara sem hefur farið sigurför um USA og Evrópu.
Þetta er ný bylting í grenningu.
Jólin nálgast og hver vill ekki vera orðinn flottur þá !!!
Einnig með frábær fæðubótarefni t.d. orku-te, vítamín ofl.
Frábært snyrtivöruúrval.
Þú getur fengið sendann bæklinginn heim um hæl.
Stefán
Persónuleg ráðgjöf og pöntunarsimi: 849 7799
Pöntunarnetfang: BetriLidan@simnet.is
Jólagjöf
gott verö
Nú kr.
6990,-
Opnunartími:
I.Guðmundsson ehf.
Skipholti 25 • 105 Reykjavík
LAGER SALA
Bíll sem e
gefur frá
sér hljóð, s
mótorhljóö,
flautar
og fleira.
Mánud.-föstud. kl. 13 - 17
Frábær tilboð - Þú mátt ekki missa af þessu
Gæsaskyttirí
heima í stofu.
Myndvarpinn
varpar myndinni
af bráðinni
á vegginn
og riffillinn er
tengdur
myndinni, þegar
þú hittir fellur
bráðin til jarðar.
Hörkuspennandi
og skemmtilegt
verkfæri.
áðurkr. 12.900,-
Hundurinn
sem geltir
og hleypur um
hann er með
fjarstýringu.
VOff
Voff
\JÖ^
Símtöl fanga:
Hlerun undantekning
friðhelci Kristján Stefánsson, for-
stöðumaður á Litla-Hrauni, segist
ekki reka minni til að ákveðið hafi
verið að hlusta á símtöl fanga síð-
an hann hóf þar störf fyrir sex
árum. Símkerfið á Litla-Hrauni sé
tölvustýrt og þannig útbúið, að ef
yfirmönnum finnst ástæða til að
hlera símtöl þá heyrist hljóð, sem
gefi fanganum til kynna að hlust-
að sé á símtalið.
Hann segir skýrar reglur gilda
þegar yfirvöld telja nauðsynlegt
að fylgjast með bréfasendingum
og símtölum manna sem sitja inni.
Tilkynna þarf þeim fyrirfram að
eftirlit sé með samskiptum við
LITLA-HRAUN A EYRARBAKKA
Fangar heyra ef hlustað er á símtöl.
aðra utan múranna.
Fangelsið á Kvíabryggju á
Snæfellsnesi er þannig útbúið að
fangar hafa aðgang að símasjálfs-
sala, sem þeir kaupa kort í. Þar
geta þeir hringt beint út úr fang-
elsinu án þess að fangaverðir eða
aðrir eiga þess kost að hlusta á
símtölin. Engin símtöl eru því
hleruð þar.
Guðmundur Gíslason, for-
stöðumaður Hegningarhússins á
Skólavörðustíg, sagði í samtali við
Fréttablaðið að það væri verið að
skoða símabúnað fangelsisins.
Síðustu daga hafa birst fréttir um
það að símtöl fanga þar hafi verið
hleruð án þeirra vitundar, sem er
brot á lögum um fangavist. ■
Seðlabcinkinn lækkar
vexti um tæpt prósent
Peningamál, árs^órðungsrit Seðlabankans kom út í gær. í því er að
finna nýja verðbólguspá bankans þar sem gert er ráð fyrir að verð-
bólgumarkmið náist á árinu 2003. Þá var greint frá lækkun stýrivaxta
Seðlabankans í viðskiptum bankastofnana.
efnahacsmál Stýrivextir Seðla-
banka lækka um 0,8 prósent og
verða þeir því 10,1 prósent. Raun-
vextir bankans eru nú 6,5 prósent.
Tilkynnt var um lækkunina á blaða-
mannafundi síðdegis í gær um leið
og nýtt tölublað Peningamála, árs-
fjórðungsrits bank-
ans var kynnt. í rit-
inu er að finna nýja
verðbólguspá fyrir
yfirstandandi ár og
tvö næstu. í spánni
er gert ráð fyrir 8,5
prósenta verðbólgu
á þessu ári, 4,1 pró-
sent á næsta og 2,3
prósent árið 2003.
Nokkuð hefur
verið þrýst á bank-
ann að lækka vexti,
bæði af hálfu stjórnvalda og aðila á
vinnumarkaði. Birgir ísleifur segir
að með lækkuninni núna sé ekki
verið að bregðast við þrýstingi
heldur ráði alfarið faglegt mat.
„Við mátum það svo að skynsam-
legt væri að hafa lækkunina þetta
mikla að þessu sinni,“ sagði hann og
bætti við að framvinda efnahags-
mála og líkur á að verðbólgumark-
mið bankans náist árið 2003 ráði
tímasetningu og umfangi frekari
vaxtalækkana. Aðspurður um hvort
hann telji að stjórnvöldum og öðr-
um þyki gengið nógu langt með
lækkuninni, sagði hann ómögulegt
að spá fyrir um það. „Þessi tala
byggir á ýtarlegri greiningu og
mati bankans, en svo kemur það að
menn eru sjaldnast sammála um
það sem gert er og við gerum
sjaldnast svo breytingar að ekki
verði um þær deilt,“ sagði hann.
Búist er við vaxtalækkun í al-
Almenningur
og fyrirtaeki
hér á landi
eru talin svo
skuldsett að
vaxtalækkunin
hafi ekki telj-
andi áhrif til
útlánaaukn-
ingar.
BIRGIR fSLEIFUR GUNNARSSON
Birgir kynnti nýja verðbólguspá fyrir þetta ár og tvö næstu á blaða
mannafundi í Seðlabankanum í gær. Hann segir stýrivexti tvisvar
áður hafa hækkað um 0,8 prósent en nú lækka þeir um þá tölu.
MÁR GUÐ-
MUNDSSON
Aðalhagfræðingur
Seðlabankans
segir að í saman-
burði nafnvaxta á
milli landa verði
að taka tillit til
verðbólgu, en
raunstýrivextir séu
svipaðir hér og
t.d. i Noregi og
fleiri löndum.
menna banka-
kerfinu í kjölfar
aðgerða Seðla-
bankans. „Það
hefur alla jafna
fylgt strax á eftir
og ég á von á að sá
háttur verði ein-
nig á nú og þetta
hafi í för með sér
almenna vaxtalækkun," sagði Birg-
ir og taldi að ekki væri hætta á auk-
inni útlánaþenslu eða að verðbólgu-
markmiðum bankans væri ógnað
vegna þessa.
Seðlabankastjóri var bjartsýnn
á að verðbólguspá bankans myndi
halda og nefndi að fyrri spá bank-
ans frá því í ágúst hafi staðist
mjög vel, en þá spáði bankinn 7,7
prósent verðbólgu. „Spáin er eins
raunsæ og hægt er miðað við þær
forsendur sem við gefum okkur.
Þar gefum við okkur t.a.m. að
kjarasamningar haldi en komi til
launahækkana eru forsendurnar
brostnar. Þá skiptir gengisþróun
líka miklu máli í þessu tilliti,"
sagði seðlabankastjóri.
oli@frettabladid.is
Stjórnvöld í Pakistan:
Talibanar loki sendiráðinu
ISLAMABAP. PAKISTAN. AP RíkÍS-
stjórn Pakistans hefur beðið tali-
banastjórnina í Afganistan um að
loka ræðismannsskrifstofu sinni
í hafnarborginni Karachi í
Pakistan nú fyrir helgi. Sendi-
herra talibana í Pakistan, Abdul
Salam Saíf, skýrði frá þessu í
gær. Utanríkisráðuneyti Pakist-
ans vildi þó ekkert um málið
segja, en Pakistan er eina ríkið
sem enn viðurkennir stjórn tali-
bananna í Afganistan.
Nokkrir pakistanskir emb-
ættismenn staðfestu þessa frétt,
en vildu þó ekki koma fram und-
ir nafni. Þeir sögðu að stjórnvöld
í Pakistan hefðu sagt sendiherra
talibana að hætta að halda blaða-
mannafundi sína ótt og títt, þar
sem hann hefur verið óspar á að
gagnrýna Bandaríkin og árásirn-
pí Á Afganktpp, yfírlý.sjngar.af.
it
S
Q
SENDIHERRA TALIBANA í PAKISTAN
Abdul Salam Zaeef sendiherra hefur verið sá talsmaður talibana sem hvað mest hefur
verið áberandi í fjölmiðlum undanfamar vikur. Þessi mynd var tekin á blaðamannafundi i
Islamabad á mánudaginn var.
þessu tagi samræmist ekki hlut- sjá til þess að starfsfólk sendi-
verki sendiherra. Stjórnvöld ráðsins taki ekki þátt í mót-
Röfóu .einnig beðið hápp.um.að mfelaaðgerðum,af,neinu tagi, ■