Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 10
21. mars 2002 FIMMYirriÁ'GÚ’ft1* wggggggHaat&i wmmmmmr 10 "nBorrp"' FRETTABLAÐIÐ Álverið á Reyðarfirði og frestun þess FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ebf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjóm, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Sfmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: (safoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis lil allra heimila á höf- uðborgaisvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins (stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. 1999 í júní 1999 skrifa fulltrúar íslenskra stjórnvalda, Landsvirkjunar og Norsk Hydro undir viljayfirlýs- ingu. í viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að reist verði 120 þúsund tonna álver við Reyðarfjörð, með möguleika á stækkun í allt að 480 þúsund tonn. Ráðgert er að Lands- virkjun ráðist í virkjun Jökulsár í Fljótsdal með miðlunarlóni á Eyja- bökkum. í viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að endanleg ákvörðun um álverið liggi fyrir 1. júní árið 2000. í framhaldinu verði álver og virkjun tekin í notkun í lok árs 2003. 2000 Virkjanaleyfi Fljótsdalsvirkjunar var gefið út áður en lög um um- hverfismat tóku gildi. í maí 2000 er undirrituð ný viljayfirlýsing, þar sem horfið er frá því að reisa 120 þúsund tonna álver. í stað þess er talið hagkvæmt að álverið verið 240 þúsund tonn. Endanlegri ákvörðun um málið er frestað til 1. febrúar 2002. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir hefjist árið 2003 og álver- ið tekið í notkun árið 2006. Þessari ákvörðun fylgir breytt forgangs- röðun virkjana. í stað Fljótsdals- virkjunar er áætlað að ráðast í virkjun við Kárahnjúka sem er mun stærri virkjun. Valgerður Sverrisdóttir segir að skoðaðir verði möguleikar á því hvort hægt verði að hraða framkvæmdum, þannig að unnt verði að hefja fram- leiðslu í álverinu árið 2005. ......................Forsaga Orðrómur er á kreiki um að Norsk Hydro vilji fresta álveri á Reyðarfirði. Ástæðan er risafjárfesting fyrirtækisins i Þýskalandi. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa hvorki svarað af eða á um orðróminn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem framkvæmdunum er f restað. 2001 í september er tekin ákvörðun um að fresta endanlegri ákvörðun um álver í Reyðarfirði um hálft ár til 1. september 2002. Yfirlýsingu um frestunina fylgir að þessi seinkun muni ekki seinka verkefninu um fá- eina mánuði þar sem svigrúm skap- ist til að skipuleggja verkþætti á framkvæmdatímanum. Áætlað er að reksturinn hefjist árið 2006. 2002 Orðrómur er á kreiki um að Norsk Ilydro vilji enn fresta framkvæmd- um. Ástæðan er sú að fyrirtækið fjárfesti í fyrirtækinu VAW í Þýskalandi fyrir 273 milljarða króna. Fram til þessa hafa for- svarsmenn Norsk Hydro sannfært íslensk stjórnvöld um að fjárfest- ingin hafi engin áhrif á áform hér á landi. ■ | BRÉF TIL BLAÐSINS | Allir vagnar á sama tíma Bjartsýnin ræður ríkjum í þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnun gaf út ritið Þjóðarbúskapinn, en þar er spáð í framvindu ársins 2001 og horfur fyrir árið 2002. Bjartara er yfir spánni nú, en fyrri spám. Að vanda er spáin háð nokkurri óvissu. Margt virðist þó benda til þess að meira jafnvægi sé í þjóðarbúskapnum. Samdráttarskeiði sé að Ijúka og við taki nýtt vaxtarskeið. Jóhannes skrifar: E' g er einn þeirra sem ferðast oft með strætisvögnum. Ég vinn í miðborginni og bý rétt utan hennar. Þess vegna hef ég val um nokkrar strætisvagnaleiðir til að komast til og frá vinnu. Gallinn er bara sá að leið 2, 4 og 5 sem eru þær leiðir sem ég tek yfirleitt, eru á líkum tíma á Lækjartorgi. Þetta þýðir að maður þarf að bíða í að minnsta kosti 15 mínútur ef maður missir af þessum vögn- um. Ég get svo sem vel skilið að á morgnana sé miðað við að sem flestir vagnar séu að skila sér á atvinnusvæði rétt fyrir heila tím- ann. Hins vegar mætti breyta tím- anum þegar líður á daginn. Þar með myndi fást meiri ferðatíðni innan nágrannasvæða miðborgar- innar. Slík breyting væri vel til þess fallin að fjölga farþegum sem hlýtur að vera markmið fyr- irtækisins. Einhverjar breytingar voru gerðar í úthverfunum þannig að ekki væru margir hálf- tómir vagnar að aka sömu leið á sama tíma. Nú finnst mér að menn mættu fara að huga að því sama í hverfum sem liggja nálægt mið- borginni. ■ Landsframleiðsla og hagvöxtur Hagvöxtur hér á landi reyndist meiri árið 2001 en spár gerðu ráð fyrir. Landssframleiðsla óx um 3%. Mat Þjóðhagstofnunar síðastliðið haust var að hagvöxtur yrði 1,9%. Munar þar mestu að viðskiptahall- inn var minni en gert hafði verið ráð fyrir. Á þessu ári er hins vegar gert ráð fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 0,5%. Ilorfurnar fyrir næstu ár eru nokkuð góðar að mati Þjóðhagsstofnunar. Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla vaxi um 1,5 - 2% á árinu 2003. Spáin ger- ir ráð fyrir að hagvöxtur verði á bil- inu 3 - 3,5% á árunum 2004 - 2006. Þessi vöxtur er talsvert minni, en vöxtur landsframleiðslu á árunum 1995 - 2001. í hagvaxtarspám Þjóð- hagsstofnunar er ekki gert ráð fyr- ir virkjunar og álversframkvæmd- um. Slíkar framkvæmdir myndu hafa töluverð áhrif til aukningar landsframleiðslunnar. ■ Þróun verðlags Verðbólgan lét á sér kræla á síðasta ári og hækkaði vísitala neysluverðs um 9,4% frá upphafi til loka árs 2001. Þjóðhagsstofnun segir að ýmsar vísbendingar veki vonir um að verðbólgan geti hjaðnað á árinu 2002. Gerir stofnunin ráð fyrir að hún verði um 2,5% undir lok þessa árs. í forsendum Þjóðhagsstofnun- ar er gert ráð fyrir að gengi krón- unnar haldist nokkuð stöðugt. Þá er og gert ráð fyrir því að launaliður kjarasamninga verði ekki endur- skoðaður. Spá stofnunarinnar gerir ráð fyrir minni verðbólgu, en spár annarra. Þjóðhagsstofnun leggur ríka áherslu á að til að þessi verð- bólguspá rætist verði að gæta að- halds í stjórnun peningamála. Það þýðir að stýrivextir Seðlabankans verði notaðir til að hafa taumhald á efnahagskerfinu. Stofnunin leggur ríka áherslu á að aðhalds verði gætt í ríkisrekstri. ■ Vinnumarkaður og atvinnuleysi 5 Atvinnuþátttaka er meiri hér á í landi en í nágrannaríkjunum. Há- í markinu náði atvinnuþátttakan á ár- í unum 2000 - 2001 þegar rúm 83% j landsmanna á aldrinunt 15 - 74 ára | töldust til vinnuafls. Þetta sýnir I hversu sveigjanlegt framboð á t vinnuafli er hér á landi. Fólki á j vinnualdri fjölgar um 0,8% á þessu j ári. Á sama tíma er gert ráð fyrir að j ársverkum fækki um 300 sem nem- J ur 0,3% af vinnuafli. Þetta er mikil S breyting frá fyrri árum. Ársverk- I um milli áranna 1999 og 2000 fjölg- j aði um 3.000 og um 2.200 milli ár- 1 anna 2000 og ‘01. Þetta þýðir að at- I vinnuleysi mun vaxa á árinu. Eftir- spurn eftir vinnuafli minnkar meira á höfuðborgarsvæðinu, en á land- : sbyggðinni. Þjóðhagsstofnun spáir því að á þessu ári verði atvinnuleysi 2,3% í ár sem svarar til þess að 3.200 manns verði án atvinnu samanborið við 1,4% í fyrra.® Hagur heimilanna Hagur heimilanna mun vænkast á næstunni. Spáin gerir ráð fyrir því að kaupmáttur aukist um 1,6% á þessu ári. 2002 væri þá áttunda árið í röð sem kaupmáttur eykst. Kaup- máttur ráðstöfunartekna hefur aukist um 27,5% frá árinu 1995. Á móti þessum aukna kaupmætti kemur að skuldir heimilanna hafa vaxið mikið á undanförnum árum. Heimilin skulda nú að meðaltali tæp 170% af þeim tekjum sem þau hafa til ráðstöfunar á ári hverju. Skuldirnar hafa vaxið mun hraðar hér á landi en í nágrannalöndunum. Árið 1990 námu skuldir heimila rúmum 80% af ráðstöfunartekjum. Þetta þýðir að stærri hluti tekna heimilanna fer í að greiða vexti af I lánum. Það hefur aftur áhrif til samdráttar einkaneyslu. Eigna- aukning hefur verið minni en skuldaaukning. Neyslan hefur því vaxið umfram ráðstöfunartekjur. ■ St.yKkKh^ih^v^n )a\A Akumýfl M<Vsáviknrápótí4. Siglosport Sioluíiroí Okkár á Milli I qTslaAit Apótok Sr-yAisfjatðai www.fotval.l8 ,com KANNSKI LÚÐVÍK 14. Það er engu líkara, sem kemur auðvitað ekki til greina, en ein- hver annar hafi haldið um pennann og myndi pistill Lúð- víks þá vel mega kallast gott dæmi um ósjálfráða skrift. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, um skrif Lúðviks Bergvinssonar. Morgunblaðið, 20. mars. ÞÖGNIN ER GULL En ég hef líka þurft að verjast setningum á borð við: „Ég tek það fram að ég hef bara áhuga á að sofa hjá þér. Ekki tala!“ Arna Schram, blaðamaður. Morgunblaðið, 20 mars. PRÓFAÐU FUND HJÁ VINSTRI-GRÆNUM Alls staðar er maður að rekast á sömu mennina, hvort sem það er Verslunarráð, Samtök at- vinnulífsins aða Rótarý Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs. Viðskiptablaðið, 20. - 26. mars. ENDA MÖRGUM MISYNDISMANNIN- UM BOÐIÐ Við skoðum allar um- sóknir um vegabréfsá- ritanir til íslands sér- staklega vel. Sér í lagi á þeim tíma sem er nálægt NATO-fund- um. Við höfum sérstakan vara á okkur varðandi þennan fund. Georg Lárusson, forstjórí Útlendinga- eftirlitsins. Fréttablaðið, 20.mars. ORÐRÉTT BEÐIÐ FYRIR BÚLGÖRSKUM STÖÐUGLEIKA Þegar horft er blákalt á stað- reyndir þá eru þau efnahagslegu áföll og sú óvissa sem Pharmaco hefur orðið fyrir hérlendis sök- um gengisfalls, verðbólgu stjórn- valdsaðgerða mun meiri en við höfum orðið fyrir í Búlagríu. Björgúlfur Thor Björgúlfsson stjórnar- formaður Pharmaco. Viðskiptablaðið, 20. - 26. mars. HEIMA ER BEST Við vorum að segja honum eftir að við vissum að hann væri orðinn sæmilega efnað- ur að hann ætti að fara utan og sjá sig um í vei’öldinni en þá sagöi hann að hann langaði ekk- ert út. Lýður Björnsson um bróður sínn Ólaf Gfsla Björnsson sem arfleiddi Öryrkja- bandalagið að 60 miljónum. Fréttablaðið, 20. mars. DAVÍÐ ER GALLALAUS Það er kannski rétt að vekja athygli á því að í síðustu alþingiskosn- ingum fékk Sjálfstæðisflokkur- inn um 40% atkvæða. Þá þreyttu kjósendur flokksins einfalt krossapróf án þess að þar færi fram nokkur umræða um kosti eða galla að aðild að Sjálfstæðis- flokknum. Jón Steindór Valdímarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um gagnrýni Davíðs Oddssonar á ESB skoðanakönnu, DV. 20. mars. ÞARF EINHVERN MEÐ HAGFRÆÐI- MENNTUN Þetta er svo flókið mál. Birgir ísleifur Gunnarsson, Seðiabankastjóri um evruna. Fréttabíaðið, 20. mars. ERFIÐUR SPARNAÐUR „Þeir gripu til þess ráðs að hætta að þjónusta ákveðna hópa. Við getum ekki fallist á það. Við ætluðumst til að þeir sýndu sparsemi og aðgætni í rekstri en vildum halda þjónustu- stiginu uppi.“ Páll Pétursson félagsmálaráðherra um niðurskurð í rekstri Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins. Fréttablaðið, 20. mars. ANNASAMT HJÁ LÖGGUNNI „Ég veit ekki hvað lögreglan segði ef við værum alltaf að senda þá hingað og þangað. Við erum sjálfir ekki viðbragðsaðili." Bergsveinn Alfonsson, framkvæmda- stjórí Neyðarlinunnar, um símagabb. DV, 20. mars. ÓREGLA Á TÉKKHEFTINU „Þetta getur ekki verið því þetta var ekki svoleiðis. Ég kannast ekki við þetta. Þetta kemur mér spánskt fyrir sjónir.“ Jón Ólafsson, aðaleigandi Skifunnar, um að hann hefði lagt 1,5 miiljónir króna í kosningasjóð Ólafs Ragnars Grímssonar 1996. DV, 20. mars.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.