Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 21. mars 2002
Alieyrnarpróf:
Fá sjö mínútur
til að sanna sig
leikhús Félag íslenskra leikara
(FÍL), Þjóðleikhúsið, Leikfélag
Reykjavíkur og Leikfélag Akureyr-
ar standa fyrir ár-
legu áheyrnarprófi
atvinnuleikara og
söngvara. Prófið fer
fram á Litla sviði
Borgarleikhússins,
mánudaginn 25.
mars nk. og stendur
frá kl.16.00 til 18.00.
Þátttakendur fá til umráða u.þ.b.
7 mínútur fyrir einleik, tvfleik, söng
eða það sem þeir telja að sýni best
hvað í þeim býr. Þeir verða að vera
vel undirbúnir og hafa með sér nót-
ur fyrir undirleikara, ef þeir ætla
að syngja.
Skráning fer fram á skrifstofu
FÍL í síma 552-6040 eða
office@actors-union.is Mikilvægt
er að þeir sem ætla að þreyta
prófið komi upplýsingum um
menntun sína, reynslu o.þ.h. á
skrifstofu FÍL á tölvutæku formi.
Síðasti skráningardagur er í dag,
21 mars. ■
ROKKSLÆÐAN
Hljómsveitin er skipuð: Kristínu Eysteinsdóttur söngkonu, Kiddu Rokk sem spilar á gítar
og syngur bakraddir, Arndísi Hreiðarsdóttur sem ieikur á slagverk og Önnu Margréti
Hraundal sem leikur á gítar og hristur.
Kvennahljómsveitin Rokkslæðan:
Sérhæfa
sig í almennum
töffaraskap
tónleikar Kvennahljómsveitin
Rokkslæðan verður með tónleika í
kvöld og á morgun á veitingahús-
inu O'Brians, Laugavegi 75.
Að sögn Kristínar Eysteins-
dóttur, söngkonu hljómsveitarinn-
ar sérhæfir hljómsveitin sig í
hetjurokki og almennum töffara-
skap. „Við erum allar vinkonur en
höfum ekki starfað saman fyrr en
nú. Ég var í hljómsveitinni Ótukt,
Kidda og Anna Margrét voru í
hljómsveitinni Bellatrix og Arn-
dís hefur leikið í ýmsum hljóm-
sveitum." Kristín segir að í upp-
hafi hafi hljómsveitin verið stofn-
uð í gríni. Henni hafi síðan verið
svo vel tekið að tónleikarnir séu
orðnir fleiri en ætlað var í byrjun.
Á hverjum tónleikum fá ein-
hverjir úr áhorfendahópnum að
gjöf „rokkslæður" sem hannaðar
eru af Skaparanum. „Slæðan er
ekki afhent rétt si svona heldur
þarf að vinna fyrir honum. Sá sem
sýnir bestu rokktaktana t.d. fer úr
að ofan og sýnir að hann sé mikill
áhangandi fær slæðu. Við viljum
svo gjarnan eignast áhangendur."
Þess má geta að útvarpskonan
Andrea Jónsdóttir varð þess heið-
urs aðnjótandi að fá heiðursrokk-
slæðu að gjöf á fyrstu tónleikum
hljómsveitarinnar sem haldnir
voru fyrir hálfum mánuði á
Sirkus. ■
FIMMTUPAGUR
21. MARS
FUNPUR___________________________
17.00 (tilefni af alþjóðlegum degi
Sameinuðu þjóðanna gegn kyn-
þáttamisrétti verður opið hús í
Alþjóðahúsi. Dagskráin hefst
með málstofu þar sem fjallað
verður um rasisma. Að málstof-
unni lokinni verða óvæntar uppá-
komur og boðið upp á léttar veit-
ingar. Dagskráin stendurtil kl. 19
og er öllum opin og aðgangur
ókeypis. Alþjóðahús er á Hverfis-
götu 18, gegnt Þjóðleikhúsinu.
20.00 Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð standa ( kvöld fyrir
fræðslukvöldi í Safnaðarheimiii
Háteigskirkju. Fyrirlesari er
Haukur Ingi Jónasson, guðfræð-
ingur og sálgreinir. Hann nefnir
erindi sitt Sorg og þunglyndi. Fyr-
irlesturinn er öllum opinn. Að-
gangseyrir er 500 kr.
FYRIRLESTUR______________________
12.30 Næsti fræðslufundur Tilrauna-
stöðvarinnar á Keldum verður i
dag. Fyrirlesari: Ólöf Sigurðar-
dóttir læknir, Rannsóknadeild
LSH, Fossvogi. Titill erindis: „Kon-
ur og vísindi." Fræðslufundir eru
haldnir í bókasafni Keldna. Bóka-
safnið er í húsi 2.
16.15 Málstofa í læknadeild verður hald-
in í dag. Þórgunnur E. Pétursdóttir
ræðir um genabreytingar í nokkrum
æxlisgerðum. Málstofan fer fram í
sal Krabbameinsfélags íslands, efstu
hæð, á hverjum fimmtudegi.
17.00 Myndlistarmaðurinn Hannes Lárus-
son heldur fýrirlestur i Listasafni
Reykjavíkur - Kjaivalsstöðum í
dag þar sem hann fjallar um eigin
verk og þá sérstaklega um sýning-
una Hús í hús sem nú stendur yfir.
Frítt inn og allir velkomnir.
17.15 John McKinnell frá Háskólanum í
Durham heldur i dag fyrirlestur á
vegum Félags þjóðfræðinga á ís-
landi. Fyrirlesturinn sem verður
fluttur á ensku fjallar um ástarsam-
bönd Óðins i norrænum goðsögn-
um og ber titilinn: Óðinn as Sed-
ucer. Hann verður í stofu 201 í
Árnagarði.
20.30 Alliance Francaise gengst fyrir bók-
menntakvöldi í JL-húsinu í kvöld. Þar
verður Friðrik Rafnsson, bók-
menntafræðingur og þýðandi, með
rabb undir yfirskriftinni Að gilja heim-
inn - hugleiðing um þrjár nýlegar
franskar neðanbeltisskáldsögur.
Tilkynningar sendist á
netfangið rilstjorn@frettabladid.is
Fermingartilboð
25% afsláttur af vinsælum
tölvuleikjum og DVD-myndum
jetáb- pcc“"'“
wars DEj
■m'
J f - .
Aðrar DVD-myndir á tilboði:
Almost Famous
Evolution
Joe Dirt
Happy Gilmore
A Knight's Tale
Final Fantasy
Mummy Returns
Jón Gnarr
Simpsons
Aörir tölvuleikir á tilboði:
Half-Life PS2
Crash Bandicoot PS2
SSX Tricky PS2
Sims PC
Empire Earth PC
Star Wans Galactic Battleground PC
Commandos 2 PC
Oavid Beckham Soccen PSX
Fifa 2002 PSX
NBA Live 2002 Gold PSX
S K I F A N
Laugavegí 26 • Kringlunni • Smáralind
KOSTABOÐ
Á HINUM RÓMUÐU OC EFTIRSÓTTU ÍTÖLSKU RAFTÆK|UM
I
eldavélum, ofnum, hellubor&um og viftum.
Hvítir,
svartir,
spegill,
burstab
stál
o
F
N
A
R
' i
—.
4ra kerfa ofn, hvítur
Verb ábur kr. 45.300,-
Nú abeins kr. 29.990,-
4 kerfa ofn, burstab stál
Verb ábur kr. 61.200,-
Nú abeins kr. 45.900,-
7 eðo 8 kerfa ofn
hvítur, svartur, spegill, stál
Verb ábur kr. 69.900,-
Nú abeins kr. 55.900,-
2|A ARA ABYRGÐ
FULLKOMIN VARAHLUTA-
OG VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Helluborb 25-40% afsláttur
2ja hellu Frá kr. 9.720,-
4ra hellu Frá kr. 18.230,-
Keramikborb
Frá abeins kr.
25% afsláttur
39.830,-
2 gas + 2 raf. - 25% afsláttur
Burstab stál kr. 25.730,-
Gasborb
2 blúss:
3 blúss:
4 blúss:
25% afsláttur
Frá kr. 14.850,-
Abeins kr. 35.250,-
Frá kr. 28.800,-
Vifta, hvít eöa svört/stál
Ábur kr. 8.840,-
Nú abeins kr. 6.900,-
Veggháfur, burstab stál
Breidd 60cm: Ábur kr. 35.700,-
Nú abeins kr. 26.900,-
Breidd 90cm: Ábur kr. 43.600,-
Nú abeins kr. 33.900,-
Veggháfur, burstab stál
Breidd 60cm: Ábur kr. 39.500,-
Nú abeins kr. 29.900,-
Breidd 90cm: Ábur kr. 47.400,-
Nú abeins kr. 36.900,-
Eyjuháfur 90x65cm
Verb ábur kr. 95.900,-
Nú abeins kr. 74.900,-
OPIÐ:
mánud.-föstud. 9-18
laugardaga 10-16
Velkomin í Fríform.
Gób aðkoma og
næg bílastæði.
IFriform
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500