Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
21. mars 2002 FIMMTUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Er efnahagslægðinni lokið?
1
Ég vona það svo sannarlega. Háskólinn er
að útskrifa mikið af ungu og hæfileikaríku
fólki sem þarf að fá vinnu.
Anna Aðalsteinsdóttir sölumaður hjá
Eddu miðlun og útgáfu.
Hlutabréfasjóður
Búnaðarbankans:
Hver fé-
lagi tapaði
23.000 kr.
félag Hlutabréfasjóður Búnað-
arbankans tapaði tæpum 240
milljónum frá byrjun maí á síð-
asta ári til loka janúar 2002.
Yfir sama tímabil í fyrra var
tapið 65 milljónum króna meira,
eða um 305 milljónir króna.
Hluthafar í lok janúar 2002
voru 10.212 en voru 10.485 í lok
apríl 2001 og fækkaði því um
273 á reikningstímabilinu. Eng-
inn einn hluthafi á meira en 10
prósent í félaginu.
Sé tapinu deilt á alla sjóðsfé-
laga tapaði hver og einn rúm-
lega 23 þúsund krónum.
Enginn starfsmaður starfaði
hjá félaginu á reikningstíma-
bilinu maí árið 2001 til janúar
árið 2002 en Búnaðarbanki ís-
lands sá um daglegan rekstur
þess. ■
—♦—
Yfirlæknar
heilsugæslustöðva:
Áhyggjur
af skertri
þjónustu
heilsugæsla Félag yfirlækna á
heilsugæslustöðvum samþykkti
ályktun á aðalfundi sínum þann
1. mars s.l. þar sem lýst er yfir
áhyggjum vegna skerðingar á
þjónustu sem boðuð hefur verið
á Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins.
Yfirlæknum heilsugæslu-
stöðvanna er ljóst það mikil-
væga og ómetanlega starf sem
unnið er á Greiningarstöðinni.
Miklir erfiðleikar blasa við
fjölmörgum einstaklingum ef
fer fram sem horfir og hvetja
yfirlæknar heilsugæslustöðva
ríkisvaldið til að hlúa að því
ágæta starfi sem fram fer á
Greiningarstöðinni á þann veg
að þjónusta hennar skerðist
ekki. ■
INNLENT
Skiptum úr þrotabúi Skipa-
smíðastöðvar Marseilíusar á
ísafirði er nú lokið, en fyrir-
tækið varð gjaldþrota árið 1994.
Veðkröfur og launakröfur að
upphæð 37 milljónir króna hafa
verið greiddar út. 15 milljónir
fengust upp í alls 45 milljóna
almennar kröfur. Lífeyrissjóður
Vestfjarða og íslandsbanki tapa
stærstum hluta þeirra 30 millj-
óna sem eftir standa. Ýmis
dómsmál tengd viðskiptakröf-
um búsins hafa orðið til þess að
tefja úthlutun.
Markaðsvirði Austurbakka undir tilskyldu lágmarki:
Fá sex mánaða frest
INNLENT
Launavísitalan hækkaði um
0,1% milli janúar og febrúar
samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar. Vísitalan, sem reiknast
út frá meðallaunum, stendur í
224,8 stigum.
ísitala byggingarkostnaðar
hefur engum breytingum tek-
ið síðasta mánuðinn. Síðasta árið
hefur vísitala byggingarkostnað-
ar hækkað um 8,7%. Hagstofan
reiknar vísititöluna og var hún
275,8 stig um miðjan mars líkt og
var um miðjan febrúar.
Brotist var inn í videoleigu í
Bæjarlind um hálfþrjúleytið
í fyrrinótt. Að sögn lögreglu var
20-30 þúsund krónum stolið það-
an í skiptimynt. Þjófurinn eða
þjófarnir eru ófundnir.
Fá
fyrirtæki Markaðsvirði Austur-
bakka er komið niður fyrir lág-
mark sem Verðbréfaþing íslands
setur fyrirtækjum á þingið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Verðbréfaþingi skulu skráð félög
uppfylla skilyrði skráningar
hverju sinni. Uppfylli félag sem
skráð er á Aðallista ekki lengur
skilyrðin fær það sex mánaða
frest til að uppfylla þau að nýju,
annars verða hlutabréf þess flutt
á Vaxtarlista.
Því er ljóst að Austurbakki
þarf að bregðast við á næstu
mánuðum. Það er hlutverk Verð-
bréfaþings að fylgjast með fyrir-
tækjum sem eru skráð og fara
yfir forsendur skráningar á
þingið með forsvarsmönnum
fyrirtækja. Ef ekki er lengur for-
senda fyrir skráningu er hægt að
afskrá félag af þinginu.
Austurbakki var rekið með 93
milljóna króna tapi í fyrra. Eigin-
fjárstaðan er ekki góð. Skuldir
félagsins hækkuðu um rúmar
650 milljónir. Slæm niðurstaða
ársins er rakin til gengislækkun-
ar krónunnar. Félagið þurfti að
standa við umsamið verð þó
kostnaður við vörukaup hækkaði
vegna lækkunar krónunnar.
Ekki náðist í Árna Þór Árna-
son, forstjóra Austurbakka, í
gær. ■
INNLENT
Síðustu starfsmenn sem unnið
hafa við tökur á nýjustu
James Bond-kvikmyndinni í Jök-
ulsárlóni fara af landi brott í dag.
Tökum á svæðinu lauk sl. föstu-
dag. Hafa starfsmennirnir verið
að ganga frá búnaði og tjöldum
sem sett höfðu verið upp á svæð-
inu. Að sögn lögreglunnar á Höfn
stendur næst til að taka upp
jeppaauglýsingu í lóninu.
Eldur kom upp í potti á Hótel
Sögu um tíuleytið í fyrra-
kvöld. Var Slökkviliðið í Reykja-
vík sent á vettvang en þegar að
var komið var búið að slökkva
eldinn. Að sögn slökkviliðsins var
hótelið reykræst í kjölfarið.
Tvær hæðir voru rýmdar á hótel-
inu vegna eldsins.
Gölluð neyðaráætlun
á Reykjavíkurflugvelli
Rannsóknarnefnd flugslysa segir að endurskipuleggja þurfi neyðaráætl-
un fyrir Reykjavíkurflugvöll. Faðir pilts sem lést eftir slysið segir nú loks
viðurkennt margt sem aðstandendur hafa sagt.
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR
Forráðamenn Narad Network og Símans
undirrituðu samstarfssamninginn í gær.
Samstarfssamningur
Landssímans:
reykjavíkurflugvöllur Rannsóknar-
nefnd flugslysa segir að endur-
skipuleggja þurfi neyðaráætlun
fyrir Reykjavíkurflugvöll. Þetta er
niðurstaða eftir sjö mánaða viðbót-
arrannsókn á björgunarþætti
Skerjafjarðarslyssins.
Það var í kjölfar endurtekinna
athugasemda og ábendinga að-
standenda pilta sem fórust i Skerja-
fjarðarslysinu að samgönguráðu-
neytið óskaði þess að rannsóknar-
nefndin kannaði hvernig staðið var
—t— að björguninni.
Rannsóknar-
nefndin segir nú að
stjórnun björgunar-
innar hafi átt að
vera í höndum Land-
og
Slysavarnafélagsins
í stað slökkviliðsins
á flugvellinum.
Strax hafi átt að
kalla eftir aðstoð
þyrlu Landhelgis-
gæslunnar.
Rannsóknar-
nefndin bendir á að
þjónustusamningur
Það var í kjöl-
far endurtek-
inna athuga-
semda og
ábendinga að- helsisaaeslu
standenda helgis8æslu
pilta sem fór-
ust í Skerja-
fjarðarslysinu
að samgöngu-
ráðuneytið
óskaði þess
að rannsókn-
arnefndin
kannaði
hvernig staðið Flugmálastjórnar
var að björg- við slökkvilið taki
uninni. ekki til köfunarþjón-
...♦.... ustu. Tilviljun ráði
því hvort kafarar séu á vakt hverju
sinni hjá vallarslökkviliðinu.
Samgönguráðuneytið hefur lagt
fyrir Flugmálastjórn að fylgja
ábendingum rannsóknarnefndar-
innar eftir.
Bensínslanga í björgunarbát
hafi slitnað úr sambandi og tafið að-
gerðir. Stærri björgunarbátur sem
síðan hafi bæst við sé lélegur. Fyrir
stuttu kom reyndar fram í Frétta-
blaðinu að sá bátur var úrskurðað-
ur ónýtur árið 1997 en lagfærður til
GÚMMÍBÁTUR FLUGMÁLASTJÓRNAR
Rannsóknarnefnd flugslysa telur brýnt að Flugmálastjórn endurnýi sem fyrst björgunarbát
Reykjavíkurflugvallar. Upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar sagði hins vegar í svari til Frétta-
blaðsins fyrr í þessum mánuði að björgunarbátamálin væru I viðunandi horfi. Þó stæði til
að kaupa „fullkominn" bát. Niðurstöðu I því máli mætti vænta í vor.
bráðabirgða í haust.
Nefndin leggur áherslu á að
björgunarbáturinn verði endurnýj-
aður sem fyrst. Þess má geta að
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði aðeins átta dögum eftir
Skerjafjarðarslysið það vera vilja
stjórnvalda að hafa besta fáanlegan
búnað til björgunarstarfa á Reykja-
víkurflugvelli. Ekkert yrði til spar-
að. Um ári síðar sagði slökkviliðið
það vera fyrirliggjandi að báturinn
yrði endurnýjaður.
Friðrik Þór Guðmundsson, faðir
pilts sem lést eftir slysið, segir að
nú sé loks opinberlega viðurkennt
ýmislegt sem aðstandendur hafa
haldið fram. „Þó rannsóknarnefnd-
in geti ekki, vegna særðs stolts,
kallað hlutinn það sem hann er, hafa
þeir í reynd endurupptekið málið
og skilað af sér fjórum tillögum til
úrbóta," segir hann.
Friðrik segir ljóst að nú meira en
hálfu öðru ári eftir Skerjafjarðar-
slysið - sé einfaldlega ekki til nothæf
neyðaráætlun fyrir Reykjavíkur-
flugvöll. „Þetta lýsir smákónga-
vandamáli í kerfinu og því að menn
vilja ýta frá sér ábyrgð. Þeir neita að
viðurkenna á sig mistök. Slíkir
menn bregaðst ekki við til að koma í
veg fyrir næstu mistök," segir hann.
gar@frettabladid.is
Flutnings-
getan
tífaldast
breiðband Landssíminn skrifaði í
gær undir samstarfssamning við
bandaríska fyrirtækið Narad
Networks um tilraunaverkefni á
lausnum á gagnaflutningum um
Breiðbandið. Með tækni Narad á
flutningsgeta á Breiðbandinu að
aukast úr 8 megabitum í 100, sem
gefur nýja möguleika í þjónustu.
Ef samstarfið gengur upp verður
hægt að sækja efni af Netinu,
möguleiki á opnun myndveitu þar
sem hægt er að nálgast kvik-
myndir og tölvuleiki auk þess sem
það gefur möguleika á gagnvirku
sjónvarpi. Samningurinn er til
tveggja mánaða og að honum
loknum verður hægt að segja til
um hvort þjónustan sé fyrir
hendi. Tilraunirnar hefjast í júní.
í dag hefur helmingur íbúa
höfuðborgarsvæðisins aðgang að
Breiðbandinu og á Múlasvæðinu
hafa viðskiptavinir aðgang að
Netinu. Uppbygging á Interneti
Breiðbandsins verður þó lokið
innan árs. ■
1 INNLENT |
Tveir drengir á 14. og 15 ald-
ursári stálu vatnsrörum sem
notuð er í skólplagnir, úr verslun á
Húsavík á sjötta tímanum í fyrra-
dag. Að sögn lögreglunnar voru
þeir látnir skila rörunum, sem nota
átti til leikja, eftir að rætt hafði
verið við foreldra þeirra.
^ Starfsmenn Óbyggðanefndar:
Á bólakafi við að
koma málum frá
stjórnsýsla í dag er von á fyrstu
úrskurðum Óbyggðanefndar, sem
að þessu sinni fjalla um þjóðlend-
ur í Árnessýslu. Hlutverk nefnd-
arinnar er að fjalla um kröfur
sem fjármálaráðherra hefur sett
fram til ákveðinna landsvæða til
handa ríkinu í krafti laga um
þjóðlendur. í lögunum er ekki
heimild til eignaupptöku, en það
er nefndarinnar að skera úr um
hvar mörk þjóðlenda liggja. Úr-
skurðum nefndarinnar má svo
skjóta til dómstóla.
„Við erum bara á bólakafi við
að reyna að ganga frá þessu,“
sagði Kristján Torfason, formað-
ur og framkvæmdastjóri
Óbyggðanefndar. Hann sagði
starfsfólk nefndarinnar hafa lagt
nótt við dag og unnið fram yfir
miðnætti síðustu daga til að ná
því markmiði að birta fyrstu úr-
skurði í dag. „Þegar maður er bú-
inn að setja ákveðinn tíma verður
maður að standa við hann.“ Krist-
ján vildi ekkert segja til um hvort
hann byggist við því að sátt yrði
um úrskurði nefndarinnar. „Á
þessu stigi vil ég ekkert ræða
málið. Ég er bara á bólakafi við að
koma þessu frá,“ sagði hann í
gær.
Nefndin var stofnuð á haust-
dögum 1998 og hóf störf þá um
áramótin. Nú þegar fyrstu úr-
ÓBYGGÐANEFND
Starfsmenn Óbyggðanefndar hafa hamast við að koma frá úrskurðum um þjóðlendur I
Árnessýslu undanfarna daga. Framkvæmdastjóri nefndarinnar segir nótt hafa verið lagða
við dag.
skurðir koma eru því liðin rúm
þrjú ár frá því nefndin tók til
starfa. Lögfræðingur nefndarinn-
ar sagði fyrir áramót að fyrstu úr-
skurðir væru fordæmisgefandi
og því eðlilegt að þeir tækju lengri
tíma en þeir sem á eftir koma.
Fyrstu úrskurðir nefndarinnar
verða kveðnir upp klukkan tvö í
dag í Gömlu Borg í Grímsnesi. ■