Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 21. mars 2002 FIMMTUDAGUR Smfífífíj^ BÍÓ BLACK HAWK DOWN kl. 4, 7 og 9 WILD AT HEART kl. 10.30 O'l q Skólavöfðustíg 21a l-LCa Sími 551 0036 KL 0 Réttarhöldin yfir Peter Buck, gítarleikara R.E.M., halda áfram. Hann er ákærður fyrir að fara hamförum og ráðast að stárfsfólki í flug- vél á leið til London frá Seattle. Ein flug- freyjan lýsti því í stúkunni að hún hefði verið dauð- hrædd við Buck. Hún lýsti því hvernig hann skvetti jógúrt yfir starfsstöllu sína, lyfti matarvagni upp á kant og að hann hefði reynt að fela hníf upp í ermi sinni. Buck á að hafa drukkið 15 rauðvínsglös og svo trompast þegar honum var neitað um meira áfengi. Rokkhljómsveitin Fídel heldur útgáfutónleika sína í Þjóð- leikhúskjallaranum í kvöld. Fídel gaf nýverið út frumraun sína, „Good Ridd- ance= New Entrance", sem er m.a. merkileg fyrir það að ekk- ert fyrstu 700 eintakanna er eins í útliti. Tónleikarnir hefjast upp úr 21, og aðgangseyrir er 500 kr. Breska leikkonan Denise Van Outen, sem hingað til hefur verið þekktust fyrir að vera fyrrverandi kærasta Jamiroquai, fékk frábæra dóma fyrir leik sinn í söngleikn- um Chicago á Broadway. Stúlk- an þótti standa sig með prýði og skartaði víst afar trúverðugum bandarískum hreim. Fylgist með Van Outen i framtíðinni, hún er vaxandi stjarna þeirra Breta. MAKREL Komu með „flygvaranum" hingað til lands frá Færeyjum til þess að koma kippum í „mannakroppa" á Músíktilraunum í kvöld. F æreyjar gera innrás Úrslit Músíktilrauna 2002 ráðast annað kvöld. Síðasta undanúrslitakvöldið er í kvöld og þar verður brotið blað í sögu tilraun- anna því þá keppir í fyrsta sinn erlend sveit. Sú heitir Makrel og kemur frá Færeyjum. tónlist Sá stórskemmtilegi við- burður verður í kvöld á Músíktil- raunum að erlend hljómsveit mun taka þátt í fyrsta skipti í sögu hljómsveitakeppnarinnar. Sveitin heitir Makrel og hafa rúmlega tvítugir liðsmenn henn- ar starfað saman síðan ‘97. Annar gítarleikari sveitarinnar Rasm- us, Rasmussen, gekk í Garða- skóla í 10. bekk og kynntist til- raununum á meðan hann var hér. Hann talar því fína íslensku, en skemmtileg orð eins og „vinnar- inn“ og „fluga“ (í stað flugvélar) fá að fljóta með í íslenskuforða hans. „Strákarnir sem eru með mér í hljómsveit voru alltaf að tala um að koma hingað og spila,“ segir Rasmus. „Við vissum að margir á íslandi hafa gaman af rokki eins og við spilum. Okkur fannst þetta því gott tækifæri til að koma og taka þátt. Okkur finnst ísland mjög spennandi land og töff, og þess vegna ákváðum við að koma hingað.“ Rasmus lýsir tónlist Makrel (sem þýðir á íslensku makríll) sem þungu melódísku rokki. Hann segir einnig tónlistarlífið í Færeyjum vera í meiri blóma í dag en nokkurntíma fyrr. „Við erum með keppni í Færeyjum sem heitir „Pre-Færeyjar“, það er svipuð keppni og Músiktil- raunir nema kannski aðeins stærri. Það er sjónvarpað beint GEGN ALNÆMI HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR BEN KINGSLEY Mun seint gley- ma atburðum síðasta þriðju- dags. Ben Kingsley aðlaður: Skalf af geðshræringu KVIKMYNDIR Breski leikarinn Ben Kingsley var aðlaður af Breta- drottningu á þriðjudag. Ilann sagði að honum þætti þetta mun meiri heiður en að vera tilnefndur eða að vinna Óskarsverðlaunin. Kingsley er tilnefndur í ár í flokknum „besti karlleikari í aukahlutverki" fyrir leik sinn í myndinni „Sexy Beast“. Þetta er í þriðja skiptið sem hann er til- nefndur á ferlinum en hann fór heim með styttuna árið ‘82 fyrir túlkun sína á friðarleiðtoganum Ghandi. Að eigin sögn hamaðist hjarta Kingsley við athöfnina í Bucking- hamhöll og mátti sjá hann titra af geðshræringu. Kingsley leggur í dag af stað til Los Angeles til þess að vera við- staddur Óskarsverðlaunahátíðina á sunnudagskvöldið. Leikarinn sagði að þó að hann færi heim með styttuna, þá mundi það aldrei hafa jafn mikið gildi fyrir hann og athöfnin á þriðjudag gerði. Leikarinn segist heillaður af breskri goðafræði og segist vera sögumaður mikill. Þess vegna sé þetta einn mesti heiður sem hon- um hafi verið sýndur. ■ Sýnd kl. 6 og 9 VANILLA SKY AMELIE [iNTIMACY' Sýnd kl. 7 og 9.30 ELDBORC jELLING IMXtÍE gEOBOOM.. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 LUXIÍS |NOT ANOTHER TEEN... kl. «, 6 og 8 j y Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sdont SAY A WORD kl. 10 BEHIND ENEMY LINES kl. 8og 10.30 [ jLORD OF THE RINGS kl.4 1Á FRÉTTIR AF FÓLKI I 8 Og 1030 VIT3>5 8 Og 10.40 vnr 335 DOGS 330 og 5.55 | pf| MONSTER m/ísl tali kU| lCOLLATERAL DAMAGE 8 og 10.301P"! [MONSTER m/ens tali kUAsj jSPYGAME kl 5.35, 8 og 10.30 |CT[HARRYPOriERni/lsl.tali ld.«j

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.