Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 21.03.2002, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 21. mars 2002 Zanardi á batavegi: Ræsir kappakstur á sömu braut kappakstur Alex Zanardi, kappakstursökumaðurinn sem missti báða fætur í Cart-kappakstr- inum sl. haust, ætlar i haust að snúa aftur á hina örlagaríku braut í Þýskalandi þar sem hann lenti í bfl- slysi þar. Hann mun ræsa þýska Cart 500-kappaksturinn á EuroSpeedway-brautinni 21. sept- ember. Þá er liðið rúmt ár síðan hann lenti í slysinu. ftalinn er á batavegi. Hann er búinn að aðlagast og læra að ganga á gervifótleggjum og er farinn að keyra bíl. ■ ALEX ZANARDI Hefur lært að ganga á gervifótleggjum. PÖKKNUM SKOTIÐ Norðmaðurinn Espen Knutsen er hér neðarlega til vinstri á myndinni að skjóta. Varnar- maður fór í veg fyrir pökkinn, sem fór yfir öryggisglerið og í höfuð Brittanie Cecil. Bandarísk stólka látin: Fékk pökk í höfuðið íshokkí Táningsstúlka, sem fékk pökk í höfuð- ið á íshokkíleik í NHL- deildinni, lést á mánu- dagskvöld. Hún hét Brittanie Cecil og var 13 ára. Á laugardaginn var hún á leik milli Columbus Blue Jackets og Calgary Flames. Norðmaðurinn Espen Knutsen hjá Columbus skaut pökk- inum yfir hlífðarglerið í kringum svellið. Pökkurinn hrökk fyrst af kylfu varnarmanns, síðan af öðrum áhorfanda og beint á enni Brittanie. Eftir högg- ið stóð hún upp og gekk út án mikillar hjálpar. Þetta er fyrsta dauðsfall áhorfanda af völdum pökks í NHL-deildinni og eitt af fáum dauðsföllum í kringum banda- rískar íþróttagreinar. Þar er kappakstur und- anskilinn. „Áhangend- ur liðsins skipta öllu máli. Þessi missir hef- ur mikil áhrif á Blue Jackets-liðið og alla sem koma að því,“ seg- ir Doug MacLean stjórnandi. Fyrir leiki eru áhorfendur á ís- hokkíleikjum varaðir við fljúgandi pökkum. Einnig eru viðvörunar- skilti á hlífðarglerinu í kringum svellið. Nokkrum sinnum hefur komið fyrir að áhorfendur í áhugamannadeildum í íshokkí slasist illa eða látist. 1 hafnar- bolta eru fimm tilvik skráð þar sem áhorfendur hafa látist af völdum bolta. Ekkert svipað hef- ur gerst í körfubolta eða fótbolta í Baridaríkjunum. ■ BRITTANIE CECIL Gekk út hjálparlaust eftir slysið. Lést tveimur dögum seinna. Nýtt tæki virkar vel: Hálfpípa í Skálafelli skíði Starfsmenn í Skálafelli hafa undanfarna daga unnið að því að útbúa háfpípu við efri enda stóla- lyftunnar. Þeir nota nýtt hálf- píputæki, sem er sérstaklega ætl- að til verksins og er hið fyrsta sinnar tegundar á íslandi. Það reynist vel og bíða snjóbretta- menn þess með óþreyju að hálf- pípan verði kláruð. Hálfpípa líkist afskornu röri úr snjó. Brettamenn renna sér upp hliðarnar og stökkva upp af brún- inni. Undanfarin ár hefur verið reynt að útbúa hálfpípur í Skála- felli. Þá hefur troðari verið notað- HÁLFPÍPUTÆKI Við efri enda stólalyftunnar í Skálafelli er búið að útbúa hálfpípu fyrir snjóbretti. ur til verksins og lokafrágangur unninn með höndum. Nú er ferlið mun fljótlegra og auðveldara að halda hálfpípunni við. ■ Léttkaupsútborgun 1.250 kr. næstu 12 mánuði færist á símreikning Verð: 16.980 KR. Verð áður 18.001 kr. Tilboð þessi gilda í öllum verslunum Símans um land allt dagana 75. mars til go. apríl. simmn.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.