Fréttablaðið - 28.05.2002, Síða 14
1
14
FRÉTTABLAÐIÐ
26. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
HAOAIOHM • MMI SIQ I V » V • STAKSIA SÝNINGARTJAt D LANOSINS
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5 og 9
ImULHOLLAND DRIVE kL73Óogl0.15| ÍYDU CAN COUNT ON ME 5.45, aog 10.151
[ÁMELIE ki. 5j jjÖHNQ kl 5.45 Og 10.151
smnnfí\£ bíó
KKÍHt
Sýnd kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 10.50 Powesýning Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 10.30 B.l. 10
Sýnd kl. 4.30, 7.30 og 10.30 jíSÖLD m/íslensku tali
sImi 564 oooo - www.smara
TT7
jRESIDENT EVIL kl. 8
jBUBBLE BOY
kL«o,«H5S| |JIMMY NEUTRON m/lsl tali kL 4
jlHE SOORPÍÖN KING kl. 6,8 og 101 ^ [PETUR PAN m/ísl. tali
TÓNLIST
EMIN3IV1
EMINEM:
THE EMINEM SHOW
Allt er þegar
þrennt er
Síðan Eminem gaf út aðra
plötu sína, „Marhall Mathers
L.R“, hafa réttindasamtök, reið-
ar húsmæður og pirraðir póli-
tíkusar varla tekið hnefann úr
lofti. Þó svo að Eminem sé ansi
fjarri því að sápuhreinsa á sér
skoltinn virðist hann hafa tekið
eitthvað mark á gagnrýni þeirra
og beinir spjótum sínum í aðrar
áttir. Mest gegn þeim sem hafa
reynt sem harðast að ritskoða
hann.
Hingað til hefur honum þótt
fyndið að gera grín af hommum,
kvenmönnum og poppurum.
Hann lætur það ekki vera á ný ju
plötunni en persónulegri mál fá
meira pláss. Eminem segir sína
hlið þeirra mála sem hafa kom-
ið honum í heimsfréttirnar síð-
ustu tvö ár. Ekkert er látið vera.
Hann opnar fyrir skítugt hjarta
sitt og lætur blæða. Hann rapp-
ar um byssuárás sína á manninn
sem kyssti eiginkonu hans,
skilnaðinn sem fylgdi og dóttir
hans Hailie er í stærra hlut-
verki en áður. Hún syngur
meira að segja með honum í
hinu frábæra lagi „I think my
dads gone crazy“. Við heyrum
hann biðja móður sína afsök-
unnar á því að hafa gert hana að
skotskífu í laginu „Cleaning out
my closet". Hann lætur hana
samt hafa það óþvegið og við
megum búast við annarri kæru
frá mömmu gömlu. Eminem
gleymir þó ekki að smyrja gríp-
andi laglínum á orðakrókinn.
Frábær plata sem hæfir einum
merkilegasta tónlistarmanni
okkar tíma.
Birgir Örn Steinarsson
Kennarar og foreldrar
©fvirkni
| Ofvirknibokin.is
ol fyrir kenriara 09 foreldra
aðstoð sem hentar öllum börnum.
Mikilvæg m.a. við athyglisbresti,
misþroska, ofvirkni, tourette og
sértækum námsörðugleikum. um-
sagnir og netverð á ofvirkni-
bókin.is Pöntunarsími: 895-0300
FRÉTTIR AF FÓLKI
Björk Guðmundsdóttir ætlar
að leyfa aðdáendum sínum að
velja lögin á væntanlega safn-
plötu. Hægt er að
fara á heimasíðu
hennar
www.bjork.com
þar sem hún bið-
ur fólk að velja
þau lög sem höfðu
mestu áhrif það.
Platan kemur út í
september auk
þess sem hún hyggst hafa að sér-
stakt box fyrir safnara. Á plöt-
unni verður að finna eitt nýtt lag.
m 30 aðdáendur rapparans
Eminem slösuðust um helgina
í troðningi á tónleikum hans í
Washington. Einn maður fékk
hjartaáfall og fjórir aðrir þurftu á
læknisaðstoð að halda. Aðrir
meiddust aðeins lítillega. Áhorf-
endur trylltust um leið og rappar-
inn steig upp á svið og myndaðist
troðningurinn skömmu síðar.
Eminem krafðist þess að áhorf-
endur róuðu sig niður og hélt ekki
áfram fyrr en búið var að hlúa að
þeim sem meiddust. Nýjasta smá-
skífa hans „Without Me“ fór beint
í fyrsta sæti Billboards sölulistans
í Bandaríkjunum.
Breski eilífðarpönkarinn Billy
Bragg vandar ekki John
Lydon, fyrrverandi Johnny Rott-
en, söngvara Sex
Pistols ekki
kveðjurnar. Hann
segir söngvarann
hafa selt sálu sína
peningaöflunum.
Þetta sagði hann
eftir að Sex
Pistols tilkynntu
að þeir hygðust
endurútgefa lag sitt „God save
the Queen“ á 50 ára krýningaraf-
mæli drottningarinnar. Lydon á
að hafa sagt að honum líkaði vel
við konungsfjölskylduna, sérstak-
lega þar sem hún væri svo góð
tekjulind.
Leikkonan Mindy Sterling, sem
er þekktust fyrir leik sinn í
grínmyndunum um Austin
Powers, fullyrðir að „Goldmem-
ber“, væntanleg þriðja mynd ser-
íunnar, verði sú allra síðasta.
Henni þykir þetta miður og óskar
þess að myndirnar yrðu fleiri þar
sem svo gaman sé að framleiða
þær.
Fred Durst, söngvari Limp
Bizkit, hefur hvatt aðdáendur
sína að senda fyrrum gítarleikara
sveitarinnar Wes
Borland tölvupóst
til að biðja hann
um að koma aftur
í sveitina. Durst
viðurkennir á
heimasíðu sinni
að hann sakni
hans mikið. Limp
Bizkit þræddu
Bandaríkin í leit að nýjum gítar-
leikara, eftir að Borland tilkynnti
um fráhvarf sitt, en án árangurs.
Durst segist sjálfur vera byrjað-
ur að glamra á gítarinn en að
hann komist ekki með tærnar þar
sem Borland hefur hælana.
Polanski
fékk Gull-
pálmann
Kvikmyndahátíðinni í Cannes lauk á
sunnudagskvöld. Dómnefndin með David
Lynch í fararbroddi kom fáum á óvart með
verðlaunaveitingar.
kvikmynpir Roman Polanski fagn-
aði innilega þegar hann vann
Gullpálmann á sunnudagskvöld.
The Pianist er mjög perónuleg
mynd um tónlistarmann sem lifir
af Helförina. í myndinni leikur
Adrien Brody pólskan píanósnill-
ing sem flýr úr gettói í Varsjá og
er síðan bjargað af þýskum her-
manni. Polanski lifði ungur af
gettó í Kraká en móðir hans dó í
fangabúðum nasista. Saga mynd-
arinnar er ekki hans en margt er
byggt á hans eigin minningum úr
Kraká.
Mikið magn gæðamynda ein-
kenndi kvikmyndahátíðina í
Cannes í ár. í níu manna dóm-
nefndinni með David Lynch voru
meðal annarra leikkonurnar Shar-
on Stone og Michelle Yeoh og leik-
stjórinn Walter Salles. „Við eigum
ekki nógu mörg verðlaun," kvart-
aði Lynch í upphafi verðlaunaaf-
hendingarinnar á sunnudaginn.
Finnski leikstjórinn Aki
Kaurismaki fékk annað sæti, eða
heiðursverðlaun. Mynd hans.The
Man Without a Past, er sérvisku-
55. KVIKMYNDAHÁTÍÐIN
í CANNES
Gullpálminn
The Pianist Roman Polanski
Heiðursverðlaun
The Man Without a Past Kaurismaki
Heiðursverðlaun dómnefndar
Divine Intervention Elia Suleiman
Besti leikstjórinn
Paul Anderson Punch-Drunk Love
Im Kwon-taek Chihwaseon
55 ára afmælisverðlaun
Bowling for Columbine Michael Moore
Besti leikarinn
Olivier Gourmet The Son
Besta leikkonan
Kati Outinenlhe Man Without a Past
Besta handritið
Sweet Sixteen Paul Laverty
Gulltökuvélin
(fyrsta kvikmynd leikstjóra)
Bord de Mer Julie Lopes-Curval
Besta stuttmyndin
Eso Utan Peter Meszaros
Heiðursverðlaun dómnefndar
fyrir stuttmynd
The Stone of Folly Jesse Rosensweet
A very very silent film Manish Jha
leg saga um minnislausan mann
sem kynnist lífinu og ástinni á
nýjan hátt. Kati Outinen leikur
konu sem vinnur hjá Hjálpræðis-
hernum og verður ástfangin af
minnislausa mann-
inum. Hún var valin
besta leikkona há-
tíðarinnar.
Verðlaun fyrir
bestu leikstjórn var
skipt milli marg-
reynds asísk kvik-
myndagerða-
manns, sem hefur
gert rúmlega 80
kvikmyndir, og
Bandaríkjamanns
sem hefur aðeins
gert fjórar. Paul
Thomas Anderson
gerði Punch-
Drunk Love með
Adam Sandler og
Emily Watson. Im
Kwon-taek frá
Suður-Kóreu gerði
Chihwaseon, sögu-
lega mynd um líf
kóresks listmálara á 19. öld.
Belginn Olivier Gourmet var
valinn besti leikarinn. Hann leik-
DEILDU MEÐ SÉR VERÐLAUNUM
Bandaríkjamaðurinn Paul Thomas Ander-
son og Suður-Kóreubuinn Im Kwon-Taek
deildu með sér verðlaunum fyrir bestu leik-
stjórn. Mynd Anderson heitir Punch-Drunk
Love og mynd Kwon-Taek Chinwaseon.
ur í mynd Dar-
denne-bræðra,
The Son. Árið 1999
fengu Dardenne-
b r æ ð u r
Gullpálmann fyrir
Rosetta. Gourmet
leikur mann sem
neitar að ráða
dreng í vinnu á
smíðaverkstæðið
sitt. Síðar verður
hann hugfanginn af
drengnum og eltir
hann um göturnar.
Sérstök verðlaun
í tilefni af 55 ára af-
mæli kvikmyndahá-
tíðarinnar voru veitt
Michael Moore fyrir
heimildarmyndina
Bowling for Col-
umbine. í myndinni
er fjallað um byssueign og ofbeldi
í Bandaríkjunum. Myndin byrjar
á fjöldamorðinu í Columbine
KAURISMAKI DANSAR
Finnski leikstjórinn Aki Kaurismaki
bregður á leik á sýningu myndar
sinnar, The Man Without a Past,
sem fékk heiðursverðlaun. í
bagrunni má sjá Kati Outinen, sem
var valin besta leikkonan.