Alþýðublaðið - 06.05.1960, Síða 13
Stúdentar
taka við
Hótel Garði
HÁSKÓLASTÍJDENTAR
ninnu annast rekstur sumar-
hóteisiris á stúdentagörðunum
í sumar. Sendi síúdentaráð til-
boð í rekstur sumarhótelsins.
Hinir nýju eigendur Hótel
Skjaldbreiðar og Pétur Daní-
elsson, er hefur haft rekstur-
iriri rindanfarin ár, sendu einn-
ig tilboð. En tilboð stúdenta-
ráðs reyndist hagstæðast.
Tryggvi Þorfinnsson, Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólan
um, mun taka að sér matsöluna
á sumarhótelinu. Eri stúdentar
munu sjálfir annazt hótelrekst-
urinn. í hótelnefnd stúdenta-
' ráðs eiga þessir stúdentar sæti:
Qlafur Egilsson, Jón Böðvars-
son og Styrmir Gunnarsson. —■
Mikill áhugi ríkir meðal stú-
denta á máli þessu. Sem dæmi
um áhugann má nefna að fjöldi
stúdenta skrifaði undir sjálf-
skuldaábyrgðir, 1000 kr. hver,
til tryggingar rekstrinum.
GAGNFRÆÐASKÓLA verk-
náms var sagt upp 2. maí. 346
nemendur voru x skólanum í
vetur; 34 kennarar kenndu við
skólann. Gagnfræðaprófi luku
165 og 133 stóðust miðskóla-
próf.
Hæstu einkunn við miðskóla
próf hafði Edda Gísladóttir, að-
aleinkunn 8/2, Hæstu einkunn-
ii- við gagnfræðapróf höfðu
Edda M. Hjaltested, aðalein-
kunn 9,18 og Kristjana Sigurð-
árdóttir, aðaleinkunn 9,15.
Þessar einkunnir eru þær
hæstu, sem verið hafa við gagn-
fræðapróf í þessum skóla.
Far í
lakkinu
FORD-Zodiac bífreið stóð á
móts við húsið nr. 43 við Barma
hlíð í fyrrakvöld á tímanum frá
klukkan 21—24.
Á meðan bifreiði'n stóð þarna
var ekið allbarkalega á
vinstri afturbretti hennar. —
Það dældaðist mikið, ennfrem-
ur „stuðari“, og ljósaútbúnað-
ur skemmdist.
Greinilegt far eftir hjólbarða
var á lakkinu. Það vi'rtist vera
eftir vöruflutningabifreið. Bif-
reiðatsjórinn, sem árekstrinum
olli, er beðinn að gefa sig strax
iram við rannsóknarlögregluna.
Einnig er skorað á vitni að gefa
sig fram.
Togoland, fyrrum frönsk nýlenda, hlaut sjálfstæði 27. apríl og
franski fáninn var dregimrniður á stjórnarbyggingunum í höf-
uðborginni Lomo. Togoland er vanþróað land með 1,2 milljónir
íbúa og liggur niilli Ghana og Dahomey.
SJÁLFSSTÆTT
TOGOLAND
Minningarorð:
Þórðu r Björnsson
HIÍNN 27. apríl sl. hlaut
minrista os fámennasta ríki
Afríku sjálfstæði og lauk.þar
með 76 ára þýzk-franskri-
brezkri nýlendustöðu Togo-
lands.
Þessi þrjú nýlenduveldi
hafa skilið eftir skýr spor í
Togolandi og fjórða stóryeldið
kemur einnig vi'ð sögu. Það
voru kaupmenn frá Brazilíu,
sem stofnuðu Jyrstu verzlun-
arsamtökin í landinu, fjöldi
Brazilíumanna settist að í
hafnarbæjunum og leysi'ngiar
af Ewekynþættinum fluttust
frá Brazilíu til Togolands,
með portúglösk nöfn. Fyrsti
fors.ætisráðherra hins nýja
lýðveldis ber hið stolta portú-
galska nafn Sylvanus Olym-
pi'o.
En það eru Þjóðverjar, sem
mest og drýgst áhrif hafæhaft
í Togolandi. Margt þykir
benda til þess að 27. apríl
tákni upphaíiið að áhrifum og
ítökum Þjóðverja í Afríku á
ný. Togo var eitt si'nn fyrir-
myndarnýlenda Þjóðverja —
1884—1914. Brézkar og
franskar hersveitir hernámu
Togo í fyrra stríðinu, en nú
reyna Þjóðverjar að gera land
ið að miðstöð í viðleitni' sinni
til að öðlast vinsældir og á-
hrif, ekki' sízt verzlunaráhrif,
á vesturströnd Afríku. — í To
golandi hafa aðeins verið tveir
ræðismenn, þýzkur og banda-
rískur og 27. apríl var þýzki
ræðismaðurinn skipaður sendi
herra, og í smíðum er glæsi-
leg þýzk sendiráðsbygging í
höfuðborginni Lomo. Næstu
daga fnun verða undirritaður
verzlunarsáttmáli og samning
ur um efnahagsaðstoð .milli
Togo og Vestur-Þýzkalands.
Bonnstjórnin sendi fjölmenna
sendinefnd undi'r forustu
landbúnaðarráðherrans —
Schwartz — til að vera við-
stadda lýðveldissto’Jnúnina.
Reist verða þýzk menntasetur
og þýzk fyrirtæki hafa þegar
sent fjölda manns til Togo-
lands.
Ráðamenn í Togolandi eru
ekki kvíðalausir er land
þeirra hlýtur sjálfstæði. Land
ið hefur þegar verið svipt
Trans-Voltahéraði'nu til Gha-
na og Kwame Nkrumah, for-
sætisráðherra Ghana, hefur
hvað eftir annað látið í það
skíria, að hann vilji gjarnan
a allt Togoland, sem nær yfir
55 000 ferkílómetra svæði,
sameinist Ghana, og lúti þá
allur Eweættbálkurinn sömu
stjórn. í her Ghana eru 5000
brezkþjálfaðir hermenn und-
ir stjórn ensks herforingja, en
Togomenn haja engan her og
nú hugleiðir Silvanus Olym-
pio að gera gagnkvæman varn
arsáttmála við Vestur-Þýzka
land í svipuðum anda og sátt-
máli Líberíu við Sameinuðu
þjóðirnar er, og fyrir alla
muni vlll hann koma í veg
fyrir Ansehluss Togolands og
Ghana.
Aðeins hluti af eldri kyn-
slóðinni kann enn þýzku, en
þýzk áihrif eru samt sem áður
sterk í landiriu. Það gerisit æði
oft að þýzki ræðismaðurinn
er beðinn að senda einhvern
starfsmann sinn að dánarbeði
gamals Togolendings „ti'l þess
að hann fái að sjá Þjóðverja
áður en hann deyr“.
Togoland er eitt af mörgum
Afríkuríkjum, sem sjálfstæði
hlýtur um þessar mundir og
Hafnarfirði
GÓÐRA samferðamanna er
ávallt gott að minnast. Menn
sem með dagfari sínu eru öðr-
um til fyrirmyndar í trú-
mennsku og skyldurækni,
hvort heldur er við heimili sín
eða önnur utanaðkomandi
störf. Einn þeirra manna er
Þórður Björnsson, sem við í
dag kveðjum hinztu kveðju.
Þórður Björnsson var fædd-
ur 21. sept. 1872 að Galtalæk
í Biskupstungum. Foreldrar
hans Margrét Guðmundsdótt-
ir og Björn Björnsson voru
þar þá búandi hjón. Móðir
sína missti Þóröur er hann var
eins og hálfs árs, og var þá
tekinn í fóstur af móðurömmu
sinni Vigdísi Þórðardóttir og
síðari manni hennar Þorbirni
Ásbjörnssyni í Króki í Bisk-
upstungum, en ékki naut
hann fósturs ömmu sinnar
nema skamma stund, því hún
andaðist er Þórður var aðeins
fjögurra ára. Þorbjörn fóstri
hans kvæntist nokkru síðar í
annað sinn, og ólst Þórður upp
á heimili hans fram til tvítugs
aldurs, og þessarar fósturfor-
eldra sinna minntist Þórður á-
vallt með vinsemd og hlýju.
Þórður var vinnumaður þar í
Tungunum enn um sinn, og
stundaði sjó á vertíðum, en
1898 flutti hann til Hafnar-
fjarðar ásamt unnustu sinni
Guðbjörgu Jónsdóttir, og gift-
ust þau það sama ár. Sjó-
mennska á skútum var aðal-
starf Þórðar í Hafnarfirði
þetta tímabil. En eftir nokk-
urra ára bil fluttust þau hjón
að Grjóta í Garðahverfi, og
bjuggu þar landbúnaði um níu
ár, og urðu þá að hætta bú-
skap vegna heilsuleysi kon-
unnar, en hún andaðist 1924.
Nokkru eftir að Þórður flutt-
ist aftur til Hafnarfjarðar,
kvæntist hann í annað sinn
1926, Ingveldi Bjarnadóttur,
ættaðri úr Selvogi, vel gefinni
og mætri konu. Ðyggðu þau
sér snoturt hús að Hverfis-
götu 9 í Hafnarfirði, og áttu
þar heima æ síðan, að undan-
teknum fjórum árum er þau
voru við fjárbúskap í Lóna-
koti í Hraunum.
Síðan fyrstu kynni milli
heimilis míns og þessara
hjóna hófust, eru nú liðin rúm
þrjátíu ár. Á hinu friðsæla
uiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiriiiuumimiiiHiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiii
eins og mörg önnur vanþróuð
lönd verður það að njóta að-
stoðar annarra þjóða til þess
að koma efnahagslífi sínu á
réttan kjöl. Togolendi'ngar
ha|a hallast að Þýzkalandi og
þess er að vænta að Þjóðverj-
iar noti aðstöðu sína þar til
nýrra sigra á hinum nýju
mörkuðum Afríku.
heimili þeirra höfum við hjón1
in oft átt mæta og friðsæla
stund, því þeim var báðum
mjög sameiginlegt að vera al-
úðleg í öllu viðmóti, ræðin og
skemmtilega fróð. 'Var heim-
ili þeirra snoturt og viðkunn-
anlegt, samlíf þeirra hjóna
var ávallt ástúðlegt, og um-
hyggjusemi á báðar hliðar.
Þórður var hið mestá ljúf-
menni og geðprýðismaður, og
ávann sér hlýjan vinarhug
allra er honum kynntust á
lífsleiðinni. Hann var að eðl-
isfari glaðlyndur og mjög
skemmtinn í viðræðum, hafði
oft á reiðum höndum létta og
saklausa fyndni, sem kom öll-
um er við hann ræddu í gott
og þægilegt skap, þetta, sam-
fara ljúfmennsku hans og
prúðri framkomu aflaði hon-
um margra vina. Hann var;
félagslyndur, hafði t.d. ánægju
af að sækja fundi, og hlýddi
með áhuga á umræðum
manna um hin ýmsu þjóðmál
er hæst bar á hverjum tíma,
og fylgdist ætíð vel með þró-
un þeirra, enda maður vel
skýr og glöggur. Hann mundi
vel tvenna tímana alþýðunn-
ar á íslandi, og þekkti frá ung
lings- og manndómsárum sín-
Þórður Björnsson
um þau hörðu og ömurlegu
kjör verkalýðsins, og svo nú
á síðari árum hve geysilegar
breytingar vóru þar á orðnar
til hins bétra. Hann sagði einu
sinni við mig áð sér hefði
sýnst og fundizt vera sól og
birta á öllu og í öllu þegar
fór að koma í ljós fyrstu verk
anir jafnaðarstefnunnar tjl
hins betra á afkomu og líðan
fólksins. Strax á fyrstu árum
jafnaðarstefnunnar hér á
landi, skipaði hann sér þar í
raðir, og var ávallt heill og
traustur alþýðuflokksmaður.
Innst í eðli sínu var Þórður
sveitamaður, maður gróand-
Fmmhald á 14. síðu.
Alþýðublaðið — 6. maí 1960 J3