Lögberg - 29.07.1954, Side 1
Rækt okkar við íslenzka menningu safnar þúsundui
Og enn skín sól yfir Ingólfsbygð
þó umhorfs sé dapuri víða.
NÚMER 30 OG 31
til Gimli 2. ágúst
Demantsbrúðkaup
Á laugardaginn var áttu þau
Hjörtur Bergsteinsson og írú
Þórunn Þorsteinsdóttir demants
brúðkaup og var atburðarins þá
um daginn veglega minst á heim-
ili þeirra að Craik, Sask., þar
sem samansöfnuðust börn þeirra
níu af tíu, sem á lífi eru ásarrit
barnabörnum og öðru sifjaliði;
þessi stórmerku hjón bjuggu
um langt skeið stóru fyrirmynd-
arbúi í Alamedabygðinni í
Saskatchewan, og var því við-
brugðið hve heimilið var vel
húsað og búnaðaráhöld öll full-
komin.
Hjörtur á rót sína að rekja til
hirinar fögru Fljótshlíðar, en því
niiður er Lögbergi ekki kunnugt
um ætt konu hans.
Logreglumenn á
námskeiði í
Bretlandi
Næstkomandi laugardag leggja
af stað héðan til Bretlands þrír
aðstoðarvarðstjórar lögreglunn-
ar í Reykjavík til þess að sækja
námskeið lögreglumanna.
Varðstjórarnir eru Guðmund-
ur Jónsson, Greipur Kristjáns-
son og Þorkell Steinsson. Sendi-
ráð Breta hér hafði milligöngu
um málið, en annars verða lög-
reglumennirnir á vegum stofn-
unairnnar British Council. Nám-
skeið þetta er ætlað mönnum,
sem starfað hafa að lögreglu-
naálum um langan tíma, og veit-
ir mjög alhliða fræðslu. Stendur
það í mánuð, og munu Islend-
ingarnir þrír dvelja um viku í
London, en annars fara á milli
lögreglustöðva í minni borgum,
bæði við sjávarsíðuna og eins
uppi til sveita.
—VISIR, 6. júlí
BARNEY EGILSSON
F'orseti Islendingadagsins
K'R-C HJiORG ÍSEELD . .
Söngstjórl á íslendingadeginum
Þau Hjörtur og frú beittu sér
fyrir um það, að öll börn þeirra
yrði aðnjótandi æðri mentunar,
og þessu þrekvirki komu þau
í framkvæmd; meðal barna
þeirra er Ingólfur, dr. phil., sem
búsettur er að Orange, Cal., og
kvæntur er Kristjönu dóttur
þeirra Ólafs kaupmanns Halls-
sonar og frú Guðrúnar Hallsson
að Eriksdale, Man.
Lögberg flytur þeim Hirti og
frú Þórunni innilegar hamingju-
óskir í tilefni af demants-
brúðkaupinu.
DOROTHY JOHNSON
Hirömey
Verður rafmagn
leitf frá Laxá til
Austurlands?
Eins og Tíminn hefir áður
skýrt frá hafa verið uppi ráða-
gerðir um að virkja Lagarfoss í
Lagarfljóti til að afla Austur-
landi rafmagns, og hafa í vetur
og vor farið fram ýmsar mæl-
ingar þar og jafnvel ráðgert að
leggja veg að fossinum, byggja
þar vinnuskála og búa svo um,
að vinna mætti þar að spreng-
ingum í vetur.
Kannske rafmagn frá Laxá?
Nú hefir framkvæmdum hins
vegar verið slegið á frest í bili,
því að sérfræðingar munu hafa
í huga að kanna aðra leið til að
afla Austurlandi rafmagns. Er
það sú leið að leiða rafmagnið
til Austurlands frá Laxá. Þar er
nú þegar nokkuð rafmagn af-
gangs og auðvelt að gera við-
bótarvirkjanir, handhægara en
að hefja virkjanir á nýjum
stöðum.
Leill á einum sfreng
En það er dýrt að leggja há-
spennulínur með venjulegum
hætti, þ. e. á þremur strengjum
á tunnum eða staurasamstæðum,
eins og venjulegast hefir verið.
Nú mun hins vegar vera farið
að nota erlendis nýja aðferð til
að leiða rafmagn langvegu. Hún
er sú að leiða rafmagnið með
einum streng og nota jarðsam-
band á svipaðan hátt og þegar
símasamband er fengið með ein-
um streng og jarðsambandi. Slík
lína er að sjálfsögðu miklu ó-
dýrari.
En þegar um er að ræða há-
spennt rafmagn dugar ekki að
leggja jarðsamband línuendans
í jörðina, og ekki mun heldur
talið fært að leggja það í stöðu-
vatn. Þykir helzt þurfa að leggja
jarðsambandið í sjó, og væri þá
ekki óhugsandi, að háspennu-
línan endaði með jarðsambandi
í Seyðisfirði.
Gunnlaugur Briem, verkfræð-
Gullbrúðkaupsfagnaður
Síðastliðinn laugardag var'
gestkvæmt á hinu fagra og vin-
gjarnlega heimili þeirra Dr.
Donalds Scott og frú Esther
Scott að 375 Cambridge Street
hér í borginni; tilefni mann-
fagnaðarins var það, að minnast
gullbrúðkaups tengdaforeldra
Dr. Scotts, þeirra Jóns Ólafs-
sonar brennisala og frúar hans
Margrétar Sigmar-Ólafsson; að
vísu er gullbrúðkaupsdagurinn
ekki fyr en 2. ágúst næstkom-
andi, en fjölskyldu ástæðna
vegna, var áminstur dagur val-
inn til minningar um hinn
merka áfanga í lífi þessara vin-
sælu og mikilsmetnu hjóna.
Gullbrúðguminn er ættaður
frá Ekkjufellsseli í Norður-
Múlasýslu, en gullbrúðurin upp-
alin í Argyle, systir Dr. Haralds
Sigmar og þeirra kunnu Sig-
mars systkina.
Öll börn gullbrúðhjónanna og
barnabörn voru viðstödd mann-
fagnaðinn og ættmenni á báðar
hliðar, að undanteknum Sigur-
jóni Sigmar, sem búsettur er í
Vancouver. Gestir nutu þarna
ógleymanlegra ánægjustunda og
veitingar voru hinar ríkmann-
legustu.
Lögberg flytur hjnum mætu
gullbrúðhjónum innilegar árn-
aðaróskir.
FjaUkona Islcndingadagsins MRS. PAUL W. GOODMAN
DOROTHY STONE
Hirömcy
ingur, mun nú vera erlendis, lík-
lega í Svíþjóð, að athuga þessa
möguleika, en ef til vill fer svo,
að Austfirðingar fá rafmagn frá
Laxá á einum streng, sem liggur
út í sjó í Seyðisfirði. Ef þetta
Keynist ekki fært, verður að
líkindum horfið að virkjun
Lagarfoss aftur.
—TIMINN, 30. júní
SÉRA ROBERT JACK
Minni íslands, rœöa
Fátt er það sem fortaka má
/#
AL.EC THORAP.INSON
Minni Canada, rœða
Heimsækir Canada
Hertoginn af Edinburgh er
nýkominn hingað til lands til
þriggja vikna dvalar; er aðal-
erindi hans það, að vera við-
staddur íþróttamót brezka veld-
isins í Vancouver.
Spakmæli þetta kom mér til
hugar, þegar bræður mínir og
vinir vildu fá kirkjuþingið síð-
asta til að strika yfir íslenzka
nafnið á kirkjufélaginu lúterska.
Mál þetta mætti í fljótu bragði
virðast smámál, en sé það brotið
til mergjar kemur það í ljós, að
það innibindur mikilsverð atnði.
Hið íslenzka nafn kirkju-
félagsins bendir á skyldleika
þann, sem það ber til móður-
kirkjunnar á Islandi. Hún er
móðirin, sem hefir arfleitt þjóð-
arbrotið hér í álfu að öllum bók-
mentalegum og trúarlegum arfi
sínum. Þetta játum við með
hinu íslenzka nafni kirkjufé-
lagsins. Það er viðurkenning
gagnvart móðurinni á Islandi
um þá hluti, sem við höfum
þegið. Það er aldrei sæmilegt
fyrir barnið að vilja ekki kann-
ast við foreldri sitt.
Qslenzka nafnið á líka að
minna á þá, sem borið hafa hita
og þunga starfsins í sjötíu ár.
Nú mætti spyrja: Hvernig
höfum við varið þessum arfi,
sem okkur hefir tæmst eftir að
komið er til þessarar álfu? Höf-
um við reynzt svo úrætta og
lélegir borgarar, að við höfum
orðið okkur til minkunar, að það
sé viturlegt að strika yfir ís-
lenzka nafnið, og láta felast í
fjöldanum?
Ekki tel ég það líklegt. Um-
mæli annara manna og þjóð-
brota benda á það gagnstæða.
í Hansaerd ulaðinu 1947 ritar
C. C. Miller, þingmaður fyrir
Partage la Prairie kjördæmið í
Manitoba, bls. 142:
“We have a large number of
Icelandic people. They are in-
dustrious, kindly though some-
what retiring, thrifty and fru-
gal. Throughaut the years they
and their children have become
good citizens, and good Canad-
ians.”
Fjöldi manna af íslenzkum
þjóðstofni gegna vandasömum
störfum.
Kristilegur félagsskapur með-
al Norðmanna, Dana og annara
þjóðbrota hér, ber vott um þjóð-
ernislegan uppruna sinn; virðist
það ekki standa fyrir þrifum.
Hygg ég, að við höfum heldur
ekkert að óttast í þeim efnum.
Hinn íslenzki uppruni okkar
er sögulegt skilríki, sem ekki er
hægt að stinga undir stól. Að
hylma yfir það væri ótrúsemi
við gögn sögunnar.
Islendingar hafa aldrei orðið
að fara huldu höfði, þar sem leið
þeirra hefir legið um heiminn.
Þegar menn gengu á mála hjá
erlendum höfðingjum, gerðu
þeir það sem menn íslenzkir, og
náðu áliti. Tel ég það enn heppi-
lega aðferð.
Ég efast ekki um hreinan til-
gang þeirra, sem líta mál þetta
öðrum augum en hinir.
Ég efast ekki heldur um, að
þegar hið íslenzka nafn kirkju-
félagsins, tilgangur þess og
meining er útlistað, að við
munum njóta til fulls trausts
manna og virðingar, og að það
verði alls enginn þröskuldur í
vegi fyrir bróðurlegu samstarfi.
s. s. c.
Hár aldur
Óvenjuleg afmælisveizla var
haldin á heimili Guðbrandar
Eyjólfssonar í Churchbridge
þann 13. apríl síðastliðinn, en
þá varð föðursystir hans, Mrs.
Elísabet Sigurðsson 101 árs að
aldri; ári áður hafði stór hópur
ættingja og vina heimsótt hana
með kvenfélag sveitarinnar í
fararbroddi á 100 ára afmæli
hennar.
Elísabet er fædd í Bólstaðar-
hlíð í Húnaþingi 13. apríl 1853.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur
Eyjólfsson og Sigþrúður Jóns-
dóttir; hún giftist 1883 Sigurði
Sigurðssyni ættuðum úr Skaga-
firði og eignuðust þau fimm
börn, einn son og fjórar dætur;
á lífi er sonurinn og tvær dætur.
Sigurður lézt 1894 og hefir
Elísabet því verið ekkja í 60 ár.
Hún fluttist til Vesturheims
aldamótaárið og fór þá til bróð-
ur síns, Konráðs Eyjólfssonar
bónda í grend við Churchbridge
og var lengstum á vegum hans
meðan hans naut við; nokkur
síðustu árin hefir Elísabet dval-
ið hjá fyrnefndum bróðursyni
sínum, Guðbrandi.
Gamla konan er enn furðu
hress þó sjón og heyrn sé nokk-
uð farin að bila.
— Messur í Vatnabygðum —
Séra Skúli Sigurgeirson mess-
ar á eftirfarnandi stöðum,
sunnudaginn 8. ágúst:
Kandahar, kl. 11 f. h.
Foam Lake, kl. 2 e. h.
Leslie, kl. 4 e. h.
Mozart, kl. 8 e. h.
☆
Aðfaranótt síðastliðins mið-
vikudags lézt hér í borginni
Böðvar Magnússon 86 ára að
aldri; hann var ættaður frá
Leiðólfsstöðum í Laxárdal.
DR. SIG. JOL. JÓHANNESSON
Minnist landnemanna i Ijóöi
DR. S. E. BJORNSSON
Mmnist Islands i Ijóöi