Lögberg - 29.07.1954, Page 9
Phone 74-1304
Gordon's Confectionery
741 SARGENT AVE.
✓
Modern Soda Fountain
FILMS - NOVELTIES - SOFT DRINKS
Phone 74-1304
Gordon's Confectionery
741 SARGENT AVE.
Modem Soda Fountain
FILMS - NOVELTIES - SOFT DRINKS
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLl, 1954
9
Ásmundur Guðmundsson
BISKUP
t’riðjudaginn 6. október síð-
astliðinn, 1953, varð Ásmundur
Guðmundsson prófessor sextíu
°g fimm ára.. Að því tilefni
komu margir vinir hans og sam-
starfsmenn á ýmsum sviðum
Saman ásamt honum, frú hans
°g börnum. Voru þar margar
ræður fluttar, og veittist mér sú
anægja að flytja ræðuna fyrir
minni heiðursgestsins.
Nú, þegar mig langar til að á-
Varpa hann hér í ritinu, finn ég
ekki önnur orð, sem ég vildi
frekar segja en þá.
Óvænt og mikil breyting hefir
orðið á högum hans. 1 samsæti
því, sem ég gat um, var dr. Sig-
Urgeir biskup, hélt þar ræðu til
heiðursgestsins, og mátti enginn
renna grun í, að nákvæmlega
viku síðar yrði hann kvadur
kéðan af heimi.
En þó að þessi mikla breyting
hafi orðið á högum míns gamla
samverkamanns, hefir það litlu
kreytt í höfuðatriðum. Hann tek
Ur við þessu umfangsmikla og
yandasama starfi. En hann hefir
1 ranu og veru unnið svo mikið
að kirkjunnar málum, að breyt-
mgin verður fyrir hann vonum
minni.
Um leið og ég beini til hans og
Með innilegum kveðjum
í tilefni af
íslendingadeginum
2. ágúst 1954.
I
RICH BROS.
AUTO PAINTING and BODY REPAIRS
Polishing, Simonizing, Upholstering
Oxy-Acetylene Welding
Phone 3-0770 828 Sargenl Ave., Winnipeg
Cor. Burnell
Compliments of . . .
Jubilee
Coal Co.
/
Limited
H. B. IRVING, Manager
Telephone 42-5621
ISLANDS
• Ásmundur Guðmundsson
frúar hans innilegum óskum um
gæfu og gengi í hinni veglegu
stöðu biskupshjónanna, læt ég
birtast hér að mestu það, sem ég
sagði á sextíu og fimm ára af-
mælinu. M. J.
Góður byggingameistari
Það síðasta, sem ég hefi lesið
eftir heiðursgestinn okkar hér í
kvöld, prófessor Ásmund Guð-
mundsson, er stutt ræða í síðasta
og nýútkomnu hefti af Kirkju-
ritinu, en ræða sú var flutt í
CORYDON and OSBORNE — WINNIPEG
dómskirkjunni 17. júní síðastlið-
inn.
Hann leggur þar út af orðum
Páls postula í fyrra Korintu-
bréfi: Sérhver athugi, hvernig
hann byggir ofan á. Því að ann-
an grundvöll getur enginn lagt
en þann, sem lagður er, sem er
Jesús Kristur.
Hann segir þar m.a.: „Guð hef-
ir sjálfur lagt grundvöllinn, hinn
hæsti höfuðsmiður himins og
jarðar, eins og feður vorir kom-
ust að orði.“
Og á öðrum stað segir hann:
„Ekkert ævistarf—enginn steinn
í framtíðarbygging I s 1 a n d s,
menningar þess og lýðfrelsis, má
vera svikinn -j- aðeins einn
steinn, illa lagður, getur valdið
hruni.“
Ég vil hefja mál mitt með því
að segja, að eftir 40—50 ára við-
kynningu við þennan mann, tel
ég' að fáir góti með betri sam-
vizku en hann tekið sér þessi orð
í munn.
Fyrst: Grundvöll lífs okkar
verðum við að þiggja að gjöf frá
hinum hæsta höfuðsmið.
En því næst, og þar vill oft
bresta á hjá okkur flestum: Vér
eigum sjálfir að byggja ofan á.
Og þar má ekkert svikið vera.
Mér er sem ég sjái mynd heið-
ursgestsins okkar í kvöld í þess-
um orðum: Enginn steinn má
vera svikinn. Aðeins einn steinn,
illa lagður, getur valdið hruni.
Hin ríka, ósveigjanlega, undan
tekningalausa skyldurækni —
mér hefir alltaf fundizt hún vera
megin einkenni prófessors Ás-
mundar Guðmundssonar.
-☆
Fundum okkar hefir sennilega
borið fyrst saman fyrir rétt um
hálfri öld — svona gamlir erum
við nú orðnir. En ég man lítið
eða ekkert eftir honum frá þeim
samfundum okkar — í latínu-
skólanum — og hann man senni-
lega ekki heldur eftir mér frá
þessum tíma. Ég var ekki í skóla
nema einn vetur, 1903-04, og þá
var heiðursgesturinn okkar þar
líka. Ég var þar í 3 bekk, ein-
hverjum stilltasta bekk skólans,
en hann? — Hvar var hann?
Hann var í 2. bekk, ólátabekkn-
um fræga, sem var að kalla má
sprengdur í loft upp. Honum var
lokað og allir reknir, þeir yfir-
heyrðir og þjarmað að þeim á
allan hátt. — Já, reyndar, í þess-
um voða bekk var hann. Og
hann hefir meira að segja skrif-
að um það. Og ég get um þetta
svo vandlega vegna þess, að ég
verð að játa, að þessi starfsemi
heiðursgestsins, ærslin og ólætin
eru með veigaminnstu þáttunum
í ævista*rfi hans, svo að því
verður að tjalda, sem til er.
Kunningsskapur okkar hefst í
raun og veru ekki fyrr en haust-
ið 1909, þegar hann kemur, haf-
andi í millitíð tekið stúdents-
próf með ágætiseinkunn og svo
heimspekipróf og hebreskupróf
í Kaupmannahöfn, vafalaust
líka með sóma, og setzt í Presta-
skólann. Þar kynntist ég þá fyrst
þessum mikla bókamanni og lær
dómshesti, og er ég þar með kom
inn að þeirri hlið á ævistarfi
hans, sem líklega er meginþátt-
urinn í hans ævistarfi, þó að um
stund væri hann við önnur störf.
En hann kemur að guðfræði-
deild Háskólans 1928 og hefir
kennt þar síðan, sérstaklega blb-
líuskýringu gamla og nýja testa-
mentisins.
Hér er vitanlega hvorki stund
né staður til þess að ræða vís-
indastarfsemi prófessors As-
mundar. Það væri nægilegt efni
í heilan fyrirlestur eða tímarits-
grein og verður vafalaust frá því
gengið á sínum tíma. En ég vil
hér aðeins sega það sem mína
sannfæringu, að lærðari mann í
þessum fræðum hefir Háskóli
vor ekki fengið, hvorki í gamla
testamentis- né nýja testamentis
fræðum, að öðrum ólöstuðum.
Get ég þó eðlilega betur dæmt
um nýja testamentisfræðin.
Bækur þær, sem hann hefir rit-
að og gefið út um þau efni,
standa alveg skrumlaust á efsta
þrepi þess, sem í þeim fræðum
er unnið á vorum tímum að lær-
dómi og vandvirkni, og væri ó-
hætt að gefa þær út á hvaða
máli sem væri—þar eru alstaðar
til sóma og í fremstu röð. Nefni
CONGRATULATIONS
to the lcelandic People on the
Occasion of the 65th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 2nd, 1954.
SARGENT FLORISTS
739 Sargent Avenue WINNIPEG, Manitoba
Phone 74-4885
Með innilegum kveðjum
í tilefni af
íslendingadeginum
2. ágúst 1954.
STEWART ELECTRIC CO. LTD.
STORE No. 2 743 Ellice Ave. Phone 72-8681
TV., RADIO and APPLIANCE SERVICE
ég þá sérstaklega þrjár af þeim:
Bók hans um samstofna guð-
spjöllin, skýringar hans á Mark-
úsaguðspjalli og bók um æfi
Jesú. Þær eru margra ára verk,
studdar bæði bóklestri utan
lands og innan, kennarareynslu
og hæfileikum höfundarins.
Þetta segi ég óhikað, og á þessu
hefi ég vit. Ég hefi lesið það, sem
ég hefi yfir komizt um þessi
fræði. Ég veit, að þar er enginn
fullkominn og skoðanirnar eru
mismunandi, en gildi verkanna
fer eftir hæfileikum, vinnu og
hófsemi í dómum. Prófessor Ás-
mundur hefir unnið þessi verk
sín fyrir Háskóla vorn, bæði rit-
störf og kennslu, eftir reglunni
um byggingamanninn, sem ég
gat um í upphafi. Háskólabygg-
ing vor mun ekki hrynja vegna
óvandraðrar vinnu á þeim stein-
um, sem hann hefir í hana lagt,
— og eru þeir steinar bæði marg-
ir og miklir.
☆
En þó að lærdómurinn væri
vitanlega aðal verkefni okkar í
Prestaskólanum, þá brauzt þá
lífið þar fram í fleiri myndum
undir forustu, eða kannske eins
oft undir þolinmæði og umburð-
arlyndi og ríkum skilningi okk-
ar ágætu kennara, Jóns Helga-
Framhald á bls. 13
CONGRATULATIONS |
to the lcelandic People on the
Occasion of the 65th Anniversary
of their Annual Celebration Day
at Gimli, August 2nd, 1954.
MUIR'S DRUG STORE
JOHN CLUBB
FAMILY DRUGGISTS
Home and Ellice Phone 74-4422
Minnumst
sameiginlegra erfða
á íslendingadeginum
á Gimli, 2. ágúst, 1954.
E. & F. FURNITURE FINISHERS
Specializing in
REFINISHING PIANOS and FINE FURNITURE
Phone 72-7862
663 Ellice Ave. Winnipeg, Man.
HAMINGJUÓSKIR
til íslendinga í tilefni af 65.
þjóðminningardegi þeirra
á Gimli, Man., 2. ágúst 1954
y
★
Vér höfum einn hinn allra fullkomnasta
útbúnað til þess að veita móttöku öllum
tegundum korns um uppskerutímann.
Ábyggileg og skjót afgreiðsla
Parrish & Heimbecker Ltd.
661 GRAIN EXCHANGE BLDG. WINNIPEG
Sími 92-2247
Gimli Agent - - B. R. McGIBBON
Moosehorn Agent - R. A. ALTMAN