Lögberg - 29.07.1954, Síða 12

Lögberg - 29.07.1954, Síða 12
12 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLÍ, 1954 Ræða forsela íslands: 17. júní: Hið forna lýðveldi er móðir þess endurreista Vér erum hér staddir á íþrótta- móti, og íþróttamenn voru einna fyrstir til að helga sér þennan dag, sem þó fyrst og fremst er helgaður af tilkomu Jóns Sig- urðssonar og hans ævistarfi. Fyrir tíu árum var þessi þjóð- minningardagur staðfestur af þingi og þjóð með endurreisn lýðveldis á íslandi. Úr þessu verður þjóðhátíðardeginum ekki haggað. Á þessu móti er það venja að veita verðlaun fyrir bezta afrek ársins. Ef spurt væri, hvert væri bezta afrek ársins 1944, mundu allir svara einum rómi: Stofnun lýðveldisins á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar af einhuga þjóð. Fyrir þann tíma orkaði sumt tví- mælis í sjálfstæðisbaráttunni, en einhuga var hún útkljáð. Vér gætum nú nefnt þá forustumenn í sömu andrá, sem stóðu á önd- verðum meið í íslenzkum stjórn- málum fram að 1918. Nú finnst oss öll baráttan hafa stefnt að sama marki þó að deilt væri um leiðir. Milli 1918 og 1944 sam- einaðist þjóðin. Slík allshugar eining var mikils virði, ágætur endir á langri baráttu, upphaf ungs lýðveldis á fornum grunni. Sú þjóðareining á úrslitastund er langri framtíð til fyrir- myndar. í dag höfum vér lokið einum áfanga. Hann er ekki langur, þegar vér minnumst þúsund ára sögu og hugsum til þess skeiðs, sem vér eigum framundan. En vér getum í dag minnzt hans með fögnuði. Sú rödd mun ekki HAMINGJUÓSKIR til íslendinga í tilefni af 65. þjóðminningardegi þeirra ó Gimli, Man., 2. ógúst 1954 MODERN GARAGE GIMLI BODY REPAIR - PAINTING W. STASIUK, Proprietor MANITOBA CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. SELKIRK LUMBER COMPANY /or your BUILDING MATERIAL, SASH AND DOOR Selkirk, Man. Phone 3181 Winnipeg Beach Phone 72 'r=° 3°<=^ 6 HAMINGJUÓSKIR |. 0 til Islendinga í tilefni af 65. þjóðminningardegi þeirra ó Gimli, Man., 2. ógúst 1954 il's Barber Shop —>Q<~T~T>< CENTRE ST. No. 80 GIMLI, MAN. r>o<- ■ >o<-->ogrsfl<->n<-->o<-->«<----■»»<■■■ >rw---->rw-->n<-->ri<-->f><->< oS CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. BURNS BROS. LTD. til, sem í dag efast um, að vér höfum fyrir tíu árum stigið rétt spor. Allir áfangar í sjálfstæðis- baráttunni frá endurreisn Al- þingis hafa skilað oss fram á veg- inn, aukið velmegun þjóðarinn- ar og traust á því, að hvað sem öðru líður, þá stjórnar enginn íslenzkri þjóð betur en hún sjálf. Það vill nú svo til, að sjálf- stæðið færir oss mörg ný og sum óvænt viðfangsefni. Einangrun undanfarinna alda, með kostum og göllum, hefur samt bjargað því, að hér hefur varðveizt tunga og þroskazt þjóðerni, sem kallaði á fullveldi af fjárhags- legri og menningarlegri nauð- syn. Vér skulum ekki vanmeta fortíðina þrátt fyrir harðindi og mótlæti. Án þeirrar miklu sögu værum vér ekki þjóð. Hið forna lýðveldi er móðir þess endur- reista. Saga vor hefur samhengi og tilgang, er lýsir fram á veginn og styrkir trúna á framtíðina. Hún minnir oss einnig á, að full- veldið kom ekki eins og fyrir- hafnarlaus gjöf, heldur vannst það fyrir langa og stranga bar- áttu ágætra íslendinga. Þeir eru fleiri en hér er hægt upp að telja, en nú rennum vér til þeirra þakklátum huga. Þeirra gömlu hugsjónir ganga ekki úr sér, þó mörgum áföngum sé náð. Frels- ið, sjálfstjórn og einingu í þeim efnum, sem mestu máli skipta, þarf að varðveita ekki síður en að vinna. Til varnaðar megum vér líka minnast þess innan- landsófriðar, sem á þrettándu öld dró lokur frá hurðum. Á þessum degi getum vér einnig minnzt vorrar gömlu sambandsþjóðar með sama huga og þegar góðir íþróttamenn tak- ast í hendur að lokinni glímu. Vor síðasti konungur óskaði oss allra heilla fyrir tíu árum, og ég hygg að slíkt sé nokkuð einstakt í sögunni. Eitt vort nýja við- fangefni er umgengnin við aðrar þjóðir, og raunar öll utanríkis- stefna þessara nýju tíma, þegar einangrimin er horfin, og fjar- lægðirnar orðnar hverfandi á móts við það sem áður var. Og ef véf eigum, eins og sjálfsagt er, að sýna öllum vinsemd og skiln- ing, þá eiga Danir ekki skilið að vera afskiptir. Sá sem er laus úr hafti, þarf ekki að halda áfram að hoppa. Og í rauninni ættu bæði Danir og Islendingar nú að vera stoltir gagnvart alheimi af því hvernig þeir leystu sín mál með samningum og skilnaðar- kveðjum. Höfuðstoð vor sem sjálfstæð I þjóð meðal annara þjóða er sá þroski, sem vér sýnum í sjálf- stjórninni. Vér höfum hvorki á að byggja mannfjölda né afl, heldur manndómi einum. Ein- staklingurinn og hans þroski er því meira -virði sem þjóðin er fámennari. Sú virðing, sem oss tekst að afla oss er vor höfuð- vörn. Smáþjóðir hafa oft sýnt, að þær hafa ekki minni menn- ingarskilyrði en hinar stærri, og af mörgum ástæðum er mikils vænzt af oss íslendingum í því efni. Ég fullyrði, að gáfur skortir ekki, ef önnur skapgerð er af sama skapi. I þeirri baráttu, sem vér heyjum á velgengni þjóðar- innar, öryggi hennar og heiður að vera bæði hvöt og hemill. Það eru leikreglur samfélagsins. Góðir íþróttamenn! í’ yðar keppni mótast þetta hugarfar, sem þjóð vorri ríður mest á. Mér þykir því tilhlýðanlegt að af- henda forseta íþróttasambands íslands á þessu tíu ára afmæli lýðveldisins verðlaunabikar með þeim tilmælum, að hann verði veittur þegar á þessu móti fyrir bezta afrek ársins í frjálsum íþróttum. —Alþbl., 19. júní Gömul kona kom til frægs doktors í tónlistarfræði. — Ó, heyrið þér, herra dokt- or! sagði hún. — Ég ætla að biðja yður um að gera eitthvað fyrir heyrnina mína! — Þér hafið farið manna villt, svaraði doktorinn; — ég er dokt- or í tónlistarfræði en ekki lækn- isfræði. — Ég veit það vel; — ég hef alls ekki farið manna villt. Það er nefnilega svo mikil fölsk hljómlistinni í höfðinu á mér! Alþjóðaróð tón- skólda stofnað hér í gær var stofnað á Þingvöll- um Alþjóðaráð tónskálda, en Tónskáldafélag íslands, boðaði til stofnfundarins. Fulltrúar tíu þjóða voru á stofnfundinum, en fundarstjóri var Jón Leifs, formaður Tón- skáldafélags íslands. í ráðinu eiga sæti einn f ulltrúi frá hverju andi, fulltrúar tónlistar æðri tegundar. Stofnendur ráðsins eru: Salva- tore Allegra (Italíu), Henri Du- tilleux (Frakklandi), Klaus Egge (Noregi), Hilding Hallnas [Sví- þjóð], Karl Höller (Þýzkalandi), Jón Leifs, Rovsing Olsen [Dan- mörku, Olavi Pesonen, Finn- landi; Oskar Wagner, Austur- ríki; og Guy Warrack, Bretlandi. Ráðið hyggst beita sér fyrir list- rænum samskiptum tónskálda. I stjórn ráðsins voru kjörnir fultrúar íslands, Noregs, Bret- lands, Frakklands og Þýzka- lands. — Ráðið heitir á frönsku: Conseil Intemational des Com- positeurs, tsytt: C.I.C. — VISIR, 18. júní Með innilegum kveðjum í tilefni af Islendingadeginum 2. ágúst 1954. WHITE'S ESSO SERVICE A Complete Service jor Your Car Phone 74-1522 Maryland and Sargent Winnipeg, Man. CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. JANIS LYNN Selkirk’s Fashion Centre jor Ladies” Phone 4391 Kontz Bldg. Selkirk. Man. Minnumst sameiginlegra erfða á íslendingadeginum á Gimli, 2. ágúst, 1954. MIKE & JOHN'S LUNCH BAR 615 SARGENT AVE. WINNIPEG CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. / WILSON'S CONFECTIONERY PICARDY AGENCIES 589 Sargent Ave. Phone 74-1334 <poc ~>n<->n<->n<->flf->Q<—rT>Q<-T^Q<TT^>Q<TT^O<r^T>Q<TTTT>Q<T^>Q<->Q< -->Q<" ->Q<—T>OC HAMINGJUÓSKIR til íslendinga \ tilefni af 65. þjóðminningardegi þeirra v á Gimli, Man., 2. ágúst 1954 GIMLI THEATRE HARRY GREENBERG, eigandi Qr^r>< nr—>n<~—>rw----->n<~-~—>r><->n<-->n/ ■ >/>< 1 >n< >r><-->n<-->/><"’ >fir,l>n<"->QC 9 CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. Hardy's Food Market FRUITS - GROCERIES - FROZEN FOODS Phone 74-3253 591 Sargent Ave. Cor. Sherbrook St. "”"1 Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 2. ágúst 1954. Munið hinn vingjamlega stað þar, sem vinir jagna vinum! OXFORD HOTEL 216 NOTRE DAME AVE. SÍMI 92-6712 í húsinu er gjallarhorn irt-.t urn til ánægju og þæginda. JOSEPH STEPNUK S. M. HENDRICKS President Manager

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.