Lögberg


Lögberg - 29.07.1954, Qupperneq 20

Lögberg - 29.07.1954, Qupperneq 20
20 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLÍ, 1954 Hleypti þremur ófullgerðum skipum af sfokkunum og sprengdi sjö strandvirki í loft upp var þó aðeins 72 setnll metrar á hæð í síðasta stríði höfðu stríðs- aðilar ýmsar aðferðir við að vinna hvor öðrum tjón að baki víglínanna. Einna sér- kennilegastur fulltrúi óvina- þjóðar í Bretlandi í stríðs- byrjun var hinn svonefndi sandsekkur, þýzkur dvergur, er vann ýmis skemmdar- verk á suðurströnd Eng- lands og beitti við það að- ferðum, er voru harla nýstár legar. Dvergur þessi var trúður að atvinnu og þýzkur liðsforingi átti heiðurinn að þeirri hugmynd, er kom dvergnum út í þann œgileg- asta trúðleik, sem hann innti af hendi um ævina. Eina myrka nótt flaug þýzk flugvél inn yfir strönd Englands og þóttu það engin tíðindi í þá daga. En leyniþjónustan brezka hefði viljað gefa mikið fyrir að vita um farangur þeirrar vélar, sem ekki voru sprengjur að þessu sinni. Er vélin var stödd um tuttugu kílómetra frá Lon- don var farangri hennar varpað fyrir borð í svartri fallhlíf. Vélin var þá á flugi yfir stórum golf- velli. Farangur þessi var maður, er hafði bundið við sig koffort. Lending mannsins tókst björgu- lega og víkur nú sögunni til Þýzkalands. Einfættur liðsforingi■ fær hugmynd í orustunni um Amiens sum- arið 1940 særðist enskmenntaður Þjóðverji og var tekinn af hon- um annar fóturinn. Hann dvaldi á hressingarhæli í Hamborg á meðan hann var að jafna sig og venjast því að ganga við gerfi- fót. Er hann var orðinn vel ról- fær, varð honum litið eitt kvöld inn til Bingens sirkusins. Er hann hafði horft á fimmta at- riðið í leikskránni, fékk hann skyndilega hugmynd, sem hann hugleiddi náið. Viku síðar var hann staddur í Berlín og kominn á fund yfirmanna leyniþjónust- unnar þýzku. Hann lagði fyrir þá tuttugu vélritaðar skýrslur, sem þeir lásu með athygli. Þeir féllust á ráðagerðir hans og var nú farið að vinna að því að hrinda málinu í framkvæmd. 72 sentimetra maður kveður general Þeir háu herrar í Berlín vildu ekki gefa fullnaðarsamþykki sitt til framkvæmdanna fyrr en þeir höfðu séð þann aðilann, er mest reið á í þessu máli. Var nú sent skeyti til forstjóra Bingens sirkusins og honum skipað að mæta hjá leyniþjónustunni í Berlín ásamt starfsmanni sínum að nafni Franz Bisehoff. Þremur dögum síðar kom forstjórinn og hafði koffort meðferðis. Síðan fór fram kynning á milli manna. Koffortið stóð á gólfinu og for- stjóri sirkusins spurði hvort hann mætti kynna herra Franz Bischoff, nefndan Carlo. Hann gerði um leið hárfína handar- hreyfingu í áttina til koffortsins og gekk síðan að því og apnaði það. Upp úr koffortinu steig 72 sentimetra hár dvergur. Það var Carlo. Hann lagði sig út áf í koffortinu og hnipraði sig sam- an. Lengd hans nam þá ekki nema 39 sentimetrum. Leikþátt- ur Carlos var númer fimm á leik- skránni. Það varð að samkomu- lagi að dvergurinn innti af hendi nokkur skyldustörf fyrir for- ingjann og föðurlandið. Þessi 72ja sentimetra dvergur kvaddi sinn general og næst finnum við hann lentan í kofforti sínu um nótt á golfvelli fyrir utan Lon- don, ásamt einfætta liðsforingj- anum, er talaði ensku eins reip- rennandi og þulur hjá BBC. Sandsekkur í varnargarði um loftvarnábyssu Liðsforinginn fékk brátt vinnu sem sölumaður og stefndi hann för sinni til suðurstrandarinnar. Hann hafði tvö koffort með- ferðis, annað var lítið og hafði að geyma vörusýnishorn, en hitt var nokkru stærra og þar var Carlo geymdur. Ekki leið á löngu, unz loftvarnastöðvar á suðurströndinni fóru að springa í loft upp og vissi enginn um ástæður. Þrátt fyrir ötult starf brezku leynilögreglunnar, gat hún ekkert að gert. Alls voru sjö stöðvar sprengdar. Enginn setti það í samband við hinn einfætta sölumann, er bauð vöru sína um þessar slóðir,. Enginn hafði heldur grun um það, að í óðru koffortinu hafðist sprengju valdurinn við. Carlo hafði þann sið, að stökkva úr geymslunni á afviknum stað í nán við stöðv- arnar, klæddur í poka, eins og þá sandpoka, sem hlaðnir voru um stöðvarnar. Reif hann síðan poka úr hleðslunni og lagðist sjálfur í staðinn og beið síðan færis að hlaupa úr hleðslunni, þegar enginn sá til og koma sprengiefninu fyrir. Frœnka einfætta sölu- mannsins veikist Skömmu eftir þessar spreng- ingar var unnið skemmdarverk á stóru herskipi, er lá í Ply- mouth. Stórskemmdist stefni þess af völdum sprengju, sem hafði verið komið þar fyrir í skjóli myrkurs. Fjórtán dögum síðar var þremur hálfbyggðum skipum hleypt af stokkunum við Clyde. Þessir skipsskrokkar sukku samstundis. öll voru skipin sprengd laus úr stöðum sínum með tveggja tíma milli- bili. Fáir veittu einfættum sölu- manni eftirtekt, sem bauð vöru sína á þessum slóðum og enginn vissi ,að 72ja sentimetra dvergur hafði með eigin höndum hleypt þessum þremur skipum af stokk- unum í ótíma. Næst átti að vinna hervirki í Cardiff, en skömmu áður en þeir félagar ætluðu þangað veiktist dvergurinn. Sölu maðurinn fór nú til lyfsala og bauð honum vörur, en spurði í leiðinni hvaða meðul hann ætti að fá handa frænku sinni, er ekki vildi leita læknis af trúar- ástæðum. Sjúkdómur dvergsins stafaði af of mikilli innilokun og lét lyfsalinn sölumanninum í té meðul, sem dugðu í bili, en brátt sótti í sama horfið. Hringurinn þrengist um smávaxinn spellvirkja Nú var brezka leyniþjónustan komin á sporið, mest fyrir það, að ýmsir aðstoðarmenn höfðu beðið um herbergi í gistihúsum The Manitoba Power Commission Your HYDRO — Use IT uVið höllumst öll á Hydro sveif / í Manitoba” Fyrir níu árum aðeins, áttu 1,000 bændur í sveitum Manitoba aðgang að raforku. Eins og nú horfir við, njóta öll bænda- býli, þar sem því verður við komið, þeirra hlunninda, sem raforkan getur veitt . . . og þetta má þakka Manitoba Power Commission, sem nú er í þann veginn, að fullkomna skipulagningu sína á vettvangi raforku- málanna. Aukin lífsþægindi og aukin framleiðsla hefir fallið í skaut yfir 39,000 bændabýlum í Manitoba. Þannig er þróun Manitoba Power stofnunarinnar ... og þróun sveitanna í Manitoba. í Cardiff og grend fyrir dverg- inn og liðsforingjann. Þeir gátu ekki haldið áætlun og ýmsir grunaðir aðilar voru yfirheyrð- ir. Þetta olli því, að hringurinn þrengdist óðum um þá félaga. Stöðug veikindi dvergsins ollu líka miklum erfiðleikum og var svo komið, að hann þurfti sýni- lega sjúkrahúsvistar með, ef hann átti að halda lífi. Liðsfor- inginn kom skeytum til Þýzka- lands um heilsufarið, árangur- inn og grunsemd leyniþjónust- unnar brezku. Fékk hann síðan svar upp á það, að koma með dverginn á vissan stað í Suður- Englandi. Gerði hann það og var CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 65th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 2nd, 1954. WINNIPEG’S EXCLUSIVE HILLMAN DEALER WALSH-GRAHAM MOTORS Ltd. Cor. Sargeni and Home Phone 74-2576 Greetings to Our lcelandic Friends and Customers on their 65th Anniversary HI-GRADE UPHOLSTERY AND DRAPERY SERVICE ■ix Custom Built Chesterfields. •fe Remodelling and Re-covering. Draperies Made-to-Order. 625 Sargent Ave., Winnipeg Phone 3-0365 Waghorn’s Guide ALL TABLES OF TRAVEL BY RAIL. AIR AND BUS COVERING WESTERN CANADA. Also Complete Shipper’s Postal Directory. MAPS Commercial Maps of Western Canada, or any part. Scaled and geographically correct. Up-to-date. Combined maps showing both railways and also the highways on the same map. Crop district maps, Judicial maps, Census maps, etc. Copyrighted. R. G. STINSON PUBLISHERS 216 "A" Phoenix Block WINNIPEG, Man. Phone 93-3192 Hveitbændur 1 Flytjið korn yðar til kornhlað N. M. PATERSON & SON LTD. Cypress River, Man. - - - PERCY WILSON Holland, Man. - - - - JACOB FRIESEN Swan Lake, Man. - HARRY VAN HOOLAND Minnumst sameiginlegra erfða 6 íslendingadeginum ó Gimli, 2. ágúst, 1954. N. M. PATERSON & SONS LIMITED 609 Grain Exchange Building WINNIPEG CANADA

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.