Lögberg


Lögberg - 29.07.1954, Qupperneq 27

Lögberg - 29.07.1954, Qupperneq 27
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 29. JÚLI, 1954 27 Loftslag jarðarinnar fer stöðugt hlýnandi og jöklar norðurhvelsins dragast satnan 1 heimsstyrjöldinni fyrri urðu menn fyrir alvöru sannfærðir um það, að miklar loftslagsbreyt ingar væru í aðsigi á norður- hveli jarðar. Varð þessa fyrst vart við fiskirannsóknir undan Grænlandsströndum, en rann- sóknarleiðangurinn veitti því at- hygli, að selirnir, sem höfðu ver- aðalveiði Grænlendinga, voru að hverfa af suðlægum stöðvum °g stefndu til pólarhafsins. Nokk Ur gleðiauki var að því, að í stað- inn fyrir selina var hafið að fyll- ast af góðum og feitum þorski, en gjöful fiskimið við Græn- landsstrendur eru staðreynd í ^ag. Þetta benti til þess, að hafið væri að hlýna og hlýindatímabil væri yfirleitt að fara í hönd á þessum slóðum. I sambandi við þessar rann- sóknir vaknaði sú spurning, hvort hitaaukningin væri bund- in eingöngu við norðurhvelið eða hvort loftslag allrar jarðar- innar væri að hlýna. Gott dæmi Um rýrnun Grænlandsjökulsins er það, að hann er farinn að skila því aftur, sem hann hafði fyrir eina tíð hulið í íshrammi sínum. Flugvélarflakið kom aftur Árið 1928 nauðlentu t v e i r Bandaríkjamenn flugvél á Græn landsjökli, en komust lifandi til strandar. Ekki var reynt að hjarga flugvélinni, þar sem talið Var, að hún hefði skemmzt svo mikið í lendingu, að ekki væri við hana gerandi. Gleymdist t>rátt þessi atburður. Ekkert sást eftir af vélinni innan tíðar, og var hún hulin snjó og ís. 1 síðari heimsstyrjöldinni gerðust svo þeir atburðir, að flugmaður úr handaríska hernum var á flugi yfir jöklinum og sá þá hvar flug- vél lá ofan á honum. Hafði hann ekki vitað um neina nauðlend- mgu á jöklinum, svo að hann hjóst við að þetta kynni að vera óvinaflugvél og tilkynnti um fundinn. Var málið rannsakað og kom þá í ljós, að þetta var flugvélin, sem nauðlent hafði verið árið 1928 og nú komin öll upp úr jökli. Lá hún skáhallt á ísfláka. Þetta tilvik þótti vísindi mönnum góður fengur og renna gildum stoðum undir þá skoðun, að jökulhetta Grænlands væri farin að dragast saman. Loftslagið að hlýna um alla jörð Kunnur kanadískur jarðfræð- ingur, sem hefir kynnt sér ítar- lega loftslagbreytingar undanfar inna ára, telur, að víst sé, að loftslag jarðarinnar fari hlýn- andi með hverju ári. Telur hann margt benda óvéfengjanlega til þess, svo sem samdráttur jökla við bæði hvel jarðar og einnig vaxandi hitabeltisgróður utan fyrri takmarkana. Þessi vísinda- maður heldur því fram, að ekki þurfi lengur að spyrja um þessa loftslagsbreytingu, heldur beri að beina rannsóknum næstu ára að áhrifum þeim, sem breyting- in kann að hafa í för með sér. I kuldabeltinu umhverfis norður- pólinn bráðnar ísinn jafnt og þétt og Norður-lshafið, sem áður var að stórum hluta hulið ís, er nú fært skipum allan ársins hring. Stultur vetur 1 Norðvestur-Evrópu hefir vet urinn stytzt að mun að undan- förnu og er eiginlega ekki fyrr en aflíðandi jólum. Jafnframt þessu styttist vorið og stundum er komin sumartíð nær strax og vetrinum sleppir. I Bandaríkj- unum og Suður-Ameríku eiga menn við að stríða langvarandi þurrka og miklar hitabylgjur á meðan óvenjuleg skýjaföll verða í Suður-Afríku, og Lundúnaþok- an verður svo þétt og eitruð, að læknar ráðleggja fólki að hafa gasbindi fyrir vitum. Fyrir tutt- ugu og fimm árum taldist svo til að tólf prósent af hnettinum væri undir ís, en nú eru tíu pró- sent talin undir ís. Vísindamenn tala um þetta ísagráð sem hættu- 1 e g a jafnvægisbreytingu og benda á, að mikið af þeim ís, sem er að hverfa, sé hinn svokallaði eilífi ís, sem hingað til hafi veitt vatni til nokkurra stærstu fljóta jarðarinnar. Nú ganga þessi fljót stöðugt saman og jarðfræðingar halda því fram, að einn dag kunni að fara svo, að vatnsaflsr- stöðvar hverfi úr sögunni af þeim sökum. Vandamál í Ölpunum Margir hóteleigendur í sviss- nesku frönsku og austurrísku Ölpunum eru mjög óánægðir með þessa veðurfarsbreytingu. Fyrir fimmtíu árum byggðu þeir hótel sín í mikilúðlegu umhverfi steinsnar frá hinum eilífa ís og snjó. Nú er þeim ógerlegt að sýna gestum sínum svo mikið sem snjódrift af veröndum hó- telanna. Hitinn veldur því, að snjórinn og ísinn gufa upp í gufuhvolfið. Hið fræga Saltvatn mormónaríkinu Utah, hefir minnkað að helming að undan- förnu. Tchadvatnið í Afríku, Dauðahafið og Kaspíhafið og önnur stór innsævi og vötn minnka óðum. Það er því ekki að efast um loftslagsbreytinguna. Enn er hennar ekki farið að gæta meðal fólksins, en dýr og gróður eru þegar farin að hegða sér sam- kvæmt henni. Skógurinn er að vinna ný lönd í norðri, í Kana- da, Síberíu, Noregi og Svíþjóð. Kýr og kindur lifa góðu lífi á Grænlandi og Novaja Zemlja. Tómatar vaxa undir berum himni í Alaska. Fiskur, fuglar, skriðdýr og skorkvikindi sækja í norðurátt. Nýtt landnám er hafið. Hvað um manninn? Læknar og líffræðingar álít.a, að maðurinn muni breytast nokkuð við loftslagsbreytingar Hins vegar mun sú breyting verða hægfara. Kunnir vísinda menn, sem hafa kynnt sér þessi mál, halda því fram, að sumir þeir sjúkdómar, sem áður voru afar sjaldgæfir, en hafa nú gosið upp á ýmsum stöðum, kunni að einhverju leyti að stafa af breyt- ingunum og vegna þess að líkam ir okkar eigi bágt með að venja sig við hærra hitastig og rakara loftslag. Að sjálfsögðu ganga þessar breytingar mjög hægt fyrir sig og ekki minna en tíu aldir, þar til hitabeltisgróð- urs fer að verða vart í Evrópu. Roskin vingjarnleg kona gaf sig á tal við fjögurra ára telpu á götunni, og konan bar upp hina venjulegu spurningu: — Hve gömul ertu, væna mín? — Ég er 4 ára, svaraði telpan, en verð bráðum 5. — Jæja, — hvenær er það? — Á afmælinu mínu, auðvitað! ☆ Tízkukonungurinn Christian Dior fékk heimsókn af ungri og fallegri stúlku um daginn. — Ég ætlaði að biðja yður að útbúa ballkjól handa mér. Hann á að vera þannig, að móður minni finnist hann vera alveg eins og sniðin fyrir ungar stúlk- ur, — en öllum öðrum finnist hann vera fullorðinslegur! » í 1 Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 2. ágúst 1954. NORTH END TIRE CO. LTD. Complete line of Auto Accessories, Tires and Tubes. Wholesale and Retail. Batteries and Second-Hand Tires. Complete Vulcanizing and Retreading. 859 MAIN ST. PHONE 59 6371 Greetings On Your 65th Anniversary! 59950 MAN HATTAN 21" TELEVISION The truly magnificent Customline chassis with 24 tube power, 12" speaker, picture-sharpening Velvet Vision and convenient phono-jack make the Manhattan a proud member of the Imperial family. You may make your selection from Walnut, Mahogany, Autumn Leaf Mahogany or Black Decorated finishes. H. 38" W. 24%" D. 23-7/16". SELECT HOME FURNISHINGS 518 SELKIRK AVE.. WINNIPEG PHONE 59-6801 HJARTFÚLBNAR HÁTÍRARKVEOJUR \ til íslenzka mannfélagsins í tilefni af sextugasta og fimta þjóðminningardegi íslendinga á Gimli þann 2. ágúst 1954! Erfiðleikar íslenzkra frumherja í þessu landi voru miklir og í ýmsum tilfellum átakanlegir; en hér fór sem oftar, að sigurmáttur hins norræna eðlis varð öllum eldraunum yfirsterkari, enda heldur það jafnan veIIi, sem hæfast er. Nú hafa íslenzkir brautryðjendur, þeir, er hér lögðu grundvöll að fjölda fagurra nýbygða, flestir safnast til feðra sinna, en minninguna um táp þeirra og fórnarlund geyma niðjarnir \ þakklátum huga frá manni til manns. KEYSTONE tf-iAslte/Ueá, Jlimlted 60 LOUISE STREET, WINNIPEG Sími 92-5227 G. F. JÓNASSON, forstjóri og eigandi

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.