Lögberg - 01.08.1957, Blaðsíða 17
FAST EFFICIENT SERVICE ON THE HOME OF FINE WEDDING
COMMERCIAL ASSIGNMENTS PHOTOGRAPHS
(Dajuidáon. StudioA, v n ith p 1 rr C'OaoidAon.. SJbudioA.
PHOTOGRAPHERS >/«% M V\ V V V s\ PHOTOGRAPHERS
Phone 4-4133 Phone 4-4133
. 106 Osborne Street WINNIPEG 106 Osborne Street WINNIPEG
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1957 17
ÞÓRÐUR TEITSSON:
BORGIN GRÆNA
Vancouver er helzla hafnarborgin á Kyrrahafsslrönd
Borgin Vancouver í Brezku
Kólumbíu í Kanada, er ein
fegursta borgin á Kyrrahafs-
ströndinni, enda er þar mikill
ferðamannastraumur.
Vancouver er þriðja stærsta
borg Kanada, með um 400
þúsund íbúum, og séu út-
hverfin talin með, er íbúatal-
an um 600 þúsund. Hún er 50
kílómetra frá bandarísku
landamærunum. Vancouver
er aðal-hafnarborgin fyrir
Kanada við Kyrrahaf og er
höfnin vel staðsett í miðri
borginni. Þegar siglt er inn í
höfnina er farið undir hina
miklu brú “Lions Gate
Bridge,” en hún er lengsta brú
í brezka heimsveldinu, 1500
fet á lengd og 370 fet á hæð.
Sumarið er langt
íbúum borgarinnar hefir
fjölgað mjög ört, sem sjá má
af því, að um síðustu aldamót
voru aðeins um 2000 manns
búandi þar. Hið sérlega milda
og góða veðurfar á sinn mikla
þátt í þessum miklu aðflutn-
ingum, en veðurfarið í Van-
couver er talið það bezta í
Kanada. Sumar er þar frá því
í marz og þar til í nóvember,
hitar þó aldrei mjög miklir,
meðalhiti 18—20 stil á Cilcius.
vetur eru mildir, frost mjög
sjaldan og snjó festir aldrei-
Hins vegar eru veturnir rign-
ingasamir. Skýrslur sýna, að
sterk sól er að meðaltali 5 klst.
á dag allt árið.
Vegna þess að borgin er
byggð með Kyrrahafsströnd-
inni, er mikið um baðstrendur
í henni, sem óspart eru notað-
ar af íbúunum og ferðamönn-
um, auk þess sem 5 útisund-
laugar eru byggðar út í sjó.
Há fjöll eru við borgina, 5000
feta há og eru vetraríþróttir
mikið stundaðar þar, en skíða-
menn eru fluttir upp á tind-
ana eftir sérstökum loft-
brautum.
Margir íslendingar
í þessari borg eru taldir búa
um 5—6 þúsund manns af ís-
lenzku bergi brotnir. Sumt af
þessu fólki er fætt þarna, en
sumt hefir flutzt með foreldr-
um sínum innan úr landi, og
nokkuð er þar af íslendingum,
sem flutzt hafa þangað á seinni
árum. Alment hafa íslending-
ar staðið sig vel þar og þykja
góðir borgarar. Flestir þeirra
hafa fengizt við alls konar
byggingariðnað, en sá iðnaður
stendur á mjög háu stigi þar,
og þráft fyrir hina miklu að-
flutninga til borgarinnar er
ekkert um húsnæðisvandræði,
og bæði ný og notuð hús til
leigu eða kaups svo hundruð-
um skiptir. Ríkisstjórnin hefir
gert sitt til að mikið sé byggt,
með því að veita öllum lán til
húsbygginga, en veðurfarið á
sinn þátt í að mestan tíma
ársins er hægt að byggja.
Kanadamenn byggja hús
sín með það fyrir augum, að
þau dugi í 50 ár, og venjan er,
að þegar hús eru orðin svo
gömul, þá er brunalið kvatt á
staðinn og kveikt í húsinu.
Síðan er annað hús byggt og
tekur ekki nema 2—3 mánuði.
Þeir segja að v tækninni fari
svo mikið fram, að séu 'hús
orðin meira en 50 ára þá séu
þau orðin úrelt. Miðað er við,
að þessi lán sem ríkið veitir
(eða sér um að fáanleg séu)
greiðist á 20 árum með mán-
aðarlegum afborgunum. Vext-
ir af slíkum lánum eru 6% nú
sem stendur, en hafa oft verið
lægri. Húseigendur greiða
einnig mánaðarlega með ^af-
borgun og vöxtum, 1/12 af á-
ætluðum sköttum af húseign-
um, en húseigendur greiða
með þessum sköttpm raflýs-
ingu á götunum, viðhald og
eftirlit með götunum, vatns-
skatt og ákveðið framlag til
skóla þeirra, sem í hverfun-
um eru. Er þetta fyrirkomu-
lag mjög gott, þar sem ekki
þarf að leggja aukna skatta á
hvern mann, heldur lagt á
húseigendur þau útgjöld, sem
bæjarfélagið verður fyrir
þeirra vegna.
Skólar og skaliar
Skólakerfið er mjög full-
komið, skólar nýir og vandað-
Framhald á bls. 18
CONGRATULATIONS ...
to the lcelandic People on the Occasion
of the 68th Anniversary of their Annual
Celebration Day at Gimli, August 5th,
1957.
TOWN OF
SELKIHK
Congratulations to the Icelandic People