Lögberg - 30.07.1959, Síða 1

Lögberg - 30.07.1959, Síða 1
71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. JÚLl 1959 NÚMER 31 og 32 Hittumst heil að Gimli á Islendingadaginn, 3. ágúst Fjallkona íslendingadagsins FRÚ SIGRÚN STEFANSON, Gimli. Fréttir frá íslandi íslendingum virðist útþráin í blóð borin. Undanfarin ár hafa fjölmargir íslendingar varið sumarleyfum sínum er- lendis. Ef dæma skal eftir fólksflutningum flugfélag- anna íslenzku það, sem af er þessu sumri, hefir útþráin al- drei verið meiri en nú í ár. Geta má og þess, að svo virð- ist sem fleiri erlendir ferða- langar muni sækja heim ey- landið í norðri á þessu sumri en nokkru sinni fyrr. ☆ Eftir íslenzkum blöðum að dæma eru síldveiðihorfur á hafinu umhverfis ísland frem- ur daufar í ár. ☆ Nýlega var vígður í Reykja- vík glæsilegur íþróttaleik- vangur. Erlendir íþrótta- frömuðir hafa látið þá skoðun í ljós, að leikvangur þessi sé að allri gerð og tilhögun hinn fullkomnasti. ☆ Fyrir nokkru fórst sjúkra- flugvél á Snæfellsnesi. Flug- vélin var að koma frá Skaga- firði og var á leið til Reykja- víkur. Með flugvélinni fórust flugmaðurinn, Hilmar Dan- íelsson og öldruð hjón, þau Björg Sveinsdóttir og Jón Guðnason frá Heiði í Sléttu- hlíð í Skagafirði. Annað flug- slys varð og nýlega í Borgar- firði syðra, er tveggja manna flugvél féll þar til jarðar. — Tveir menn voru með flugvél- LYNNETTE EINARSON Hirðmey Foreldrar hennar eru Mr. og Mrs. Ingvar Einarson, Gimli. inni og slösuðust þeir báðir allmikið. ☆ Um miðjan júní háðu Is- lendingar landsleik í knatt- spyrnu við Dani á íþrótta- leikvanginum í Reykjavík. —- Danir unnu þennan leik með fjórum mörkum gegn tveim- ur. ☆ „Tvennt hefir mér þótt einna ánægjulegast um dagana — að kenna góðum nemendum það, sem maður kann, og þýða góða bók“, segir hinn merki skólamaður, Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri Kennaraskólans í blaðavið- tali, sem Morgunblaðið átti við hann á 30 ára skólastjórn- arafmæli hans. Þann 30. júní brann bærinn að Holti í Álftaveri til kaldra kola. ☆ Þann 30. júní lézt á Sauðár- króki í Skagafirði sr. Helgi Konráðsson prófastur Skag- firðinga. Brezkir togarar hafa undan- farið verið að angra vest- firzka sjómenn, sem sækja sjóinn á litlum trillumátum. Hefir þetta gengið svo langt, að legið hefir við slysum. — Mál þetta mun í rannsókn. ☆ Stórblaðið „N e w Y o r k Times“ hefir tekið ákveðna afstöðu með Islendingum í fiskveiðideliu þeirra v i ð Breta. Fyrir skömmu var komizt svo að orði í umgetnu blaði, að þau fáu viðbótartonn af fiski, sem Bretar fái með valdbeitingunni við íslands- strendur, séu ekki þess virði að stofna Atlantshafsbanda- laginu í hættu. ☆ Nýkomin blöð frá íslandi herma, að heyskaparútlitið sé mjög gott um allt landið. ☆ 27 flóttamenn frá Júgó- slavíu hafa fengið landvistar- leyfi á íslandi. DIANE MAGNUSSON Hirðmey Foreldrar hennar eru Mr. og Mrs. Gunnsteinn Magnússon, Gimli. íslendingar taka þétt í skrúðsýningu fyrir drottninguna I sambandi við komu Eliza- aetar drottningar og Philips prinz til Winnipeg á föstudag- inn 24. júlí s.l., var haldin skrúðsýning á grasvellinum fyrir framan þinghúsbygging- una. Tuttugu og fimm þjóðar- brot, sem byggja Manitoba- fylki, tóku þátt í sýningunni, sem haldin var hátíðleg og virðuleg að öllu leyti. Sýn- ingin stóð yfir í hálfa klukku- stund og fréttaritarar dag- blaðanna gerðu mikið úr því, hvað drottningin hefði verið hrifin við athöfn þessa. Hóp- urinn kom í langri skrúð- göngu yfir Broadway götu, fór fram hjá myndastyttu Victoriu drottningar og gekk svo fram fyrir Elizabetu drottningu og Philip prinz, þar sem þau sátu á svölunum fyrir framan þinghúsið. Þrjár til fjórar persónur frá hverju þjóðarbroti voru í skrúðför þessari í þjóðbún- ingum sínum — í flestum til- fellum þrjár — kona, maður og lítil stúlka eða drengur. Maðurinn bar á hárri stöng merki síns lands, en það var aðeins táknrænt merki, sem gaf til kynna einkenni lands, t. d. bar maðurinn í gríska flokknum stóran klasa af þrúgum, en Svisslendingurinn Framhald á bls. 7 DR. THORVALDUR JOHNSON, F.R.S.C. mælir fyrir minni Canada. PRÓF. HARALDUR BESSASON, forseti fslendingadagsins á Gimli, 3. ágúst. HON. J. T. THORSON, forseti fjármálaréttarins í Canada, flytur ræðu fyrir minni íslands.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.