Kirkjublaðið - 01.09.1891, Qupperneq 6

Kirkjublaðið - 01.09.1891, Qupperneq 6
38 Söngkver í barnaskólum. ---^—— Ein af nauðsynlegum bókum, sem oss vantar tilfinn- anlega við barnaskóla hjer á landi, er ódýrt sálmakver, er hentugt væri að hafa við bænir á undan eða eptir hinni daglegu kennslu 1 skólunum; því þótt nota megi ýmsa sálma í hinni nýju sálmabók í þessu skyni, þá eru meðal annars þau vandkvæði á, að sú bók er eðlilega stærri og dýrari en svo, að ætlazt megi til, að hvert skólabarn eigi og hafx hana. Enda mun enn vanta mikið á, að hún sje til á hverju heimili á landinu, sem þó æski- legt væri. En ódýrt sálmakver, sem kostaði kringum hálfa krónu, ætti eigi að vera ofætlun að flestöll skóla- börn gætu eignazt. Til þess að reyna aðbæta úrþessari þörf, vil jegþví leyfa mjer, þar sem aðrir enn eigi hafa hreift því, svo kunn- ugt sje, að mælast til þess, að skáld vor og aðrir, sem kynnu að vera þess umkomnir, vildu góðfúslega styðja að þvi, að kostur yrði á slíku kveri, sem hjer er um að ræða, með því að leggja til nokkra stutta, ljósa og hjartnæma sálma, helst eigi lengri en 2—4 vers, er hafa mætti við bænagjörð í barnaskólum, og sem sjerstaklega væru við barnanna hæfi, lagaðir eptir þekking þeirra og skilnings- þroska. í fullu trausti þess, að þessi tilmæli mín fái góðar undirtektir og beri árangur, vil jeg taka fram, að jeg er fús til þess að takast á hendur útgáfu á slíku kveri, sem auk þess, að það ætti að geta verið til ljettis við söng- kennsluna, mundi vekja og glæða góðar tílfinningar í hjörtum hinna ungu. Jeg vonast til þess, að Jónas Helgason, organisti við dómkirkjuna, sem öðrum fremur hefur þekkingu ogreynslu í slíkum efnum, muni rita í blaði þessu nokkrar bending- ar til leiðbeiningar um það, hvaða sálmalög mundu vera bezt til fallin i kveri þessu, 'og eins að hann að öðru leyti muudi taka þátt í því með mjer að annast um út- gáfuna.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.