Kirkjublaðið - 24.12.1891, Blaðsíða 9

Kirkjublaðið - 24.12.1891, Blaðsíða 9
105 „Sko minn fót sko minn fót sko minn gráa dingulfót,“ 011 börnin urðu dauðhrædd nema yngsta barnið; það var milli vita og kunni því ekki að hræðast eins og hin börnin. Það kallaði út í gluggann og sagði, »Ert þú Jesús Kristur, sem fæddist í nótt«. Þá þagnaði þessi voðarödd á augabragði, og bar eigi á henni framar. Hafði þetta verið einhver ill vættur, sem vildi taka börnin, en þoldi eigi að heyra nafn Jesú nefnt. Ef allt fer vel og siðsamlega fram á jólunum, þarf eigi að óttast, að illar vættir geti gjört mein. Það er því eigi að undra, þótt allir hlakki til jólanna, — eigi að undra, þótt börnin segi þegar jólin nálgast: »Kátt er á jólunum, koma þau senn,« þvi að þá er meira um dýrðir, en á nokkurri annari hátið. Það sem þó sjer- staklega einkennir jólin, er hreinleikinn á öllu, og hinn mikli ljósafjöldi; því eru jólin stundum kölluð »hin milda ljóshátíð«. Birtan af hinum mörgu ljósum verður svo einkennilega fögur og dýrðleg á jólanóttina, einmitt af þvi, að náttmyrkrið er þá svo svart, því að þá er sá tími ársins, að nóttin er allra lengst og dimmust. Þessi mikla ljósadýrð í náttmyrkrinu minnir þá ósjálfrátt á ljósið, sem skin í myrkrinu, — Ijósið, sem skín í rayrkri heimsins við komu frelsarans. Hversu allt er ljósum lýst á jólunum, og hversu allt sem þá mætir auganu, er þvegið og hreint, minnir ósjálfrátt á það, að í hjarta mannsins á allt að vera bjart og hreint, svo að frelsar- inn geti einnig fæðst þar, og þar verði dýrðleg og gleði- leg' jól. SÆM. EYJÓLFSSON. A jólanótt. Á þessari standu vor fögnuður frjáls aí frelsiuu sprottin er sanna. Vjer minnumst á fæðingu frelsarans sjálfs, er friðinn gaf kyninu manna.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.