Kirkjublaðið - 01.11.1892, Page 13

Kirkjublaðið - 01.11.1892, Page 13
205 er fengið, þá verða þær uppbyggilegar, enda þótt þær sjeu ekki neitt framúrskarandi »lærðar« eða djúphugsað- ar. Þær verða þá lifandi orð í hjörtum safnaðarins, og það er það, sem á ríður. Takist prestinum ekki að ávinna sjer elsku og traust sóknarbarna sinna með því, að vera í samvinnu með þeim, þá er mjög hætt við, að þeim hinum sama takist það ekki betur með því, að vera einangraður frá þeim, nema að eins í embættisverkunum, sem hann gjörir meðal þeirra. Þess meir sem prestur er laus við alla samvinnu með sóknarbörnum sínum í daglega lífinu, þess hættara er við, áð ræður hans — hversu góðar sem þær eru — verði í eyrum þeirra eins og »hljómandi tnálmur og hvellandi bjalla«. Þegar rætt er um þetta mál, ríður á að gefa þessari hlið þess alvarlegan gaum. Br. J. B æ n. Þú Drottinn Guð, sem græðir sár, sem grafast dýpst i hjörtu, þú sem öll þerrar tregatár með trúarljósi björtu; mig láttu aldrei einan hjer, nje umsjón svipt mig þinni, og lát mig ætíð lifa þjer, svo líkn og náð jeg finni. Þitt orð mjer veri vega ljós, að villist jeg ei frá þjer, svo aldrei vilji’ eg öðlast hrós, sem ei hef’r gildi hjá þjer. Ó, lát mjer orð þitt skína skært, þótt skyggi’ í sálu minni, svo þar jeg fái list þá lært • að lifa í speki þinni. í heimi eru hrælog tíð,

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.