Kirkjublaðið - 01.04.1893, Blaðsíða 10

Kirkjublaðið - 01.04.1893, Blaðsíða 10
74 Iíjer heflr sjera V. B. gleymt orðunum: »svo mjög«, en það heflr eigi minnstu þýðingu fyrir röksemdafærslu hans, og má eins kenna mjer um það, því að jeg hefði skotið orðunum inn í tilvitnunina, hefði jegathugað þágleymsku við prófarkalesturinn, Um þessi orð leikm. athugar sjera V. B. að þau sjeu sönn, eins og þau hljóða; en skyldi það liggja í þeim, að prjedikunin ætti að yfirgefa grund- völl heilagrar ritningar, og halda sjer að eins við opin- berun ö-uðs í náttúrunni, þá segir hann síðasti grein sinni: »burt með slíka skoðun«. Sjera V.B.segir aðeins »skyldi«, og leikm.átti kost á að skýra þessiorðsín í Kbl. og gjörði það líka í næsta tölublaði. Hvernig Fjallk.höf. getur þá komið með annað eins og það, að »orð sjera V. B. verði að álitast töluð í fólsku», og að hann viðhafi »hvatskeytleg þótta- orð«, er mjer hreinasta ráðgáta, og þetta »kaldranalega« og hrokafulla svar« allra siðast í grein sjera V. B. er að orðfærinutilbara tekið eptir niðurlaginu á grein leikm. Það er að glíma við skugga að svara þessari »ádrepu« til sjera V. B., hún er svo undarlega fjarri öllum sanni. Viljinn leynir gjer eigi hjá höf., að vekja hjá alþýðu kala til prestanna, og koma inn hjá henni þeirri ramm- skökku skoðun, að þeir unni henni eigi orðfrelsis í kirkju- málum. Hvortveggja mistekst gjörsamlega. Síðari hluti Fjallk.greinarinnar er ádrepa til sjera Sigurðar Stefánssonar í Vigur. í «Þjóðviljanum unga« var snemrna í vetur þýdd grein eptir Björnstjerne Björn son um trúarbragðakennslu, og reit sjera Sigurður i mót þeirri grein og þess geldur hann nú hjá Fjallk.höf. Það er reyndar hálfbroslegt að vera að bera sig upp undan því fyrir hönd íslenzkrar alþýðu, þó að sveitaprest- ur úti á Islandi andmæli þýddri grein eptir heimsskáld- ið Björnstjerne Björnson, en sleppum því. Jeg get skilið í þessum síðari hluta Fjallk.greinar- innar, ekki af því að sjera Sigurður eigi nokkra ádrepu skilið fyrir grein sína í Þjóðviljanum, — hafi hann heið- ur og þökk fyrir hana — heldur vegna þess að hjer er vikið að mikilsvarðandi atriðum, sem hafa vakað fyrir starfsmönnunum við Kirkjubl. frá fyrstu, sem sjálfgefið umtalsefni í blaðinu, þegar tíð og rúm leyfði. Sjera Sig- urður fer þeim orðum um biblíuna:

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.