Kirkjublaðið - 01.04.1893, Síða 14
78
Af þeim Halldórssonum urðu 4 prestar. Sjera Gunnlaug-
ur heitinn erfði ljúfmennsku og ástsældir föður síns, og
bera kunnugir honum gott orð sem presti og fjelagsmanni.
Sjera Gunnlaugur Jón Olafur Halldórsson er fæddur að Glaum-
bæ í Skagafirði 3. okt. 1848, stúdent 1870, kandidat 1872,
vígður sama ár aðstoðarþrestur til föður síns, fjekk Skeggjastaði
1874 og Breiðabólsstað í Vesturhópi 1883. Sjera Gunnlaugur var
tvíkvæntur, fyrri lcona hans, Margrjet Andrea Knudsen, andaðist
1880, seinni kona hans, Halldóra Vigfúsdóttir, frá Arnheiðarstöð-
um, lifir hann.
Kristin fornrit nýfundin.
Grafirnar á Egyptalandi virðast enn geyma óþrotlega
fjársjóði fornra bókmennta, því fyrir 6 árum fundu franskir
vísindamenn hjá þorpinu Akhmim á Suður-Epyptalandi
mjög svo merkilegt handrit, sem út hefir verið gefið í
vetur. Múnkslíkami lá í gröfinni, og hjá líkinu lá auk
pappírshandrits, sem skráð var á tölvísi, skinnbók meö
33 blöðum, rituð á grísku. A fremstu síðu skinnbókarinn-
ar var krossmark með koptisku lagi og stafirnir A og 0
(sbr. Opinber.b. 22, 13). Rithöndin er frá 8.—12. öld.
Mestur hluti þessarar skinnbókar hefir að geyma hina
svo nefndu »Opinberunarbók Enoks«, sem telst til
hinna apokrýfisku bóka Gyðinga og mikils var metin í
fornkirkjunni (Júdasar brjet 7. v.). Af riti þessu var eigi
til annað til en etíópísk þýðing og þykir því mikið varið
1 það, að fá frumtextann, en miklu meira þykir þó vert
um hitt, sem var á skinnbókinni. Það eru brot af guð-
spjalli og opinberunarbók frá 2. öld kristninnar, og full-
ar líkur eru leiddar að því, að það sje hið svonefnda
Ijetursguðspja11 og Opinberunarbók Pjeturs, sem getið er
um hjá förnkristnum höfundum í kring um 200.
Það er einkar fróðlegt að bera saman þessi apokrý-
físku rit við guðspjöll vor og Opinberunarbókina, sem
fornkirkjan viðurkenndi, sem postulleg rit, og,4mun það
gjört hjer í blaðinu jatnskjótt og rúmið leyfir.
Guðspjallsbrotið byrjar þar sem Píiatus hefir þvegið
hendur sinar, og segir frá pínunni og upprisunni, en er
þó endasleppt. Brotið er eigi stærra en svo, að Kbl.
getur flutt það í heilu lagi.