Kirkjublaðið - 01.08.1893, Side 15

Kirkjublaðið - 01.08.1893, Side 15
143 Urður Stef'ánssoíi og þrestaskólakennararnir Eiríkur Briem og Þór- liallur Bjarnarson. í fundarbyrjun var það samþykkt eptir tillögu sjera Ólafs frá Arnarbæli, ab samkoman yrbi framvegis haldin fyrir opnum dyrum. Styrktarfjenu 3G8L kr. 40 var skipt milli 7 uppgjafapresta og 60 prestaekkna. Biskup skýrði frá hag prestaekknasjóðsins, sjóður vib árslok 19293 kr. 50 a. Sjóöurinn útbýtir 500 kr. á ári og leggur upp f'ramt að því jafnmikið. Arstillög og gjaíir voru árið sem ieið 235 kr. Biskup skýrði frá gjörðum handbókarnefndarinnar; eins og við mátti búast hafði neíndin eigi enn þá lokið starfi síuu. Síðan voru rædd fnimvörpin um kirkjur og stjórn hinna andlegu mdla, sem getið er í síðasta tölubl. Vegua þess að enginn tírni var til að ræða þau mál rækilega, slepptu f'undarmenu breyt- ingartillögum. I báðum máiunum var samþykkt svo hijóðandi til- laga: »Synodus lýsir því yíir, að hún sje hlynnt frumvarpinu, að því er snertir aðalefni þess, og leggur því til, að það verði lagt fyrir alþingi í ár«. I síðara málinu var tillagan þó að eins sam- þykkt með litlum atkvæðamun. Aliir voru að vísu samhuga um þá stefnu þess, að kirkjan ein fengi stjórn sinna andlegu rnála, en ýmsum þótti of skammt f'arið í frumvarpinu og í annan stað, sem vonlegt er, talið óhugsanlegt, að ríkið sleppti valdinu, en hjeldi áfram að bera kostnaðinn. Eptir 3 stunda fundarhlje flutti sjera Ólaf'ur f'rá Arnarbæli fyrirlestur um húsvitjanir og lýstu fundarmenn sig samþykka ræðumanni. Erumvarp tit laga um kirlcjugarða úr Skagafjarðarprófastsdæmi var lesið upp, en lítið rætt vegna naumleika tímans, euda var það stílað til alþingis. Kristniboðsmálinu var hreift, en undirtektirnar voru svo dauf- ar, að eigi þótti fært að gjöra neina ályktun í því máli. I tilefni af !>almannatriðnum<i ítrekaði fundurinn í einu hljóði, eptir uppástungu dómkirkjuprestsins, tillögu sína frá 1891, »að synodus beri það traust til alþingis, að það lögleiði eigi neina þá ákvörðun í helgidagalöggjöfinni, sem geti orðið hættuleg fyrir kristilegt siðferði, og þá sjerstaklega að rýuika eigi um opinberar vínveitingar og vínsölu á helgum dögum frá því sem nú er«. Sjera Jens Pálsson hreifði sam.skotum til skólastofnunar kirkju- fjelags Islendinga í Vesturheimi og var samþykkt sú tillaga: »Synodus lýsir yfir því, að hún sje því hlynnt, að leitað sje sam- skota til skólastofnunar hins evangeiiska lúterska kirkjufjelags Islendinga í Vesturheimi, og telur presta landsins sjálf'kjörna flytj- endur þess máls í söf'nuðunumc. Til þess að herða á áskorun þessari gáfu viðstaddir fundar- menn rúmar 70 krónur til skóians. Fundi var slitið um miðnætti.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.