Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 7

Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 7
ÖLDIN. 103 “Það er betra en að alt ríkið eyðilegg- ist,” sagði selaskytta frá Replot með spek- ingssvip. “Sækið þið eldibranda, piltar,” æpti Vörábúi. “Út í Krosshólm !” æpti öll þvagan. 0g óðara þustu allir fram, óðir og og upp- vægir við sín eigin orð, eins og vant er að ganga. Þeir þrifu með sér alla branda, sem þeir fundu í eldhúsinu. Það var mik- ið hús, og héngu þar hörflyksur stórar. Einn veifaði brandi heldur hátt í ölæði sínu og kveykti í hömum ; leið svo ekki á löngu þangað til öll ölstofan stóð í björtu báli. Mannösin sinti því engu, heldur streymdi á stað. “Galdur, tómur galdur!” æptu sumir sem óðir væri. “Flagðið í Krossliólmi skal kenna á því!” æptuaðrir, og allur hinn vitstola múgur hélt á stað með hlaupi beina leið til hins gamla kastala. Umsátin við Krosshólm. Oðara en Emma — því hún var konan við kastalavegginn — liafði skilið ásetning múgsins, flýtti hún sér og hljóp sem fætur toguðu leyniveg aftur til Krosshólms. Máninn skaut silfurbjarma yfir sveitina, og hún sá skýrt hvar Regína stóð með svörtu lokkana við gluggann, leit höfuð hennar út sem skuggi í skugganum inni í dimmu lierberginu. En undir lokkahárinu leiptr- uðu augu, djúp og draumsæl eins og stjörnuskyn á lygnu vatni í næturkyrðinni. Málið dó á vörum Emmu, því liinar mörgu kynjasögur fyltu ímyndun hennar allskon- ar ofsjónum. Var þá ekki þessi unga kona þarna uppi í hinni dimmu gluggatótt ein- hver seiðkona af Suðurlöndum, norn í álög- um, sem harmaði örlög sín, þau er neyddu hana til að eyða sínum sjö fríðleiksárum innan þessara múrveggja, þangað til hún yrði aftur, eins og hún áður var, ílagð og fordæða, hálf kona og liálf höggormur ? Emma stóð eins og otelni lostin urtdir kastalaveggnum. En nær og nær færðist niður og læti hins óða mannfjölda, og bráð- um mátti sjá bjarmann af bröndunum, sem bárust að kastalanum. Þá herti liin hjátrú- arfulla bóndadóttir upp hugann og tók til máls, en ekki hærra en svo, að hin mátti heyra, er við gluggann stóð : “Flýið þér, jungfrú,” sagði liún á sænskatungu, “flýið, því þi'r eruð í bráðum voða, hermennimir koma óðir og uppvægir, segja að þér hafið viljað myrða konunginn, og ætla að heimta líf yðar !” Regína sá hina fólleitu konumynd í tunglskininu, og einnig hennar ímyndun varð óðara uppvæg af öllum þcim sögum, sem hún hafði heyrt um þetta töíraland. Hún liafði nú dvalið tíu mánaða tíma með- al sænskra manna og numið tungumál þeirra svo, að hún skildi það að mestu; þó skildi liún nú ekki í fyrstu orðasambandið en eitt einasta orð var nóg til að vekja alla hennar athygli. “Konunginn”, hafði hún eftir henni. “Hver ert þú, og hvað vilt þú segja mér um hinn mikla Gústaf Aðólf?” “Hikið ekki eitt augnablik, háa jungfrú”, sagði Emma, án þess að gcgna Rcgínu, “þeir eru komriir að portinu og frú Marta með sex varðmönnum getur ekki varið yður móti tveimur hundruðum manna. Flýtið yðar ! Ef þér komist ekki út um dyrnar, skuluð þér hnýta saman rekkju- voðir og dúka og sigið í því niður frá glugganum. Ég skal taka á móti yður”. Nú fór Regína að skilja að hér var hætta á ferðum, en því fór svo fjarri að hún yrði óttaslegin, að það olli henni leynilegrar gleði. Var hún ekki píslar- vætti sinnar heilögu trúar, rekin norður í þetta villuland fyrir ákefð sina að snúa ltyrkjunnar volduga óvini ? Því var, ef til vill, tíminn kominn að dýrðlingarnir unnu henni körónu dýrðarinnar, ef hún keypti hana með lífi sínu. Hvers vegna skyldi hún flýja þá frægð, sem hún lengi hafði lofsungið ? Var það ekki freistar- inn sj'.lfur, scm í konu líki vildi tæla liana

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.