Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 12

Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 12
108 ÖLDIN. ■ En einlægt óx virðing hans lijíi alþýðunni, og gramdist Pílatus rajög af því. Ifann hélt að hann rnundi æsa þjóðina til upp- hlaups og láta kalla sig til konungs. Mút- aði því landstjörinn nokkrum mönnum til þess, að bera falskan vitnisburð á móti Issa, er hann hafði kastað í dýflissu í jörðu niðri og lét þar pinda hann. Reyndi Pílatus þá að fá hann til að segja eitthvað saknæmt, svo hann gæti höfðað mál gegn honum. En Issa þoldi pindingar allar þegjandi. Þegar prestar og spekingar Gyðinga heyrðu þetta, þá fóra þeir til Pílatusar og báðu hann að leysa Issa, svo að hann gæti vcrið á hinni miklu liátíð þeirra er bráðlega átti að verða. En Pílatus neitaði bón þeirra. Þá báðu þeir hann að láta Issa koma fyrir öldungaráðið, svo mál hans yrði rannsakað og hann dæmdur sýkn eða sekur áður en Iiátíðin færi fram. Þetta lofaði Pílatus að gera. Daginn eftir var Issa Ieiddur fyrir ráðið ásamt ræningjum tveimur, svo að hann yrði eigi dæmdur einn. Yar Pílatus þar viðstaddur og sagði við Issa : “Maður, er það satt að þú hafir æst lýðinn upp gegn yflrvöldunum í þeim tilgangi að verða kon- ungur Gyðinga ?” En Issa svaraði : “Menn verða ekki lconungar af þeirri einni ástæðu, að menn óska þess. Þér heflr ver- ið sagt rangt frá, er menn sögðu þér, að ég væri að æsa lýðinn til upphlaups. Ég hefl ætíð prédikað um guð himnanna, sem ég kendi lýðnum að tilbiðja. Ég sagði þeim, að þótt þeir væru ísraelsbörn, þá liefðu þeir tapað hreinleika sínum, og mundi þeim hegnt verða og musteri þeirra niður- brotið, nema þeir snéru aftur til tilbeiðsl. unnar á hinn sanna guð. Veraldlcg yfir- völd ciga að halda uppi reglu í landinu, og liefl ég ætíð hvatt lýðinn til að gleyma því ekki. Eg sagði þeim að lifa á þann hátt, sem ástæður krefðu, að raska ekki friðnum og muna eftír því, að spillingin væri í þeirra eigin hjarta og huga. Ég sagði þeim, að himnakonungurinn hefði refsað þeim og svift þá konungum af þeirra eigin þjóð, og bætti því við, að ef þeir væru ckki ánægðir með kjör sín, þá mundu þeir eklci öðlast himnaríki.” Yoru falsvitnin þá framleidd, og sagði einn þeirra við Issa : “Þú hefir sagt að veraldleg yfirvöld mættu sín ekkert á móti veldi konungs þess, er bráðlega mundi leysa Gyðinga frá ánauð- aroki heiðingjanna.” þá svaraði Issa : “Blessaður sért þú, því að þú hefir talað sannleika. Konungur himnanna er meiri og óendanlcga máttugri cn manna lög, og ríki hans skyggir yflr öll ríki jarðar þess- arar. Tíminn er þegar kominn, er Israel hlýðir vilja guðs og kastar burtu syndum sínum, því að það hefir verið skrifað, að fyrirrennari mundi koma og boða laus-n Israelsþjóðar og sameina alla þjóðina I eina stóra familíu.” Þá sagði Pílatus til dómar- anna : “Hafið þér heyrt þetta ? Issa ját- ar glæp þann, sem hann er sakaður um ; dæmið hann nú eftir lögum yðar og dæmið hann til dauða.” En dómararnir svöruðu: “Vér getum ekki dæmt hann til dauða, því hann talaði að eins um konung himnanna, eins og þér hafið heyrt, en hefir ekkert sagt á móti lögúnum.” Þá kallar Pílatus fram vitnið, sem hann hafði mútað til þess að bera falslcan vitnisburð á móti Issa. Sagði þá maður þessi við Issa : “Er það ekki satt, að þú hafir kallað þig konung Gyðinga, þegar þú sagðir, að konungur himnanna hcfði sent þig til þess, að undir- búa sinn lýð ?” En Issa blessaði hið falska vitni og sagði: “Þú munt miskun hljóta, því að það sem þú sagðir kom ekki frá þínu eigin hjarta.” Síðan sagði Issa til Pílatusar : “Hví lægir þú tign þína með því, að kenna þjónum þínurn að bera falsk- an vitnisburð, þegar það er á þínu valdi, að dæma liinn saklausa sekan ?” Þcgar Pílatus heyrði orð þessi, varð hann óður og skipaði að dæma Issa til dauða, cn hina tvo sýkna. Dómararnir héldu þá fyrst ráð- stefnu og sögðu svo við Pílatus: “Vér getum ekki lagt þann glæp á samvizkur vorar, að dæma hinn saklausa sekan, en

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.