Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 8

Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 8
104 ÖLDIN. til að glata djásni dýrðarinnar ? 0g Re- glna mælti hátt: “Et dixit diabolns, da tc præcipitem ex hoc loco, nam scriptum est; angelis suis mandabit deus, ut te tueantur, re ullo modo lædaris”. * Meðan hún var að mæla þetta, kom máninn fram hjá veggjarbrúninni og skein töfralega á andlit hinnar fögru mevjar,vangar hennar glóðu, og augun brunnu af kynlegum eldi. Emma starði á hana með ógn og undrun, og aftur flaug henni sama í hug, að ekki væri einleikið með annað eins augnaráð og annan eins róm og orðalag. Ilún varð írá sér numin af ótta og skelf- ingu og ílýði sem fætur toguðu burt til bæjarins aftur. Nú þegar heyrði Reglna háreysti niðri I garðinum. Ilinn ölóði mannfjöldi hafði numið staðar við kastalahliðið, sem var iiarðlega lokað, og stóð þar með óldjóðum og heitaðist að láta ekki stein yfir stcini standa af kastalanum,ef galdrakonan væri ekki þegar I stað ofurseld I hendur þeim. En hún frú Marta, sem liafði vaknað við vondan draum, lét sér ekki bilt við vcrða. Ilún liafði á yngri árum sínum reynt ófi'ið og umsát oftar en einu sinni, og vissi ekki síður en vitur borgarvörður, að kastalar falla ekki fyrir stóryrðum einum. Sá sem tímann vinnur, vinnur alt, hugsaði hún; létþví íara að semja um uppgjöf kastalans og beiddist að fá að vita, livað þessir ó- friðarmenn vildi og hverjar salcir væri til. A meðan lét hún leita uppi sex ryðgaðar byssur og selja þær I hendur uppgjafaliðs- mönnum I kastalanum; sex fangaverðirn- ir voru og vopnaðir kylf'um og spjótum, og stúlkunum sjálfum voru fengnar burð- arstongur, sem notaðar höfðu verið I Kylfustríðinu til að leggja með að velli fieiri ' en einn af Flcmings riddurunum. *) Og djöfullinn sagði: Fleig þér hér of- an af, því að skrifað stendur: Guð mun bjóða englum sínum, að þeir beri þig á hönd- um sínum, svo að þú eigi steytir fót þinn við steini. Matth. 4.6. Eftir þenna fyrirbúnað þóttist frú Marta geta boðið óvinunum byrginn og hætt við friðgerðina; gekk hún nú út úr borgar- hliðinu alsköpuð og hóf snjalla ræðu án þess að spara ómjúk orð og einurð fulla: “Þið nautheimsku slæpingar og slóðar!” þann- ig byrjaði húsfreyja mál sitt með fremur mergjuðum orðum, en hæversklegum. “Andskotinn hafi ykkur alla saman með tölu, þið blindfullu svín! Smánist þið burt aftur þegar í stað, annars megið þið eiga það víst, ef ég heiti Marta Úlfsparri, að hann Klólangur skal klóra ykkur til blóðs á baki, þið bansertir drabbarar, erki- dónarnir, ærulausu óreglu- og uppnáms-ó- aldarhundarnir, sem brjótið frið á fólki um miðjar nætur!” Klóalangur var sem sé vöndur all- mikill íiéttaður úr spænskum tágum; lét Marta húsfreyja hann oftast hendi fylgja, enda báru allir íbúar kastalans staka vh*ð • ingu fyrir hans siðakenningum. En hvort lieldur það kom af því, að hinn háværi skari þckkti miður kenningar Klóalangs, cða af hinu, að orð húsfreyju lieyrðust ekki fyrir hávaðanum nema af þeirn, sem næstir stóðu, þá héldu menn áfram um- brotunum og ógnarmálunum svo að furu- viðarhurðin brakaði og svignaði í öllum samskeytum. “Ilingað út mcð galdra- nornina!” æptu hinir óðustu, og sumir voru enda farnir að kasta eklibröndum á borgarhurðina í því skyni að kveikja í kastalanum. Frú Marta hafði tvær luralegar fall- byssur á kastalaveggnum; þær voru frá dögum Gústafs Vasa, og hétu Haukur og Dúfa. Þeirra meinlausa ákvörðun hafði þá fyrir löngu verið elngöngu sú, að svara skipum, sem heilsuðu og svo á stórhátíð- um, svo sem á nafndögum og við brúð- kaup, að votta fögnuð manna og hollustu. Nú lá virkið raunar fyrir utan sjálft lcast- alavígið, sem þá var, en það var hár furu- viðar skíðgarður, settur járnbroddum, og var það því hægra fyrir óvinina sjálfa en

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.