Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 13

Öldin - 01.07.1894, Blaðsíða 13
ÖLDIN. 109 sleppa ínorðíngjunum óhegndum; það er á móti lögum vorum. Gjör þú sem þér sýn ist.” Síðan gengu prestarnir, öldungamir og spekingarnir út, þvoðu hendur sínar í helgu keri og sögðu: “Saklausir crum vér af hlóði þessa réttláta manns.” Eftir skipun landstjórans var nú Issa leiddur á aftökustaðinn með hinum tveim- ur ræningjum, og krossfestur. Allan dag- inn hékk hinn blóðugi líkami Issa á kross- inum og gættu hermennirnir hans; en lýð- urinn stóð í lcring og frændur Issa báðust fyrir og grétu. Þegar.sól settist voru kval- ir hans á enda og hann misti-meðvitundina og sála hans losaðist við líkamann til þess að sameinast aftur guði. En á meðan þetta fór fram iðraðist Pílatus gerða sinna. Hann skipaði að fá frændum Issa í hcndur líkama hans, cn þeir grófu liann nálægt af- tökustaðnum. Mikill íjöldi fólks vitjaði grafarinnar til þess að biðjast þar fyrir, og veinuðu sáran. Landstjórinn varð nú enn liræddur um, að hinn mikii og almenni söknuður mundi leiða til upphlaups, og sendi því flokk hermanna til grafar Issa og tók burtu lík hans og lét grafa það á öðr- um stað þrem náttum seinna. Þegar fólk- ið kom að gryfinni daginn eftir, var hún opin, en líkið liorfið. Þá kom upp kvittur sá, að liinn æðsti dómari hefði sent eiigla sína af himnum ofan til þess, að taka burtu lík hins lielga manns, cr nokkur hluti guð- dómsins hefði búið í rncðan hann lifði á jörðu þessari. Þegar Pílatus heyrði þetta, réði hann sér ekki fyrir reiði, og bannaði hann að nefna Issa á nafn, eða biðja til guðs fyrir lionum. Þeir sem það gerðu, skyldu týna lífi sínu eða seljast í þrældóm. En alt fyrir það hélt lýðurinn áfram að gráta Issa dauðann og halda á lofti tign hans. Voru þá margir pindaðir, líflátnir eða seldir í þrældóm. En lærisveinar Issa fóru af landi burt og boðuðu heiðingjum kcnningar hans. A Tll UG ASEMD. Um handritsfund þann, er getið er um að framaii, hefir svo rnargt verið sagt og ritað um undanfarinn tíma, að oss þótti ekki ótilklýðilegt að birta dálítið fullkomn- ari útdrátt úr þessu handriti, en Islending- ar hafa til þessa átt kost á að sjá. Jafn- framt ber að geta þess, að fræðimönnum þykir mikið vafasamt, að handritið sé alt það sem það sýnist vera. Sjálfsagt er og það, að enginn trúflokkur viðurkennir það í þeirri mynd sem þeir eiga kost á að sjá það nú. Þýðing Notovitch er þannig feng- in, að kennimaður í klaustrinu, er handrit- ið hefir að geyma, las honum f'yrir en hann ritaði eftir á sínu tungumáli (rússnesku). Eæður því að líkum, að þýðingin sé alt annað en bókstafleg, en ekkert nema bók- stafleg þýðing getur fullnægt kröfum manna, hvort lieldur þeir eru kyrkjumenn eða kyrkjumenn ekki. Notovitch gerði sitt ítrasta að fá handritið keypt, en við það var ekki komandi. Þess vegna er ó- þægilegt að fá þá fullkomnu þýðing þess, er heimurinn krefst, enda þó, sem óvíst er, að eigendurnir vildu leyfa þar til kjörnum tungumálafræðingum að handleika það og þýða. Þrátt fyrir að þessi vafi á gildi ritsins er viðurkendur, eru þó til merkir menn, sem nú þegar hafa skýrt þetta handrit sjötta (judspjallið *. Samkvæmt öllum breskum lögum og öllum hérlendum lögum er liver maður sýkn saka þangað til búið er að sanna hann selcan. Á sama hátt vilja þessir menn álíta að þetta handrit sé gildur sannleiki þangað til búið er að sanna það uppspuna, eða skáldskap, eins og væg- ir mótmælcndur þess komast að orði. Orthodox-trúmenn aftur á móti vilja, eins og eðlilegt er, að frönsku laga-ákvæðin gildi, en þau, eins og lcunnugt er, segja *) Fimta guðspjallið nefna ýmsir fræði- menn merkisrit Itenans : “Æfisaga Jesús Krists”.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.