Kvennablaðið - 07.05.1915, Qupperneq 1
KvonnabUðið koit
ar 1 kr. 60 au. inn-
anlands, erlendii 3
kr. [66cent vestan-
hafs) •/• verðiini
borgist fyrfram, en
/• fyrir 16. júli.
Uppiögn ikrifleg
bundin við kra-
mót, ógild nema
komin sé til út-
get. fyrir 1. okt
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
21. ár.
Reykavík, 7. Maí 1915.
M. 3-4.
Gullfoss kominn!
Margir voru orðnir langeygir eftir »skip-
inu okkar«, þótti það nokkuð lengi á
leiðinni, að vera fullan hálfan mánuð milli
íslands og Danmerkur. Og lítið urðu
menn rólegri þótt þeir fréttu að það tefð-
ist svona lengi í Leith. — Þess meiri varð
gleðin, þegar Gullfoss sást loks líða hér
inn fyrir eyjar, hægt og hátíðlega á föstu-
dagsmorguninn 16. apríl í glaða sólskini,
umkringdum af fánaskreyttum bátum, og
boðinn velkominn hátt og i hljóði af þús-
undum karla og kvenna, á öllum aldri.
Blöðin hafa lýst því svo ýtarlega hvern-
ig Reykjavík fagnaði þessu fyrsta íslenzka
millilandaskipi, að óþarft er við það að
bæta. Alt var á flugi og ferð, og bátarnir
gengu allan daginn, troðfullir af fólki fram
og aftur, sem voru að skoða skipið okkar.
Jafnvel smádrengir, 6—7 ára gamlir, þurftu
að fara um borð, til að skoða skipið sitt.
Þeir áttu þar sjálfir hlut að máli. Höfðu
lagt jafnvel heilan 25 króna hlut í fyrir-
tækið og voru nú heldur roggnir.
Stjórn Eimskipafél. bauð blaðamönnum
til morgunverðar út á skipið morguninn
eftir, og skyldu þeir einnig skoða það um
leið. Var Kvbl. svo frægt að verða tekið
með.
Það er með óblandinni ánægju að menn
skoða þetta fyrsta skip okkar. Það er alt
svo vandað og haganlega útbúið. En sér-
staklega bregður mönnum við að skoða
2. farrými, því þar er allramestur munur-
inn frá því, sem við höfum átt að venjast
á dönsku millilandaskipunum. Þar er
ágætur lítill og þægilegur setusalur uppi,
til að reykja í og spjalla saman. Niðri er
góður borðsalur, og sérstakir góðir vel út
búnir svefnklefar þar út frá, handa 3—4
hver, og nægilegt rúm fyrir handtöskur.
1 öllum herbergjunum er vatnspípa með
köldu vatni, rafmagnsljósi o. frv. Sófi og
borð er þar einnig, og það sem best er,
gott loft og góð loftrás inn í herbergin.
Munu margir nota þetta farrými, sem áð-
ur hafa neyðst til að taka sér 1. farrými
hjá því Sameinaða.
í ræðunni, sem form. Eimskipafél. talaði
fyrir blaðamönnum, mintist hann á hinar
miklu vinsældir þessa fyrirtækis og kvað
blaðamennina hafa aðallega hjálpað til
þessara heppilegu undirtekta, sem án þeirra
gætu varla hafa orðið svo almennar.
Auðvitað er það gleðilegt tímanna tákn,
að íslenska alþýðan hefir í þessu máli
tekið höndum saman um þetta framtíðar-
fyrirtæki, án þess að láta það koma við
póltísku flokkadeilurnar, og skilið að hér
var um eitt hið stærsta velferðarmál okk-
ar að ræða. En allra gleðilegustu undir-
tektirnar finst oss þær vera, að konurnar
hafa hér tekið höndum saman við karl-
mennina, nær því ótilkvaddar, og gert
þetta stóra allsherjar mál að sínu eigin
samhygðar- og áhugamáli. Og þær hafa
gert enn þá betur. Þær hafa ekki ein-
ungis gefið þessu fyrirtæki fjárframlög eftir
efnum og ástæðum, heldur hafa þær gefið
því kærleika sinn og innilegustu velfarn-
anar óskir. Þær hafa með sínum lifandi
áhuga og kærleika, vakið sama áhugann
hjá börnum sinum, oft hafa þær tekið
þeirra einustu aura, til að gera þau að
hluthöfum, og í huga barnsins eru þá
þessi skip þeirra eigin skip, sem þeim er
áhugamál að farnist sem bezt.
Á þenna hátt skapa íslensku konurnar
lifvörð af börnum sínum um þetta fyrir-